Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Qupperneq 32
68*78*58
Haflr þú ábendingu eða vitn-
eskju um frétt - hzingdu þá í
síma 687858.
Fyxir hvert Créttaskot, sem
birtíst eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta flréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 1 986.
4.
Rak stjómlaust að
þverhmptum homnim
■ Akkerið náði festu aðeins 160 metra frá landi
„Ekki hefði ég viljað vera i spor-
um danska skipstjórans," sagði
Jónas Hallgrímsson, umboðsmaður
danska flutningaskipsins Eric Bo-
eye, sem rak stjórnlaust og vélar-
vana rétt undan landi við Dala-
tanga í gærkvöldi. Akkerin náðu
ekki festu í botni fyrr en 160 metra
undan Skálanesbjargi þar sem
Tröllanestangi og þverhníptir
hamrar ganga í sjó fram.
á ástandið. Skipið hefði vafalítið
brotnað á hömrunum," sagði Jónas
Hallgrímsson.
„Við fylgdumst með þessu í gegn-
um loftskeytastöðina og leist ekki
Rétt fyrir miðnætti kom Bjartur
frá Neskaupstað danska skipinu til
hjálpar: „Það var allt í góðu lagi
þegar hér var komið. Akkerin voru
fóst í botni og greiðlega gekk að
skjóta taug yfir í skipið," sagði
Birgir Sigurðsson, skipstjóri á
Bjarti, í morgun. „Við vorum komn-
ir til hafnar á Seyðisfirði með Eric
Boeye á fjórða tímanum í nótt.“
Eric Boeye er 295 brúttólestir að
stærð og var á leið frá Þórshöfn í
Færeyjum til Seyðisfjarðar með
saltfarm og aðrar vörur. Um borð
voru 6 menn. Sjópróf hófust hjá
sýslumannsembættinu á Seyðisfirði
í morgun. -EIR
4
Prófkjör
alþýðuflokks-
manna á isafírði:
Kristján í
fyrsta sæti
Um helgina héldu alþýðuflokks-
menn á ísafirði prófkjör sitt fyrir
komandi sveitarstjórnarkosning-
ar. í síðustu kosningum fékk
Alþýðufiokkurinn tvo menn
kjorna í bæjarstjórn.
I fyrsta sæti varð Kristján Jón-
asson framkvæmdastjóri með 123
atkvæði í fyrsta sæti og 204 at-
kvæði samtals. í öðru sæti varð
Halldór Guðmundsson forstöðu-
maður með 144 atkvæði i fyrsta
til annað sæti og 213 atkvæði
samtals. Ingibjörg Ágústsdóttir
húsmóðir varð í þriðja sæti með
155 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti
og 200 atkvæði samtals. Snorri
Hermannsson skólastjóri varð í
fjórða sæti með 155 atkvæði í
fVrsta til fjórða sæti. Sigurður
Ólafsson skrifstofumaður fékk 140
atkvæði í fyrsta til fjórða sæti.
Kosið var bindandi um fjögur
efstu sælin. Alls greiddu 237 at-
kvæði og þar af voru 9 seðlar
ógildir. -SMJ
Gefa litlar
skýringar
á óhappinu
y
RAUSTIR
MENN
25050
senDiBiLKTöDin
„Flugstjórinn hóf flugtaksbrun,
heyrði þá hávaða sem olli því að hann
taldi óvarlegt að halda áfram flugtak-
inu og hætti því við. Ástæðan fyrir
því að ekki tókst að stöðva vélina
áður en hún fór fram af brautinni
figgur ekki enn ljós fyrir.“
Þessar skýringar flugmálastjórnar
og flugslysanefndar eru þær einu sem
fengist hafa á óhappinu á Reykjavík-
urflugvelli i gær. Flugmenn vélarinn-
ar, Árni Sigurbergsson og Ásmundur
Eyjólfsson, hafa neitað að ræða við
fjölmiðla.
Bremsuskilyrði á flugbrautinni
voru mæld fljótlega eftir að Fokker-
inn hafnaði á Suðurgötunni. Reynd-
ust þau vera á bilinu 65 til 75, sem
telst mjög gott. Bremsuskilyrði teljast
góð yfir 40 en léleg undir 25.
Flugleiðamenn eru þegar farnir að
leita fyrir sér um að fá Fokkervél
erlendis frá. Til að mæta missi
TF-FLO úr innanlandsfluginu leigja
Flugleiðir til að byrja með Twin
Otter-vél frá Flugfélagi Norðurlands.
Þá er líklegt að þota verði notuð í
Akureyrarflugi um páskana. -KMU
Flugvallarstarfsmaður gengur með „svörtu kassana11
mannanna en hinn feril flugvélarinnar og ástand tækja.
frá flugvélinni. Annar þeirra geymir samtöl flug-
DV-myndS.
‘4 *
LOKI
Það er leitun að
öðrum eins svefni.
Veðrið á morgun:
Áfram rignir
fyrirsunnan
ogvestan
Á morgun verður alskýjað og rign-
ing um allt sunnan- og vestanvert
landið. Á Norðausturlandi verður
bjart veður og hitinn 6 7 stig.
Annars staðar verður hitinn á bil-
inu frá 5-7 stig og ríkjandi átt um
allt land verður suðaustlæg.
Það er eitt lægðarsvæðið til við-
bótar sem er að fara fyrir vestan
landið, á milli íslands og Græn-
lands, og er rigningartíðin fylgifisk-
ur þessarar lægðar.
-S.Konn.
SKRIÐA
FÉLL
NIÐUR
STEINA-
FJALL
Fimmtíu metra breið aurskriða
féll niður Steinafjall hjá Steina-
helli undir Eyjafjöllum í gær-
morgun kl. 9. Skriðan féll niður á
Suðurlandsveg og lokaði veginum
þar sem skriðan var tveggja metra
há. Miklar rigningar voru á þess-
um slóðum og voru miklir vatna-
vextir í lækjum undir Eyjafjöllum.
í fyrstu var óttast. að bíll hefði
orðið undir skriðunni en svo v;ir
ekki. Vegagerðin kom fljótlega á
staðinn þar sem skriðtin fél) og
upp úr hádegi var búið að opna
veginn. _SOs
I