Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 31
DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986. 31 Sandkorn Sandkorn Flosi blaðafulltrúi Ólafsson. Duglegur blaðafulltrúi Flosi okkar Ólafsson er blaðafulltrúi Þjóðleikhúss- ins. í því starfi felst meðal annars að heimsækja fjöl- miðla og kynna þau verk sem leikhúsið tekur til sýninga hveiju sinni, helst á þann hátt að fólki finnist lífsnauðsyn að sjá þau. Flosi þykir býsna dugleg- ur blaðafulltrúi og lunkinn að koma sínum málum á framfæri. Einhveiju sinni í fyrravetur gekk hann á fjölmiðla til að kynna fyrir- hugaða sýningu á Ríkarði þriðja. En sýningunni var síðan frestað, vegna verk- faUs BSRB, sem er önnur saga. En i þessari umræddu kynningarferð hitti Flosi fyrir á einu blaðinu menn- ingarskríbent, sem var þá “ýhyrjaður. Flosi tók hann með trompi og sagði strax í upphafi samtalsins: „Ég sé að þú ert ágætismaður og ég lít svo á að við séum vinir.“ Hinn hafði varla tíma til að jánka þessu, þegar blaðafulltrúinn hélt áfram: „Þess vegna ætla ég að bjóða þér fyrstum manna viðtal við höfund verksins, aðalleikara eða leikstjóra. Segðu bara til.“ Blaðamaðurinn var fljót- ur að velja og sagðist endi- lega vilja viðtal við höfund- inn. Spjallið við WiUiam Sha- kespeare hefur hins vegar ekki birst enn af skiljan- legum ástæðum. Pólitískur nefapi. Nefapar í Alþýðubanda- laginu Það hefur gustað talsvert um Össur Skarphéðinsson eftir að hann settist í rit- stjórastól á Þjóðviljanum. Hefur össur ekki látið neinn eiga neitt inni hjá sér í vindhviðunum. Ummæli hans í DV fyrr í mánuðin- um vöktu til að mynda tals- verða athygli. Þar var hann spurður hvort hugsanlegt væri að gamla flokksforyst- an myndi reyna að koma honum úr ritstjórastóln- um. Þá svaraði Össur: „Ef menn vilja byrja kosningabaráttuna á því að reka úr ritstjórastóli mann sem mögulega verður í baráttusæti flokksins í Það erdónalegtað horfa á Pan- sýningu nema í einkasamkvæmi. Reykjavík, þá eru þeir póli- tískir nefapar." Nú hafa menn nokkuð velt fyrir sér hvernig af- brigðið „ pólitískir nefap- ar“ liti út. Meðfylgjandi mynd úr skjalasafni flokksmiðstöðvarinnar er sögn vera af einum slikum. Vilja vafalaust fáir fylla þann flokk sem er ef til vill skýringin á því að Össur siturenn... Kristilegur færir út kvíamar Sæmundur Haukur Har- aldsson heitir maðurinn á bak við Pan-póstverslunina sem verslar með hjálpar- gögn kynlífsins. Verslunin sú arna hefur sett heila þjóð á annan endann. Þvílíkur dónaskapur hefur ekki sést hér þann tima sem landið hefur verið í byggð. Pan-sýningahópurinn, sem sýnir hluta af gögnun- um, hefur lagt félagslíf í hverjum framhaldsskólan- um á fætur öðrum í rúst. Það eru ekki nema virðu- legir einkaklúbbar sem geta notið sýninganna í ró ognæði. Já, Sæmundur þessi Haukur hefur ýmislegt á samviskunni. Likast til er hvassara í kringum hann núna heldur en þegar hann rak „Kristilegu mynd- bandaleiguna“ hér á árum áður. Samlíking Davíðs Davíð Scheving Thor- steinsson hefur lengi verið orðlagður fyrir hnyttin til- svör og góðar samlíkingar. Snæfellska fréttablaðið birti á dögunum ágæta sögu af honum sem lýsir honum vel: Á ársþingi Félags ís- lenskra iðnrekenda var Davíð Scheving eitt sinn fenginn til að hlaupa í skarðið fyrir einn fram- sögumanna sem átti að ræða um markaðsþróun. Sló Davíð á létta strengi í ræðu sinni og kom þar meðal annars fram að hann hefði ekki mikla trú á ráðu- nautum. Taldi Davið að frumkvæðið og hugmynd- irnar yrðu að koma frá iðnrekendum sjálfum. „Ráðunautur er maður sem fær lánað úrið þitt til að segja þér hvað klukkan er,“ sagði Davíð til að und- irstrika þessa kenningu sína. Umsjón: Jóhanna S. Sig- þórsdóttir Opifl á iaugardögum PANTANIR SÍMI13010 KREDIDKOn TAÞJONUS TA HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG 29. Kjötbær, Laugavegi 34. auglýsir: Kjötbær er ekki einungis góð kjötbúð, hjá okkurfærð þú allar mjólkurvörur, brauð, fisk, ávexti, grænmeti og flest annað er viðvíkur matargerð. í hádegi bjóðum við upp á 6-8 Ijúffenga rétti sem þú getur borðað á staðnum eða tekið með út. Veitum fyrirtækjum, stofnunum og verktökum alla þjónustu i heitum sem köldum mat. Llr veislueldhúsi okkar bjóðum við köld borð, heit borð, blönduð borð, snittur, brauðtertur, rjómatertur, kransatertur eða eitthvað annað sem þér detturi hug. Fagleg og persónuleg þjónusta. Komdu eða hringdu og sjáðu hvort við eigum samleið. verslunin Starmýri 2, s. 30420-30425. Starmýrl 2 Starmýrl 2 Hangikjöt, úrbeinaður frampartur, London lamb, úrbeinaður frampartur, Nautakjöt á mjög lágu verði: kr. 338 kg Var kr. 398 kr. 389 kg 448 Hakk kr. 325 kg 378 Buff kr. 715 kg 795 Innra læri kr. 767 kg 848 Svali á 69 kr., 6 í pakka. Eggákr. 105 kg. Heildósir af niðursoðnum ávöxtum, 75 kr. Allir fá að smakka. Páskaegg komin í hillurnar á niðursettu verði. Opið frá 9-18 mánud.-fimmtud., 9-19 föstud., 10-16 laugard. Opið i hádeginu alla daga. NYTT FERMINGARGJAFA NYTT NÝK0MIÐ ÚRVALSVEFNSÓFA P0LLUX svefnsófi 195x150 cm (75/75) áklæði kr. 27.860,- leðurlíki kr. 32.920,- Sendum gegn póstkröfu. FCIRUHÚSÍÐ HF. SUÐURLANDSBRAUT 30 SÍMI687080

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.