Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 4
4 DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986. Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Hversu mikið lækka nyir bílar í verði? að nokkur umboð höfðu hækkað álagninguna eða reyndu að halda sömu krónutölu og áður. Verðlags- stofnun fór strax á stúfana og hótaði að birta nöfn þeirra umboða sem fóru þannig að. Niðurstaðan varð sú að umboðin lofuðu að nota sömu reikni- aðferðir og áður og notast við sömu prósentuálagningu og áður. Þetta þýðir, að sögn umboðanna, að tekjur þeirra skerðast um 30% eftir þessa lækkun. Hjá Verðlagsstofnun er nú verið að reikna út bílverðið eftir seinni lækk- „Það er búið að vera allt vitlaust héma. Bílamir hafa mnnið út eins og heitar lummur og við eigum orðið enga bíla núna,“ sagði sölumaður hjá einu bílaumboðinu við DV. I kjölfar kjarasamninganna var ákveðið að lækka nýja bíla í verði. Bílar með 2000 cm2 slagrými áttu að lækka um 30%. Eins og kunnugt er brást reiknimeisturum fjármálaráðu- neytisins reiknilistin. Lagt var fram nýtt frumvarp sem á að ná höfuðmark- miðinu: Nýir bílar minni en 2000 cm2 eiga að lækka í verði um 30%. Fyrst vom tollar af bifreiðum lækk- aðir úr 70% í 30% og svokallað bif- reiðagjald fellt niður af minni bifreið- um. Nýja frumvarpið gerir ráð fyrir að tollar á öllum bifreiðum lækki niður í 10%. Á móti kemur að lagt er á sérstakt gjald á bifreiðar eftir stærð. Flokkanir em sjö. Fyrstu fjórir flokk- anir em bifreiðar sem em með 2000 cm2 slagrými og minna. Samkvæmt upplýsingum frá Bílgreinasambandinu er gróflega hægt að áætla eftirfarandi lækkanir: 1. Bílar 0-1000 cm2 lækka um rúm 30% 2. Bílar 1001-1300 cm'- lækka um 30% 3. Bílar 1301-1600 cm2 lækka um 30% 4. Bílar 1601-2000 cm2 lækka um 30% 5. Bílar 2001-2300 cm2 lækka um 27% 6. Bílar 2301-3000 cm2 lækka 25-26% 7. Bílar yfir 3000 cm2 lækka 25-26% Flókinn útreikningur Útreikningur á bilverðinu getur verið nokkuð flókinn og mismunandi eftir umboðum. Bæði tollurinn og hið sérstaka bifreiðagjald leggst á sama stofn eða innflutingsverð bifreiða, sem kallast á viðskiptamáli sif-verð. Síðan bætist við þetta verð uppskipunar- gjald, geymslugjald og bankakostnað- ur. Þessi gjöld geta verið mismunandi eftir umboðum. Síðan kemur stand- setningarkostnaður sem einnig er mismunandi. Síðan kemur til álagning umboðsins. Oftast er hún í tvennu lagi; prósentuálagning og álagning sem föst krónutala. Að lokum kemur síðan söluskattur. Vert er að geta þess að í flestum tilvikum er verðlækkunin miðuð við verð án ryðvamar- og skrá- setningargjalds, þó em undantekning- ar á þessu. Ryðvörn og skrásetningar- gjald getur verið á bilinu 8 til 10 þúsund krónur. Er hægt að treysta umboðun- um? Þessari spumingu velta bílakau- pendur fyrir sér þessa stundina. Bæði þeir sem keyptu strax eftir fyrri lækk- un og þeir sem em í þann mund að kaupa sér bíl. Sérstaklega vegna þess að eftir fyrstu lækkunina kom í ljós RÆSIR Áðúr Nú Lækkun Mercedes Benz 190 1.185.000 818.000 31% Mercedes Benz 230e 1.483.000 1.053.000 28% Mercedes Benz300e 2.212.000 1.626.000 26% * Ryðvöm, skrásetning og fullur bensíntankur innifalið. Zuzuki Fox(1300) Ford Sierra(1600) Ford Escort LX FORD - Sveinn Egilsson: Áður 591.000 631.000 409.000 Nú Lækkun 407.000 31% 441.800 30% 284.000 30,5% ★ Ryðvöm og skrásetning ekki innifalin. TÖGGUR: Áður Nú Lækkun SAAB 90 609.400 438.000 28% SAAB 900 758.000 542.000 28,5% SAAB 9000i 1.105.000 771.000 30% SEAT Ibiza 339.000 239.000 29,5% ★ Ryðvöm, skráseting og fullur bensíntankur innifalið. Kristinn Guðnason hf.: Áður Nú Lækkun BMW 520i 1.037.764 714.997 31% BMW 316 739.000 510.645 31% Renault GTL 470.100 323.900 31% Renault 11 464.000 319.000 31% ★ Verð án ryðvamar og skrásetningargjalds. BÍLVANGUR: Áður Nú Lækkun Opel Kadett 535.000 362.000 32% Chevrolet Monza 536.000 364.000 32% Chevrolet (4dyra) 548.000 373.000 32% ★ Verð án ryðvamar og skrásetningargjalds. BÍLABORG/MAZDA: Áður Nú Lækkun MAZDA 323 445.000 314.000 29.4% MAZDA 323 glx 498.000 345.000 30,7% MAZDA 626 597.000 418.000 30% MAZDA 626 glx 665.000 465.000 30% * Verð án ryðvamar og skrásetningargjalds. I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Toppurinn á poppinu Það er nú meira hvað fólk getur verið vanþakklátt. íslenska sjón- varpið er nýbúið að senda Bjarna Felixson til Sviss og hafa hann í beinni útsendingu dag eftir dag og lýsa fyrir okkur frammistöðu hand- boltastrákanna og hvernig þeir unnu þótt þeir töpuðu, eins og Dagfari útskýrði í gær. Og ekki er sjónvarpið fyrr búið að endurheimta Bjarna og tækniliðið heim en við fáum nýja keppni beint í æð. Nú er verið að kynna fyrir okkur toppinn á poppinu með sönglagakeppni þar sem besta lagið verður notað í Eurovisionkeppninni. Þá mun Bjarni Fel geta farið aftur út og lýst æsispennandi keppni og allt er þetta gert fyrir íslenska sjónvarpsáhorf- endur sem hafa gaman af þvi að sjá fslendinga drýgja hetjudáðir í bein- um útsendingum. Vanþakklætið er hins vegar fólgið í því að almenningur fussar og svei- ar yfir þeim lögum sem frambæri- legust em talin, segir að ekkert sé varið í þau og hefur allt á hornum sér. Dagfara fmnst annað. Þetta eru ofsalega skemmtileg lög og þar að auki verða menn að gera sér grein fyrir að popplög verða ekki vinsæl í fyrsta skipti. Maður þarf að hlusta á þau að minnsta kosti fjörutíu sinn- um áður en þau venjast og þegar maður er búinn að hlusta á þau tvisvar sinnum íjörutiu sinnum áttar maður sig á að þetta eru mis- munandi lög og alls ekki alltaf sama lagið þótt vanþakklátir hlustendur haldi öðrufram. Textarnir eru listilega vel samdir og eiga áreiðanlega eftir að vekja mikla athygli í Eurovision. Þeir eru svo sérislenskir og þjóðlegir að enginn vafi er á því að textarnir einir og út af fyrir sig munu reynast góð landkynning hvað sem lögun- um líður. Dagfari er sannfærður um að söngtextarnir muni slá í gegn ef menn fara ekki að asnast til að þýða þá yfir á ensku þannig að aðrir skilji þá. Því er haldið fram að ekki sé búið að velja söngvarana sem eiga að flytja lagið í Eurovisionkeppninni. Þetta er ótækt með öllu. Auðvitað á að láta það listafólk, sem flutt hefur úrslitalögin í sjónvarpinu, keppa fyrir okkar hönd í Eurovi- sion. Dagfara finnst ekki skipta máli þótt sumir þeirra nái ekki alveg laginu eða ráði ekki fullkomlega við tónstigann. Aðalatriðið er að hver syngur með sínu nefí og með sínum sérstaka stíl sem mun áreiðanlega koma öðrum Evrópubúum skemmtilega á óvart. Og þannig á þetta að vera: Koma öðrum á óvart með lögum sem engum öðrum dytti í hug að velja í þessa keppni og með textum sem enginn skilur og söngv- urum sem syngja lög sem þeir ráða ekki við. Síðast en ekki síst mega búning- arnir alls ekki missa sig. Þessi sér- hannaði og herðabreiði still er óvanalegur að því leyti að nú eru poppsöngvarar loksins kappklæddir í útsendingum sem höfðar til þess að á íslandi er kalt og fólk verður að vera vel búið þegar það syngur toppinn á poppinu. Og svo er aldrei að vita nema þeim hjá Eurovision detti það sama í hug og þeim hjá Alþjóðahandknattleiks- sambandinu, að hafa reglurnar svo flóknar að enginn skilji þær. Þetta getur orðið til þess að það lag, sem fæst stigin fær, verði efst, eins og gerðist í handboltakeppninni þar sem fslendingar hækkuðu í töflunni jafnt og þétt eftir því sem þeir töp- uðu fleiri leikjum. Það getur jafnvel verið kænskubragð hjá forráða- mönnum söngvakeppninnar að velja lög sem ekki þykja frambæri- leg annars staðar til að ná örugglega neðsta sætinu þannig að við verðum efstir þegar upp er staðið, sam- kvæmt evrópskum og alþjóðlegum útreikningum. Það er til að mynda mjög líklegt að þetta sé ástæðan fyrir því að dómnefndin hefur ákveðið að dæma það lag úr keppninni sem hefur þótt skást. Við getum ekki tekið áhætt- una af því að tefla fram lagi sem hugsanlega getur fengið stig í Euro- visionkeppninni. íslendingar eiga ekki að vera vanþakklátir eða óánægðir með þessa söngvakeppni. Þegar allt kemur til alls er þetta jú toppurinn á poppinu. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.