Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 36
36
DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986.
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Twiggy
er í banastuði pessa dagana.
Nýja skífan hennar, Feel
Emotion, selst grimrnt,
menn hætta ekki að lofa
frammistöðuna á Broad-
way og sorgin yfir eigin-
mannsmissinum er stöðugt
að dofna. Twiggy hefur
fundið sér nýjan fylgihnött,
hann heitir Leigh Lawson
og var áður giftur Hayley
Mills. Núna standa yfir
prufukeyrslur á sambandi
barnanna þeirra, Twiggy á
eitt en Leigh tvö, og ef það
gengur upp líka verður
stefnan tekin á huggulegt
bóndabýli til þess að eyða
næstu ævidögunum saman.
Sonja
Noregs-
prinsessa
er á opinberri ferð um Aust-
urlönd. Þar er alltaf eitt-
hvað skemmtilegt að gerast
og ferðina alla segir hún
ógleymanlega. Líklega
muna gestgjafar hennar
einna best eftir dýragarðs-
heimsókninni þar sem
Sonju voru kynnt undur
Austurlanda á þvi sviði. Eitt
þessara ómetanlegu ein-
taka úr dýraríkinu var
hæfilega hrifið af snobb-
dúlluröðinni sem rann
framhjá búrinu. Þetta var
geipifagur apaköttur sem
stökk á Sonju, beit hana
fast í fingurinn og hafði
síðan með sér á flótta gler-
augun af nefi prinsessunn-
ar.
Rod
Stewart
undirbýr núna stórhljóm-,
leika með gömlu sprautun-
um úr The Faces. Aðdáend-
ur og Qölmiðlamenn bíða
frekari tiðinda með öndina
í hálsinum og nú strax er
hafinn gífurlegur bardagi
um einkaréttinn á því að
kvikmynda þennan stór-
merkilega atburð. Goðið
sjálft verst allra frétta.
■Eranskt í
JlCegnboganum
Um síðustu helgi hófst frönsk kvikmyndavika í kvikmyndahúsinu Regnboganum.
Við opnun var sýnd myndin UNE CHAMBRE EN VILLE að viðstöddum fjölda
boðsgesta að venju. Meðfylgjandi DV-myndirtók PK við opnunarathöfnina.
íhugað vandlega á frönsku? - Sveinn R. Einarsson og Davíð Oddsson,
Regindjúp er milli tíðarandans á meðfylgjandi
mynd og nýlegra umræðna í hérlendu sjónvarpi
þar sem hverfandi mjólkurdrykkja
landsmanna er vandamál liðandi stundar.
Rætt er um leiðir til þess að halda mjólk
að skólabörnum, reyndar niðurgreiÓslur og gjafir, en það reyn-
ist erfiður
róður á þessum síðustu djúsdrykkjutímum.
Myndina tók George Garland í Brighton í Englandi
árið 1920. Þá var mjólkurpósturinn maður
þorpsins á staðnum og húsmæðurnar miðuðu oftlega vinnudag-
inn
við komutima hans. Mjólkurbrúsar og flöskur
voru við flestar húsdyr og djúsöldin
mikla víðs fjarri í tímanum.
íslenskar lopapeysur á Broadway
Gerður
Kristjánsdóttir
í versluninni
á Broadway
I Daily Camera, Business Plus, var að finna heilsíðu-
grein um íslenska konu sem selur lopapeysur á
Broadway. Þar er greint £rá hröðum framgangi
verslunarinnar, gæðum vörunnar sem Gerður hefur
á boðstólum og verslunareigandinn segir frá upp-
hafinu að stofnun búðarinnar.
„ Móðir mín er mikil prjónakona og var vön að
senda mér lopapeysur til þess að nota til gjafa. Þetta
tók ég sem sjálfsagðan hlut þar til mér hugkvæmdist
að líta á verðmiðann á slíkum vörum í verslunum
hérlendis. Næsta skref var að selja pcysurnar hennar
og síðan peysur vinkvennanna. Smám saman vatt
þetta upp á sig og áður en maður vissi af var húsið
orðið fullt af peysum sem gengu kaupum og sölum.
Þá kom búðin til sögunnar og núna er takmarkið
að ná milljón dollara veltu og tvöfalda hana svo á
fáum árum.
Meðfylgjandi úrklippa sýnir greinina í Daily
Camerá.