Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 21
20 DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986. DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986. 21 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir • Árni Stefánsson. Árni Stefáns til Hofsóss - þjálfar og leikur með Hofðstrendingi Frá Þráni Stefánssyni, fréttamanni DV á Akureyri: Árni Stefánsson, landsliðsmark- vörðurinn kunni í knattspyrnunni á árum áður, hefur verið ráðinn þjálf- ari 4. deildar liðs Höfðstrendings á Hofsósi. Hann mun einnig leika með liðinu - í markinu. Árni hefur undan- farin ár verið þjálfari og leikmaður Tindastóls á Sauðárkróki. hsím Ögmundur þjálfar markverði Ögmundur Kristinsson, sem stóð i marki Víkinga síðastliðið sumar, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari 1. deildar liðs Breiðabliks í knatt- spyrnu. Ögmundur mun sjá um þjálfun markvarða hjá félaginu, jafnt í meistaraflokki sem og yngri flokk- um. -fros 100. mark Everton enn einn sigur - Gaiy Lineker tryggði Everton sigur gegn Sheff. Wed. og liðið komið í undanúrslit bikarsins í 21. skiptið, sem er met Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta- manni DV í Englandi: Mörgum knattspymuunnendum sem unna fallegri knattspymu urðu það mikil vonbrigði í gærkvöldi þegar West Ham tapaði fyrir Sheffield Wednesday í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar en leikið var í Sheffield. Flestir vonuðu að West Ham myndi vinna sigur en liðið leik- ur mjög skemmtilega knattspyrnu um þessar mundir. Ekki hafa knatt- spyrnuunnendur sömu skoðun á Gidman fékk frjálsa sólu -frá Manchester United Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta- manni DV i Englandi: John Gidman, leikmaður með Manchester United um árabil, fékk í gærkvöldi frjálsa sölu frá félaginu. Ástæðan fyrir því að Gidman fékk frjálsa sölu var, að sögn forráða- manna United, áralöng og trygg þjónusta hans við félagið. Gidman er strax farinn að hugsa sér til hreyfings og í gærkvöldi átti hann strax viðræður við Aston Villa, sitt gamla félag. • Ron Sounders, framkvæmdastjóri botnliðsins, West Bromwich Albion, snaraði buddunni á borðið í gær- kvöldi og keypti Paul Dyson frá Stoke City. -SK þeirri knattspyrnu sem Sheffield Wednesday býður upp á. Það var Nigel Worthington sem skoraði fyrra mark Sheffield í gær- kvöldi en síðara markið skoraði táningurinn Carl Shutt á 36. mínútu. Á 2. mínútu síðari hálfleiks náði Tony Cottie að minnka muninn í 2-1 eftir sendingu frá Frank McAvennie. Everton misnotaði víti en sigr- aði samt Meistarar Everton náðu að sigra Luton Town í 8-liða úrslitum bikar- keppninnar og liðið mætir Sheffield Wednesday í undanúrslitunum. Það var Gary Lineker sem skoraði sigur- mark leiksins, mjög glæsilegt mark, 100. mark Everton á keppnistímabil- inu og 30. mark Linekers. Trevor Steven lét Les Sealy, markvörð Lu- ton, verja frá sér vítaspyrnu. Leik- menn Luton áttu einnig sín færi í leiknum en einu sinni small knöttur- inn í stönginni og Southall varð að taka verulega á honum stóra sínum til að afstýra marki. Everton er því komið í undanúrslit í bikamum eins og áður sagði og er það í 21. skipti í sögu félagsins sem það á sér stað og er það met í sögu ensku knatt- spymunnar. -SK Oxford á Wemblev í fvrsta skipti - sigraði Aston Villa í gærkvöldi og leikur til úrslita gegn QPR í deildarbikamum Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta- manni DV í Englandi: Oxford United er komið í úrslit í ensku deildarbikarkeppninni eftir að liðið sigraði Aston Villa á heimavelli sínum með tveimur mörkum gegn einu í gærkvöldi. Oxford leikur til úrslita á Wembley í fyrsta skipti í sögu félagsins gegn Queens Park Rangers. Leikmenn Oxford brutu þvi blað í sögu ensku knattspyrnunn- arígærkvöldi. Sigur Oxford var mjög sanngjam. Les Philips skoraði íyrra mark Ox- ford á 55. mínútu og fimmtán mínút- um síðar skoraði Jeremy Charles síðara markið en bæði þessi mörk komu eftir góðan undirbúning John Aldridge. Þegar þrjár mínútur voru til leiksloka náði Mark Walters að minnka muninn í 2-1. Á lokasekúnd- unum fengu leikmenn Aston Villa gott marktækifæri en það fór for- görðum og þar með var Oxford komið á Wembley í fyrsta skipti í sögu fé- lagsins. -SK Máli Sigurðar vísað frá Tekin var fyrir i gær hjá aganefnd KSÍ kæra Gunnars Jóhannssonar dómara á hendur Sigurði Björgvins- syni, knattspyrnumanni úr Keflavík. Eins og áður hefur verið greint frá í blaðinu þá sparkaði Sigurður í Gunn- ar í æfingaleik Breiðabliks og Kefla- víkur. Aganefndin vísaði málinu frá á þeim forsendum að málið félli ekki undir verksvið hennar. Ekki er Ijóst hvaða stefnu málið kemur til með að taka. Dómstóll Ungmennafélags Kjalarnesþings mun líklega fá það til meðferðar en eins gæti hugsast að dómstóll Kefl- víkinga tæki málið að sér. -fros Tveir sænskir kringlu kastarar í keppnisbann Sænska fijálsíþróttasambandið til- ;ynnti í gær að það hefði sett ;ringlukastarana Göran Svensson ig Lars Sundin í keppnisbann þar em þeir hefðu reynst jákvæðir á yflaprófi. Mikið magn af karl-horm- óninum, testosterone, fannst í blóði þeirra í september sl. Keppnisbann þeirra gildir frá þeim tíma og Sundin hefur verið sviptur sænska meistar- atitlinum í kringlukasti sem hann vann á sænska meistaramótinu 1985. Sænska frjálsíþróttasambandið til- kynnti fyrst í gær um keppnisbannið á kringlukösturunum - beið með það þar til nákvæmar rannsóknir höfðu farið fram. Þeir Svensson og Sundin hafa báðir neitað að hafa tekið töflur eða fengið sprautur með testoster- one. Hins vegar segjast þeir hafa neytt kinverskrar náttúrufæðu sem þeir hefðu keypt í „heilsubúð11 í Bandaríkjunum. -hsím | •CarlosLimahefurtilkynntfélagaskiptiíVal. g : Portúgalinn; ■ mm nj an mm nn gekkiVal |-félagaskiptin hafa þegar verið samþykkt j ■ Portúgalski leikmaðurinn Carlos Eins og greint var frá í vikunni þá ® I I Portúgalski ILima hefur tilkynnt félagaskipti úr Odivelas frá Lissabon yfir í Val og I hafa þau þegar verið samþykkt af 5 stjórnKSÍ. og greint var frá í vikunni þá hefur Carlos æft með Valsliðinu að H undanförnu. Hann leikur scm mark- ™ vörður. ■ -fros _ • Pálmar Sigurðsson, Haukum. Bikarúrslitin í kórfu í kvöld Tekst nýkrýndum íslandsmeisturum Njarðvík- ur að hreppa bikarmeistaratitilinn í fyrsta skipti í körfu i kvöld? Það kemur í ljós í Laugardalshöll þegar Njarðvíkingar mæta Haukum i úrslitaleik. Njarðvíkingar hafa aldrei unnið bikarinn i körfu en Haukar eru núverandi bikarmeistarar og hafa því titil að veija. Þessi lið áttust við í hreinum úrslitaleikjum um tslandsmeistaratitilinn og gekk á ýmsu eins og jafnan þegar þessi lið mæt- ast. Það má því búast við hörkuleik í kvöld. -SK „Helvítis vitleysa” - hrópaði Samúel Örn Erlings - son og varð fyrstur íslenskra blakmanna til að fa tvær brottvísanir Samúel örn Erlingsson, íþróttafréttamaður útvarps, setti í gærkvöldi nýtt met í íslenskri blaksögu. Samúel náði þeim vafasama heiðri að verða fyrstur islenskra blakmanna til að vera rekinn út af í annað sinn á ferli sinum. Brottrekstrar eru afar sjaldgæfir í blaki. Aðeins örfáir leikmenn hafa verið reknir út af frá þvi farið var að keppa i blaki hérlendis. Þar til i Hagaskóla í gærkvöldi hafði enginn verið rekinn útaftvisvar. Dómarinn, Kjartan Páll Einarsson, vísaði Samúel af leikvelli í þriðju og siðustu hrinu leiks Þróttar og Víkings í úrslitakeppni Islandsmóts- ins. Samúel hrópaði „helvitis vitleysa" eftir að dómarinn hafði dæmt fingurslag Samúels sem mokstur. Þróttur sigraði Víking örugglega, 3-0, í leikn- um. Hrinur fóru 15-8,15-10 og 15-6. Það verða því Þróttur og IS sem enn einu sinni leika til úrslita um titilinn. Þau keppa þar til annað liðið hefur sigrað í tveimur leikjum. Fyrsti leikur þeirra verður annað kvöld, föstudagskvöld, í Hagaskóla. Annar leikur liðanna, hugsanlega sásíðari, verður liklega á mánudag. í millitíðinni þurfa Þróttarar að mæta Víking- um í undanúrslitum bikarkeppninnar, á sunnu- dag. Verður það þriðji Ieikur þessara liða á aðeins •fimm dögum. Verði leikur Þróttar og ÍS svo á mánudag verður það fimmti erfiði leikur Þróttara á aðeins sex dögum. Má teljast furðulegt að nokkru liði skuli boðið upp á slíkt erfiði og það þegar verið er að keppa mikilvægustu leiki keppn- istimabilsins. -KMU Samúel örn í leiknum í gærkvöldi áður en hann varrekinnútaf. DV-myndKMU. Markvörður Rumena i tveggja ara bann Rúmenski markvörðurinn Adrian Simeon, sem féll á lyfjaprófi i heims- meistarakeppninni í Sviss, hefur verið dæmdur í tveggja ára keppnis- bann eða til 7. mars 1988. Hann fær ekki að leika með félagsliði sinu, Steaua Búkarest, eða rúmenska landsliðinu, næstu tvö árin. í lyfjaprófinu í Sviss kom í ljós að markvörðurinn hafði neytt lyfsins efedrin sem er á bannlista alþjóða- samtaka á íþróttasviðinu. Leikmað- urinn fór í lyfjapróf eftir leik Sví- þjóðar og Rúmeníu á HM. Flestir læknar eru sammála um að strika eigi efedrin út af bannlistanum og nokkrir þeirra vinna að því. Vissu- lega er þetta örvandi lyf en nær eingöngu notað til að rífa kvef úr fólki. Þar er það ótrúlega skjótvirkt að sögn lækna. Adrian Simeon kvefaðist illa í Sviss og læknir rúmenska landsliðsins, Eugen Craioveanu, greip til þess ráðs að gefa honum efedrin. Rúmen- ar aðeins með tvo markverði í HM-keppninni og höfðu því aðeins einum markverði á að skipa í þremur síðustu leikjum sínum á HM gegn Ungverjalandi, Danmörku og Sovét- ríkjunum. -hsím Tækja-Tækni' Smiðjuvegi 44d — Kóp. Sími 78660 JUNGHEINRICH Frá og með 1. desember síðastlidnum höfum við tekið við einkaumhoðifyrir vestur-þýska fyrirtækið JUNGHEINRICH, á Íslandi. Þegar v-þýskt hugvit og verkkunnátta fer saman verður útkoman í einu orði sagt frábær. Það munu JUNGHEINRICH-vörurnar sanna. Við bjóðum frá sama framleiðanda, JUNGHEINRICH, bæði lyftara og hillukerfi fyrir vörugeymslur. í tilefni af þessum tímamótum veróur um a<) ræða sérstök kjör og greiðsluskilmála. Þessi auglýsing er ætluð þeim sem reka fyrirtæki sín vel og einnig þeim sem vilja reka fyrirtækin betur. Geymið því þessa auglýsingu. TTT ,.T Lfl .1 . .1 J í Þessar myndir sýna glögglega hvernig spara má pláss með því að nýta sér fullkomnustu Ameise-tæknina frá JUNGHREINRICH. Það er ekki alltaf nauðsynlegt að byggja við heldur má endurskipuleggja núverandi húsnæði. Með þessu dæmi sýnum við að með hefðbundnum, venju- legum gaffallyftara þarf 666 fermetra pláss fyrir 1000 vöru- bretti. Með allra nýjustu Ameisetækni getum við komið þessum 1000 vörubrettum fyrir á 223 fermetrum, þú sparar hvorki meira né minna en 443 fermetra. Vöruhúsahillukerfið, sem er framleitt undir merkinu DELTA-SYSTEM, af JUNGHEINRICH, getur sparað veru- lega fjármuni. Allir hugsanlegir uppröðunarmöguleikarfyrir hendi. JUNGHEINRICH iL UlBL BL Há' er nýju á ferðinni semverter að veita athyali Ameise-gaffallyftari (ETM/V 16, 20 og 25) lyftigeta 1600, 2000 og 2500 kg. Ameise-gaffallyftari (ETG) lyftigeta 1250 kg. Ameise 715-gaffallyftari (EFG) lyftigeta 1500 kg. Ameise 700 (EFG) lyftigeta 3000 kg. AMEISE-vörulyftararnir henta vel í frystigeymslur, frystihús og fiskverkunar- stöðvar. Allar nánari u hjá okkúr. ngar Allir hugsanlegir aukahlutir fást með öllum lyfturum. Vinsamlega hafið sam- band. Tækjja -Tækni! Smiðjuvegi 44D, 200 Kópavogi. Sími 78-660

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.