Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Qupperneq 26
26 DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985.
— V-Þjóðverjar, Danir og Skotar saman í riðli en dregið var í gærkvöldi. Belgar og Frakkar heppnir með mótherja
„Þetta er viðkvæm stund. Fyrir
aðeins tveimur mánuðum var ég hér
í þessari borg til að bjóða aðstoð
vegna jarðskjálftanna,“ sagði forseti
Alþjóða knattspyrnusambandsins
(FIFA) er dregið var í riðla fyrir
heimsmeistarakeppnina í knatt-
spyrnu sem fram fer í Mexíkó í
sumar.
Opnunarleikur keppninnar verður
viðureign heimsmeistara ítala við Búlg-
ari á Astek-leikvanginum þann 31. maí
en keppni í riðlunum stendur til 13. júní.
Úrslitaleikur mótsins er síðan fyrir-
hugaður 29. sama mánaðar. Það var
fimn ára gutti, sonur eins af fram-
kvæmdaaðilum keppninnar, sem sá um
að draga í riðlana í gærkvöldi. Dregið
var í sjónvarpssal í Mexíkóborg. En
snúum okkur að riðlunum. Lið númer
eitt og tvö og númer þrjú og fjögur í
hverjum riðJi munu leika innbyrðis í
fyrstu umferðunum.
Riðilll
1. ítalía
2. Búlgaría
3. Argentína
4.S-Kórea
„Opnunarleikurinn erfiðastur“
„Erfiðasti leikur ítala í keppninni
verður opnunarleikurinn gegn
Búlgurum. Það er ávallt fyrsti leik-
urinn sem sker úr um hvernig fram-
haldið verður hjá okkur,“sagði Enzo
Bearzot, þjálfari Itala.
Riðill 2
5-Mexíkó
6. Belgía
7. Paraguay
8. írak
„Gott að leika við Mexíkó fyrst“
„Mér list vel ú dráttinn. Það er
gott að leika við Mexíkó fyrst,“ sagði
Frankie Vercauteren, leikmaður
með Anderlecht og belgíska landslið-
inu, eftir að Belgar höfðu dottið í
lukkupottinn. Mexíkanar verða án
efa skæðustu keppinautar þeirra í
riðlinum en ekki má þó gleyma góð-
um árangri Paraguay í síðustu
heimsmeistarakeppni. Þess má geta
að Belgar hafa sent marga lækna til
Mexíkó að skoða aðstæður og þeir
telja að úthald leikmanna í þunna
loftinu verði mest í fyrsta leiknum,
fari síðan þverrandi eftir það og því
eru Belgarnir mjög ánægðir með að
fá gestgjafana í byrjun.
Riðill 3
9.Frakkland
lO.Kanada
ll.Sovétríkin
12.Ungverjaland
Eyrópumeistararnir ánægðir
„Ég er mjög ánægður. Okkar helstu
keppinautar í riðlinum verða Sovét-
menn, sem eru í mikilli sókn, og hið
unga lið Ungverjalands,“ sagði
Franz Beckenbauer: Ánægður
með allt nema mótherja V-Þjóð-
veija.
Henry Michel, þjálfari Frakka, sem
eru núverandi Evrópumeistarar.
Platini, fyrirliði þeirra, sem leikur
með ítalska liðinu Juventus, sagði:
„Þetta er góður dráttur. Við erum
miklu heppnari en Italía sem fær
erfiða andstæðinga. Markvörður
liðsins, Joel Bats, er leikur með
Paris-Saint Germain, tók í sama
streng. „Frakkland gæti átt í erfið-
leikum með Sovétríkin og Kanada
ef við værum að leika í ísknattleik."
„Ég held að Frakkar muni reynast
okkur erfiðastir," sagði Tony Wait-
ers, hinn enski þjálfari Kanada, en
flestir gera þó ekki ráð fyrir því að
möguleikar liðsins séu miklir.
Riðill 4
13.Brasilía
14.Spánn
15. Alsír
16. Norður-írland
Leikið verður í Guadalajara
„Viðureign Davíðs og Golíats"
„Við erum ánægðir með staðinn. Við
vitum að fólk styður okkur í Guad-
alajara. Spánverjar eru vinsælir þar
en það verður erfitt að sigra Brasilíu
og N-íra,“ sagði Jose Luis Roca,
meðlimur í spánska knattspyrnu-
sambandinu.
Billy Bingham, þjálfari íranna,
brosti þegar hann sá dráttinn og
sagði: „Viðureignin við Brasilíu
verður eins og viðureign Davíðs og
Golíats en við eigum möguleika,
sérstaklega ef okkur gengur vel í
fyrri leikjunum.
Riðill 5
17. V-Þýskaland
18. Uruguay
19.Skotland
20. Danmörk
Leikið verður í Mexíkóborg. Riðill-
inn verður leikinn í Queretaro.
„Kunnum á kerfi Þjóðverja“
„Við erum mjög ánægðir með Quer-
etaro. Þetta er fögur borg, fólkið er
vinsamlegt og hjálplegt. Hótelið, sem
við höfum þegar valið, er yndislegt.
Það eina sem ég er ekki ánægður
með eru liðin sem við leikum gegn,“
sagði Franz Beckenbauer, eftir að
ljóst var hvaða lið yrðu í fimmta riðli.
Uruguay er eitt af bestu liðum
S-Ameríku og Skotland og Danmörk
eru á meðal þeirra bestu í Evrópu.
Ég vona bara að heppnin fylgi okk-
ur,“ bætti Beckenbauer við.
„Við þekkjum V-Þjóðverjana. Við
sjáum þá í hverri viku í sjónvarpinu.
Við kunnum á kerfi þeirra og stíl.
Þeir leika kerfisknattspymu," sagði
Sepp Piontek, þjálfari Dana.
„Þetta verður mjög erfitt fyrir
okkur. Þetta er erfiðasti riðillinn en
það ætti þó að minnsta kosti að
tryggja það að við fömm ekki of
sigurvissir til leiks, eins og við höfum
svo oft brennt okkur á,“ sagði Alex
Ferguson, þjálfari Skota.
6 Riðill
21. Pólland
22. Marokkó
23. Portúgal
24. England
Leikið í mesta hitanum en lægst
yfir sjávarmáli
„Ég er mjög ánægður með að hafa
sloppið við fimmta riðilinn. Ég hef
alltaf sagt að riðillinn sem Danmörk
yrði í yrði erfiður,“ sagði Bryan
Robson, þjálfari Englands.
Ég vonaðist þó til þess að þurfa
ekki að leika í Monterrey. Það verð-
ur erfitt að byrja á að leika á láglendi
og þurfa síðan að venjast öðru lofti Monterrey er langlægsti keppnis- ur. Meðalhiti þar í júnímánuði er 33
ef við komumst í milliriðil. staðurinn en hitinn þar er líka mest- gráður. -fros
Bayernleikmennirnir Sören Lerby og Norbert Eder máttu sætta sig við jafntefli í Stuttgart. Hér eiga
í baráttu við Núrnbergleikmanninn Hans Dorfner.
Forskot Bremen
nú fjögur stig
— eftir góðan útisigur á Hannover, 2:4. Markalaust hjá Bayem íStuttgart
„Það var mjög erfitt að leika
hér. Áhrfendur Hannover eru
mjög góðir og það hvatti leik-
menn liðsins sem léku góða
knattspyrnu. Það var því mjög
mikilvægt að hirða bæði stigin,"
sagði Rehakel, þjálfari Werder
Bremen, eftir að liðið hafði unnið
Hannover, 2-4-, og styrkt þannig
stöðu sína á toppi Bundesligunn-
ar. Forysta liðsins er nú fjögur
stig.
Það voru leikmenn Hannover sem
voru mun atkvæðameiri í fyrri hálf-
leiknum. Hefðu með réttu getað
verið með þriggja til fjögurra marka
forystu en hálfleikstölur voru 2-1,
heimamönnum í hag. Það var Gue
sem náði forystunni fyrir heimamenn
en austurríski landsliðsfyrirliðinn
Bruno Pezzey jafnaði metin fyrir
meistaraefnin. Júgóslavinn
Vjefrovic skoraði annað mark
Hannover fyrir hlé. Werder Bremen
lék mun betur í síðari hálfeik og
jöfnunarmarkið kom á 70. mínútu
og var Votava þar að verki. Manfred
Burgsmúller skoraði síðan þriðja
markið með skalla og Oerdenevic
það Jfjórða. Fjörutíu þúsund manns
sáu leikinn.
Stuttgart var allan tímann betri
aðilinn í leiknum við Bayem sem nú
er í öðru sæti. Fyrirliði Bæjara,
Klmifi Auo-nntbaler. hefur varla
skemmtilegar minningar frá þessum
leik því áhorfendurnir í Stuttgart
púuðu hraustlega í hvert einasta
sinn er hann fékk boltann. Heima-
menn fengu nokkur góð marktæki-
færi til að gera út um leikinn. Júrgen
Klinsman mistókst að senda boltann
framhjá besta manni Bayem, Au-
mann markverði, úr vítaspyrnu. Þá
vildu margir meina að Allgöver hefði
skorað löglegt mark með skalla en
dómarinn taldi að boltinn hefði ekki
farið yfir marklínuna. Markverðimir
Roleder og Aumann voru bestu menn
vallarins. Aðrir leikmenn, er fengu
sæmilegar einkunnir í blöðunum,
voru þeir Karl Heinz Förster hjá
Stuttgart og Sören Lerby í liði Bay-
em. Ásgeir Sigurvinsson lék ekki
meðStuttgartaðþessusinni.
„Það hefði verið hægt að slá vallar-
helming HSV,“ sögðu v-þýsku sjón-
varpsmennimir eftir að Hamburger
hafði leikið sér að Borussia Dort-
mund í 3-0 sigri Wolfgang Rolff
skoraði fyrsta markið og Hans
Grúndel sem var besti maður vallar-
ins skoraði annað. Thomas Kroth
bætti því þriðja við. Mörkin hefðu
hæglega getað orðið fleiri en heima-
menn fóru illa með fjölmörg færi.
Bayer Uerdingen náði að vinna
sigur á Mannheim í mjög grófum
leik þar sem tveir leikmanna Uerd-
intren burft.u að vfireefa leikvöllir”
á fyrsta hálftímanum. Matthias
.Herget var borinn af velli á 13.
mínútu eftir að illa hafði verið brotið
á honum og Wolfgang Funkel fór
sömu leið sautján mínútum seinna.
Þrátt fyrir meiðsli þessara tveggja
náði Uerdingen sigrinum með
skallamarki Klinger á 72. mínútu.
Lárus lék ekki með en Atli Eðvalds-
son kom inn á fyrir Herget.
Borussia Mönchengladbach, sem
svo óvænt féll út úr Evrópukeppn-
inni í síðustu viku, náði jafntefli á
útivelli gegn Schalke. Sjálfsmark
Wilfried Hannes færði heimamönn-
um forystuna en Uwe Rahn náði að
jafna. Ólaf Thon skoraði síðan annað
mark Schalke áður en að varamaður-
inn Pinkall náði að jafna metin.
Junghaus markvörður átti slæman
dag hjá Schalke og þýsku blöðin telja
að hann hafi þennan leik á sam-
viskunni. Mistök hans kostuðu
Schalkeliðið bæði mörkin. Annars
urðu úrslit þessi í leikjum helgarinn-
ar:
Hannover-Werder Bremen 2-4
Stuttgart-Bayern Munohen 0-0
Schalke-Bor. Mönchengladb. 2-2
Hamburger-Borussia Dortmund 3-0
Núrnberg-Eintr. Frankfurt 4-1
Fortuna Dússeld.-Bochum 2-1
Bayer Uerd.-Waldhof Mannh. 1-0
Saarbruecken-Bayer Lev. 3-1
Köln-Kaiserslautern 1-1