Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Síða 46
46 DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985. Peningamarkaður Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára pg yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningam- ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjömu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 29% og ársávöxtun 29%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 27% en 2% bætast við eftir hverja þijá mánuði án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á'óhreyfðri innstæðu er 33,5% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36% nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. Tvisvar á ári má taka út án þessa frá- dráttar. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og 42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5% vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 36% nafnvöxtum og 34'X, ársávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 22%, eftir 2 mánuði 23,5%, 3 mánuði 25%. 4 mánuði 26,5%, 5 mánuði 28%, eftir 6 mánuði 29,5% og eftir 12 mánuði 34%. Árs- ávöxtun á óhreyfðu innleggi er 36,9%, eða eins og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum reikningum reynist hún betri. Vextir færast tvisvaráári. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- um sé hún betri. Samanburður er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. Öndvegisreikningur er bundinn til 18 mánaðar, verðtryggður og með 7% nafnvöxt- um á binditímanum. Eftir það reiknast sömu vextir og á 3ja mánaða reikning í bankanum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 34,8% eða eins og á .verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast alrnennir spari- sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu'sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svoköiluðum trompvöxtum, 32%, með 34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum. viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðhréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og lOOþúsund krónur. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára en innleysanleg eftir þrjú ár, 10.09.88. Nafnvextir 7%. Vextir, vaxtavextir og verðbætur greiðast með höfúðstól við innlausn. Með vaxtamið- um, skírteini til mest 15 ára, innleysanleg eftir 5 ár, 10.09.90. Vextir eru 6,71% á höfuð- stól og verðbætur, reiknaðir misserislega og greiddir út gegn framvísun vaxtamiða. Verð- bætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta- auka, til 18 mánaða eða 10.03.87. Vextir eru meðaltal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum reikningum bankanna og með 50% álagi. Vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Gengis- tryggð skírteini eru til 5 ára, 10.09.90. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9% vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn- lausn með höfuðstól, í samræmi við stöðu SDR. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð- tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er al- mennt 12-18% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-Ián, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings, annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl- skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund. Lánstími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með' láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóðurákveðursjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns- rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1000 krónur Iiggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig’ 22%. Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22% nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6 mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím- ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45% á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því 1,125%. Vísitölur Lánskjaravísitala í desember 1985 er 1337 stig en var 1301 stig í nóvember. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 4. ársfjórðungi 1985 er 229 stig á grunninum 100 frá janúar 1983 en 3392 stig á grunni 100 frá 1975. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 11 -20.12.1985 INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM SJÁ SÉRLISTA jj il ií ll II íl jlli !l ú INNLÁN ÖVERÐTRYGGÐ SPARISJÓÐSBÆKUR Öhundin innstæða 22.0 22.0 22,0 22.0 22.0 22,0 22,0 22.0 22,0 22.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 25.0 26,6 25.0 25.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0 6 mán.uppsögn 31.0 33.4 30,0 28,0 28,0 30,0 29.0 31.0 28.0 12 mán.uppsögn 32.0 34.6 32.0 31.0 32.0 SPARNAÐUR - LANSRFTTUR Sparað 3 5 mán. 25.0 23.0 23.0 23,0 23.0 25.0 25,0 29.0 26.0 23.0 29.0 28,0 innlAnsskírteini Til6mánaða 28.0 30.0 28.0 28.0 TÉKKAREIKNINGAR Ávisanareikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10,0 Hlaupareikningar 10.0 10,0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0 INNLÁNVERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 6 mán.uppsögn 3.5 3.5 3.5 3,0 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0 INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7,5 7.5 7,5 8.0 Sterlingspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 11,0 11.5 11.5 Vestur-þýsk mörk 5.0 4,5 4,25 4.0 4,5 4,5 4.5 5.0 4,5 Danskar krónur 10.0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10,0 9.0 ÚTLÁN ÖVERÐTRYGGÐ ALMENMR VlXLAR (lorvextir) 30.0 30.0 30,0 30.0 30.0 30.0 30.0 30,0 30.0 VIÐSKIPTAVÍXLAR (forvextir) 34,02) kge 34,0 kge 32.5 kge kge kge 34,0 alivie*;nskuldabréf 32.03) 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32,0 VIÐSKI.'ASKULDABRÉF 35.02) kge 35,0 kge 33.5 kge kge kge 35,0 HLAU 'Á3EIKNINGAR YFIRDRATTUR 31,5 31.5 31,5 31,5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 ÚTLAN VERÐTRYGGÐ SKULCABRÉF Að 21/2 óri 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Lengri en2 1/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 ÚTLÁN TIL FRANILEIÐSLLI sjAnéðanmAlsi) 1) Lán lil innanlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 9,5%, í Bandaríkjadollurum 9,5%, í sterlingspundum 12,75%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%. 2) Við Kaup á viðskiptavíxlum og viðsldptaskuldabréfúm er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í Hafharfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj. 3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum. Verslið þar sem úrvalið er mest og k-jörin best. /A A A A A A a Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 j d ZJ QUOl : c juguaj-j+ l-í l- ci Duaaj-jjh? ■BUMÍÍUIiaiUIUWtil Kiin.: Sími 10600 Sandkorn Sandkorn FIosi Ólafsson kom mikið við sögu í þeim Gæjum og píum sem sýnd voru í Þjóð- leikhúsinu. Gæjar og píur í Lögbirtingablaðinu var á dögunum tilkynning um skráningu á nýju firma sem ber það nýtískulega heiti: Verslunin Gæjar. Tilgang- ur fyrirtækisins er sagður vera smásala á fatnaði. Það vekur athygli að í sama blaði er skráð annað fyrirtæki, Verslunin Píur. Tilgangur þess er einnig smásala á fatnaði. Það er sami aðili sem skráir bæði fyrirtækin. Ekki vitum við ástæðuna fyrir því að þau eru skráð sitt í hvoru lagi en einhver gæti látið sér detta í hug að skráning á þessu þekkta söngleiksheiti hefði ekki fengist með öðru móti en að skrá það í tvennu lagi. Síðbúinn skilnaður Þessi er höfð eftir ónefnd- um presti í Reykjavík: Það var einhverju sinni að gömul kona kom til hans. Kvaðst hún vilja skilja við manninn sinn. Prestur vildi reyna að tala á milli hjónanna, eins og ber að gera í slíkum til- vikum. Hann spurði því gömlu konuna hvort henni þætti ekki nokkuð seint að fara að standa í hjónaskiln- aði, nú þegar hún væri orðið 93ja ára. Sú gamla hélt nú ekki. Nú væri einmitt rétti tíminn til slíkra hluta. „Við urðum nefnilega sammála um það, maðurinn minn og ég,“ sagði hún „að bíða með þetta þar til börnin okkar væru dáin. Auglýst í bamablaði Menn beita öllum brögðum til að verða ofan á í auglýs- ingaflóðinu fyrir jólin. Ekki veitir af því nú skal selja allt sé það til sölu á annað borð. Við höfum það til að mynda fyrir satt að í nýút- komnubamablaði, ABC, sé meðal annars auglýst bókin „Hvernig elska á karl- mann“. í þessu fræðsluriti em að sjálfsögðu hispurs- lausar kynlífslýsingar sem virðast vera í tísku um þessar mundir. Ekki verður séð í einni andrá hvaða erindi slík auglýsing á inn í barnablað. Þó má kannski gera ráð fyrir að mamma lesi ögn í blaðinu fyrir þau minnstu. En svo má líka hafa það i huga að það er Fijálst framtak sem gefur út hvom tveggja, blaðið og bókina. er Þómnn Sigurðardóttir leikstjóri. Við gefum henni orðið: „Ég gleymi því aldrei þegar við Jón, yngri bróðir minn, stálum jólakortum. Ég var svona sjö ára þá. Við vomm niðri í Austur- stræti rétt fyrir jólin og annað hvort okkar fékk þessa fóránlegu hugmynd. Við fórum inn í ritfanga- verslun, sem þá var beint á móti Hressó, og áður en við vissum af vorum við komin út á götuna með þennan lika fína pakka af jólakort- um. Það var einhver spenn- ingur og æsingur sem fékk mig til að gera þetta, ef til vill til þess að komast að raun um hvort þetta tækist án þess að ég yrði gripin. Samviskan sló mig strax ó eftir og ég man að ég ákvað þegar í stað að við skyldum segja mömmu að við hefðum fundið pakkann með kortunum á Miklatún- inu. Skýringin reyndist nógu ótrúleg til þess að ganga í mömmu en þurr og fín jólakort finnast nú varla á Miklatúninu í desemb- ersnjó. Svo sendum við systkinin jólakort til allra ættingja og vina, með hjarans kveðj- um og jólaóskum, og ég man að mér fannst ég hafa framið hroðalegan glæp. Samviskubitið nagaði mig í mörg ár og ég hef ekki sto- lið svo mikið sem einni karamellu síðan.“ Sjólfsagt kannast margir við þá lífsreynslu sem lýst er hér að ofan því flest gerumst við einhvern tíma steliþjófar. Umsjón: JóhannaS. Sigþórsdóttir } nýjustu Viku svara nokkrir þekktir íslending- ar þeirri beinskeyttu spurn- ingu: Hefurðu stolið? Meðal þeirra sem svara Hefurðu stolið? FRÁSPÁNI NÝKOMIN Siðurgyðinga Nú líður óðum að jólum. Flestir eru komnir á kaf í hvers kyns undirbúning sem þykir nauðsynlegur fyrir hátíðina. Sjálfsagt sofnar einhver mamman örþreytt í stólnum sinum eftir jólasteikina á aðfanga- dagskvöld. En það er ný og gömul saga. Eitt fyrsta merkið um að jólin séu að nálgast eru aðventuljósin sem sjó má í öðrum hverjum glugga. Ekki er víst að allir átti sig á því hvað þessir sjö arma stjakar, sem boða okkur aðventuna, tókna raun- verulega. Þeir eru nefni- lega tákn trúar gyðinga og þjóðernis og nefnast í því hlutverki Menorah. Má meðal annars sjá þetta tákn í skjaldarmerki Isra- els. Þórunn Sigurðardóttir, leikstjóri. REYRHÚSGÖGN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.