Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Page 10
10 DV. ÞRIÐJUDAGUR11. MARS1986. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd „Það avannst ekkert með neyðarlögunum” - segir ritstjóri útbreiddasta dagblaðs í Suður-Afríku um illræmdu en leiðtogar blökkumanna óttast að þeim verði áfram framfylgt. Afnám neyðarlaganna í Suður- Afríku síðastliðinn föstudag, er gilt hafa í landinu síðastliðna sjö mán- uði, hefur vakið ýmsar spurningar um atburðarás í landinu á næstu mánuðum. Stjórnarandstæðingar spyrja nú sjálfa sig að því á hvaða hátt ríkis- stjórnin ætli að berjast gegn óróa og óeirðum á meðal blökkumanna, nokkuð sem höfundum löggjafar- innar um neyðarlögin virðist hafa mistekist. Tölur yfir fallna og særða í átök- um kynþátta í Suður-Afríku síðustu tvö ár sýna okkur að á sjö mánaða tímabili neyðarlaganna tvöfaldaðist fjöldi þeirra er féllu og særðust í átökum, þar af varð aukningin mest á meðal þeirra er féllu i átökum við sveitir hers og lögreglu. Frá því í febrúar 1984 hafa tæp tólf hundruð manns fallið í átökum og margfalt fleiri særst. „Ég er ekki sammála því sjónar- miði stjórnarinnar að ástandið í landinu hafi batnað það mikið á síðustu vikum að réttlæti afnám neyðarlöggjafarinnar,“ segir John Dugaard, lagaprófessor í Jóhannes- arborg. „Afhámið kemur til með að bæta ímynd stjómarinnar erlendis en maður hræðist það ósjálfrátt að í staðinn fyrir hin tímabundnu neyðarlög komi varanleg öryggis- löggjöf sem alls ekki yrði svo auð- velt að losna við aftur, löggjöf er heimilaði her og lögreglu mun harð- ari aðgerðir í baráttu við andófs- hópa en fyrri lög hafa heimilað," segir prófessorinn. Stjómarandstæðingar, er sleppt var úr haldi um helgina vegna af- náms neyðarlaganna, hafa einnig áhyggjur af nýrri lagasetningu stjórnvalda í staðinn fyrir neyðar- löggjöfina tímabundnu. Umræðan um möguleikann á neyðarlögum í nýjum búningi er mál málanna í Suður-Afríku um þessar mundir. „Að afnema neyðarlögin og koma í staðinn á lögum lögregluríkis um aldur og ævi væri að bjóða heim algerri kollsteypu," segir í leiðara í sunnudagsútgáfú Tribune, einu útbreiddasta dagblaði landsins og lýsir blaðið yfir áhyggjum sínum vegna setningar neyðarlaganna í byrjun og kveður tilgang þeirra algerlega hafa mistekist. Leiðarahöfundur segir að með afnámi neyðarlaganna hafi ríkis- stjórnin i raun viðurkennt máttleysi lagasetningarinnar fyrir sjö mánuð- um. „Það ávannst ekkert með neyðar- lögunum , setning þeirra var mi- stök, dýrkeypt mistök. Heima fyrír var almenn andstaða gegn slíkri lagasetningu, erlendis voru neyðar- lögin fyrirlitin," segir leiðarahöf- undur. Suður-Afríkubúar virðast nú vera orðnir langþreyttir á neikvæðri umfjöllun og tortryggni í sinn garð á alþjóðavettvangi og reyna nú að gera sitt besta til að hressa upp á ímyndina. Ríkisstjórn P.W. Botha hrinti 31. janúar síðastliðinn af stað mikilli herferð fyrir bættri ímynd landsins erlendis, ekki síst í huga erlendra lánardrottna sem nú horfa upp á versnandi skuldastöðu Suður- Afh'ku og hafa ekki viljað veita frekari fyrirgreiðslur án þess að í staðinn komi loforð ríkisstjórnar Botha um frekari umbætur til handa blökkumönnum. Botha forseti notaði þá tækifærið og tilkynnti um aukin réttindi blökkumönnum til handa og afnám á nokkrum eldri höftum kynþátta- stefnunnar. Botha og félagar í Pretóríu hafa nú einnig formlega numið úr gildi umdeild og illræmd neyðarlög í Suður-Afríku og þykjast nú betur settir en fyrr hvað varðar ímynd sína erlendis. En stóra spumingin nú er hvort neyðarlög hafa í reynd verið afnum- in og þá hvort ástand mála í Suður- Afríku kemur eitthvað til með að breytast í kjölfar þess á næstunni. Lama samgöngur í Finnlandi á fimmtudag Frá Suðurhöfninni í Helsinki og helsta nágrenni hennar. Finnska aiþýðusambandið hefur boðað til verkfalls næstkomandi fimmtudag er lama mun allar samgöngur í landinu innanlands og til útlanda. Hafnarverkamenn i Suðurhöfninni leggja þá líka niður vinnu. Guðrún Helga Sigurðardóttir, fréttaritari DV í Helsinki: Hætta er á að allar samgöngur til og frá Finnlandi stöðvist næstkom- andi fimmtudag, 13. mars, klukkan tólf á hádegi vegna verkfalls er finnska alþýðusambandið, Finland Fackföreningars Centralförbund (FFC), hefur boðað. Þá er átt við allar samgöngur til og frá Finnl- andi, innanlandsflugið, auk inn- og útflutnings, iðnaðar, orkufram- leiðslu og flutninga innanlands. Fundafargan um helgina Á mánudag var þó skýrsla svo- kallaðrar þriggja manna nefndar afhent Kalevi Sorsa forsætisráð- herra eftir miklar samningaumleit- ahir um helgina og samkvæmt frétt- UMSJON: HANNES HEIMISSON um hér halda viðræður deiluaðila áfram, þó ekki væri nema til að fá FFC til að fresta boðuðu verkfalli lítið eitt á meðan viðræður eiga sér stað. Verkalýðsfélögin hafa lýst því yfir að reynt verði að láta verkfaílið, sem búist er við að verði langt ef til kemur, koma sem minnst við almenning. Þó er gert ráð fyrir að smám saman komi upp skortur á nýju kjöti, mjólk og ferskum ávöxt- um, auk þess sem flutningur á olíu verður stöðvaður og búist er við að skortur geti orðið á rafmagni. Engin launahækkun í tiu ár? Vinnuveitendur bg verkalýðsfé- lögin deila aðallega um styttingu vinnuvikunnar og hækkun launa, en málgagn málmiðnaðarmanna hér í Finnlandi lét þess getið fyrir helgi að laun félagsmanna alþýðu- sambandsins hefðu í raun ekki hækkað síðastliðin tíu ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.