Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Blaðsíða 34
34
DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985.
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Hef opnað lögfræðiskrifstofu að Ármúla 38, 2.
hæð, austurenda.
Pósthólf 8402,128, Reykjavík. Sími 688404
Tryggvi Viggósson hdl.
Raksrcctofan Klapparstíg
Hárgreiðslustnfan
Klapparstíg
Sími12725
Tímapantanir
13010
l
l
l
I
!
_i
Til sölu
SAAB 900 GLI árg. 1983, ekinn 36.000, 4ra cyl.,
beinskiptur, 4ra dyra, 118 hestöfl, 5 gíra, útvarp,
kassetta, vetrardekk, sumardekk, rauður. Verð
540.000. Skipti á ódýrari.
Tíu faðmlög
Jóhann Helgason er einn af mörg-
um gamalreyndum poppurum sem
eru með plötu á jólamarkaðinum í
ár. Jóhann, sem ætíð hefur verið
maður ballöðunnar, er trúr sínum
hugmyndum um tónlist og eru á
Ástin..., en svo nefnist hans nýjasta
plata, eingöngu róleg lög sem ættu
að ylja mönnum um hjartaræturnar.
Jóhann, sem er meðal okkar reynd-
ustu popplistamanna, hefur á löng-
um ferli reynt margt og mikið. Verið
sá söngvari sem tvisvar hefur verið
nokkuð nálægt því að verða þekkt
númer i hinum erfiða poppbransa.
Fyrst með hljómsveitinni Change og
síðan með dúettinum Þú og ég. En
það þarf meira en hæfileikana til að
þola hina hörðu samkeppni úti í
hinum stóra heimi, eins og margoft
hefur komið fram í viðtölum við þá
sem reynt hafa fyrir sér erlendis. Og
satt er það að sum laganna á Ástin
mundu sóma sér vel hjá öllum mestu
hjartaknúsurum í tónlistinni. Slík
eru gæði þeirra.
Jóhann hefur haft þann háttinn á
á Ástin... að hafa alla texta á ensku
og gefur það að sjálfsögðu lögunum
alþjóðlegri blæ, en sviptir þau aftur
á móti nokkru af sérkennum þeirra,
sem sagt að hér eru íslensk lög eftir
íslenskan lagahöfund. En hver lista-
maður hefur sinn stíl og þrátt fyrir
að persónulega sé ég hrifnari af ís-
lenskum textum, þá finnst mér hafa
verið of mikið gert úr þvi í fjölmiðl-
um að skammast yfir þeim poppurum
sem vilja hafa lög sín með enskum
texta.
Svo vikið sé aftur af plötunni þá
eru eins og áður sagði eingöngu róleg
lög sem prýða Ástin... í mesta lagi
er hægt að kalla einstök lög soft
rock. Það hefur að sjálfsögðu sínar
Nýjar
plötur
afmarkanir að platan er öll svo róleg.
Það er ekki laust við að platan sé
langdregin þegar á heildina er litið.
Lögin eru nokkuð misgóð. Þau bestu,
sem að mínu mati eru I Wanna Be
With You, Blueberry Bush, Do You
Still Be In Love og Im Sorry, eru lög
í hæsta gæðaflokki og syngur Jó-
hann þau, eins og reyndar öll lög á
plötunni, afmikilli tilfinningu.
Ástin... er eingöngu fyrir rómant-
isk hjörtu. Aðrir munu hafa lítið
gaman af. Þegar miðað er við hvaða
plötur seljast best í jólaösinni þá á
plata Jóhanns örugglega heima
meðal best seldnu platnanna. - HK.
ÁSTHILDUR CESIL — SOKKABANDSÁRIN
Kraftmiki! kona
Opið
laugardag
kl. 10-19.
BÍLASALAN BUK
Skeifunni 8 Sími 68-64-77.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 12., 19. og 30. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Áusturtúni 4, Bessastaðahreppi, tal. eign Reynis Þórðarsonar, fer
fram eftir kröfu Jóns Þóroddssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn
19. desember 1985 kl. 17.00.
________________________Sýslumaðurinn I Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 36., 39. og 43. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Leirutanga 6, Mosfellshreppí, þingl. eign Arngríms Jóhannssonar
o.fl., fer fram eftir kröfu Jóhannesar Ásgeirssonar hdl„ Guðjóns Ármanns
Jónssonar hdl., Búnaðarbanka Islands og Jóns Ólafssonar hrl. á eigninni
sjálfri fimmtudaginn 19. desembqr 1985 kl. 16.15.
_______Sýslumaðurinn I Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
S'-r-i auglýst var í 36., 39. og 43. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
e-gninni Lækjartúni 13, Mosfellshreppi, þingl. eign Axels Aspelund, fer
fr j' i eftir kröfu Iðnlánasjóðs á eigninni sjálfri fimmtudaginn 19. desember
1985 kl. 15.45.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
serr> auglýst var í 68., 70. og 73. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Breiðvangi 11, 1. hæð B, Hafnarfirði, þingl. eign Haralds Jóns-
sonar o.fl. fer fram eftir kröfu Ólafs Jónssonar hdl. og Veðdeildar Lands-
banka íslands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 19. desember 1985 kl. 14.30.
___Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Ekki get ég ímyndað mér annað
en Ásthildur sé ánægð með Sokka-
bandsárin sín og eflaust eiga fleiri
eftir að gleðjast yfir þessari plötu. í
það minnsta þeir sem hafa gaman
af fjörugu TOkki og róli. ísfirska
söngkonan fer nefnilega á stundum
allgeyst, enda eru í för með henni
röskir piltar sem draga ekki af sér.
Helgi E. Kristjánsson útsetur lög
Ásthildar, ekki á ýkja frumlegan
hátt en ósköp smekklega eins og
hans er vísa. Hann leikur auk þess
á bassa. Aðrir hljóðfæraleikarar eru
Ásgeir Óskarsson, Jon Kjell, Rúnar
Georgsson, Tryggvi Hubner og Þor-
steinn Magnússon. Og viti menn:
Hljóðfæraleikurinn er alveg hnökra-
laus. En með þessa úrvalsspilara í
þjónustu sinni hefði gjarnan mátt
leyfa fleiri rósum að blómstra í út-
setningum því ekki er rödd Ásthildar
slík að hún veki eftirminnileg hug-
hrif.
Hún ræður þó ágætlega við lögin,
sem eru ákaflega jöfn að gæðum,
engar meiriháttar tónsmíðar en bara
nokkuð góð. Það er reyndar áberandi
lítið um kaflaskiptingar, yfirleitt
sama laglína við öll versin og þar sem
útsetningar eru eins og áður sagði
ekki tiltakanlega fjölbreytilegar þá
er þetta allt ósköp einfalt. En þar
með er ekki sagt að lögin séu öll eins.
Fjörugt rokk er aðaluppistaðan,
einnig gefur að heyra rólegar ballöð-
ur, reggí, jass, jive og draugarokk.
Textarnir eru samdir af mikilli til-
finningu en vandvirkni hefði mátt
vera meiri. Ásthildur er greinilega
mikil baráttukona; hún berst fyrir
bættum heimi, gegn stríði, mengun
og eiturlyfjum en umfram allt fyrir
lífi sínu, að geta lifað því lifandi. Og
víst er hún sprelllifandi á þessari
fyrstuplötusinni. - JSÞ