Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1985, Blaðsíða 20
20
DV. MIÐVIKUDAGUR18. DESEMBER1985.
- SKIÐI
Sportmarkaðurinn
Grensásvegi 50.
Sími 31290
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
Þótti
sopinn
of góður
Heimsmeistaranum
ískíðastökki vísað úr
finnska íandsliðinu
Heimsmethafinn i skiðastökki,
Finninn Matti Nykanen, hefur misst
sœti sitt i finnska skíðalandsliöinu
vegna drykkjuskapar.
Nykanen kom til Helsinki í gær eftir
að hafa verið vísað úr keppni í Lake
Placid vegna slæmrar hegðunar, eins og
einn forráðamanna fmnska skíðasam-
bandsins komst að orði. Finnska skíða-
sambandíð hefur farið fram á það að
hann skili skrifiegri skýrslu um hegðun
sína í Lake Placid á Þorláksmessu.
Nykanen býr sig nú undir keppni er
haldin verður í mars í „skíðaflugi". Það
er tiltölulega ný grein sem gefur miklu
meiri möguleika á lengri stökkum en af
hinum venjulega 70 og 90 mctra pöllum.
Nykanen á heimsmetið í greininni, 191
metra.
fros
Þjóðverjinn í
sviðsljosmu
— á Evrópumótinu
ísundi
Austur-þýski sundmaðurinn
Dirk Richter var mest í sviðsljós-
inu á Evrópumeistaramótinu í
Hertogenbosch í Hollandi um
helgina. Hann setti heimsmet í
100 m baksundi, synti á 54,20 sek.,
og Evrópumet i 200 m baksundi.
Sigraði þar á 1:58,00 mín. Keppt
var í 25 metra laug.
í báðum þessum greinum komst
Eðvarð Eðvarðsson í úrslit og setti
íslandsmet. Synti á 57,07 í 100 m
baksundinu en 2:02,23 í 200 m. Varð
í fimmta sæti á báðum vegalengdum.
Sá austur-þýski var í nokkrum sér-
flokki. Sovéski sundmaðurinn frægi,
Vladimir Salnikov, keppti á ný á
alþjóðlegu móti. Sigraði í 400 m
skriðsundi á 3:46,13 mín. Á mótinu
náðist yfirleitt mjög góður árangur.
Frakkinn Stephan Caron sigraði í
100 m skriðsundi á 49,00 sek., Rolf
Beab, V-Þýskalandi, í 100 m bringu-
sundi á 1:01,17 mín. og Tékkinn
Marcel Gery í 200 m flugsundi á
1:59,46 mín. - hsím
Meistara-
mót hjá
IR-ingum
- Bernard Holloway
meðal keppenda
„Þetta er i fyrsta skipti sem IR
gengst fyrir meistaramóti innanhúss
i frjálsum iþróttum. Þátttaka er mjög
góð, meðal annars verða gestir úr
öðrum félögum. Þar má nefna Bem-
ard Holloway fró Bandaríkjunum,
einn fremsta grindahlaupara hcims,"
sagði Ólafur Unnsteinsson, þjálfari
ÍR, þegar DV ræddi við hann í gær.
Meistaramót IR hefst i dag kl. 17.30
í Baldurshaga. Lýkur á morgun,
fimmtudag, ó sama stað en þá hefst
keppnin kl. 19.30. Ólafur gat þess að
mikill áhugi væri innan frjálsíþrótta-
deildar ÍR. Milli 40-50 mættu að stað-
aldri á æfingar. - hsim.
Valur- Þróttur
íkvöldí
1. deildinni
Einn leikur verður í 1. deild karla
í handknattleiknum í kvöld. Þá leika
Valur og Þróttur í Laugardalshöll
og hefst leikurinn kl. 20. Frestaður
leikur frá því fyrr í vetur vegna
Evrópukeppni Valsmanna.
• Pétur Arnþórsson. Hann hætt-
ir í Þrótti og leikur jafnvel í Nor-
egi.
• Steinn Guðjónsson hættir í
Fram og leikur með ÍBV næsta
sumar.
• Ársæll Kristjánsson hefur
skrifað undir félagaskipti úr
Þróttií Val.
ogHe
FjSMi leikmanna skiptir um f élög í knattspyrnunni. Lof
hjá Hólmbert út íhött,” segja þeir Sig
„Það er alveg öruggt að ég leik ekki með Keflavík næsta sumar.
Ég get ekki leynt því að ég er ekki ánægður með Hólmbert að öllu
leyti. Hann er klár þjálfari en leikskipulagið og liðsuppstillingarnar
hjá honum eru nánast út í hött,“ sagði knattspyrnumaðurinn Sigurjón
Kristjánsson í samtali við DV í gærkvöldi.
síðasta keppnistímabil vegna
meiðsla.
Sigurjón er ekki einn um að vera
ánægður hjá Keflavíkurliðinu um
þessar mundir. Félagi hans Helgi
Bentsson sagði í samtali við DV í
gærkvöldi:„Líkurnar á því að ég leiki
í Keflavík næsta sumar eru nánast
engar. Hólmbert er góður þjálfari en
leikskipulagið hjá honum er alveg
fáránlegt. Eg get ekkert sagt um það
á þessari stundu í hvaða lið ég fer,“
sagði Helgi og Sigurjón Kristjánsson
tók í sama streng. Brottför þessara
sterku leikmanna er gífurlegt áfall
fyrir ÍBK-liðið sem hefur misst marga
snjalla leikmenn og líklegt er að
róðurinn verði þungur hjá félaginu
næsta sumar. Þess má geta að bak-
vörðurinn smái en knái, Guðjón
Guðjónsson, æfir nú af kappi með
ÍBK en hann var frá keppni allt
• Bernard
Holloway kepp-
ir fyrir KR
næsta sumar.
Loftur ætlar í KR
Loftur Ólafsson miðvörður, sem
lék með Þrótti í sumar, er á förum
frá félaginu. Loftur sagði í gær-
kvöldi: „Ég er búinn að æfa í mánuð
með KR og mun skrifa undir félaga-
skipti síðar í þessari viku. Loftur
hefur gert nokkuð víðreist á undan-
förnum árum og meðal annars leikið
með Fylki og Breiðabliki auk Þrótt-
ar. Loftur er snjall leikmaður og mun
eílaust styrkja KR-liðið.
Ársæll genginn í Val
„Jú, það er rétt að ég er búinn að
skrifa undir félagaskipti úr Þrótti
yfir í Val,“ sagði miðvörðurinn
sterki, Ársæll Kristjánsson, í sam-
tali við DV í gærkvöldi. Ársæll er
enn einn leikmaðurinn sem yfirgefur
Þrótt og ljóst er að erfitt verður fyrir
Sæviðarsundsliðið að endurheimta
sæti sitt í 1. deildinni næsta sumar.
Band-
aríski
frjáls-
íþrótta-
' * maður-
inn, Bern-
ard
Holloway
hefur gengið
til liðs , við
frjálsíþrótta-
deild KR og
mun keppa fyrir
félagið næsta
sumar. Holloway
er mjög snjall
hlaupari og meðal
annars hefur hann
náð frábærum tíma í
400 metra grinda-
hlaupi, 48,10 sekúndum.
Myndin hér til hliðar var
tekin af Holloway á æf-
ingu hjá KR í gær-
kvöldi.-SK.
Steinn til Eyja
„Það er rétt að við höfum átt í
viðræðum við Stein Guðjónsson og
hann byrjar að vinna hér í Eyjum
eftir áramótin. Ég veit ekki annað
en að hann muni leika með okkur
næsta sumar. Hann mun örugglega
styrkja lið okkar mikið,“ sagði Ólaf-
ur Jónsson, formaður knattspyrn-
uráðs ÍBV, í samtali við DV í gær-
kvöldi. Steinn Guðjónsson náði ekki
að vinna sér fast sæti í Framliðinu
síðasta keppnistímabil en óneitan-
lega vekur það eftirtekt að Steinn
skuli fara frá félaginu þegar ljóst er
að þeir Ómar Torfason og Ásgeir
Elíasson leika ekki með liðinu næsta
Pétur líka úr Þrótti?
Samkvæmt mjög áreiðanlegum
heimildum DV mun Pétur Arnþórs-
son, miðvallarleikmaður úr Þrótti,
ákveðinn í að leika ekki með liðinu
næsta sumar. Pétur mun hafa áhuga
á að reyna fyrir sér hjá öðru félagi
og jafnvel í Noregi. Ekki tókst að
ná í Pétur i gærkvöldi þar sem hann
mun vera í Noregi um þessar mundir.
Margir á faraldsfæti og
víða peningar í boði
Margir knattspyrnumenn eru nú
að skipta um félag eða hugsa málið.
Fyrir nokkru tilkynnti hinn gamal-
reyndi leikmaður Vignir Baldurs-
son skipti úr Austra yfir í sitt gamla
félag, Breiðablik. Óskar Ingimund-
arson, sem þjálfaði á Austíjörðum
síðasta tímabil, mun þjálfa Leiftur
frá Ólafsfirði næsta sumar en Óskar