Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Side 56
FRÉTTASKOTIÐ
Ritstjóm, auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022
Hafir þú ábendingu'
efla vitneskju um
frétt — hringdu þá í
síma 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greifl-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Vifl tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1 985.
Geirsextugur
ídag
Geir Hallgrimsson utanríkisráð-
herra er sextugur í dag. Hann hefur
gegnt embætti utanríkisráðherra
síðan í maí 83 er ríkisstjórn Stein-
gríms Hermannssonar var mynduð.
Geir Hallgrímsson lauk lögfræði-
prófi frá Háskóla Islands árið 1948
og var síðan við framhaldsnám um
eins árs skeið við Harvard Law
School í Bandaríkjunum.
Hann hefur gegnt mörgum embætt-
um innan Sjálfstæðisflokksins, var
formaður flokksins í tíu ár. Hann var
borgarfulltrúi í Reykjavík í tuttugu
ár og þar af borgarstjóri í þrettán
ár. Hann var forsætisráðherra frá
1974 til 1978.
Geir Hallgrímsson tekur á móti
gestum á Hótel Sögu í dag.
* - ÞG
Kröfumar
kynntar
Fulltrúar verkalýðshreyfingarinn-
ar innan ASI hafa boðað forráða-
menn VSI og Vinnumálasambands-
ins á sinn fund í dag. Þeir ætlað að
gera þessum aðilum grein fyrir hverj-
ar kröfur hreyfíngarinnar verða í
komandi samningum.
Meginkröfurnar eru kaupmáttar-
trvgging, aukinn kaupmáttur og
‘uppstokkun á launaflokkakerfinu. í
röfunum er gert ráð fyrir að meðal-
kaupmáttur ársins 1983 náist. Ekki
er ljóst hvenær samningaviðræður
hefjast. Samningar eru lausir um
áramót.
- APH
LOKl
Það verður nóg að
gera í löggusnuðrinu ef
finna á alla þá sem hafa
brugðið sér að heiman.
Volvobifreið fór tvær veltur við Úlfarsfell i
gær. Einn maður var í bifreiðinni. Hann
var fluttur á slysadeild og síðan lagður inn
á gjörgæsludeild þar sem hann liggur nú.
Maðurinn er úr jífshættu. Mikil hálka var
á veginum við Úlfarsfell. Sjúkrabíll, sem
fór á staðinn, fór einnig út af veginum,
eins og sést hér á myndunum. Draga varð
hann upp á veginn aftur.
SOS/DV-myndir SOS.
Tillaga norska ráðgjafarfyrirtækisinsiKO:
SEXSNUDRARAR
í FÖSTU STARFI
Norska ráðgjafafyrirtækið IKO haft uppi á þeim sem leitað er að manni.“ Þá er sagt að hópurinn
leggur til að hjá Rannsóknarlög- ogfinnastekkiheimahjásér, leitað skuli ferðast bæði i bíl og gangandi
reglu ríkisins starfi sex manna leit- vitneskju sem getur skýrt afbrot, og klæðast sem óbreyttir borgarar.
arhópur, eftirgrennslanahópur. m.a. með þvi að vera í góðu sam- „Oft kann að koma til greina að
Hann á að hafa þann fasta starfa bandi við brotamenn o.þ.h.,“ segir líta inn á veitingastaði annað veif-
að leita uppi týnda menn og horfna meðal annars í skýrslu IKO um ið og annars staðar, þar sem eitt-
muni. Ætlast er til að hópurinn málið. hvað er um að vera.“
haldi eftirlýsingalista um menn og Ýmislegt er sagt um heppileg Starfi hópsins á að skipta í tvær
muni fyrir allt landið. vinnubrögð leitarhópsins. „Til að vaktir, samkvæmt hugmyndum
byrja með skulu þeir sem eru við IKO, sem starfi milli klukkan 9 og
„Við lögreglurannsókn ýmissa eftirgrennslun ekki villa á sér 17 og 17 og 1 frá mánudegi til laug-
brotamála er þörf á starfsmönnum heimildir, en stundum kunna þeir ardags. Ekki er talin þörf á sunnu-
sem þekkja margt fólk og geta að þurfa að leynast, t.a.m. ef fylgj- dagsvakt.
aðstoðað með eigin athugunum, ast á með sérstökum stað eða - HERB
Steingrímur,
JónBaldvinog
Svavarhittast
vegna útgáfumála
I dag hittast forystumenn flokkanna
vegna sameiningar NT, Þjóðviljans
og Alþýðublaðsins. Það mun vera
árlegur viðburður að þessir menn
hittist vegna útgáfumála, þó ekki
.neð svona afdráttarlausri samein-
ingaráherslu.
„Við ætlum að ræða ægilega stöðu
blaðanna og hvort hægt er að mynda
nýtt blað sem mótvægi við afl hægri
pressunar. Eitt blað með 3 leiðurum
kemur ekki til greina,“ sagði Svavar
Gestsson við DV í morgun.
-KB
Engin þörf á
fjölgun lög-
reglumanna
— eru hlutfallslega
fleiri hérenáhinum
Norðurlöndunum
„Á íslandi eru fleiri lögreglumenn
miðað við íbúafjölda en á hinum
Norðurlöndunum og um leið er
minna um afbrot," segir norska ráð-
gjafarfyrirtækið IKO. Það segir unnt
að breyta skipulagi lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu og Rannsókn-
arlögreglu ríkisins án þess að fjölga
í lögregluliðinu.
„Aukin verkefni RLR, sém við
gerum tillögu um (að byggja upp
eftirgrennslunarhóp, fjölga í tækni-
deild o.þ.h.), ætlumst við til að ráða
megi við með því að flytja til fólk
innan RLR. Þar losnar fólk, þegar
lögreglurannsókn þjófnaðarmála
flyst til lögreglunnar í Reykjavík.
Á sama hátt er gert ráð fyrir því
að bætt verði við mannafla í afbrota-
deild lögreglunnar í Reykjavík og
að forvarnarþjónusta verði efld með
því að flytja til núverandi mann-
aflá,“ segir í greiningarskýrslu IKO.
Þar er einnig lagt til að lögreglan
verði losuð við skrifstofuverkefni.
HERB