Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Qupperneq 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR11. MARS1986. Flugleiðafokker með 45 manns um borð hætt kominn: Hætti við flugtak en hafnaði á Suðurgötu - flugvélin mikið skemmd, ef ekki ónýt ■ ruddi niður girðingu Litlu munaði að stórslys yrði þegar Fokkervél írá Flugleiðum með 45 manns um borð hafnaði á Suðurgötunni klukkan hálftólf í gærmorgun eftir misheppnaða til- raun til flugtaks af Reykjavíkur- flugvelli. Flugvélin er mikið skemmd, ef ekki ónýt. Stór olíubíll var nýfarinn eftir Suðurgötunni, þar sem hún liggur um 50 metra frá flugbrautarendan- um, þegar ílugvélin þeyttist fram af. Þá var ungur drengur staddur nærri. Má teljast mildi að engan, hvorki farþega um borð, áhöfn né vegfarendur, skyldi saka. Flugvélin TF-FLO, eða Árfari, er yngsta Fokkervél Flugleiða, smíðuð árið 1969. Hún var að leggja upp í flug til Fatreksfjarðar og Þingeyrar. Flugstjórinn, Arni Sigurbergsson, virðist hafa hætt við flugtak á síð- ustu stundu, í þann veginn sem flugvélin var að byrja að lyftast af austur-vesturbraut Reykjavíkur- flugvallar. Samkvæmt frásögn sjónarvotta var flugvélin á móts við afgreiðslu innanlandsflugs Flugleiða þegar flugmennimir hófu að nauðhemla með hjólabremsum og með því að breyta skurði skrúfublaðanna. Það sem eftir var af 1490 metra langri flugbrautinni dugði ekki til að stöðva flugvélina. Þeyttist hún freim af blautri flugbrautinni og ruddi niður flugvallargirðingu. Framhjólið brotnaði undan og vélin féll á nefið. Stöðvaðist hún ekki fyrr en á Suðurgötunni. Farþegar og áhöfn komust af eigin rammleik frá borði án þess að meið- ast. Fljótlega dreif að slökkvilið, sjúkralið, lögreglu, björgunarsveit svo og mörg hundruð forvitna áhorfendur. I fljótu bragði mátti sjá að fram- endi flugvélarinnar, vinstri vængur og skrúfublöð eru mikið skemmd. Hugsanlegt er að hreyfill sé ónýtur. „Okkur sýnist að flugvélin sé töluvert mikið skemmd. Það getur tekið langan tíma að gera við hana ef það svarar kostnaði að gera við hana,“ sagði Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, á vettvangi í gær. „Við munum þurfa að fá nýja vél mjög fljótlega," sagði Sigurður. Fokkervél Landhelgisgæslunnar getur ekki hlaupið í skarðið þar sem hún verður í skoðun næstu 3-4 vikur. -KMU Flugvélin á Suðurgötunni um tíu minútum eftir óhappið. Lögregla og björgunarsveit girða af vettvang. Olíubíll kominn til að dæla eldsneyti af vélinni. DV-mynd:S. Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir I dag mælir Dagfari_______i dag mælir Dagfari_______I dag mælir Dagfari Roðhænsn eða ráðherra í helgarblaði DV er athyglisvert viðtal við einn af merkustu kvik- myndaframleiðendum þjóðarinnar. Þetta viðtal þurfa sem flestir að lesa. Hann tekur ráðherrana í karp- húsið í ómyrku máli og lýsir yfir því að annaðhvort séu þeir roðhænsn eða ráðherrar. Áður en viðtalið er allt kemur i ljós hvers vegna ráð- herrarnir eru ekki ráðherrar heldur roðhænsn. Ástæðan fyrir því að kvikmyndaframleiðandinn kemst að þessari niðurstöðu er sú að kvik- myndasjóður hefur verið skorinn niður og kvikmyndaframleiðendur fá ekki lengur nærri nóg upp í tapið á bíómyndunum sínum. Nú er það venjulegast þannig, þar sem kvikmyndir eru framleiddar í útlöndum, að þær eru miðaðar við það að einhver nenni að horfa á þær. Með þeim hætti er reiknað með því að myndin standi undir kostnaði og nægilega margir vilji kaupa sig inn í bíóið til að horfa á hana, þannig að framleiðslan borgi sig. Þessi kvikmyndaiðnaður hefur blómgast i marga áratugi og sagður vel ábata- samur, enda fremur algengt að fólk fari í bíó til að sjá góðar myndir. Hér á landi hafa mörg vegleg bíóhús verið reist og sýnast ganga ágæt- lega, enda þótt margar og fjölbreyti- legar myndir séu á boðstólum hverju sinni. Þar að auki eru vídeó- leigur á hveiju götuhorni sem sömuleiðis bjóða almenningi bíó- myndir til leigu og má fullyrða að þjóðin hafi ekki annað fyrir stafni á kvöldin en að horfa á bíómyndir sem hún nennir að horfa á. Jafnvel þótt fyrir komi að videó- leigum sé lokað stöku sinnum spretta nýjar upp jafnharðan, enda nógu margir reiðubúnir til að hella sér út í samkeppnina, og má líkja þessu við gullæðið í Klondyke, þar sem ævintýramennirnir gera sér greinilega grein fyrir að stóri vinn- ingurinn og markaðurinn sé fyrir hendi með þrautseigju og útsjónar- semi. Af einhveijum illskiljanlegum ástæðum má það teljast til hreinna undantekninga ef bíóhús eða videó- leigur maka krókinn á íslenskum myndum. Ekki verður þó kvartað undan því að þær hafi ekki verið á boðstólum. Og vel auglýstar. Sumar þeirra hafa jafnvel verið til sýnis löngu eftir að nokkrum manni dett- ur í hug að horfa á þær. Fróðir menn halda því þó fram að ef vel sé Ieitað í öllum þeim aragrúa kvik- mynda, sem framleidddar eru, megi finna að minnsta kosti þó nokkuð margar sem séu verri heldur en þær íslensku. Gallinn mun hins vegar vera sá við islensku kvikmynda- framleiðsluna að hún er yfirleitt sniðin fyrir framleiðandann en ekki áhorfendurna. Þetta hafa áhorfend- ur smám saman fundið út og því eru þær ekki sóttar. Auðvitað er þetta dónaskapur gagnvart íslenskri listgrein sem ástæða er til að fordæma. Sérstak- lega ber að fordæma ráðherra og ríkisstjórn fyrir þetta hneyksli. Ef mark á að taka á kvikmyndafram- leiðandanum í helgarviðtalinu þá er allt eins líklegt að aðsóknarleysið sé beinlínis ráherrunum að kenna. Og er þá komin skýringin á því hvers vegna þeir eru roðhænsn en ekki ráðherrar. Veslings framleið- endurnir vita ekki sitt ijúkandi ráð. Þeir hafa sett fram réttmæta kröfu um að ríkissjóður og kvikmynda- sjóður hlaupi undir bagga og standi undir kostnaðinum af framleiðsl- unni á myndunum sem fólkið vill ekki horfa á. Og í staðinn fyrir að samþykkja það orðalaust eru ráð- herrarnir með röfl og segjast ekki hafa peninga. íslenskir kvikmyndaframleiðend- ur standa ráðalausir gagnvart þess- ari afstöðu roðhænsanna. Þeir hafa aldrei verið beðnir um að framleiða myndir fyrir áhorfendur og kunna það alls ekki. Listin gerir ekki ráð fyrir þvi - kvikmyndasjóður ekki heldur. Aðalatriði er að framleiða bíómyndir sem framleiðendur eru sjálfir ánægðir með og þá kemur það alls ekki þessu máli við hvort ein- hveijir aðrir nenni að horfa á mynd- irnar. Á því byggist þessi iðnaður hér heima, hvað sem þeir segja í útlandinu. Útlenskar myhdir eru framleiddar fyrir áhorfendur, þær íslensku fyrir framleiðendur. Þetta verða roðhænsnin i ríkisstjórninni að skilja. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.