Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Side 17
DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985.
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Þar þrífst nú ekki nokkur maður því fnykurinn er fádæma vondur.
w
Oþverri á efstu hæð,
englar undir niðri
Viðskiptavinur Útvegsbankans:
Nú, þegar flett hefur verið ofan af
Hafskipsmálinu og öllum er ljóst
hvílik spilling og óþverri þrífst í
skúmaskotum efstu hæðar Útvegs-
bankans, hlýtur að vera óhjákvæmi-
legt að hreinsa þar til. Enda er fnyk-
urinn svo vondur að engum er líft
þar nema orðinn sé samdauna. Og
ég ætla ekki að gefa mig í jafnóþrifa-
legt verk og þær hreingerningar sem
standa fyrir dyrum.
Hins vegar vil ég benda á það sem
allir viðskiptavinir Útvegsbankans
vita að starfsfólkið þar er með ein-
dæmum elskulegt og gott. Þess vegna
og eiginlega bara þess vegna þætti
mér allnokkur eftirsjá að bankanum.
Já, í rauninni er starfsfólkið slíkir
englar að mér þætti það svartasta
synd ef allt færi til and....
Ógleymanleg skemmtun
Hannes Tómasson skrifar:
Fyrir nokkru fór ég með Starfs-
mannafélagi Olíufélagsins Skelj-
ungs að sjá sýningu Þjóðleikhúss-
ins á leikritinu Með vífið í lúkun-
um. Og það var nú aldeilis stórgóð
sýning, leikararnir voru í einu orði
sagt frábærir. Allir með tölu eiga
þeir skilið mínar bestu þakkir fyrir
skemmtunina.
Einnig vil ég geta þess hve mat-
urinn sem við fengum í Leikhú-
skjallaranum fyrir sýningu var
sérstaklega góður. Það voru nú
engar smáræðis kræsingar! En
þegar ég fór niður í kjallara að
sýningu lokinni var tónlistin í di-
skótekinu einum of hávær fyrir
minn smekk.
Þá langar mig að geta um annað
leikrit sem ég sá um daginn og
hafði mikia unun af en það er
Reykjavíkursögur eftir Ástu Sig-
urðardóttur. Kjallaraleikhúsinu
verður seint fullþakkað fyrir þessa
mögnuðu sýningu.
Mér fannst að vísu býsna kalt í
leikhúsinu og hafði svolitlar
Með vífið í lúkunum var ógleymanleg skemmtun.
áhyggjur af heilsu leikaranna. En
ég fékk heitt og gott kaffi í hléi og
vona að þeir hafi líka fengið sér
sopa.
Dýrindis flík með frönsku mynstri
Kona hringdi:
Ágætu lesendur! Ef einhver getur
hjálpað mér þá eruð það örugglega
þið. Ég er í öngum mínum og hef
verið það um skeið eða allt frá því
ég tapaði kjólnum, þessari líka dýr-
indis flík, með frönsku mynstri, mest
í bláu. Ermarnar eru langar og kögur
um hálsinn. Það hlýtur einhver
ykkar að hafa fundið hann, þessa
líka dýrindis flík. Ég verð alveg
eyðilögð ef þið getið ekki hjálpað
mér.
Þetta var nýr kjóll, sá fínasti sem
ég hef eignast um ævina, og ég hafði
aldrei farið í hann. Hann bara fauk
úr bílnum mínum, eða það held ég.
Við vorum á Vitastíg, nema við höf-
um verið í Skipholti. Ég allavega sat
með nýkeyptan kjólinn í kjöltu
minni þangað til ég þurfti að bregða
mér út í flýti, í svo miklum flýti að
ég skildi dymar eftir opnar, erindið
tók líka engan tíma.
En það var vindur. Já það var
einmitt vindurinn sem tók kjólinn.
Og þar sem ég veit, og allir vita, að
vindurinn notar ekki kjóla, þvi hann
er karl, þá er ég viss um að hann
hefur bara feykt honum eitthvað eins
og hverju öðru drasli - og skilar
honum aldrei. Þess vegna bið ég
ykkur, lesendur góðir, að hafa augun
opin ef þessi dýrindis flík skyldi
verða á vegi ykkar úr eða í vinnu.
Það er jafnvel hugsanlegt að ég borgi
viðkomandi fundarlaun. Þó fer það
náttúrlega allt eftir fjárhag mínum
þegar svo vel vill til að finnandi
finnst. Síminn minn er 71314 en þeir
hjá DV tækju líka á móti kjólnum.
KENWOOD