Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 11
DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986. 11 Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Gylfi er sjómaður, en mestan part ársins temur hann þó hest. Hér er það kamburinn og Krystall, þegar við sóttum Gylfa heim upp í hesthús á dögun- um. DV-mynd JGH Það tókust sættir - keppnisbanninu yfir Gyifa Gunnarssyni, einum frægasta knapa landsins, aflétt Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni DV á Akureyri: „Ég er únægður, það tókust sættir, bannið er búið, og nú er ekkert annað að gera en standa sig i sumar," sagði Gylfi Gunnarsson, knapi og eigandi gæðingsins Krystals frá Kolkuósi.. Gylfi var dæmdur í ársbann frá keppni á hestamannamótum vegna mótmæla við dómara á hátíðisdögum hestafólks á Melgerðismelum í júlí ásíðastasumri. Gylfi er einn frægasti knapi landsins. Þá er gæðingurinn hans, Kryst- all, ekki siður þekktur. Hann hefur sigrað á íjölmörgum hestamannamótum og verið í röð fremstu klárhesta landsins á síðustu árum. Dómurinn, sem Gylfi fékk, eins árs bann frá keppni á hestamannamótum, hefur vakið gríðarlega athygli hestamanna um allt land. En nú hafa sem sagt tekist sættir i málinu og dómurinn fallinn úr gildi. Stórgjöftil líknarstarfs Á safnaðarráðsfundi í Reykjavíkurprófastsdæmi, sem haldinn var í febrúar sl., var lcsið upp bréf sem Gísli Sigurbjörnsson forstjóri skrifaði f.h. stjórnar Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar í Reykjavík. í bréfi þessu er prófasts- dæminu gefið fyrirheit um framlag í starfssjóð safnaðarhjálparinnar í Reykjavíkurprófastsdæmi og það skilyrði eitt sett að þeir söfhuðir, sem æskja framlags. helgi safnaðarhjálpinni heima fyrir einn dag og hafi uppi fjáröflun til hennar. Fimmtudaginn 6. mars sl. kom síðan stjórn Gmndar til fúndar með dómprófasti og hinni nýskipuðu stjóm sjóðsins. Við það tækifæri afhenti Gísli Sigurbjömsson hinum nýstofnaða sjóði tvær milljónir króna og skal höfúðstólinn ævinlega óskertiu- og hluta vaxta fyrst úthlutað eftir 3 ár. Gísli lagði áherslu á það í ræðu sinni að fé væri nauðsynlegt tiKallra framkvæmda, og þá fyrir kirkjuna líka og það starf sem hún er kölluð til að inna af hendi, og sagði núverandi stjóm Grundar vera að heiðra stofn- endur elliheimilisins með þessari gjöf sem væri í anda þeirrar hugsjónar sem knúði þá og leiddi. Stórútsala í Vöruhúsi KA Frá Regínu Thorarenscn, fréttaritara DV á Selfossi: Stórverksmiðjuútsala var haldin í vöruhúsi KÁ nýlega. Þar var seldur fatnaður á alla fjöiskylduna. Hefur aldrei verið haldin önnur eins útsala á öllu Suðurlandi frá því að verslun hófst. Allt afar ódýrt og vandað. Fólk hefur fjölmennt á útsöluna og eru Selfossbúar óþekkjanlegir í hinum flottu og vönduðu fötum sem þeir hafa keypt þar. Börnin á dagheimilunum nutu einnig góðs af útsölunni og mættu þau uppáklædd morguninn eftir að hún hófst. Hjón þekkja varla hvort annað á götu eftir að þau hafa verslað i Vöruhúsi KÁ. Þá er kominn annar litarháttur á fólk því það borðar svo mikið af reyktu folaldakjöti, rauðu og fallegu, sem verslunin Höfn selur á mjög góðu verði. Það má því segja að lífið leiki við Selfossbúa þessa dagana. Hins vegar selst lítið sem ekkert af smjöri því nú er svo komið að börnin vilja ekkert nema smjörlíki úr fallegum dolhun sem þau hafa alist upp við. Spýta þau út úr sér iangar leiðir íslenska smjörinu þegar foreldrarnir fóru að kaupa það núna eftir að útsalan byrjaði. Staðreyndin er sú að margir hafa ekki smakkað íslenskt smjör sl. 15-20 ár. Má kenna fulltrúum bændastéttarinnar á öllu landinu um hvernig komið er á öllum sviðum landbúnaðar. Frá Júlíusi Guðna Antonssyni, V-Hún: Jóhannes Guðmundsson, bóndi og oddviti á Auðunarstöðum í Víðidal, varð sjötugur 13. febrúar sl. Hann tók á móti gestum í félagsheimilinu Víðihlíð. Margt góðra gesta heiðraði Jóhannes, sveitungar og aðrir. Þorkelshólshreppsbúar sameinuðust um veglega bókagjöf. Líf og fjör einkenndi samkomuna, eins og vænta má þegar Jóhannes á hlut að máli. DV-mynd Sigurður Björnsson Kynningarviku Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur lokið: „Mjög algengt að ungt fólk eigi við offituvandamál að stríða‘T - segir Arndís Hauksdóttir heilsugæsluhjúkrunarfræðingur Síðastliðna viku stóð yfir kynning á starfsemi Heilsuvemdarstöðvar Reykjavíkur þar sem m.a. var fjallað um hvernig heilsugæslu í skólum er háttað. Haft var samband við Arndísi Hauksdóttur heilsugæsluhjúkrunar- fræðing í Breiðholtsskóla og Voga- skóla til þess að fræðast um hvernig heilsugæslu grunnskólabarna er háttað. „Það er fylgst með vexti og þroska barnanna frá 6 ára aldri, þau eru vigtuð, hæðarmæld, sjónprófuð, heyrnarmæld, berklaprófuð á hverju ári og fara fjórum sinnum í almenna læknisskoðun á grunnskólatímanum. Við erum til staðar í stærri skólum þrjá og hálfan dag í viku, með sér- staka viðtalstíma fyrir krakkana. Þá geta þau komið með sín vandamál til okkar, hvort sem þau eru af andlegum eða líkamlegum toga.“ Þreyta og svefnleysi eftir að mynböndin komu til sögunnar Arndís sagði að krakkarnir leituðu mjög oft til hennar með hin ólíkustu vandamál. „Þau eru mjög upptekin af útlitinu á unglingsárunum, þau hafa sérstakar áhyggjur af bólum. Ég hef verið með krakka ár eftir ár í megrun og stundum hefur það borið árangur. Það er mjög algengt aö börn og unglingar í dag eigi við offitu- vandamál að stríða." En það er ekki bara offitan sem hrjáir margan unglinginn. Arndis sagði það áberandi að börn og ungl- ingar væru úthaldsminni, þreyttari og svæfu minna síðan myndböndin komu til sögunnar. Forvarnarstarf undirstaða heil- brigðis „Það er verið að endurskoða alla heislugæslu i skólum, mikið vantar á að hún sé fullkominn. Á hverja hjúk- runarkonu í fullri vinnu eru ætlaðir þúsund nemendur sem er alltof mikill íjöldi. Við höfum engan möguleika á að sinna nauðsynlegu og þýðingarm- iklu forvarnarstarfi með þennan fjölda nemenda. Það hefur sýnt sig í nágrannalönd- um okkar að forvamarstarfið er undirstaða líkamlegrar og andlegrar heilsu. Strax í 6. ára bekk á að hefja reglulega kennslu um líkamshirðu, mataræði, tannhirðu, slökun, svefn og hvíld, skyndihjálp o.s.frv. Ég hef sinnt kynfræðslu í 8.-9. bekk grunnskóla sem er ekki gert í nærri öllum skólum. Það vantar mikið á að þau fái fræðslu um siðferðis- og fé- lagslegar hliðar kynlífs." -KB Skyldi þessi ungi maður, Ágúst Örn Ingvarsson, 14 mánaða, fá þá fræðslu i grunnskóla sem þarf að sögn Arndísar Hauksdóttur hjúkrunarfræðings til þess að tryggja hans andlegu og líkamlegu heilsu? Það vonar auðvitað móðir hans, Sveinbjörg Guðnadóttir, og hjúkrunarfræðingurinn, María Guðmundsdóttir, sem vigtar Ágúst af miklu öryggi. DV-mynd PK. < c/) Það er vel hugsanlegt að Maggi súpa sé rétti kvöldverðurinn. Viö leggjum til að uppistaðan í kvöldverðinum hjá þér verði Maggi súpa. Með nýju brauði, fjölbreyttu áleggi og öðru góðgæti eftir smekk er Maggi-súpu- kvöldverður tilvalin leið til að bera á borð ódýran, hollan og góðan mat sem inniheldur öll nauðsynleg næringarefni og fljótlegt er að útbúa. Sim 83788

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.