Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Blaðsíða 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. MARS1986.
[þróttir
Iþróttir
Stefáni Kon.
- í punktakeppninni
íborðtennis
183
99
Stefán Konráðsson úr Stjörnunni
hefur tekið afgerandi forystu í
punktakeppni BTÍ. Stefán sigraði
Tómas Guðjónsson i úrslitum Vík-
ingsmótsins á þriðjudaginn 4/3 mjög
örugglega, 2~0, og er svo að segja
stunginn af í keppninni. Af 8 punkta-
mótum sem haldin hafa verið í vetur
hefur Stefán unnið i 6 en Tómas
Guðjónsson í 2. Aðrir hafa ekki unnið
mót. Stefán sigraði einnig i flestum
mótum ífyrra.
Staöan í meistaraflokki er nú
þannig: punktar
1. Stefán Konráðsson,
Stjarnan
2. Tómas Guðjónss., KR
3. Hilmar Konráðsson,
Víkingur
4. Kristinn Emilsson,
KR v
5. Kristján Jónasson,
Víkingur
6. Öm Fransson, KR
7.-8. Albrecht Ehmann,
Stjarnan
Kristján V. Haralds,
Vikingur
9. Vignir Kristmundsson,
Öminn
10. Tómas Sölvason, KR
Staðan í meistaraflokki kvenna
punktar
1. Kristín Njálsd., UMSB 12
1. Sigrún Bjarnad., UMSB 12
3. Ásta Urbancic, öminn 6
Aðrar minna.
36
29
27
24
21
21
17
14
Markahátíð
hjáAjax
Ajax heldur áfram að vinna stóra
sigra i hollensku 1. deildinni. Um
helgina vann liðið 7-4) sigur á Herak-
les á heimavelli sínum i Amsterdam
og liðið hefur skorað hvorki meira
né minna en 85 mörk í 20 leikjum eða
yfir fjögur mörk að meðaltalí.
Þrátt fyrir stóra sigra Ajax á þessu
keppnistímabili er liðið þó aðeins í
öðru sæti deildarinnar. PSV Eind-
hoven, sem verið hefur nær ósigrandi
það sem af er þessu keppnistímabili,
vann enn einn sigurinn um helgina.
Liðið lagði Excelsiour að velli á
útivelli, 0-1, og hefur aðeins tapað
þremurstigum.
PSV hefur 35 stig eftir nítján leiki,
Ajax er með 32 stig eftir 20 leiki og
Feyenoord er í þriðja sæti. Hefur
hlotið 30 stig eftir tuttugu leiki. -fros
Heimsmet 15
ára stúlku
ígönguíKína
Wang Yan, Kina, sem er aðeins
fimmtán ára, setti sl. laugardag
heimsmet í 5 km kappgöngu í Jian i
Austur-Kína eftir því sem hin opin-
bera kínverska fréttastofa skýrði frá.
Wang Yan gekk vegalengdina á
21:33,8 mín. Eldra heimsmetið var
21:36,2 mín, Það átti Olga Krishtop,
sett í Penza í Sovétríkjunum i ágúst
1984. -hsim
Iþróttir
Iþróttir
Möguleiki á úrslita
leik LiverpooMiðanna
Liverpool-Iiðin, Everton og Liv-
erpool, lenda ekki saman í undanúr-
slitum ensku bikarkeppninnaref þau
komast svo langt í keppninni, sem
verulegar líkur eru á. Til þess þarf
Liverpool að sigra Watford, Everton
- dregið í undanúrslit enska bikarsins í gær
Luton í 6.umferðinni en leikirnir eru
báðir í Liverpool. Aðeins eitt lið hefur
þegar tryggt sér rétt í undanúrslit,
Southampton.
I gær var dregið í undanúrslit
bikarsins og varð niðurstaðan þessi.
• PortúgalinnCarlosLimaernúæfirmmeðValsmönnum. DV-myndS.
IJi'dil'tfJII
HLVALS?
■ Markvörðurinn Carlos Lima gengur líklega í raðir
félagsins. Lék með portúgölsku 2. deildar liði.
Portúgalinn Carlos Lima hefur að
undanförnu mætt á æfingar hjá ís-
landsmeisturum Vals og flest bendir
til þess að hann muni leika með Iiðinu
í sumar. Hann er 24 ára markvörður.
Carlos hefur undanfarin ár leikið
með portúgalska liðinu Odivelas frá
Lissabon sem leikur í 2. deild. Sigur-
jón Kristjánsson lék reyndar gegn
honum með þáverandi liði sínu,
Campinese. „Carlos var hreint stór-
kostlegur í þeim leik og hann bjarg-
aði liði sínu frá tapi með því að sýna
mjög góða markvörslu," sagði Sigur-
jón en leik liðanna lyktaði með
markalausu j afntefli.
Ástæðan fyrir því að Carlos er hér
á landi er ekki boð frá Valsmönnum
heldur er hann trúlofaður íslenskri
stúlku sem hann kynntist ytra. Hann
hefur í hyggju að vera hér á landi í
sumar og líklega keppa um mark-
varðarstöðu Vals við Stefán Arnars-
Carlos mun vera laus allra mála frá
Odivelas en hann þarf hins vegar að
vera hér í þrjá mánuði áður en hann
verður löglegur, sem tíðkast með
útlendinga. - fros
Sheff. Wed. eða West Ham -
Luton eða Everton
• Southampton - Liverpool eða
Watford.
Leikirnir í undanúrslitum verða
háðir 5. apríl og þá leikið á "hlutlaus-
um" völlum að venju. Ekki var gefið
upp í gær hvaða vellir hefðu orðið
fyrir valinu en miklar líkur á að
annar leikurinn verði í Lundúnum,
það er ef Liverpool sigrar Watford,
en hinn í Manchester.
Til gamans má geta þess að þegar
West Ham og Man.Utd hafa leikið
gegn hvort öðru í bikarkeppninni frá
stríðslokum hefur það liðið, sem
sigrað hefur, ávallt komist í úrslitin
á Wembley og sigrað þar. Nú er
spurning hvort sagan endurtekur sig
og til þess að svo megi verða þurfa
leikmenn West Ham nú heldur betur
að standa sig. Fyrst að sigra Sheff.-
Wed.í 6.umferð í Sheffield, síðan
Luton eða Everton í undanúrslitum
og ef að líkum lætur annaðhvort
Liverpool eða Southampton í úrslita-
leiknum þó svo við afskrifum alls
ekki möguleika Watford.
Bæði Liverpool-liðin komust í
undanúrslitin í fyrra. Everton komst
alla leið í úrslitin. Vann Luton 2-1
á Villa Park en Liverpool tapaði hins
vegar fyrir Man.Utd - eftir tvo leiki
- og United sigraði Everton síðan í
frægum úrslitaleik, þar sem leik-
manni var í fyrsta skipti í sögu úr-
slitaleikja keppninnar vísað af leik-
velli. hsím
Coestefnirá
verðlaunasæti
- í 1500 m á stórmótum sumarsins
„Ég verð að segja eins og er að ég
verð fyrir miklum vonbrigðum ef ég
vinn ekki til verðlauna i 1500 m bæði
á Evrópumeistaramótinu og Sam-
veldisleikunum i sumar,“ sagði enski
stórhlauparinn Sebastian Coe eftir
að hann sigraði i 3000 m hlaupi í
landskeppni Bretlands og Bandaríkj-
anna innanhúss í Cosford á Englandi
um helgina.
Sebastian, sem varð ólympíumeist-
ari í 1500 m á Moskvuleikunum 1980
og i Los Angeles 1984, hljóp 3000 m á
7:54,32 mín. Það er besti tími sem
hann hefur náð á vegalengdinni.
Hefði eflaust getað náð mun betri
tíma. Lét félaga sinn, David Lewis,
sem sigraði Coe á vegalengdinni á
enska meistaramótinu í janúar, um
að halda uppi hraðanum. Stakk hann
svo af á síðustu 100 metrunum. Kom
átta metrum á undan Lewis í mark.
Bandarísku hlaupararnir áttu ekki
möguleika á vegalengdinni.
Þrátt fyrir tvöfaldan sigur breskra
á þessari vegalengd sigruðu Banda-
ríkin með yfirburðum í landskeppn-
inni. Hlutu 83 stig gegn 67 og þó virk-
aði lið USA ekki sterkt á „pappirn-
H
• Sebastian Coe.
um“. Lítið um stórstjörnur en sá
þekktasti, Thomas Jefferson, sem
hlaut bronsverðlaun í 200 m á ólymp-
íuleikunum í LA, keppti í 60 m grinda-
hlaupiogsigraðiá6,69sek. -hsim
Nýliði stökk 1,98 m
Hafsteinn Þórisson, UMSB, stökk
1,98 m á innanhússmóti hjá ÍR i síð-
ustu viku. Borgfirðingurinn æfir með
ÍR og er til þess að gera nýliði á sviði
frjálsra íþrótta. Líklegur til afreka.
Annar varð Jóhann Ómarsson, ÍR,
einnig nýliði. Hann stökk 1,86 m í
keppninni en 190 m í aukatilraun. í
langstökki sigraði Hafsteinn, stökk
6,24 m.
Eva Sif Heimisdóttir, ÍR, setti
stúlknamet i þrístökki. Stökk 10,54
m. Hún sigraði einnig í langstökki,
stökk 5,33 m. Guðbjörg Svansdóttir,
IR, varð i öðru sæti í báðum greinum,
stökk 10,36 og 5,03 m. Jóhanna
Gunnarsdóttir, ÍR, stökk 10,01 í þrí-
stökki. Þórdis Gísladóttir á bestan
árangur ísl. stúlku i þrístökkinu,
stökk 11,60 m í Bandaríkjunum sl. ár.
ÓU/hsím.
Juventus nálgast titilinn
Það styttist í ítalska meistaratitil-
inn hjá Juventus, liðið frá FIAT-
borginni Torino þarf nú aðeins sjö
stig úr síðustu sex umferðunum til
að vinna sinn 15. meistaratitil frá
stríðslokum. Sjötta titilinn síðustu
10 árin undir stjórn sama þjálfarans,
sem hættir eftir þetta leiktímabil.
Juventus er einnig Evrópumeistari.
Á sunnudag gerði Juventus jafn-
tefli við Napoli í Torino,l-l. Varnar-
maðurinn Sergio Brio jafnaði fyrir
Juventus í síðari hálfleik eftir að
Diego Maradona, Argentínumaður-
inn frægi, hafði náð forustu fyrir
Napoli á 34. mín.með skallamarki,
knötturinn fór af varnarmanni í
markið. Áhorfendur voru 50 þúsund,
mikil spenna og harka á leikvellin
um. Sex leikmenn bókaðir og var
Michel Platini, knattspyrnumaður
Evrópu og aðalmaður Juventus, einn
þeirra. Einnig var Maradona bókað-
ur.
Við jafnteflið jókst forusta Juvent-
us í fimm stig því Roma, sem er í
öðru sæti, tapaði fyrir Ítalíumeistur-
unum Hellas Verona á útivelli. Ver-
ona sigraði 3-2 og þó náði Roma
tvívegis forustu í leiknum. Roberto
Pruzzo skoraði bæði mörk Roma.
Hann er nú markahæstur á Italíu
með 15 mörk. Antonio di Gennaro
jafnaði í 1-1 í fyrri hálfleik, Giuseppe
Galderisi úr vítaspyrnu í 2-2 áður
en vestur-þýski landsliðsmaðurinn
Hans-Peter Briegel skoraði sigur-
mark Verona á síðustu mínútu leiks-
ins. Það var mjög umdeilt.
Af öðrum úrslitum á sunnudag má
nefna að Inter sigraði Fierontina 2-0
í Milano og hitt Milano-liðið, AC
Milano, sigraði einnig. 0-1 í Pisa.
Bari sigraði Torino 1-0 og Avellino
vann Sampdoria 2-1. Hvort tveggja
heimasigrar.
Juventus hefur nú hlotið 38 stig
úr 24 leikjum en Roma kemur næst
með 33 stig. Aðeins þessi tvö lið hafa
raunhæfa möguleika á meistaratitl-
inum, en titillinn þó nánast í höfn i
hjá Juventus. Liðið hefur aðeins
tapað einum leik á keppnistímabil-
inu. Napoli er í þriðja sæti með 29
stig, síðan AC Milano 28, Inter 27.
Meistarar Verona aðeins í áttunda
sæti með 24 stig, 50% árangur.
hsím