Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Síða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Síða 47
DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985. 47 Paðfæst margt skemmtilegt í Alafossbúðinni, t.d. stílhrein matar- og kaffistell úr fivítu postulíni frá hinum þekkta framleiðanda hnberg Parna erauk þess aðfinna listilega hönnuð vínglös, hnífapörog ýmsa skrautmuni. /Ilafossbúðin VESTURGOTU 2, SIMI 13404 GJAFAVORUR Guðlaug Björnsdóttir viðskiptafræðinemi á heimili sínu með vinnings- miðann góða. DV-mynd PK „Styttir óskalistann” — segir vinningshafi tveggja milljóna „Þetta styttir óskalistann," sagði Guðlaug Björnsdóttir, vinningshafi í Happdrætti Háskóla íslands, í sam- tali við DV. Guðlaug vann 2 milljónir þegar dregið var sl. þriðjudag í 12. flokki happdrættisins. Guðlaug er á fjórða ári í viðskipta- fræði í Háskólanum. „Ef ég hefði ekki þekkt rödd míns gamla kennara, Jóhannesar L.L. Helgasonar, hjá happdrættinu, þá hefði ég haldið að einhver væri að plata mig,“ sagði Guðlaug um fyrstu viðbrögð þegar henni var tilkynnt um milljónirnar tvær. Guðlaug og maður hennar keyptu gamla íbúð i Tjarnargötu fyrir tveim árum og eru komin vel áleiðis við endurnýjun á húsnæðinu. Vinningshafinn sagði að nú yrði lokið við endurbætur og líklega keypturbíll fyrir heimilisfólkið. Einn milljón króna vinningur kom á miða hjá umboði happdrættisins á Þingeyri. Ungur sjómaður á togaranum Sléttanesi, Jens Andrés Jónsson, á vinningsmiðann. -ÞG Börn og fullorðnir og ferðin tók átta tíma norður. Þau sáu ekki snjó fyrr en þau komu á Holtavörðuheiðina. DV-mynd JGH. MIKIÐ FYRIR HAFT Óku frá Snæfellsnesi til Akureyrar til að sjá leikrit Frá Jóni G. Haukssyni, blaða- manni DV á Akureyri: Óku rakleitt frá Snæfellsnesi til Akureyrar einungis þeirra erinda að sjá leikritið Jólaævintýrið. Það gerði 30 manna hópur frá grunnskóla Staðarsveitar, Lýsuhóli. Lýsuhóll er á sunnanverðu nesinu, skammt frá Snæfellsjökli. „ Við lögðum af stað kl. 8 um morguninn og komum hingað um fjögurleytið." sögðu þessir langt að komnu leikhúsgestir eftir sýninguna. „Ferðin gekk mjög vel norður. Það voru engin snjóævintýri, við sáum ekki snjó fyrr en við komum á Holta- vörðuheiði." Snæfellingarnir gistu yfir blánótt- ina í skólanum á Hrafnagili, sem er rétt utan Akureyrar. Það var mikið á sig lagt til að sjá sýninguna. Þetta var ævintýraferð á Jólaævintýrið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.