Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1985, Side 4
4
DV. MIÐVIKUDAGUR18. DESEMBER1985.
Frá fyrsta samningafundinum í þessari lotu. Fundurinn var haldinn
í fundarsal ASÍ. DV-mynd: PK
Björn Þórhallsson, varaforseti ASÍ:
LAUNIN ÞARF
AÐ JAFNA
„Það má segja að við höfum sett
fram hugmyndir og kröfur í bland
um aukinn kaupmátt," sagði Björn
Þórhallsson, varaforseti ASI, eftir
fyrsta samningafundinn. Hann
sagði að hagspekingar beggja aðila
og aðrir ætluðu að hugsa málið
fram yfir áramót. Næsti fundur er
fyrirhugaður strax í ársbyrjun.
„Þær kröfur, sem nú voru fram-
lagðar, eru í mínum huga fyrst og
fremst settar fram til að jafna eða
leiðrétta ósamræmi. Það þarf að
jafna launin milli þeirra launþega
sem fá greidd laun eftir umsömdum
töxtum og hinna sem fá yfirborgan-
ir. Það er gífurlegt launaskrið í
landinu,“ sagði Bjöm Þcrhallsson
og hann bætti við: ,, Það hefur
verið uppi krafa um að launþegar
þrengdu lífskjör sín. Ég hefði talið
að atvinnurekendur gætu einnig
lagt sitt af mö'rkum. Eg trúi ekki
öðru en að ríkisstjórnin geri sitt
til að kaupmáttur fari vaxandi á
næstaári." - ÞG
„Tómt mál að tala um
kaupmáttartryggtngu
— segir Þórarinn V. Þórarinsson,
aðstoðarf ramkvæmdastjóri VSÍ
Kröfur verkalýðshreyfingarinnar
um að kaupmáttur verði aukinn
og tryggður hafa ekki fengið
hljómgrunn í röðum atvinnurek-
enda. Kröfurnar miðast við að
kaupmáttur launataxta verði sá
sami og meðaltal ársins 1983. Þetta
þýðir með öðrum orðum að kaup-
mátturinn yrði að hækka um 8
prósent. Hins vegar er ekki ljóst
hversu launahækkanir yrðu miklar
í prósentum. Það gæti verið á bil-
inu 20 til 40 prósent.
„Meginatriðin í þessum kröfum
er aukinn kaupmáttur og kaup-
máttartrygging. Því miður skortir
allar efnislegar forsendur til að um
kaupmáttaraukningu geti orðið að
ræða á næsta ári. Það er ekki á
okkar færi að tryggja kaupmátt-
inn. Kaupmátturinn er afleiðing
af því hvernig veiðist, hvernig út-
flutningsvörur okkar seljast og
hvert innkaupsverð aðfanga verð-
ur til landsins. Það er því tómt mál
að tala um að atvinnurekendur
geti tryggt kaupmáttinn," sagði
Þórarinn V. þórarinsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri VSI, er DV
kannaði viðhorfin gagnvart kröf-
um verkalýðshreyfingarinnar.
Hann ítrekar að það sé engin
sjáanleg leið til að tryggja kaup-
mátt. Hann segir að aðilar verði
að setjast niður eftir áramót og
skoða efnahagsáætlanir fyrir
næsta ár. Ljóst sé að endurskoða
þurfi þjóðhagsáætlun. I henni var
gert ráð fyrir að svigrúm væri til
að auka kaupmátt ráðstöfunar-
tekna um 0,5 prósent. Kröfur sem
ASí hafi nú kynnt hljóti að leiða
til aukinnar verðbólgu.
„ Við viljum einfaldlega horfa á
það sem er til skiptanna og tryggja
að útflutingsvegirnir geti þrifist.
Við teljum að það verði að líta á
þetta með þessum augum og semja
um það sem er til skiptanna,"
sagði Þórarinn.
- APH
Hjörfur Eiríksson:
GENGIS-
LÆKKUN
EINA
LAUSNIN
— á ekki von á mikilli hörku
BSRB'
RÆÐA VIÐ FJARMÁLA-
RÁÐHERRA Á MORGUN
i samnmgunum
Á morgun ætlar formaðui BSRB
og varaformaður að ganga á fund
fjármálaráðherra til að kynna
honum meginsjónarmið samtak-
anna í komandi samningum.
Að sögn Kristjáns Thorlacius,
formanns BSRB, hafa hinar endan-
legu kröfur ekki verið mótaðar
enn. 10 manna nefnd hefur undan-
farið unnið við að yfirfæra sam-
þykktir samtakanna á sl. þingi yfir
í mótaða kröfugerð. Ekki er ljóst
hvenær því verki verður lokið. Það
gerist tæplega fyrr en eftir áramót.
Kristján sagði að kröfur BSRB
og ASÍ yrðu ekki samræmdar. Hins
vegar væru þær nokkuð á sama
veg.
Á þingi BSRB var samþykkt að
leggja höfuðáherslu á kaupmáttar-
tryggingu, leiðréttingu á misrétti
launa, húsnæðismál og vaxtamál.
- APH
„Menn verða að átta sig á hvern-
ig staðan er í raun og veru,“ sagði
Hjörtur Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Vinnumálasambands sam-
vinnufélaga, í samtali við DV eftir
fyrsta samningafund ASÍ, VSÍ og
VMS um nýja kjarasamninga.
„Þetta verða líklega flóknir og
viðamiklir kjarasamningar en ég
hef ekki trú á því að það verði
mikil harka í þeim. Aðilar gera sér
grein fyrir stöðunni og reyna að
ná samkomulagi. Varðandi þær
hugmyndir sem fram voru settar
um 8% kaupmáttaraukningu með
viðmiðun við kaupmátt árið 1983
þá verða menn að átta sig á hvernig
kaupmáttur ríkti þá, til dæmis með
tilliti til skattamála."
Hjörtur benti á slæma stöðu út-
flutningsaðila og sérstaklega fisk-
iðnaðarins. Hann sagði að menn
litu nú til nýrrar spár fyrir árið
1986 sem Þjóðhagsstofnun væri að
vinna og aðgerðum ríkisstjórnar-
innar í kjölfar þeirrar spár. En
staðreynd væri að atvinnulífið og
sérstaklega útflutningsgreinarnar
þyldu ekki meiri launahækkanir.
Gengislækkun taldi hann einu sjá-
anlegu lausnina í stöðunni.
í dag mællr Pagfari______________í dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari
Nútímaalþýðuvilji
Mitt í fjárlaga- og Hafskipserli
alþingismanna hafa borist þær
fréttir að formenn þriggja
stjórnmálaflokka haldi með sér
kærleiksfundi til að ræða úgáfu
sameiginlegs dagblaðs. Þar eru
á ferðinni Steingrímur fyrir
Framsókn, Svavar fyrir komma
og Jón Baldvin fyrir krata. Allir
eiga þessir stjórnmálaforingjar
það sameiginlegt að stjórna
flokkum sem eiga við þann
vanda að stríða að gefa út blöð
sem enginn hefur áhuga á að
lesa. Nútíminn, Alþýðublaðið og
Þjóðviljinn eru gefin út daglega
í þeim tilgangi að prédika stóra
sannleika þeirra flokka sem að
þeim standa. Lengi hafa þessi
blöð verið rekin með tapi, en
það hefur ekki skipt höfuðmáli
því samtryggingin hefur séð til
þess að láta ríkissjóð punga út
fyrir hallanum. Þannig hafa
íslendingar fengið að standa
undir rekstri þessara blaða og
greiða fyrir þau þótt enginn
nenni að lesa þau. Árlega er
varið tugum milljóna á fjárlög-
um til styrktar gjaldþrota út-
gáfufyrirtækjum í blaðarekstri
án þess að Ólafur Ragnar hafi
séð ástæðu til að krefjast rann-
sóknar á meintri misnotkun á
almannafé. Það er nefnilega
ekki sama hvert peningarnir
renna. Ef ríkisbanki lánar illa
stöddu fyrirtæki í fragtflutning-
um eru það svik og prettir og
stórpólitíkst hneyksli, en ef
þingmenn koma sér þegjandi
saman um að ausa fé í dagblöð
á eigin vegum þá segir enginn
neitt. Svona er nú lýðræðisástin
mikil og réttlætiskenndin rík.
Nú er hins vegar svo komið
að vinstri flokkarnir hafa upp-
götvað að þrátt fyrir ríkisstyrk-
inn og þann göfuga boðskap
sem blöð þeirra flytja hrakar
sölu þessara blaða jafnt og þétt.
Nú hefur þeim dottið það
snjallræði í hug að sameina
blöðin þijú. Það á að vera í þágu
lýðræðisins og vinstri aflanna.
Ástæðulaust er að agnúast út í
þá aðferð að pakka lýræðinu
saman í eitt blað, en hitt verður
sjálfsagt kúnstugra að sjá
hvernig þeir félagarnir þrír ætla
að húrra saman skoðunum
Framsóknar, komma og krata
inn í eitt og sama blaðið.
Nú er það alkunna að Fram-
sókn situr í stjórn með íhaldinu
og unir sér vel í hægri sveiflu
frjálshyggjunnar. Þá er það
ekki lengur leyndarmál að heit-
asta þrá Jóns Baldvins er að
mynda nýja viðreisnarstjórn
með Sjálfstæðisflokknum og
Dagfari man ekki betur en að
kommarnir hafi verið að biðla
til íhaldsins á dögunum. Allt er
þetta sjálfsagt í þágu vinstri
aflanna í landinu. Óneitanlega
nær maður betri heildarsýn yfir
íhaldsbónorðin þegar þeim
verður pakkað saman í eitt blað
í þágu vinstri aflanna.
Á forsíðunni verða væntan-
lega fréttir af þeirri ógn sem af
íhaldinu stafar samkvæmt þeim
kenningum að allt sé betra en
íhaldið. Síðan verða innsíðurn-
ar helgaðar hveijum flokki fyrir
sig, þar sem Framsókn á ann-
arri siðu, kommarnir á þriðju
síðu og kratarnir á þeirri fiórðu
hafa hver sína útgáfu af því
hvernig þeir hugsa sér að kom-
ast í eina sæng með óvininum í
þágu vinstri aflanna. Þegar búið
verður að bræða saman Nútí-
mann, Alþýðublaðið og Þjóð-
viljann í blað sem gæti heitið
Nútímaalþýðuvilji verður þessi
óskapnaður borinn í hús til
fólksins sem ekki vill lesa blöðin
hvert í sínu lagi og ríkissjóður
látinn borga brúsann.
Nú er að vísu erfitt að ímynda
sér að fólk trúi því að Þjóðvilja-
kaupendur vilji kaupa Þjóðvilj-
ann með framsóknarívafi, eða
þá að sá þjóðflokkur sem ennþá
kaupir NT telji lesefnið batna
við að fá skammt af kommaá-
róðri, svo ekki sé talað um báða
lesendur Alþýðublaðsins, sem
eru óvanir að fletta blaði. En
þetta er nú samt það sem
flokksforingjarnir eru að
gamna sér við þessa dagana í
þágu vinstri aflanna sem eiga
sér þá framtíð að starfa með
ihaldinu.
Dagfari