Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1985, Blaðsíða 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR18. DESEMBER1985.
Hækkun á sérf ræðiþjónustu lækna:
Hefur hækk-
að um tæp
50 prósent
— umfram verðlag á einu ári
Heildarkostnaður við sérfræði-
læknisþjónustu hefur hækkað um
43,7 prósent umfram verðlagsþróun
frá því í október 1984 til október 1985.
Framreiknaður kostnaður var tæp-
lega 21,5 milljónir og er nú kominn
upp í rúmlega 31 milljón króna.
Hlutur sjúklinga í þessum kostnaði
hefur hækkað frá október 1983 til
október 1985 um tæp 80 prósent eða
úr 2,6 milljónum í 4,7 milljónir króna.
Þessar upplýsingar koma fram í
svari heilbrigðisráðherra vegna fyr-
irspurnar Jóhönnu Sigurðardóttur,
Alþýðuflokki. Þingmaðurinn hefur
látið framreikna allar tölur miðað
við lánskjaravísitölu. Þá kemurfram
að hlutur sjúkratrygginga hefur
hækkað um tæpar 10,5 milljónir frá
því í febrúar á þessu ári umfram
verðlagsþróun. I prósentum verður
þessi hækkun um 65 prósent.
í apríl 1984 var hlutur sjúklinga í
lyfjakostnaði um 13 prósent. I apríl
í ár er þetta hlutfall komið upp í 23
prósent. Hann var rúmar 10 milljónir
en var kominn upp í rúmar 19 millj-
ónir í apríl í ár. Þetta þýðir með
öðrum orðum að hlutur sjúklinga í
lyíjakostnaði hefur hækkað um 88
prósent umfram verðlagsþróun á
þessu tímabili.
Frá ársbyrjun 1983 fram til 15.
október í ár hefur grunnlífeyrir
hækkað um 125 prósent og tekju-
tryggingar um 182 prósent. Á sama
tíma hefur almenn læknishjálp
hækkað um 525 prósent, hlutur
sjúklinga í sérfræðiþjónustu almennt
um 440 prósent, hlutur aldraðra í
þessari þjónustu um 300 prósent og
lyfjakostnaður almennt um 380 pró-
sent. - APH
Már fánum skrýddur er hann kom nýr í fyrsta sinn til heimahafnar árið 1980. Á föstudag eignast
einhver opinber sjóður togarann. DV-mynd: Bæring.
ÓLAFSVÍKURTOGARINN MÁR
SLEGINN HÆSTBJÓÐANDA
Bæjarfógetinn í Ólafsvík hefur
auglýst annað og síðasta nauðung-
aruppboð á togaranum Má SH-127,
þinglesinni eign Otvers hf. Upp-
boðið fer fram á skrifstofu embætt-
isins í Ólafsvík næstkomandi föstu-
dag klukkan 14.
Á fyrra uppboðinu, sem fram fór
15. október, bauð Ríkisábyrgðar-
sjóður hæst í togarann, 110 milljón-
ir króna. Aðrir sem buðu voru
Fiskveiðasjóður, 106 milljónir
króna, og Landsbankinn, 107 millj-
ónir króna.
Fiskveiðasjóður á fyrsta veðrétt
í skipinu. Krafa hans er 105,5 millj-
ónir króna. Ríkisábyrgðarsjóður er
með 70 milljóna króna kröfu á
öðrum veðrétti. Þriðja veðrétt á
Landsbankinn. Landsbankinn er
einnig með veð í fasteignum í landi
fyrir skuldum togarans.
- KMU.
Keppendur veifa viðurkenningum sínum fyrir framan Landsbankaúti-
búið í Breiðholti. DV-mynd PK
HAUKUR SIT-
UR ENN í
STJÓRN BSRB
SEUASKOLI
SIGRAÐI í
LANDS-
BANKA-
MÓTIÍR
Lið fimmta bekkjar S.J. i Selja-
skóla sigraði í hinu árlega körfu-
boltamóti sem Landsbankinn í
Breiðholti og körfuknattleiksdeild
ÍR standa fyrir meðal ellefu ára
bekkja í grunnskólum í Breiðholti
og Langholtsskóla. Alls tóku 34 lið
þátt í mótinu að þessu sinni.
f úrslitaleik, sem fram fór í íþrótta-
húsi Fellaskóla 13. desember síðast-
liðinn, sigraði lið 5. bekkjar S.J. lið
5. bekkjar B.Á. úr Ölduselsskóla með
21 stigi gegn 8. í úrslitakeppnina
komust einnig lið 5. bekkjar K.J. úr
Langholtsskóla og a-lið 5. bekkjar
Ó.L. úrSeljaskóla.
Efnilegustu leikmenn mótsins voru
valdir Jónas Valdimarsson, Selja-
skóla, og Ómar Hannesson, Öldus-
elsskóla.
Með sigurliðinu léku Jónas Vald-
imarsson, Ólafur Theodórsson,
Ágúst Auðunsson, Hermann Sigur-
bjamason, Jón Másson og Hjálmar
Hafsteinsson.
Mótsstjóri var Sigvaldi Ingimund-
arson, íþróttakennari í Fellaskóla.
Að keppni lokinni bauð Lands-
bankinn keppendum í samkvæmi þar
sem allir fengu viðurkenningar og
sigurvegarar verðlaunagripi.
-KMU.
„Margir hafa haft samband við mig
og spurt hvemig þeir geti verið áfram
í BSRB,“ sagði Haukur Helgason
skólastjóri í samtali við DV í gær.
„En að ég ætli að stofna ný kennara-
samtök, það er úr lausu lofti gripið."
Hann sagði að margir eldri félagar
væru ósáttir við að fleygja frá sér
þeim réttindum sem áunnist hefðu
innan BSRB nú þegar úrsögn KÍ úr
BSRB liggur fyrir.
Haukur sagðist benda fólki á ein-
staklingsaðild að BSRB vilji það
ekki ganga úr bandalaginu.
Hann er stjórnarmaður í BSRB .
Annar kennari, Ragna Ólafsdóttir,
hefur einnig átt sæti í stjórn BSRB.
Á stjómarfundi í gær kvaddi Ragna
stjórnarmenn en Haukur Helgason
sat eftir. Hann sagðist taka ákvörð-
un um það fyrir áramót hvort hann
sækti um einstaklingsaðild að BSRB
eða hætti. -ÞG
Ógrynni
af rekavið
Frá Aðalbirni Arngrímssyni,
fréttaritara DV á Þórshöfn:
Síðan Skoruvík fór i eyði hefur
safnast þar á fjörur ógrynni af reka-
viði sem liggur ónýttur vegna flutn-
ingsörðugleika. Er þar um mikil
verðmæti að ræða miðað við verð á
unnu timbri eins og það er nú.
BÓKALISTIDV1985:
Skipherrann enn á toppnum
Bókin um Guðmund skipherra
Kjæmested heldur vinsældum sín-
um á bókamarkaðnum og er enn á
toppnum eins og fyrir viku þegar
Bókalisti DV var síðast tekinn
saman. í öðm sæti er nú Lífssaga
baráttukonu, bók Ingu Huldar
Hákonardóttur um Aðalheiði
Bjamfeðsdóttur. Löglegt en sið-
laust - stjómmálasaga Vilmundar
Gylfasonar færist þar af leiðandi
niður um eitt sæti sem og bækur
Eðvarðs Ingólfssonar og Alistairs
MacLean. Efstu sæti listan em því
eins skipuð að öðru leiti en þvf að
bókinn um Aðalheiði hefur hækk-
að um fimm sæti. Hún var fyrir
skömmu komin út þegar vinsældir
jólabókanna vom síðast kannaðar.
Könnunin var þannig gerð að
hringt var í tíu bókaverslanir víðs
vegar um land og upplýsingar
fengnar um tíu vinsælustu bæk-
urnar. Vinsælasta bókin í hverri
veerslun fékk 10 stig, sú í öðm
sæti 9 stig og þannig koll af kolli
niður listann. Endanlegur listi var
síðan fenginn með því að leggja
saman stig hverrar bókar.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar raðast bækumar þannig
eftir vinsældum:
1. Sveinn Sæmundsson: Guð-
mundur skipherra Kjærnested II,
Örn og Örlygur.
2. Inga Huld Hákonardóttir: Lífs-
saga baráttukonu - Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir, Vaka- Helgafell.
3. Jón Ormur Halldórsson:-
Löglegt en siðlaust, stjómmála-
saga Vilmundar Gylfasonar, Bók-
hlaðan.
4. Eðvarð Ingólfsson: Sextán ára
í sambúð, Æskan.
5. Alistair MacLean: Njósnir á
hafinu, Iðunn.
6. Þórarinn Eldjárn: Margsaga,
Gullbringa.
7. Rolf Lindberg: Jólasveinabók-
in, Iðunn.
8. Elín Pálmadóttir: Gerður -
æfisaga myndhöggvara.AB.
9. Hulda Stefánsdótti: Minning-
ar, Skjaldborg.
10. Erlingur Davíðsson: Aldnir
hafa orðið, 14, Skjaldborg.
Athygli vekur að æfisögur og
endurminningar skipa sæti sex af
tíu vinsælustu bókunum. Hefur
þeim fjölgað um tvær frá því í síð-
ustu viku. Áhugi landsmanna á
þessari gerð bóka virðist því síst
fara dvínandi.
Af viðtölum við bóksala má ráða
að jólabókasalan sé nú komin vel
á skrið. Efstu bækurnar á listanum
halda því forskoti sem þær höfðu
náð fyrir viku. Enn getur þó röðin
átt eftir að breytast því ný útkomn-
arbækureruíverulegrisókn. GK