Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Qupperneq 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS1986. 11 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Fenningarfötin Jakkaföt með kjólfatasniði, leðurjakkar, joggingfatnaður, eða nánast hvað sem er Þá höldum við áfram með ferming- arundirbúninginn og nú er kominn tími til að fara að huga að klæðnaðin- um og skótauinu. Á ferð okkar í klæðaverslanir bæjarins kom í ljós að úrvalið, sniðin og litimir eru nánast óteljandi og verður að teljast happ fyrir kirkjugesti að fermingar- bömin verða íkleedd hvítum kyrtlum, litadýrðin gæti annars reynst mörg- umumof. Ef við reynum að draga saman þá línu sem virðist ætla að verða ríkjandi í fermingarklæðnaði í ár þá er það annars vegar draktir, jakki og pils eða jakki og buxur með kjólfatasniði og hins vegar litskrúðugur bómullar- fatnaður, pils, kjólar, peysur og bux- ur. Þessi litadýrð virðist aðallega eiga við um stúlkurnar, þótt strákamir virðist vera farnir að færa sig upp á skaftið og skarta skærlitum jakkaföt- um, bindum og slaufum. í Kamabæ em jakkaföt með kjól- fatasniði bæði fyrir stelpur og stráka, en jakkamir á kvenfötunum eru með löfum sem er ekki hjá strákunum. Kvenfötin em til í fimm litum, hvítu, svörtu, appelsínugulu, bláu og hvítu og kosta 5.890,-. Skyrtur em í mörgum litum, skærum með glansáferð og kosta frá 1990,- krónum. Punkturinn yfir allt saman er svo slaufa eða bindi í skærum litum á 250,- kr. Karlmannafötin í Karnabæ eru með svipuðu sniði, en í daufari litum og okkur sýnist að gráir og bláir tónar séu algengastir oft með einhverjum yrjum í sterkari litum. Jakkafötin kosta 5.890,- , skyrta 1.390,- og bindi 390,-. Jakkaföt í Torginu, með hefð- bundnu sniði, kosta 6.500,- og eru til í tveim tónum af gráu. Hvít skyrta á 1.190,- og bindi eða slaufa á tæpar 500,- krónur. Leðurjakkar em mikið keyptir og kosta 12.900,-. Fermingar- fötin á stelpuna eru ýmist bómullar- kjóll á 2.990,- til 3.400,- í gulu, grænu eða bleiku, eða pilsdraktir á 5.900,- í bláu, grænu eða appelsínugulu. í Faco voru jakkafötin sem mest eru keypt fyrir ferminguna með kjólfata- sniði og kostuðu 7.290,-. Litirnir vom svartur og 3 tónar í gráu. Hinar vin- sælu bómullarflíkur voru til í miklu úrvali og „joggingkjóll" í grænu, appelsínugulu og gulu á 3.390,- krón- ur. Valið á skóm kemur til með að verða einfaldara en valið á fatnaðin- um, því nú virðast mokkasínur vera allsráðandi og liturinn þá valinn í stíl við fatnaðinn. Hjá Axel Ó. vom til 10 litir af kvenmokkasínum á 1954,- og fínni skór með hæl á 2.098,-. Karmannaskórnir eru með svipuðu sniði og venjulega og kosta um og yfir 2.000,- krónur. I þeim verslunum sem við fórum í var afgreiðslufólkið sammála um að nú væri algengara en áður að krakk- arnir keyptu föt sem þeir gætu notað áfram, en ekki eins og áður var þegar fermingarfötin fengu að dúsa inni í skáp eftir að veisluhöldum var lokið og krakkarnir notuðu þau ekkert þar eftir. Mikið af þeim fötum sem nú er keypt fyrir fermingarnar tilheyrir nýrri sumarlínu og getur því dugað langt fram á sumarið. 1 vefnaðarvöru- verslunum fengust þær upplýsingar að mikið yrði saumað í ár og færu margir eftir þeim sniðum og efnum sem eru í tilbúnum fötum í tískuversl- unum og að öliu jöfnu mun reynast ódýrara að sauma en kaupa tilbúið. Flestir hafa reynst tímanlega í inn- kaupunum og margt af þeim klæðnaði sem sérstaklega er seldur fyrir ferm- ingamar er nú á þrotum í verslunum. Væntanleg fermingarböm skyldu þó ekki örvænta því enn virðist úr nógu að moða og sniðin einföld fyrir þá sem ætla sér að sauma. -S.Konn. Þessar þrjár megingerðir af karlmannaskóm eru mest áberandi og kosta um og yfir 2.000,- krónur i skóverslun Axel Ó. Háir hælar eða lágbotna; 10 litir af mokkasínum á 1.954,- krónur Fermingarföt sem þessi kosta alls 8.090,- krón- ur ogfástiTorginu. Dæmigert fyrir fermingarföt ungherranna í ár. Kjólfatasniðin jakkaföt í gráum litum. Þessi fatnaður kostar 7.670,- í Bonaparte. Mjög svipað snið er á jakkafötum fyrir stúlk- urnar, en litagleðin er meiri en hjá strákunum. Þessi föt kosta einnig 5.890,- i Karnabæ. Mynd:PK. Einfaldir kjólar úr bómullarefni, eða svoköll- uðu joggingefni, eru mikið keyptir og sá sem sést hér á myndinni kostar 3.400,- krónur í Torginu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.