Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Page 32
32
DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985.
Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir
„Hamramir” kafráku
„naglana” í Birmingham
—West Ham óstöðvandi í 1. deildinni ensku. Manchester United jók forskot sitt í fimm stig.
Liverpool tapaði. Birmingham City til sölu
Mark Hughes skoraði eitt marka Manchester United gegn Aston Villa
á laugardaginn en honum hefur gengið illa að skora upp á síðkastið
og verið meiddur eins og raunar annar hver maður í United-liðinu.
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV í Englandi.
Leikmönnum Manchester Un-
ited tókst um helgina að vinna
stóran sigur á útivelli gegn Aston
Villa á meðan helstu andstæðing-
ar þeirra í Liverpool áttu ekki
möguleika á Highbury gegn Ars-
enal í leik sem sýndur var beint
frá Englandi í sjónvarpinu hér.
Forusta Manchester United er nú
fimm stig og meiðsli hjá meira en
helmingi af leikmönnum liðsins
virðast ekki hafa mikil áhrif enda
nóg til af snjöllum leikmönnum á
Old Trafford.
Gríðarleg harka var í leik Manc-
hester United og Aston ViIIa á laug-
ardag. Sex leikmenn voru bókaðir
og lukkan ein virtist ráða því að tala
meiddra leikmanna hjá United
hækkaði ekki til muna. Fjórum sinn-
um þurfti læknir United að hlaupa
inn á völlinn til að huga að méiðslum
leikmanna sem ekki reyndust alvar-
leg.
Leikmenn United byrjuðu mjög vel
og hreinlega hlupu yfir leikmenn
Villa á fyrstu mínútunum og voru
þeir Gordon Strachan og Frank
Stapleton mjög óheppnir að skora
ekki á upphafsmínútunum. Skot
þeirra fóru rétt framhjá markinu.
Nokkur breyting var gerð á United-
-liðinu frá síðasta leik liðsins og ár
og dagar síðan Atkinson fram-
kvæmdastjóri hefur getað stillt upp
sama liðinu i tveimur leikjum. Nú
er markvörðurinn snjalli, Gary Ba-
STAÐAN
1.DEILD
Manch. Utd. 21 15 4 2 40 12 49
Liverpool 21 13 5 3 45 20 44
West Ham 21 13 5 3 38 19 44
Chelsea 21 12 5 4 34 22 41
Sheff. Wedn. 21 11 5 5 32 30 38
Everton 21 11 4 6 45 27 37
Arsenal 21 10 5 6 24 25 35
Luton 21 9 6 6 35 25 33
Newcastle 21 9 5 7 29 31 32
Nott. Forest 21 9 3 9 33 32 30
Watford 21 8 5 8 37 35 29
Tottenham 20 8 4 8 36 26 28
QPR 21 8 3 10 20 26 27
Southampton 21 6 6 9 27 30 24
Coventry 21 6 6 9 26 31 24
Manch. City 21 5 7 9 24 29 22
Leicester 22 5 7 10 28 40 22
Oxford 22 4 8 10 32 46 20
Aston Villa 21 4 7 10 25 33 19
Birmingham 20 5 2 13 12 29 17
Ipswich 21 4 3 14 17 35 15
West Bromw. 21 1 5 15 16 52 8
2. DEILD
Norwich 21 11 6 4 39 21 39
Portsm. 20 12 3 5 34 16 39
Charlton 20 11 4 5 37 22 37
Barnsley 21 10 5 6 25 17 35
Sheff.Utd. 21 9 7 5 38 26 34
Crystal P. 19 10 4 6 28 22 34
Wim! i'edon 21 9 6 6 23 22 33
Brighton 21 9 4 8 35 30 31
Blacihurn 21 8 7 6 24 26 31
Stol f'. 21 7 8 6 27 26 29
Leec • 21 8 5 8 26 33 29
Oldham 21 8 4 9 33 34 28
Hull 21 6 8 7 33 29 26
Grimsby 21 6 7 8 34 31 25
Sunderland 21 7 4 10 20 31 25
Millwall 20 7 3 10 27 32 24
Bradford 19 7 3 9 21 29 24
Fulham 18 7 2 9 21 24 23
Middlesb. 20 5 6 9 16 25 21
Shrewsb. 20 5 5 10 25 22 20
Huddersf. 21 4 8 9 29 39 20
Carlisle 20 3 3 14 19 47 12
ily, kominn á hinn langa sjúkralista
hjá United og á laugardag lék Chris
Turner sinn fyrsta deildarleik i
markinu. Þá lék hinn ungi Billy
Garton í stöðu bakvarðar og Clayton
Blackmore lék á miðjunni. Og það
var einmitt hann sem skoraði fyrsta
mark leiksins á laugardaginn með
stórglæsilegu skoti úr aukaspyrnu
af 25 metra færi á 19. mínútu leiksins.
Ekki hafði United lengi forustuna
því Steve Hodge jafnaði fyrir Villa á
29. mínútu. Leikmenn Villa efldust
við markið og voru sterkari fram að
leikhléi en í síðari hálfleik var nán-
ast eitt lið á vellinum og þá skoruðu
þeir Gordon Strachan á 67. mínútu
og Mark Hughes á 71. minútu tvö
mörk til viðbótar og sigurinn í ör-
uggri höfn. Fljótlega í siðari hálfleik
var Mark Hughes felldur í vítateig
Villa en dómarinn dæmdi ekkert.
Augljós vítaspyrna sem allir sáu
nema sá svartklæddi. Leikmenn
United urðu æfir og eftir leikinn
sagði Ron Atkinson, stjóri United,
að þessi fáránlegi dómur hefði öðru
fremur haft úrslitaáhrif í þessum
leik. Leikmenn sínir hefðu hreinlega
tryllst af bræði þegar dómarinn
dæmdi ekki vítaspyrnu.
HÖRMUNG HJÁ LIVERPOOL
Á meðan Manchester United var
að vinna góðan sigur á Aston Villa
léku leikmenn Liverpool einn sinn
daprasta leik í langan tíma. Arsenal
var mun betri aðilinn og sigur liðsins
var sanngjam. Arsenal fékk óska-
byrjun er Charlie Nicholas skoraði
mark eftir aðeins fimm mnínútur. 19
ára íri, Niall Quinn, innsiglaði síðan
sigurinn eftir ljót mistök Grobba i
marki Liverpool. Quinn þessi lék
þarna sinn fyrsta leik með aðalliði
Arsenal en hann hefur skorað 16
mörk í jafnmörgum leikjum með
varaliði félagsins. Quinn lék í stað
Tony Woodcock sem er meiddur.
Ekkert lát er á mikilli sigurgöngu
West Ham og á laugardag vann liðið
10. sigurinn í röð. Slakt lið Bírming-
ham var engin hindmn á laugardag
og liðið er nú til sölu í Englandi. Það
var markavélin McAvennie sem
skoraði fyrra mark West Ham og sitt
20. á keppnistímabilinu. Markið
skoraði hann á 36. mínútu. Síðara
markið skoraði Ray Stewart úr víta-
spyrnu eftir að Dickens hafði verið
felldur innan vítateigs. Dickens var
felldur eftir gullfallega sókn West
Ham þar sem knötturinn gekk á milli
Charli Nicholas skoraði á
fyrstu mínútunum gegn Li-
verpool.
níu leikmanna. West Ham æðir upp
töfluna í 1. deild og er nú jafnt Li-
verpool að stigum. En framhaldið hjá
þessu fræga félagi hlýtur að vera
stórt spumingarmerki þegar munst-
ur síðustu keppnistímabila hjá liðinu
eru höfð í huga. Ástandið er alvar-
legt hjá Birmingham þessa dagana
og félagið er nú til sölu. Síðast vann
liðið leik 21. september og liðinu
hefur aðeins áskotnast eitt stig úr
síðustu tíu leikjum og leikmenn liðs-
ins hafa aðeins skorað eitt mark í
síðustu sjö leikjum.
Chelsea vann góðan sigur á heima-
velli sínum á laugardag er Sheffield
Wednesday kom í heimsókn. Loka-
tölur 2-1 og áhorfendur 19.658. Leik-
urinn var nokkuð sögulegur. Mer-
land hjá Sheffield fékk rauða spjald-
ið fyrir gróf brot og Paul Hazard hjá
Sheffield var utan vallar á meðan
saumuð voru sjö spor í höfuð hans.
Þess má geta að alls var 13 leikmönn-
um vikið af leikvelli í ensku deildun-
um fjórum á laugardag. David Spe-
edy skoraði fyrra mark Chelsea og
Nigel Spackman hið síðara. Mar-
wood skoraði fyrir Sheffield, áður en
hann var rekinn í bað, úr vítaspyrnu.
Luther Blisset skoraði sigurmark
Watford gegn Tottenham á 9. mínútu
og leikmönnum Tottenham tókst
ekki að klóra í bakkann. Skotið frá
Blisset fór milli fóta Ray Clemence
í marki Tottenham. Þeir Chris
Waddle og Glenn Hoddle léku ekki
með Tottenham vegna meiðsla.
Everton tapaði óvænt gegn Leic-
ester á heimavelli, 1-2. Kevin Ric-
hardsson skoraði fyrsta mark leiks-
ins fyrir Everton á 26. mínútu en
Gary McAllister jafnaði metin á,59.
mínútu. Sigurmarkið skoraði síðan
Alan Smith á 77. mínútu.
Skondið atvik átti sér stað á laug-
ardag í leik Newcastle og Sout-
hampton. Danny Wallace var rekinn
af leikvelli fyrir tvö gróf brot. En svo
illa vildi til að Wallace átti ekki hlut
að máli í fyrra brotinu heldur Jimmy
Case. Tveir lögregluþjónar á vellin-
um sáu það og ætla að bera vitni
fyrir rétti þar sem áfrýjun Sout-
hampton um leikbann Danny
Wallace verður tekin fyrir. New-
castle sigraði í leiknum, 2-1. Glenn
Roeder skoraði fyrsta markið fyrir
Newcastle en Steve Moran jafnaði.
Peter Beartsley skoraði loks sigur-
markið lo mínútum fyrir leikslok.
Kevin Wilson skoraði sigurmarkið
fyrir Ipswich í leiknum gegn QPR.
Gordon Davies 2, Mark Lillis, Paul
Simpson skoruðu mörkin fyrir
Manchester City en eitt markið var
sjálfsmark. Mark Coventry skoraði
Terry Gibson. Fyrir þennan leik
hafði Manchester City skorað 9 mörk
í það heila á heimavelli sínum á
tímabilinu en á laugardaginn komu
svo allt í einu fimm stykki á einum
og hálfum klukkutíma. Nigel Clough
skoraði sitt 10. mark fyrir Notting-
ham Forest á 30. mínútu gegn Luton
en Niel Webb skoraði síðara markið.
Þetta var fyrsti sigurleikurinn hjá
Forest í sex leikjum.
Leikurinn sem flestir hafa líklega
haft vitlausan á getraunaseðlinum á
laugardag var leikur Oxford og
neðsta liðsins WBA. Öllum á óvart
náði botnliðið jafntefli, 2-2. Imre
Varadi skoraði glæsilegt mark eftir
að hafa fengið 40 metra langa send-
ingu frá Steve Hunt. Og markið
skoraði Varadi víst af 40 metra færi
á 56. mínútu. Hunt skoraði hitt
markið fyrir WBA en fyrir Oxford
skoruðu þeir Aldridge og Jeremy
Charles.
SK.
URSLIT
1. deild
Arsenal-Liverpool 2-0
Aston Villa-Manch.Utd. 1-3
Chelsea-Sheff. Wednesd. 2-1
Everton-Leicester 1-2
Ipswich-QPR 1-0
Manchester City-Coventry 5-1
Newcastle-Southampton 2-1
Nottingham Forest-Luton 2-0
Oxford-West Bromwich2-2
Watford-Tottenham 1-0
West Ham-Birmingham 2-0
2. deild
Barnsley-Charlton 2-1
Blackburn-Sunderland 2-0
Bradford-Charlisle 1-0
Grimsby-Brighton 0-2
Leeds-Fulham 1-0
Middlesborough-Wimbledon 1-0
Millwall-Huddersfield 2-1
Oldham-Norwich 1-3
Portsmouth-Hull 1-1
Sheffield United-Stoke 1-2
3. deild
Bolton-Chesterfield 2-1
Brentford-Bury 1-0
Bristol Rovers-Gillingham 1-0
Lincoln-Cardiff 0-4
Newport-Blackpool 1-1
Plymouth-Darlington 4-2
Reading-Bristol City 1-0
Rotherham-Notts County 1-0
Swansea-York 1-0
Walsall-Bournemouth 4-2
Wolverhamton-Wigan 2-2
4. deild
Burnley-Orient l-l
Chester-Scunthorpe 1-1
Crewe-Exeter 0-1
Hartlepool-Colchester 4-1
Hereford-Tranmere 1-4
Northampton-Port Vale 2-2
Peterborough-Mansfield 4-2
Preston-Aldershot 1-3
Rochdale-Southend Frestað
Stockport-Wrexham 2-0
Swindon-Halifax 3-2
Torquay-Cambridge 1-1