Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Síða 12
12 DV. riMMTUDAGUR 20. MARS1986. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Birna Karlsdóttir sýnir okkur nýjasta nýtt i þjófavörnum, þráðlaust þjófavarn- arkerfi sem koma má fyrir hvar sem er. Sýning á bruna- og þjófa- varnarkerfum Of seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í Þessa dagana stendur yfir sýning í Byggingaþjónustunni að Hallveigar- stíg 1 á margs konar tækjum og búnaði til bruna- og þjófavarna, Sýningin er opin alla virka daga kl. 10-18 og um helgar 14-18. 'KI. 16-18 daglega verða almenningi veittar hlutlausar upplýsingar og ráðgjöf. A.Bj. Þetta er stórt eldvarnarkerfi sem hannað er og framleitt af Pólnum á ísafirði, útbúnaður sem þarf að vera á sjúkrahúsum og stærri byggingum sem liður í eldvamarkerfi. verðí Ijós -án þess að ýta á rofa! Enn ein nýjungin sem er á sýningunni er þannig að um leið og einhver birtist á tröppunum kviknar ljós. Þetta er þægilegt fyrir heimilisfólk eða gesti en afar óþægilegt fyrir óboðna gesti og þjófa sem verða þá væntanlega fljótir að pilla sigíburtu. DV-myndir PK Raddir neytenda Raddir neytenda Raddir neytenda „Sannleikurmn er aðvísu dýrmætur en óþarfi að fara sparlega með hann“ - Davíð býður Margréti í Flóridaferð Áfram er rætt um Svala og mjólk og hér á eftir fer athugasemd sem Davíð Sch.Thorsteinsson biður um að komið verði á framfæri vegna ummæla Margrétar Guðmunds- dóttur frá Vatnsskarðshólum í DV 12. mars sl. Það er staðreynd að engin rot- varnarefni hafa verið notuð í Svala í Tetra Pak umbúðunum í tæpt ár. Það er hins vegar alveg rétt hjá Margréti að enn er í notkun gömul prentun umbúða utan um Svala þar sem enn er ekki búið að breyta innihaldslýsingunni. Það er vissu- lega villandi en verður að sjálfsögðu leiðrétt í næstu prentun. Svona ril gamans vil ég bæta því við að það er ýmislegt f Svala sem ekki má segja frá á umbúðum. Til dæmis er álíka mikið magn af A-vítamíni í Svala og í nýmjólk, eða 130 alþjóðaeiningar í hvetjum 100 grömmum. Hvemig Margrét fær lagt þann skilning í eftirfarandi orð mín: „Þegar búið er að kreista appelsín- una er börkurinn og hratið þurrkað og breytt í kúafóður," að þau tákni að appelsínan sé kreist með berkin- um fæ ég með engu móti skilið. En til að reyna að eyða þessum mis- skilningi í eitt skipti fyrir öll skal ég reyna að tala enn skýrar og útskýra hvað gert er, lið fyrir lið. Þrepl Appelsínan er sneidd í tvennt með hníf. Þrep2 Safinn or kreistur úr henni með hrjúfóttum hnúð, sem snýst innan í appelsínunni, en berkinum er haldið kyn-um á meðan. í raun ósköp svipað tæki og fæst sem fylgi- hlutur með mörgum heimilishræri- vélum, en er að sjálfsögðu bæði sjálfvirkt og margfalt hraðvirkara. Þrep3 Safinn rennur síðan í gegnum ryðfrítt sigti þar sem hrat og steinar sitja eftir en safinn sjálfur rennur í gegnum ryðfríar stálpípur yfir í geymslutanka. Þrep4 Þegar safinn hefur verið kreistur úr appelsínunni og er runninn í gegnum sigtið sleppir vélin berkin- um. Hann fellur þá ofan á sérstakt færiband sem fiytur hann. ásamt hratinu, úr síunum yfir í stóran þurrkara, svipaðan loðnumjöls- þurrkara, þar sem þessum úrgangs- efnum er breytt í kúafóður. Hvort kjöt eða mjólk úr kúm, sem slíks fóðurbætis neyta, er hættulegt heilsu mannð eða ekki veit ég ekki og ég veit heldur ekki hvort þessum úrgangsefnum er blandað í þann fóðurbæti sem fluttur er til íslands handa íslenskum kúm. Staðall sá sem Flórídadeild ávaxtaeftirlits bandaríska land- búnaðarráðuneytisins vinnur eí'tir er, að því er ég best veit, kröfuharð- asti staðall um slíka framleiðslu sem til er í heiminum, enda gæði og hollusta Flóridana appelsínusafans eftirþví. Aukaefhi eru engin leyfð, eftirlitið er firna strangt og viðurlög við til- raunum til brota bæði háar sektir, réttindamissir og fangelsi. Að lokum vil ég segja að mér væri sönn ánægja að stuðla að því að Margréti gæfist tækifæri til að skoða appelsínusafaverksmiðju í Flórída og kynnast þannig fram- leiðslunni af eigin raun, þannig að hún þyrfti ekki að byggja ræður sínar og skrif á tilhæfulausum gróú- sögum sem hún hefur einhvern tíma heyrt eða lesið. Þætti mér vænt um ef hún vildi ræða við mig ef hún hefur áhuga á slíkri ferð. Davíð Sch. Thorsteinsson. Hér með er þessum athugasemd- um komið á framfæri og nú er bara að vita hvort Margrét þekkist boðið og mjólkur-Svala deilan verður til lykta leidd á sólríkri Flórídaströnd. -S.Konn. ÚTTEKT VERÐLAGS- STOFNUNAR LOKIÐ - tollalækkun á bílum skilar sér Verðlagsstofnun hefur nú lokið úttekt á verðlækkun á bifreiðum sem átti sér stað í kjölfar kjarasamning- anna. Mikið hefur verið rætt og ritað um verðlagsmál upp á síðkastið og sérstaklega eftir að í ljós kom að bifreiðar lækkuðu ekki eins mikið í verði og gert hafði verið ráð fyrir í fyrstu. Með breyttum reglum þóttust menn loks vissir um að tollalækkunin myndi skila sér til kaupenda í um 30% verðlækkun eins og um var samið og þessi mál hafa verið í gagngerri at- hugun hjá verðlagsyfirvöldum. Eftir nákvæma úttekt á verðlagn- ingu á bifreiðum eftir breytingar hefur Verðlagsstofnun komist að þeirri niðurstöðu - að tollalækkunin mun nú skila sér til kaupenda í verð- lækkun á bilinu 27-30% á fólksbílum með undir 2000 rúmsentímetra sprengirými. Athuga ber að það verð, sem reiknað var með, miðast við toll- gengi eins og það var 1. mars en þær breytingar, sem orðið hafa síðan, ættu að verða ljósar með hliðsjón af geng- isbreytingum. Umboðin hafa mikið gert að því að auglýsa hið nýja verð sem samkvæmt heimildum Verðlagsstofnunar má treysta að sé í fullu samræmi við áður settákvæði. -S.Konn. Hvernig þer getið lengt líf eiginmannsins Öðru hverju höfum við hér á Neytendasíðunni birt húsráð um allt mögulegt sem snertir heimilið og hið daglega líf. Vonandi hafa þau komið einhverjum að notum en það er álitamál hvort það heillaráð sem hér fer á eftir hefur skilað sér sem skyldi. Þetta er tekið upp úr 20 ára gömlu vikublaði og sýnir vel tíðar- andann sem ríkjandi var íyrir 20 árum. Nú til dags gerum við ráð fyrir að eiginmennirnir séu sjálfs sín ráðandi og séu færir um að hugsa umsigsjálfir. Hvað um það, hér koma 7 heillar- áð fyrir eiginkonur sem hafa áhuga á að lengja líf eiginmannsins: Fjórir af hverjum fimm sjúklingum, sem fá hjartaslag, eru karlmenn. Þér, sem eiginkona, getið gegnt mikilvægu hlutverki í að vemda - 7 heillaráð heilsu manns yðar. Til allrar ham- ingju eru til ýmsar varúðarráðstaf- anir, sem hægt er að gera og fara hér á eftir 7 þær helstu: 1) Veriö glaðleg í viðmóti. Takið hlýlega og glaðlega á móti eigin- manninum þegar hann kemur heim. Flestir menn verða fyrir svo mikilli taugaspennu í sínum daglegu störf- um svo að æskilegt væri að þeir gætu slappað af á heimilum sinum og byggt upp kraftana. 2) Hafið máltíðirnar ljúffengar og hollar en forðist samtímis fitandi mat svo að þið getið haidið ykkur grönnum. Og notið umfram allt ekki matmálstímann í umkvartanir og vandamál. 3) Hlaðið ekki á hann samkvæmis- lífi á vinnudögum svo hann fái að minnsta kosti 7 8 stunda nætur- svefn. 4) Mikil hreyfing er nauðsynleg. Hvetjið eiginmann yðar til þess að ganga eins mikið og unnt er. Farið i göngur saman. Stutt kvöldganga t.d. erhinn ágætasti svefngjafi. 5) Verið ekki of eyðslusöm. Áhyggj- ur og taugastríð út af óhóflegu heimilishaldi geta verið heilsunni hættulegri en viðskiptavandamálin. 6) Það er mikilsvert að fara í frí með reglulegu millibili. Notadrýgst verður fríið ef það er með breyttum hraða frá hversdagslífinu, ef breytt er um landslag og það verður ekki of mikið skarð í fjárhaginn. 7) Sjáið um að maðurínn yðar fari í hjartarannsókn a.m.k. einu sinni áári. Svo mörg voru þau orð. Og eigin- konur um allt land, athugið vel ákvæði2og5. -S.Konn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.