Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Qupperneq 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. MARS1986. 9 Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari DV í Lundi: Allt þjóðlíf í Svíþjóð stöðvaðist í eina mínútu á hádegi í gær til minn- ingar um Olof Palme. 011 umferð stöðvaðist og fólk stóð þögult og minntist hins látna forsæt- isráðherra landsins. Sem fyrr sáust margir gráta á götum úti og eru nú sálfræðingar teknir að fjalla um þetta áður óþekkta fyrirbæri í sænsku sálarlífi. í sænska þinginu, Rikstagen, var haldin minningarstund um Olof Palme og var fjölskylda hans við- stödd athöfnina. Var það í fyrsta sinn er frú Lisbeth Palme sást utan dyra eftir morðið. Hún mætti til athafnarinnar ásamt sonum sínum þremur, föl að sjá en yfirveguð. Formenn allra stjórnmálaflokk- anna minntust Palmes í þinginu. Helsti andstæðingur Palmes, Ulf Adelson, leiðtogi íhaldsflokksins, sagði meðal annars „enginn annar jafnaðarmaður gat gert mig jafn- reiðan, það væri hræsni af mér að segja annað. En þegar á reynir þá höldum við saman“. Það er ljóst að morðið á Palme hefur þjappað sænsku þjóðinni sam- an og dregið úr andstæðunum í sænskum stjórnmálum, að minnsta kosti um stundarsakir. Ljóst er nú orðið að hundruð er- lendra þjóðarleiðtoga og stjórn- málamanna koma í lok vikunnar til Stokkhólms til að vera við útför Palme. í gær var skýrt frá því að Shults utanríkisráðherra yrði fulltrúi Bandaríkjanna við athöfnina. Einn- ig kom fram að Simon Perez, forsæt- isráðherra Israels, hefur boðað þátt- töku sína. Sten Anderson utanríkisráðherra mun stjórna athöfninni er sjónvarp- að verður beint. Af öðrum er tala við athöfnina má nefna Ingvar Carlson. hinn nýja forsætisráðherra, Karl Gústaf konung, • Willi Brandt, for- mann alþjóðasambands jafnaðar- manna, og Rajiv Gandhi, forsætis- ráðherra Indlands. Fátt nýtt hefur komið fram á frétta- mannafundum sænsku lögreglunnai undanfarna daga. Hins vegar skýrði Expressen, útbreiddasta dagblað Svíþjóðar, frá því á forsíðu í gær að tveir sænskir lögreglumenn hefðu undanfarna daga verið í stöðugum yfirheyrslum grunaðir um aðild að morðinu. „Já, því miður er það rétt,“ hefur blaðið eftir ónafngreinum heimild- armanni sínum innan sænsku rann- sóknarlögreglunnar. Enn þyrpist fólk í þúsundatali að stað þeim í Stokkhólmi þar sem Olof Palme var myrtur þann 28. febrúar siðastliðinn. Búist er við hundruðum þjóðarleiðtoga og stjórnmálamanna til Stokkhólms á laugardag til að vera við jarðarför Palmes. Hluti áhafnar Challengers um borð í ferjunni rétt áður en hún fórst. Nú hafa jarðneskar leifar geimfaranna fundist. Sérfræðingar rannsaka líkamsleifargeimfara Bandarískir réttarlæknissérfræð- ingar hafa hafið rannsókn á jarðne- skum leifum geimfaranna sjö er fórust með geimferjunni Challenger. Áhafharklefi geimferjunnar fannst í gærmorgun á 30 metra dýpi um 24 kílómetra norðaustur af skotstaðnum á Kanaveralhöfða í Flórída. Sérfræðingar bandarísku geim- ferðastofnunarinnar hafa sem minnst um rannsóknina á líkamsleifum geim- faranna viljað segja og í hvernig ástandi þær fundust, af tillitssemi við ættingja geimfaranna. Slæmt veður á leitarsvæðinu hefur komið í veg fyrir að björgunarmönn- um tækist að ná sjálfum áhaíharklef- anum upp á yfirborðið en köfurum tókst í gær að finna líkamsleifar nokkurra geimfaranna og koma með þær upp á yfirborð. Óstaðfestar heimildir á björgunar- stað herma að hkamsleifar þær sem náðst hafa hafi allar verið sundur- tættar og illa útlítandi eftir spreng- inguna er grandaði Challenger þann 28. janúar síðastliðinn. USS Salvager, björgunarskip bandaríska flotans, lá í vari í nótt vegna óveðurs á leitarsvæðinu en átti að halda áfram björganaraðgerð- um strax er lægði. Sérfræðingar telja að ítarlegar rannsóknir á jarðneskum leifum geimfaranna geti varpað ljósi á það hvort áhöfnin lét samstundis lifið við sprenginguna er Challenger splundr- aðist, kafnaði af völdum eiturgufa fyrir sprenginguna, lést af völdum höggsins er áhafnarklefinn skall í sjóinn eða hvort hún drukknaði eftir að hafa lent í sjónum. 15340 Bmkmtrmti 0 Sjóskíði, seglbretti, siglingar og sólböð. Listinn yfir það sem hægt er að gera á Ibiza er endalaus, því á Ibiza lætur fólkið hugrhyndaflugið ráða. Farið er í vélhjóla- ferðir, veislur, stundaðar íþróttir, þorstanum svalað á strandbarnum og fjörugustu diskótek Miðjarðarhafs- landanna eru opin fram á morgun. Á Ibiza er íslenskur fararstjóri sem er þrælvanur að þjóna hugmyndaríkum gestum og honum kemur ekkert á óvart!!! Fyrir þá allra fjörugustu verður farin sérstök þriggja vikna fjörferð þann 9. september og það er vissara að panta strax! (JPPSELT upPSELT Aðrir brottfaradagar í fjörið á Ibiza er 21 /6, 817, 2&tT'og 19/8. Á Ibiza er gist á glæsilegum íbúðahótelum og þriggja vikna dvöl kostar frá 27.170L- Á Ibiza rætast draumarnir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.