Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 7
DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986. 7 Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Blaðamenn samþykkja Blaðamannafélag íslands hefur samþykkt nýjan kjarasamning við blaðaútgefendur. Samningurinn er í öllum meginatriðum samhljóða öðr- um nýgerðum kjarasamningum á vinnumarkaði. Það nýmæli er í samningum blaða- manna og útgefenda að undirneíhd aðila vinnur nú að skipulagningu á nýju launakerfi og verður áliti skilað íyrir 1. júní næstkomandi. Gert er ráð fyrir að það taki gildi mánuði síðar. _________________-EIR Húsgagna- iðnaðurinn: Samþykkt með semingi Félag starfsfólks í húsgagnaiðnaði hefur samþykkt nýgerða kjarasamn- inga. A félagsfundi voru 13 hlynntir samþykkt en 10 á móti. Aðrir 10 sátu hjá en í félaginu eru alls 300 manns. Allsnarpar umræður urðu á félags- fundinum og var samþykkt ályktun þar sem lýst er vonbrigðum starfs- fólks í húsgagnaiðnaði yfir því hversu litlum kaupmáttarauka er gert ráð fyrirísamningunum. -EIR Hugmyndir til að auka neyslu kindakjöts: Auglýsingaherferð, nýtt kjótmat og verðlaunaveitingar Bændur hafa nú verulegar áhyggjur af minnkandi neyslu á kindakjöti. Á Búnaðarþingi 1986, sem lauk fyrir skömmu, komu frarn margar hugmyndir um hvemig stuðla mætti að aukningu kinda- kjötsneyslu. Lagt er til að nýtt kjötmat komi til framkvæmda næsta haust, að verðlagningu einstakra gæðaflokka verði þannig hagað að hún knýi framleiðendur til að aðlagast breyttum markaðskröfum. Einnig að leitað verði samninga við nokkur sláturhús um að lengja sláturtíð í 3 mánuði, að verðlags- kannanir fari fram reglulega og til þeirra vandað þannig að borið sé saman verð á mismunandi vörum. Tryggt skal stöðugt gæðaeftirlit á vinnsluvörum, athugaðir möguleik- ar á sérstökum lambakjötsmatstað, t.d. með samningum við aðila í veit- ingarekstri. Að skyndibitastaðir séu verðlaunaðir fyrir árangur í sölu á lambakjöti og verslanir fyrir fram- boð og sölu á kjötinu. JKoma á lambakjötsviku á veit- ingastöðum og lambakjötskynn- ingu í verslunum. Einnig að gefinn sé út handhægur dreifipési með uppskriftum og leiðbeiningum um meðferð og matreiðslu. Áhersla er lögð á auglýsingaherferð í fjölmiðl- um, einkum sjónvarpi. -KB Sérstakur lambakjötsmatstaður og lambakjötskynningar í verslunum eru atriði sem bændur telja að geti örvað sölu á kjötinu. Viðgerðarmennimir sjá þá aldrei auknecht Fjárfesting í framtíðar öryggi I nútíma eldhús þarf nútíma búnað. Stílhreinan, hagkvæman, ódýran í rekstri og öruggan. Kaup á heimilistekjum er fjárfesting í framtíðar öryggi. Bauknecht kæliskápar eru háþróuð þýsk gæða- vara, þrautreynd á íslenskum markaði og rómaðir fyrir ótrúlega lága bilanatíðni. Þess vegna sjást Bauknecht kæliskápar sára sjaldan á verkstæði Rafbúðarinnar. Bauknecht leiðir rannsóknir og framfarir í fram- leiðslu heimilistækja, þess vegna eru Bauknecht kæliskápamir bæði öruggir í rekstri og ótrúlega ódýrir. Ef þú kaupir Bauknecht þarftu ekki að spyrja um sjálfsagða hluti eins og sjálvirka afþíðingu, eða gúmmílista með segulþynnum því tækninýjungar eai sjálfsagður hlutur hjá Bauknecht. Við höfum oft sagt að þú keyptir Bauknecht gæðanna vegna og getum hæglega bætt við að ekki sé það síður verðsins vegna. Verð frá kr. 24.480 Tæknilegar upplýsingar Gerð: PD 2614 Gerð: SD 2304 Gerð: PD 3014 Hæð: 142 cm. Hæð: 140 cm. Hæð: 160 cm. Breidd: 55 cm. Breidd: 55 cm. Breidd: 59,5 cm. Dýpt: 60 cm. Dýpt: 58,5 cm. Dýpt: 60 cm. Við spjöllum saman um útborgun og greiðsluskilmála — og komumst örugglega að samkomulagi. SAMBANDSINS ARMULA3 SIMAR 681910 -81266 1 g < f— 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.