Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Blaðsíða 48
48
DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985.
Kristín Vigdís Erlendsdóttir,
Smáratúni 44, Keflavík, lést á
Landakotsspíta’a 9. desember sl.
Hún fæddist á Vesturgötu 7 í Kefla-
vík 23. júlí 1925. Dóttir hjónanna
Oddnýjar Maríu Kristinsdóttur og
Erlendar Jónssonar útgerðarmanns.
Kristín var gift Ragnari Þói’ðarsyni,
fæddum að Ystagili í Langadal, og
eignuðust þau sex börn. Útför Krist-
ínar fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 17. desember kl. 14.
Lilja Lárusdóttir, Gnoðarvogi 62,
lést á öldrunardeild Landspítalans
þann 12. desember.
Steinunn Jónsdóttir, Hliði, Eyrar-
bakka, andaðist á dvalarheimilinu
Kumbaravogi föstudaginn 13. des-
ember.
Jón Sigurðsson, Blöndubakka 3,
lést á heimili sínu 11. desember.
Guðmundur Guðmundsson,
sparisjóðsstjóri, Ölduslóð 40, Hafn-
arfirði, léstað morgni 13. desember.
Ingibjörg Bjarnfreðsdóttir, sem
lést 10. desember, verður jarðsungin
frá Hallgrimskirkju miðvikudaginn
18. desemberkl. 15.
Ásta S. Ólafsdóttir, Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum, lést í sjúkrahúsi
Vestmannaeyja föstudaginn 13. des-
ember.
Ástríður Hannesdóttir, Sóleyjar-
götu 27, verður jarðsungin þriðju-
daginn 17. desember.
Ásrún Jónasdóttir, verður jarðs-
ungin frá nýju Fossvogskapellunni
þriðjudaginn 17. desemberkl. 10.30.
Ragnheiður Ingibjörg Bjarna-
dóttir verður jarðsungin frá Foss-
vogskapellu þriðjudaginn 17. des-
emberkl. 15.
Knut Langedal, Þórsgötu 15, verð-
ur jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
í dag. mánudaginn 16. desember, kl.
i.'l.JO.
Tilkynningar
Flugbjörgunarsveitirnar efna til
landshappdrættis í fyrsta sinn
Landssamband flugbjörgunarsveita
efnir um þessar mundir til lands-
happdrættis til styrktar starfsemi
flugbjörgunarsveita víðs vegar um
landið. Stærsta verkefnið sem safnað
er til er bygging nýs húss undir starf-
semi Flugbjörgunarsveitarinnar í
Reykjavík sem búið hefur við ófull-
nægjandi húsákost um langt árabil.
í landshappdrætti flugbjörgunars-
veitanna eru alls 194 vinningar að
verðmæti um sjö milljónir króna. Þar
af eru þrjár bifreiðar af gerðinni
Toyota Tercel 4WD, þrjár bifreiðar
af gerðinni Toyota Corolla DeLuxe
og þrír Yamaha vélsleðar af gerðinni
XLV sem er tveggja manna vélsleði.
Auk þessara stóru vinninga eru
tölvur, myndbandsupptökuvélar,
myndbandstæki, ferðahljómtæki,
utanlandsferðir og Soda-Stram tæki
meðal vinninga.
Sá háttur verður hafður á i þessu
happdrætti að fyrst verða dregnir út
fimm aukavinningar þann 23. des-
ember en aðrir vinningar verða
dregnirút 17. febrúarnæstkomandi.
Þannig geta fallið tveir vinningar
á sama miðann því vinningsnúmerin
í aukadrættinum 23. desember verða
aftur með í aðaldrættinum 17. febrú-
ar.
Vinningarnir sem dregnir verða út
23. desember eru tvö myndbands-
tæki, tvær myndbandsupptökuvélar
og ein heimilistölva.
Ritfrá fjármálaráðuneytinu
Út er komið ritið Stjórnir, nefndir
og ráð ríkisins fyrir árið 1984. Út-
gefandi er sem fyrr fjármálaráðuney-
tið, fjárlaga- og hagsýslustofnun.
Ritið er selt í Bókabúð Lárusar
Blöndal og kostar 150 kr.
Leiðsögn um landið
Eins og boðað hefur verið í fyrri
fréttatilkynningum frá Leiðsögn um
landið sf. eru nú komnar út á vegum
félagsins leiðsögusnældur um sögu-
slóðir Njálssögu. Snældurnar eru
þrjár, hver u.þ.b. klukkutíma löng.
Eins og fyrri leiðsögusnældur eru
þessar fyrst og fremst ætlaðar til
notkunar í einkabifreiðum, þ.e sem
leiðsögn fyrir einstaklinga og fjöl-
skyldur sem fremur kjósa að ferðast
í eigin bifreið en taka þátt í hópferð
með leiðsögumanni.
Söguslóðir Njálssögu spanna í
höfuðatriðum þrjú byggðarlög, þ.e.
Fljótshlíð, Landeyjar og Rangárvelli.
Áfangaskipting snældanna miðast
við þetta, þ.e. sú fyrsta veitir leiðsögn
um Fljótsblíð, önnur um Landeyjar,
þriðja um Rangárvelli. Aka má
áfangana í þessari röð eða taka
hvern þeirra sem sjálfstæða ferð og
er þá alltaf lagt upp frá Hvolsvelli.
Á snældunum er leitast við að veita
alþýðlega, albliða leiðsögn um þetta
svæði þar sem megináhersla er að
sjálfsögðu lögð á atburði og frásagnir
Njálu. Því eru veittar almennar
upplýsingar um það sem fyrir augu
ber á leiðinni. Nokkuð er minnst á
kveðskap sem tengist Njálu. Lesin
eru nokkur ljóð og kveðnar rímur.
Höfundur leiðsögutexta er Franz
Gíslason en hann er lesinn af Ævari
Kjartanssyni. Heimir Pálsson les
valda kafla úr Njálu, Hugrún Gunn-
BELLA
ástarsorgina vegna
Péturs, ég átti eftir aö
missa eitt kíki.
arsdóttir les ljóð en Margrét Hjálm-
arsdóttir kveður rímur.
Snældunum er komið fyrir í sér-
hannaðri plastöskju með bókarlagi
er svipar til myndbandaöskju. Er
hún bvort tveggja í senn, handhæg
og meðfærileg í ökuferðinni en auk
þess eigulegur og snotur gripur sem
fer vel í bókaskápnum. Það eykur
svo verulega gildi snældanna að
eintak af Njálu fylgir með sem eins
konar kaupbætir. Leiðsögn um
landið sf. gerði samning við bókafor-
lagið Svart á hvítu sem nú er að
gefa út allar íslendingasögur í tveim
bindum um sérútgáfu á Njálu í örs-
máu broti, þannig að bókin passar í
fjórða snælduhólfið í plastöskjunni.
Er ekki kunnugt um að Njála hafi
fyrr verið gefin út í jafnsmáu broti.
Að sjálfsögðu má vel njóta leið-
sögusnældanna og bókarinnar heima
í stofu og raunar er skynsamlegt að
gera hvort tveggja: aka um söguslóð-
irnar og hlýða á leiðsögnina en rifja
síðan sögu- og staðþekkinguna upp
þegar heim kemur.
SMÁAUGLÝSINGAR DV
MARKAÐSTORG
TÆKIFÆRANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö
nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifaeranna.
Markaðstorgið teygir sig víöa. Það er s Jnrianlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sépi flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV
lesið. •
Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaðstorginu,
en um hvaö er samiö.er auövitaö einkamál hvers og
eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn ný-
komnir úr banka? Þarf alls ekkí aö vera. Gætu hafa
keypt straubretti á markaöstofginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru rparkaöur meö mikinn mátt.
Þar er alit sneisafullt af' tækifærum.
Þaö er bará aö grípa þau;
Þú hringir...
Við birtum... Það ber árangur!
Smáauglýsingadeildin er I Þverholti 11.
Opið:
Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
laugardaga, 9.00— 14.00
sunnudaga, 18.00—22.00
ER SMÁAUGLÝSINGABLADID
Frjalst.ohaö dagblaö
ALLT A SAMA STAÐ!
ÞVERHOLTI11.
smáauglýsingar
blaðaafgreiðsla
xitstjóm
skrífstofur
auglýsingar
AUGLÝSENDUR!
Vezið velkomnir i nýja húsið.
Við erum tíl þjónustu reiðubúin.
Þverholtill,
Sími 27022.
27022
Síminn á öllum deildum