Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Page 22
22
DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985.
IBM kúluritvélar
Til sölu IBM kúluritvélar sem notaðar hafa verið við
kennslu í Verslunarskóla Íslands. Vélarnar verða til
sýnis og afhendingar dagana 17. og 18. desember,
kl. 9-5. Söluverð kr. 19.500,-
JARÐLEIR
Erum komin með mjög góðan
jarðleir á góðuverði,
tværtegundir, hvítan og rauðan.
Myndabæklingar og bækur.
Komið og lítið inn.
Rauðarárstíg 16 105 Reykjavik Sími 2 95 95
DAMASKDUKAEFNI
55% bómull, 45%viskose, straufrítt.
Litir hvítt, blátt, drapp, tvær munsturteg-
undir, breidd 140 og 170 cm.
Verð kr. 700-925.
Saumum einnig eftir máli.
Silkiunnir dúkar og sérvíettur í gjafaköss-
um.
^annprtiaberslunín €rla
Snorrabraut 44 — pósthólf 5249 Sími 14290.
Póstsendum. Pósthólf 5249.
Þeir sem standa að nýju KONTRA-skrifstofuhúsgögnunum íslensku, sem sjást á myndinni, hreykn-
ir af afkvæmi sínu. F.v. Ágúst Magnússon, framkvæmdastjóri trésmiðju Kaupfélags Árnesinga.
Gunnar Dungal, forstjóri Pennans, og Valdimar Harðarson hönnuður.
íslensk framleiðsla og hönnun:
Rennur saman í eitt
heilsteypt kerfi
„Eins íslenskt og það getur orð-
ið,“ sagði einn af fulltrúum Penn-
ans er nýju KONTRA-skrifstofu-
húsgögnin voru kynnt í gær. Hús-
gögnin eru hönnuð af Vilmundi
Harðarsyni sem hannaði verð-
launastólinn Sóleyju, framleidd af
Kaupfélagi Árnesinga og seld í
Pennanum.
Húsgögnin raðast saman í ein-
ingum á ýmsan máta og hvergi er
notað lím, þannig að hægt er að
breyta og bæta við á auðveldan
máta. Þetta rennur saman í eitt
heilsteypt kerfi. Trompið er þó
tölvuarmurinn. Tölvuborðið er
undir skrifborði, kippt fram við
notkun, og hægt að færa það upp
og niður og til hliðar eftir vild.
Kontra er búið að vera í u.þ.b.
eitt ár í virkum undirbúningi.
Kaupfélagið fékk Vilmund til að
hanna húsgögn sem hentuðu nú-
tímaskrifstofu. „Þetta er fjárfesting
upp á rúmlega 6 milljónir. Við
höfum fengið dyggan íjárstuðning,
bæði frá Iðnlánasjóði og viðskipta-
bönkum kaupfélagsins,“ sagði
Ágúst Magnússon, framkvæmda-
stjóri trésmiðju Kaupfélagsins.
Tölvuarmurinn einstaki. Hægt
er að færa tölvuborðið upp og
niður og til hliðar að vild.
Stefnt er að því að hefja útflutning
á þéssum húsgögnum eftir ca tvö
ár.
Að sögn þessara aðila, sem
standa að KONTRA, á þetta örugg-
lega eftir að verða vinsælt enda vel
að þessu staðið, góð skipulagning
og samvinna og nægilegt fjármagn
til þróunar í hönnun. Sala á Kontra
hófst í gær en afgreiðsla húsgagna
hefst ekki fyrr en 21. jan. á næsta
ári.
MÁ EKKI ENDA EINS OG
NÝJU FÖTIN KEISARANS
„Það hefur verið mjög spennandi
að hanna þetta og mjög gott að
vinna fyrir kaupfélagið. Allar
greiðslur og loforð hafa staðist
100%. Það væri ekki hægt að fram-
kvæma svona framleiðslu á íslandi
nema með fjársterka aðila að baki.
Sambönd mín erlendis eiga eftir að
koma sér vel er farið verður út í
útfluting á Kontra. Þó að þetta sé
íyllilega samkeppnisfært erlendis
mun útflutningur ekki hefjast al-
veg strax. Þetta verður að vera
pottþétt, má ekki enda eins og nýju
fötin keisarans," sagði Valdimar
Harðarson hönnuður.
Að sögn Vilmundar ættu þessi
húsgögn, miðað við gæði, að vera
um 30-40% dýrari en önnur íslensk
húsgögn en eru 5-7% dýrari. - KB
Fíkniefnafræðsla á Hvolsvelli
Frá Halldóri Kristjánssyni,
fréttaritara DV, Skógum, Rang-
árvallasýslu:
Fyrir skömmu stóðu Samband
sunnlenskra kvenfélaga og Héraðs-
sambandið Skarphéðinn lyrir fíkni-
efnafræðslu í Gagnfræðaskólanum á
Hvolsvelli.
Um 90 manns, börn og unglingar,
sóttu fræðslufundinn sem þótti tak-
ast mjög vel. Leiðbeinandanum,
Hannesi Hilmarssyni, tókst á
skemmtilegan hátt að fá fram viðhorf
viðstaddra til fíkniefna, og þá sér í
lagi áfengis.
SMA AUGLÝSING í DV GETUR LEYST VANDANN
Smáauglýsingadeild
EunocAnD
- sími 27022.