Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Page 16
16
DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Magnús St. Magnússon pípu-
lagningamaður: Nei, ég var að
kaupa eina útlenda til að gefa en þú
mátt náttúrlega ekki segja hvaða
plata það er. Ég hlusta nú ekki á
þetta garg en mér þætti gaman að
fá eina klassíska.
, mm
Stefanía Jóhannsdóttir hús-
móðir: Bara í gegnum auglýsingar
en er að byrja að skoða núna. Það
hefur engin vakið sérstakan áhuga
minn enn sem komið er. Ég býst ekki
við að plötufyrirtækin fari á hausinn
þó að mikið sé gefið út núna. það
getur alveg eins verið að ég fái plötu
í jólagjöf.
Tvöfalt afnotagjald
Ónafngreindur skrifar:
Að gefnu tilefni vil ég koma þeirri
ábendingu til sjónvarpsnotenda að
þeir geymi kvittanir vegna
greiddra afnotagjalda. Bæði ég og
dóttir mín höfum orðið fyrir því að
rukkuð tvisvar og í síðara
vera
skiptið af lögfræðingi sem hótar
lögtaki verði ekki staðið í skilum.
Sem betur fer höfum við átt kvitt-
anirnar en ég hef heyrt um þá sem
þurft hafa að borga aftur vegna
þess að kvittunin fannst ekki.
Ég fór niður á innheimtudeild
sjónvarpsins til að forvitnast um
hvernig á þessu stæði og vildi fá
að sjá frumritin af kvittununum,
en þær fundust þá hvergi. Og ekki
nóg með það: Sjónvarpið segist
enga ábyrgð bera á innheimtu-
manninum, en viðurkennir þó að
hann sé á þess vegum. Hann skilar
ekki af sér peningunum fyrr en eftir
marga mánuði þegar þeir sem ekki
hafa verið svo forsjálir að geyma
kvittanimar eru búnir að greiða
tvöfalt afnotagjald til að komast
hjá lögtaki.
Brýtur Landhelgisgæzlan lög?
Einar örn Thorlacius skrifar:
Þátturinn ,,Sandkorn“ er eitt af því
sem ég les alltaf í DV og oft mér til
skemmtunar. Þann 26. nóvember sl.
fipaðist þó Jóhönnu S. Sigþórsdóttur
nokkuð þegar hún fordæmdi það
athæfi Landhelgisgæzlunnar að
merkja búk nýju þyrlunnar með
„Landhelgisgæzlan“. Bókstafur-
inn z fer þarna mjög í taugarnar á
Jóhönnu og skal ég ekki deila við
hana um það; Stafsetning er nú bara
formsatriði og mega menn hafa
hvaða álit sem er á z eða öðrum
bókstöfum fyrir mér.
En Jóhanna gengur lengra. Hún
ásakar Landhelgisgæzluna a.m.k.
tvisvar fyrir lögbrot og fullyrðir að
z hafi verið „afnumin með lögum úr
íslensku ritmáli". Hver skyldi nú
sannleikurinn vera í þessu máli?
Einungis einar opinberar reglur
gilda um stafsetningu á íslandi. Það
er „Auglýsing um íslenska stafsetn-
ingu“, nr. 132, frá 3. maí 1974, gefin
út af menntamálaráðuneytinu og
undirrituð af Magnúsi Torfa Ólafs-
syni, þáverandi menntamálaráð-
herra (ásamt smábreytingu frá 1977).
Hver skyldi nú vera munurinn á
lögum frá Alþingi annars vegar og
auglýsingu frá ráðuneyti hins vegar?
Jú, lög eru samþykkt af meirihluta
Alþingis og undirrituð af forseta
íslands ásamt hlutaðeigandi ráð-
herra. Auglýsing ráðuneytis er hins
vegar útgefin af hlutaðeigandi ráð-
herra einum, tíðast til nánari út-
færslu á einhverjum Iögum, og er þá
laganna getið í lok auglýsingarinnar
sem heimildar. Þess má geta að ef
auglýsing stangast á við lög víkur
auglýsingin að sjálfsögðu alltaf fyrir
lögunum.
Þar sem engin lög gilda um ís-
lenzka stafsetningu gátu höfundar
fyrrnefndrar auglýsingar ekki vísað
til neinna laga sem stúðnings, enda
reyna þeir ekki að gera það. Ef at-
huguð epu lög um Stjórnarráð ís-
lands má sjá þar tilgreind nákvæm-
lega verkefni menntamálaráðuneyt-
is, þ.e. a) Kennsla og skóli, b) Vís-
indastarfsemi, fræðistörf og rann-
sóknastofnanir, c) Söfn og d) Listir.
Samkvæmt þessari upptalningu má
telja útilokað að menntamálaráðu-
neytið geti sett almennar reglur um
stafsetningu án lagaheimildar heldur
í mesta lagi vinnureglur fyrir menn
innan ráðuneytisins eða nátengda
því.
Þegar lesin er 1. gr. títtnefndrar
auglýsingar kemur í ljós að höfundar
hennar virðast vera algjörlega sam-
mála ofangreindum viðhorfum. 1. gr.
hljóðar nefnilega þannig:
„Eftirfarandi reglur skulu gilda um
stafsetningarkennslu í skólum, um
kennslubækur útgefnar eða styrktar
af ríkisfé, svo og um embættisgögn,
sem út eru gefin.“ Síðan tekur við
kafli sem fjallar um afnám z.
Orðin „svo og um embættisgögn,
sem út eru gefin" hljóta einungis að
eiga við gögn menntamálaráðuneyt-
isins því furðulegt væri ef mennta-
málaráðuneytið færi að hlutast til
um stafsetningarreglur annarra
ráðuneyta, hvað þá allra lands-
manna, án lagaheimildar.
Sannleikurinn samkvæmt ofan-
greindu er sá að á íslandi gilda engar
almennar, opinberar reglur um staf-
setningu og kann það að koma
sumum á óvart. Menntamálaráðu-
neytið hefur eitt ráðuneyta sett sér
ákveðnar vinnureglur og birt þær í
Stjórnartíðindum í formi auglýsing-
ar, væntanlega til kynningar og til
eftirbreytni öllum þeim sem kæra sig
um.
Það liggur því Ijóst fyrir að for-
stjóri Landhelgisgæzlunnar er í full-
um rétti þegar hann lætur rita z á
þyrlubúkinn. Landhelgisgæzlan
heyrir nefnilega undir dómsmála-
ráðuneytið. Og jafnvel þótt einhver
vildi teygja öll ráðuneytin undir títt-
nefnda auglýsingu myndi það engu
breyta því varla telja menn þyrluna
„útgefið embættisgagn".
Það er líka rétt að benda á það að
auglýsingin mælir alls ekki fyrir um
stafsetningu i öllum bókum útgefn-
um af ríkinu. Nei, einungis
„kennslubækur, útgefnar eða styrkt-
ar af ríkisfé" skyldu þola afnám z
árið 1974.
Ég vona að þetta bréf leiðrétti þá
ótrúlega útbreiddu villu að z hafi
verið afnumin úr íslenzku ritmáli
með valdboði. Til þess að slíkt væri
hægt þyrfti lög frá Alþingi. Menn
geta því skrifað eins og þeim sýnist
á íslandi.
Annars er spaugilegt að Jóhanna
skuli veitast að Landhelgisgæzlunni
í skrifum sínum. í sama blaði og
umræddur Sandkornsþáttur birtist
skrifar Jónas Kristjánsson há-
stemmdan leiðara um fjögurra ára
afmæli DV. Jónas fylgir nefnilega
gömlu z-reglunum til hins ýtrasta!
Hefur þú fylgst með hvað út
er komið af nýjum íslenskum
plötum?
Baldur Birgisson nemi: Nei, nei,
en ég vildi gjarnan fá eins og eina í
jólagjöf. Það verður sjálfsagt gefið
mikið af plötum um jólin enda er
sjálfsagt að styrkja íslenska tónlist.
Elín Sigurðardóttir nemi: Voða
lítið, ég er bara að skoða jólaplötur
núna en sé enga nýja. Það er aldrei
að vita nema ég gefi einhverja af
þessum nýútkomnu í jólagjöf.
Jóhannes Sigfússon nemi: Ég er
nú minna í þeim íslensku, hef jú
heyrt lagið til styrktar Eþíópíu. Mér
finnst það ágætt en þekki ekki plöt-
una. Svo hef ég líka heyrt í íslcnsku
diskógrúppunum með útlendu smel-
lina.
Elín Lára nemi: Já, aðeins. Platan
með Jóhanni Helgasyni er góð, hann
er fyrirtaksmaður. Svo líst mér vel á
Strumpana. Ég hugsa að þetta verði
metár í plötusölu, mjög mikið gefið
í jólagjöf.
Þeir góma lambið mitt, jóla- glaðninginn.
Rammíslenskt lamb
Færeyingur hringdi:
Ég er svo reið að ég gæti orgað. -
og ég ætla bara að gera það. Stundum
gerir maður það sem maður getur.
Ég er nefnilega Færeyingur, kona
sem flutti frá Færeyjum til íslands
íyrir 30 árum. Auðvitað þykir mér
skerpukjöt gott, það þykir öllum
löndum mínum.
Ég er foxill. Þeir henda kjötinu
mínu sem er íslenskt lambakjöt,
verkað í Færeyjum og sent mér fyrir
jólin. Þannig hefur það verið í 27 ár.
En sl. 3 ár hafa þeir hent jólaglaðn-
ingnum mínum, skerptu lambi sem
át í sig kraft á íslenskum öræfum.
Það fær ekki að koma inn í landið
aftur, þó það hafi bara farið til
Færeyja. Ég er snarplega reið. Til
fjandans með þá!
Það gerðist svolítið ferlegt
Einn hneykslaður: mér rosalega óréttlátt þetta með
Ég heiti Kristófer og er 12 ára manninn sem mátti ekki hafa
strákur. Ég hef nú aldrei áður númerið á bílnum. Hann smíðaði
skrifað í blöðin en úr því allir eru það sjálfur. Þetta er algjört rugl;
að því þá ætla ég nú bara að gera ég veit ekki hvað þeir hjá Bifreiða-
það líka. Ég er nefnilega svo eftirlitinu eru að hugsa. Ætli þeir
hneykslaður. viti það kannski ekki sjálfir? Ég
Það var eitt alveg ferlegt sem er ekkert viss um það.
gerðist hér á landi, allavega finnst
Af hverju mátti maðurinn ekki hafa númerið á bílnum? Hann
smíðaði það nú sjálfur.
Spurningin
Ekki að ástæðulausu
Dreifbýlingur hringdi: vænkist, jafnvel mig, eldri konu á
Ágætu landsmenn! Ég er eldri Hellu, langar að fá skerm á þakið
kona á Hellu og get lítið hreyft til að geta náð í erlendar sjón-
mig. Þess vegna langar mig í nafni varpsstöðvar. Dagskrá sjónvarps-
aldraðra að fara þess á leit við ins er svo fjarskalega léleg alveg
sjónvarpið að Derrick verði sýndur með ólíkindum hvað hún getur
klukkan 21.00. verið léleg. Þess vegna er ég nú að
Ég er nú hreint ekkert hissa á kvarta, ég er ekki ein af þeim sem
því að hagur myndbandaleiganna kvarta að ástæðulausu.