Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 32
32 DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986. Andlát Þórhallur Steinþórsson, Heiðmörk 38, Hveragerði, lést á heimili sínu 9. mars sl. Jarðsett verður frá Hvera- '* gerðiskirkju laugardaginn 15. mars kl. 14. Kristín Guðmundsdóttir Olsen áður búsett Bergholti, Vestmannaeyjum, er látin. Vilhjálmur Pálmason, Sæviðarsundi 18, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. mars kl. 13.30. Tilkynningar Skákkeppni framhaldsskóla 1986 hefst að Grensásvegi 46 föstudag 14. mars nk. kl. 19.30. Keppninni verður fram haldið laugardag, 15. mars, og lýkur sunnudag, 16. mars. Fyrirkomulag er með svipuðu sniði og áður, hver sveit skal skipuð íjór- um nemendum á framhaldsskólastigi (f. 1964 og síðar), auk 1—4 til vara. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi, ef næg þátttaka fæst. Að öðrum kosti verður sveitum skipt í riðla, en síðan teflt til úrslita. Umhugsunartími er ein klukkustund á skák fyrir hvorn keppanda. Al- mennar skákreglur gilda, nema þeg- ar annar hvor keppandi á eftir fimm mínútur af umhugsunartímanum, þá er teflt eftir hraðskákreglum. Umferðataflan verður þannig: Föstudagur 14. mars kl. 19.30 23.30: 1. og 2. umferð. Laugardagur 15. mars kl. 13.00 19.00: 3., 4. og 5. umferð. Sunnudagur 16. mars kl. 13.00 17.00: 6. og 7. umferð Fjöldi sveita frá hverjum skóla er ekki takmarkaður. Sendi skóli fleiri en eina sveit, skal sterkasta sveitin nefnd a-sveit, næsta b-sveit o.s.frv. - Ekkert þátttökugjald. Þátttöku í mótið má tilkynna í síma Taflfélags Reykjavíkur á kvöld- in kl. 20-22, í síðasta Iagi í dag, fimmtudag, 13. mars. FÖTBOLTAR og fútboltaskúr ^ÆofificM s<fi. ÁRMÚLA 36 REYKJAVÍK, SÍMI82166 OG 83830. Topp-bók hjá sparisjóðum Frá og með 11. mars bjóða Sparisjóð- ur Reykjavíkur og nágrennis, Spari- sjóður Kópavogs, Sparisjóður Hafn- arfjarðar og Sparisjóðurinn í Kefla- vík viðskiptavinum sínum Topp-bók. Topp-bókin er 18 mánaða bundinn reikningur í bókarformi og er hún veðhæf. Hver innborgun er bundin í 18 mánuði, en er þá laus til útborgun- ar í einn mánuð, þá binst hún á ný og er laus til útborgunar í einn mánuð á sex mánaða fresti. Topp-bókin er með föstum vöxtum og leggjast þeir við höfuðstól tvisvar á ári, þ.e. 30. júní og 31. dese'mber. Vextir eru nú 19% og er hámarks- ávöxtun á ári allt að 20,15%. Vext- imir eru alltaf lausir eftir að þeir hafa verið færðir. Sem trygging gegn verðbólgu er ávöxtun Topp-bókar borin saman við 6 mánaða bundinn verðtryggðan reikning og þess gætt að hún beri aldrei lægri ávöxtun á ári. Með Topp-bókinni vilja ofan- greindir sparisjóéir koma til móts við hina mörgu sparifjáreigendur sem binda vilja fé sitt til lengri tíma gegn toppávöxtun. Messur Neskirkja Föstuguðsþjónusta í kvöld kl. 20 í umsjá sr. Lárusar Halldórssonar. Fundir Aðalfundur Kvenfélaqs Kópa- vogs verður flmmtudaginn 13. mars kl. 20.30 í félagsheimilinu. Aðalfundur Kvenfélag Kópa- vogs verður haldinn í kvöld, 13. mars, kl. 20.30 í félagsheimilinu. Kvenfélag Óháða safnaðarins heldur aðalfund sinn í Kirkjubæ nk. laugardag 15. mars kl. 15. Venjuleg aðalfundarstörf. AÐEINS KR. 7960,- VATNS- MIÐSTÖÐVAR Afkastamiklar Henta vel I flutnlngabíla sendibíla og vlnnuvélar. SKEIFUNNI 5A. SÍMI: 91-8 47 88 STÚRVERÐLÆKKUN 20-40% verðlækkun á eldri gerðum inni- og úti- flísa frá Villeroy og Boch, ásamt hreinlætistækjum i lit. Greiðslukjör. m lOByggingavörur hf. Reykjavíkurvegi 64 Hafnarfirði, sími53140. Utvarp_____________Sjónvatp Alfreð D. Jónsson Ijósmyndari Hef hæfileikann til að undrast Ég horfi alltaf á fréttir með at- hygli, þegar maður hefur bæði sjón og heym þá er það meira lifandi að fylgjast með fréttum í sjónvarpi heldur en að heyra þær bara lesnar. En það er alltof mikið af neikvæð- um fréttum, manndráp og skelfing- ar, eins og hið jákvæða sé ekki fréttnæmt í sama mæli. Ég fylgist lika alltaf með Nýjustu tækni og vísindum þó ég gleymi því nú fiestu. En ég hef ennþá hæfileik- ann til að undrast og ég undrast ævinlega yfir tækninni, heimurinn er undur út af fyrir sig. En það er óskaplegt að mikið af því sem fundið er upp er notað í neikvæðum til- gangi. En það er aðdáunarvert hvað tæknin getur. Ég á ekki orð til að lýsa dugnaði Ómars, andlegum og líkamlegum, að færa áhorfendur út um allt land, hann er stórkostlegur maður. Ég fyrirlít glæpamyndir og horfði ekki á Hótel. Nú, lögin í samkeppn- inni höfða ekki til mín, ekki það að ég sé á móti þeim, en mér finnst dægurlög í dag yfirleitt hvert öðru lík, enda hvernig má annað vera en að laglínum slái saman, jafnvel hjá góðum tónlistarmönnum. Síðast á dagskrá útvarpsins í gær var þáttur Leifs Þórarinssonar og ég vildi ekki hafa misst af honum. Sérstaklega ekki endinum, þegar Stefán Islandi söng aríu úr Astar- drykknum. Hann er með einhverja fegurstu rödd sem ég hef heyrt þó aðrir séu kannski kraftmeiri. Og þessi aría er mér svo kær að ég vil alltaf heyra hana ef verið er að syngja á annað borð. En það er ekki hægt að tala um svona lagað, það verður bara að njóta. Geðhjálp heldur félagsfund í dag, fimmtudag 13. mars, kl. 20.30 í félagsmiðstöðinni að Veltusundi 3b. Kvennadeild Flugbjörgunar- sveitarinnar heldur fund miðvikudaginn 12. mars kl. 20.30. Spiluð verður félagsvist. Almennur fundur foreldra fyrir vímulausa æsku Sl. laugardag, 8. mars, efndu SÁÁ, Lions-hreyfingin og áhugahópur for- eldra til almenns fundar foreldra fyrir vímulausa æsku. Á þriðja hundrað manns sóttu fundinn sem haldinn var í húsakynnum SÁÁ og var húsfyllir svo að hluti fundar- manna varð að sitja í hliðarsölum. I ályktun, sem samþykkt var á fundinum, kemur fram að nú í vor skuli stefnt að stofnun Landssam- taka foreldra fyrir vímulausa æsku. Tímabært sé að foreldrar á Islandi taki höndum saman um að sporna við vímuefnaneyslu unglinga, m.a. með einbeitni, alúð, skynsamlegri umhyggju og fordómalausri fræðslu á heimavelli. Slík samtök gætu í því skyni stuðlað að fræðslu meðal for- eldra um einkenni vímuefnaneyslu og jafnframt verið fyrir hönd foreldra hvetjandi og mótandi um fyrirbyggj- andi aðgerðir og forvarnir af hálfu stjórnvalda. Á fundinum var kjörin 16 manna undirbúningsnefnd til að undirbúa stofnun Landssamtaka foreldra fyrir vímulausa æsku. í nefndinni eiga sæti: Bogi Arnar Finnbogason, form. Sambands for- eldra og kennarafélaga í grunnskól- um Reykjavíkur, Arnar Jensson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögregl- unnar í Reykjavík, Einar Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóri SÁÁ, Friðrik Thodórsson framkvæmda- stjóri, Halldóra Jónsdóttir húsmóðir, Hendrik Berndsen, formaður SÁÁ, Jón Guðbergsson, starfsm. Félags- málast. Reykjavíkurborgar, Jón Bjarni Þorsteinsson, vímuefna- varnanefnd Lions, Ingunn Stur- laugsdóttir læknir, Lísa Wium hús- móðir, Ómar Ægisson, ráðgjafi hjá SÁÁ, Ragnheiður Guðnadóttir, stjórnarmaður SÁÁ, Ragnar Lárus- son, ráðgjafi hjá VON, Sigurbjörg Magnúsdóttir húsmóðir, Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ, Þór- hildur Gunnarsdóttir, vímuefna- varnanefnd Lions. Tapað-Fundið Taska tapaðist Tapast hefur svört taska. Upplýsing- ar í síma 24466 eða 23391. Tónlist Háskólatónleikar í Norræna húsinu Sjöttu Háskólatónleikarnir á vor- misseri 1986 verða haldnir í Norræna húsinu miðvikudaginn 12. mars. Inga Rós Ingólfsdóttir og Hrefna Eggerts- dóttir píanóleikari flytja verk eftir G. Fauré og B. Martinu. Tónleikarn- ir hefjast kl. 12.30 og standa í u.þ.b. hálftíma. Basarar Kvenfélag Laugarnessóknar verður með kökubasar og flóamark- að í safnaðarheimili kirkjunnar sunnudaginn 16. þ.m. kl. 15. Konur sem vilja gefa kökur og einhverja muni (ekki föt) komi því í kirkjunna milli kl. 14 og 16 laugardaginn 15. þ.m. Afmæli 85 ára verður á morgun, föstudaginn 14. mars, Stefán Sigurðsson, Vestur- brún 14. Hann tekur á riióti gestum á heimili sínu frá kl. 17. 60 ára hjúskaparafmæli eiga í dag, 13. mars, hjónin Anna Jónsdóttir og Erlendur Olafsson frá Jörfa. Stiga- hlíð 12 hér í bænum. Hjónin eru að heiman. 80 ára verður á morgun, föstudaginn 14. mars, Ásmundur Kr. Ásgeirsson til heimilis að Háteigsvegi 4. hann tekur á móti gestum að Baldursgötu 9 milli kl. 16 og 19. 90 ára verður á morgun, föstudaginn 14. mars, frú Verónika Franzdóttir, áður húsfreyja á Skálá í Sléttuhlíð í Skagafirði, nú vistmaður á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund á Hring- brautinni. Eiginmaður hennar var Eiður Sigurjónsson, bóndi og hrepp- stjóri. Hann lést árið 1964. Bridge Félag makalausra Hefurðu áhuga á bridge? Komdu þá á fimmtudagskvöldið 13. mars kl. 20 í Mjölnisholt 3. Ferðahópur með fund sama kvöld. Árshátíðin verður 15. mars í Skipholti 70. Pantið miða á skrifstofunni milli kl. 19 og 21. Sími 17900. Arshátíðir Félag makalausra Árshátíð verður 15. mars í Skipholti 70. Pantið miða á skrifstofunni milli kl. 19og21.Sími 17900. Iþróttir Skíðanámskeið skíðadeildar Vikings Skíðadeild Víkings heldur sitt árlega skíðanámskeið dagana 25. 30. mars nk. Að venju má búast við að yfirfullt verði á þessu námskeiði sem öðrum og er því öllum, sem áhuga hafa á þessu námskeiði, beint á að skrá sig sem allra fyrst. Á námskeiðinu er boðið upp á margvíslega skemmtun, svo sem kvöldvökur, leiki, keppnir og margt fieira. Að venju lýkur síðan nám- skeiðinu með hinu vinsæla páska- eggjamóti. Fyrir þessa daga borga innanfé- lagsmenn með árskort kr. 4000 en utanfélagsmenn kr. 4.500. Innifalið í þessu verði er matur, rútuferðir, lyftugjald, skálagjöld og þjálfun. Allir krakkar, á aldrinum 6 16 ára, eru velkomnir. Nánari upplýsingar fást í símum 76902 og 38668, og síminn á skíða- svæðinu er 99 4666.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.