Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Page 11
11
DV. FIMMTUDAGTJR 20. MÁRS1986.
Þjóðar-
átak
gegn
krabba-
meini
-12.ogl3. apríl
Krabbameinsfélagið gengst fyrir
landssöfnun 12. og 13. apríl undir
kjörorðinu „Þjóðarátak gegn krabba-
meini - þín vegna. Slík söfnun mun
fara fram á öllum Norðurlöndunum
þessa sömu daga.
Þeir fjármunir sem safnast hér á
landi verða eingöngu notaðir til
brýnna verkefna sem Krabbameins-
félag íslands hefur þegar byrjað á.
Þar ber hæst ýmiss konar hóprann-
sóknir, t.d. leit að leghálskrabba-
meini, brjóstakrabbameini og leit að
æxlum í ristli og endaþarmi.
Snorri Ingimarsson, framkvæmda-
stjóri Krabbameinsfélagsins, sagði á
fundi með blaðamönnum á dögunum
að fjárhagsvandi hamlaði nokkuð því
forvarnarstarfi sem nauðsynlegt væri
að halda uppi. Hann sagði að fjár-
munum þeim sem safnast yrði varið
til aukinnar leitar að krabbameini og
í því skyni yrðu fest kaup á rönt-
gentæki.
Snorri sagði ennfremur að Krabba-
meinsfélagið væri féþurfi vegna leitar
að krabbameini í ristli og endaþarmi
sem nýhafin er. Auk þess benti hann
á að fræðslu- og rannsóknarstarf fé-
lagsins væri mikilvægur þáttur^ í
baráttunni gegn krabbameini á ís-
landi.
JC-hreyfingin á Islandi, ásamt
kvenfélögum og aðildarfélögum
Krabbameinsfélagsins úti á landi,
hefur tekið að sér framkvæmd söfn-
unarstarfsins úti á landsbyggðinni.
Reynt verður að fara á hvert heimili
á landinu og leita framlaga. Það er
mikið starf og geta þeir sem vilja
gerast sjálfboðaliðar í söfhunarstarf-
inu hringt í síma 21122 og 621414.
Krabbamein er næstalgengasta
dánarorsök íslendinga en 22 af
hundraði látast eftir að hafa orðið
undir í glímunni við það. _ás
Iðgjöld-
in lækka
minna
Samþykkt hefur verið að lækka
iðgjöld bílatrygginga um 3%. Þannig
hækka iðgjöldin ekki um 22%, eins
og til stóð, heldur um 19%. Hækkun
iðgjalda hefur sætt mikilli gagnrýni
bæði í sölum Alþingis og innan ASÍ.
Tryggingafélögin hafa setið á fundi
um málið með fulltrúum ASÍ og féll-
ust loks á þessa lækkun. Trygginga-
eftirlitið hefur samþykkt þessa niður-
stöðu. _KB
Eldingolli
símabiluninni
„Elding aðfaranótt miðvikudagsins
olli því að strengur datt út í símstöð-
inni í Breiðholti. Þannig varð síma-
sambandslaust við Reykjanesskag-
ann, Snæfellsnes og Vestfirði," sagði
Gústav Arnar, yfirverkfræðingur hjá
Pósti og síma. Eins og við sögðum frá
í gær þá urðu bilanir á svæðisnúmer-
um 92,93 og 94 í gærmorgun.
Fljótlega eftir hádegi í gær komst
samband á við Reykjanesskagann og
síðan við hin svæðin. „Það er alltaf
hætta á að upp komi bilanir. Þó að
margir rafeindavirkjar hafi sagt upp
störfum þá erum við með hóp manna
sem gera við bilanir um lcið og þær
koma upp,“ sagði Gústav Arnar..
J?.QS
Meryl Streep leikur aðalhlutverk í Out of Africa,
OutofAfrica:
Rauði krossinn
fær ágóða
affrumsýningu
Out of Africa, sem tilnefnd hefur
verið til 11 óskarsverðlauna, verður
frumsýnd í Stjörnubíói á laugardag.
Ákveðið hefur verið að Rauði kross-
inn fái allan ágóða af frumsýning-
unni.
Myndin Out of Africa er eftir Sidney
Pollack (Tootsie) en aðalhlutverk
leika Robert Redford bg Meryl Streep.
Rauði krossinn mun sjá um sölu
aðgöngumiða og fá allan ágóða af
frumsýningunni sem verður klukkan
14 á laugardag.
Kvikmyndin Out of Africa íjallar
um líf og störf dönsku skáldkonunnar
Karenar Blixen þann tíma sem hún
starfaði í Afríku.
Ástæða þess að Rauði krossinn sér
um frumsýninguna gegn hagnaði af
henni er sú að hann er að hefja hefja
nýtt verkefni í Afríku.
Gróðursett verða tré í Afríku í þeim
tilgangi að berjast gegn uppblæstri.
Munu ungmenni innan hreyfingar-
innar að verulegu leyti sjá um fram-
kvæmd þessa en fjár verður aflað með
sölu birkigreina sem verða skreyttar
sérstaklega.
Greinarnar eru ætlaðar til skrauts
á páskum og veiða til sölu í öllum
helstu blómaverslunum fyrir hátíð-
ina.
Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri
Rauða krossins, sagði, er hann kynnti
blaðamönnum þetta verkefni, að hér
væri ekki um að ræða neyðarhjálp
heldur væri þetta liður i að hjálpa
Afríkubúum að hjálpa sér sjálfir.
Eyðimerkur stækka ört í Afríku og
er talið að gróðursetning trjáa geti
stuðlað að því að hamla þeirri þróun.
-ás
ÉG VEITSJALFHVER
ER, LOKSINS
Viðtal við Helgu Bachmann
BEÐIÐ EFTIRBANKA
STJÓRA
Talað við bankastjóra og vongóða við-
skiptavini
REYKJA VIK200ARA
„Polití Hendrichsen barði mann í kirkj