Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 34
34 DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986. Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Þegar bókavertíð jólanna er af- staðin tekur við önnur vertíð öllu hljóðlátari en þó íjölsótt. Það eru útsölumarkaðirnir sem opnaðir eru þegar svartasta skammdegið er að baki. Þangað mæta bókaáhuga- mennirnir og kaupa sér bækur til að „lesa“. Það er svo orðað til aðgrein- ingar frá gjafakaupunum fyrir jólin. A bókamarkaðina koma líka safn- ararnir sem eru að leita að því sem vantar í safnið. Hér er þó ekki von á að finna fágætustu bækurnar. Þær liggja ekki frammi á útsölum. Fyrir utan hagstætt verð gefst bókamönnunum kostur á að sjá á mörkuðunum hvað er fáanlegt af íslenskum bókum. Þar eru ekki bara afgangarnir frá síðustu jólabókaver- tíð heldur bækur síðustu ára. Sumt er orðið gamalt og lúið. Þar er hægt að fá bæklinga sem gefnir voru út í tilefni af löngu gleymdum deilum. Þar er líka hægt að fá skáldsögur sem ekki seldust upp. Fræðiritin eru fjölmörg og ljóðabækur sem aldrei nutu almannahylli. Sumt er í dýru bandi annað óbundið. Það er þessi ótrúlega fjölbreytni sem einkennir bókamarkaðina. Fyrir grúskara Það gefur því augaleið að bóka- markaðirnir eru einmitt staðirnir fyrir þá sem vilja grúska í bókum. Við heimsóttum einn markaðinn sem nú er opinn hér í borginni. Hann er að því leyti óvenjulegur að þar er ein fornsalan að létta á lagernum hjá sér. En gestirnir eru þeir sömu og sækja aðra bókamarði - menn sem eru að leita sér að bókunum sem fóru framhjá þeim síðast. Ailar neðanjarðarútgáfurnar Eysteinn Þorvaldsson bókmennta- fræðingur er einn þeirra sem helst lætur ekki bókamarkað fram hjá sér fara. „Ég safna mjög mörgu og kaupi mikið af bókum,“ segir Eysteinn þegar við fengum hann til að líta upp úr einum bókastaflanum, „sérstak- lega sækist ég eftir ljóðum og skáld- sögum, bæði íslenskum og erlendum. Nú og síðan eru það fornbókmennt- irnar. Þær eru ofarlega á óskalistan- Eysteinn á frægt safn ljóðabóka. Þar eru saman komnar einka- eða neðanjarðarútgáfurnar sem mikilli hylli hafa náð meðal ungra skálda á síðari árum. Þetta er safn sem margir sækja í því annað betra er ekki til í landinu, hvorki í einkaeigu né á söfnum. „Ég á flestar eða allar neðanjarð- arútgáfur sem til eru,“ segir Ey- steinn. „Upþhafið að þessari söfnun var að ég tók að mér að gefa út sýnisbók ljóða ungra skálda á 8. Árstími bókamarkaðanna er genginn í garð: Bækur til að lesaogbækur til að safna Það er lengi von á einni bók til í safnið. áratugnum. Mikið af þeim skáldskap gáfu höfundarnir út sjálfir i fjölrit- um. Þessar bækur er mjög erfitt að grafa upp því sumar þeirra hafa aldrei verið skráðar og aldrei borist bókasöfnum. Siðferðileg skylda að halda áfram Nú, þegar ég var einu sinni byrjað- ur þá var útilokað að hætta. Mér ber eiginlega siðferðileg skylda til að halda þessu áfram. Eftir að ég var búinn að efna í sýnisbókina var ég kominn með stofn að safni sem ég hef síðan aukið við. Þessi útgáfa er þó orðin miklu meiri en áður var vegna þess að prenttæknin er orðin miklu ódýrari en hún var.“ Um íjölda bóka í safninu sagðist Eysteinn ekkert vita enda aldrei talið það. Hann var þó viss um að þær skiptu þúsundum. „Það er ekki magnið sem skiptir máli heldur gæðin. Enginn bókasafnari endist til að sanka að sér öllum þeim bókum sem hægt er að komast yfir. Þótt ljóðabækurnar séu orðnar æðimargar þá eru fornbókmenntirn- ar meirihluti safnsins. Ég safna til dæmis öllum Edduútgáfum sem komið hafa út hér heima og erlend- is.“ Þýðir ekki að horfa í verðið Þá vaknar spurningin um kostnað- inn. Það er segin saga að þegar bókasafnarar eru spurðir um þá hlið áráttunnar er viðkvæðið að „ekki þýði að horfa í verðið". Það er aftur á móti sameiginlegt flestum bóka- söfnurum nú orðið að þeir sækjast ekki eftir nema einhverju afmörkuðu sviði bókmenntanna. Það dettur engum lengur í hug að safna öllu sem út kemur á íslensku. „Bókasafnarar eiga það sameiginlegt að þá þrýtur fljótt húspláss," sagði Eysteinn Þor- valdsson. Að forvitnast En það sækja ekki allir bókamark- aði til að safna bókum. Sumir eru að leita sér að lesefni án þess að hugsa sérstaklega um hvernig það fellur að skipulögðu bókasafni. „Ég er aðallega að forvitnast og sjá hvað ég finn,“ sagði Sigurbjörg Óskarsdóttir, starfsstúlka á Borg- arspítalanum. „Ég er aðallega að leita að bókum um stríðsárin vegna þess að ég veit lítið um þau nema af munnmælasögum. Það er alltaf von um að finna þannig bækur hérna. Ég leita líka mikið að bókum um trúmál og dulhyggju. Aðallega geri ég það til að lesa en safna þannig bókum ekki sérstaklega. Sigurbjörg Óskarsdóttir var að leita að bókum um stríðsárin. Einar Otti Guðmundsson var kominn frá ísafirði í leit að ritum um landbúnaðarmál. Hjalti Jóhannsson gætti búðarinnar. Hann sagðist því miður vera alæta á bækur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.