Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1985, Blaðsíða 21
DV. MIÐVIKUDAGUR18. DESEMBER1985.
21
i íþróttir í íþróttir Í íþróttir Í íþróttir
• Loftur Ólafsson leikur með
KR-ingum næsta keppnistímabil.
Samvtnnuferöir
l.an/isvn
• Helgi Bentsson: „Hef
ákveðið í hvaða félag ég fer.“
ekki
• Sigurjón Kristjánsson: „Leik-
skipulagið hjá Hólmbert alveg út
íhött.“
Igi hættir í IBK
tur íKR, Ársæll íVal, Steinn til ÍBV. „Leikskipulagið
[urjón Kristjánsson og Helgi Bentsson.
er annars þekktastur sem leikmaður
og markaskorari með KR.
Miklar sögur eru í gangi á meðal
manna um peningaupphæðir sem í
spili séu þegar félagaskipti eru ann-
ars vegar. Þannig á Valþór Sig-
þórsson, Keflvíkingur, að hafa feng-
ið 150 þúsund fyrir að vera um kyrrt
hjá félaginu.Kjartan Másson, nýi
þjálfarinn hjá Víði í Garði, er sá
maður sem oftast er nefndur í sam-
bandi við eltingaleik við leikmenn
annarra liða. Ein sagan segir að
Kjartan tali daglega við Sigurjón
Kristjánsson, fyrrum leikmann ÍBK,
og þeir í Garðinum eiga víst að hafa
talað við marga fleiri leikmenn, þar
á meðal Helga Bentsson. Gróa gamla
virðist vera komin í jólaskapið og
lætur ekki sitt eftir liggja frekar en
venjulega. - SK.
Botnlangaskurðurinn
felldi John Sivebæk
— ekkert verður af þvíað hann gerist leikmaður hjá Man. Utd.
Áttu
miða?
Gífurleg ásókn er nú í aðgöngu-
miða á úrslitaleik Vestur-Þýska-
lands og Svíþjóðar í Davis-bikar-
keppninni í tennis sem háð verður í
Þýskalandi um helgina. Allir miðar
löngu uppseldir en verðið var um
6000 krónur stykkið. Á svörtum
markaði eru þeir nú seldir á 25 þús-
und krónur fyrir hvern keppnisdag
ogfáfærrienvilja.
Kona nokkur, sem ekki hefur náð
í miða, greip til þess ráðs að láta
umboðsmann í Frankfurt auglýsa
eftir miða eða miðum. Heitir þeim
sem útvegar henni miða stórkost-
legri ástarnótt. Þrjár slíkar ef hún
fær miða á alla þrjá keppnisdagana.
í'auglýsingu sinni segir umboðsmað-
urinn að konan sé 28 ára, ljóshærð
og hávaxin. Glæsilega ýákllB AFP).
„Það verður ekkert af því að
John Sivebæk gerist leikmaður
hjá Man. Utd. Þegar hann skrif-
aði undir samning við félagið var
það með því skilyrði að ekkert
kæmi fram við læknisskoðun. Þá
kom hins vegar í ljós að Sivebæk
gengur ekki heill til skógar.
Læknar staðfestu það og ekkert
tryggingafélag vill taka að sér að
tryggja leikmanninn fyrir Man.
Utd,“ sagði Ron Atkinson, stjóri
United í Manchester.
Danski leikmaðurinn var fyrst á
þessu ári skorinn og botnlanginn
fjarlægður. Við rannsókn lækna i
Manchester kom í ljós að ekki var
allt með felldu. Hann hefur einnig
verið rannsakaður af lækni hins
danska félags síns, Vejle, og eftir þá
rannsókn var ákveðið að hann færi
til sérfræðinga. „Ef þetta er alvarlegt
þá er eins gott að það fannst,“ sagði
Egill Jensen, framkvæmdastjóri
Vejle.
„Þetta er alvarlegt fyrir leikmann-
inn og einnig okkur hjá Man. Utd,“
sagði Atkinson ennfremur.
United hafði ákveðið að greiða
rúmar 15 milljónir króna fyrir
danska landsliðsmanninn. Hann átti
sjálfur að fá tíu milljónir, félag hans
fimm. Enska félagið hafði síðan
ákveðið að tryggja hann fyrir 46
milljónir króna. Þegar í ljós kom að
hann komst ekki í gegnum læknis-
skoðun vildi ekkert félag tryggja
hann. „Við teljum hann þeirra pen-
inga virði og án þess að geta tryggt
hann getum við ekki fjárfest í leik-
manninum," voru lokaorð Atkinson.
Það hefur komið fyrir áður að leik-
• John Sivebæk leikur ekki með
Man. Utd.
menn hafi ekki komist í gegnum
læknisskoðun. Frægasta dæmið á
Englandi er þegar Asa Hartford,
skoski landsliðsmaðurinn, átti að
fara frá WBA til Leeds 1970. Læknir
fann þá holu í hjarta hans og ekkert
varð af sölunni. Asa (gælunafn
söngvarans fræga A1 Jolson) leikur
þó enn í dag - nú hjá Norwich. Hann
hélt áfram að leika með WBA 1970,
fór síðan til Man. City, Nottingham
Forest, Everton og aftur til City áður
en hann gerðist leikmaður hjá Nor-
wich. - hsím.
Þetta er bókin!
Mörk og sætir sigrar eftir Sigmund Ó. Steinarsson
............... er óskabók knaltspy mumaimsins.
Bókin er fyrsta bindi íslensku knattspymusögunnar.
Hún er 208 blaösíður - prentuð á mjög góðan myndapappír.
Þrir kunnir íþróttafréttamenn hafa skrifað um bókina:
]á,l?etta
erbókutt
Hallur Símonarson, DV:
„Litlar heimildir í þessum gæðaílokki
hafa áður birst um íslenska knatt-
spymu. Það hefur verið algjört tóma-
rúm flest árin. í framtíðinni verður það
bætt og svo er útlitið mikill kostur. Það
gerist ekki betra þó að miðað sé við
það besta í útgáfu slikra bóka erlend-
is.“
Gylfi Kristjánsson, Dagur:
„Þessi bók er hin mesta „gulfnáma“
fyrir knattspymuáhugamenn, og ekki
er til annar eins fróðleikur um knatt-
spymuna á íslandi áeinum stað."
* Tryggið ykktir eintak strax. * Takmarkað upplag prentað.
+ Bókin verður ekki endurprentuð. * Jólabók knattspymunnandans.
•k Aidrei hefur áður verið gefín út eins stór og vegleg _,_—-r~
knattspy mubók hér á landi. ___—-—
Steinar J. Lúöviksson,
ritstjóri Iþróttablaðsins:
„Það er meginstyrkur þessarar bókar
aö hún er skemmtileg og nær að laða
fram og undirstrika lyndisbragð
margra leikmanna. Myndimar eru einn
af meginkostum bókarinnar. Það er
hreint ótrúlegt hvað Sigmundi hefur
tekist að safna saman miídu og einnig
skemmtilegum ljósmyndum og það er
líka hróss vert hve vel honum tekst að
flétta saman myndum og texta og búa
þannig til eðlilega samfellu. Það er
fengur í bókinni Mörk og sætir sigrar.
Hér er vel farið af stað í ritun sögu
íslensku knattspymunnar og höfundur
nær að sameina skemmtun og fróðleik
i bók sem er sett mjög lifandi og nýstár-
lega upp. Það verður gaman að fá
meiraaðheyra.“.
Upplýsingar í síma
32406
HAGAN
Vönduð skíðasett
m/skóm:
80-120 cm
5.745,-
130-150 cm
7.795^-
150-170 cm
7.795,-
Mjög vönduð
skíðasett
m/skóm:
160—190 cm
10.495,-
12.430,-
Gönguskíðasett
m/skóm:
140-1 70 cm
4.390,-
180-215 cm
4.690,-
Tökum notað upp
í nýtt.
Póstsendum
Sportmarkaöurin
Grensásvegi50.
Sími31290