Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Síða 14
14 DV. FIMMTUDAGUR 20. MARS1986. Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurogútgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÖSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PALLSTEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., ÞVERHOLT111 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 450 kr. Verð í lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr. Öryggisgæsla Hryðjuverk hafa færst í vöxt á undanförnum árum. Skemmst er að minnast morðsins á Olof Palme, og fyrr á þessu ári létu hryðjuverkamenn til skarar skríða á tveim alþjóðaflugvöllum, þar sem óbreyttir borgarar máttu gjalda fyrir með lífi sínu. Þær fólskulegu árásir urðu til þess að sett var upp vopnuð öryggisgæsla á Keflavíkurflugvelli. Það var nýstárlegur og heldur napur veruleiki fyrir íslendinga, sem hingað til hafa aðeins þekkt til vopnaðrar gæslu af afspurn. Utanríkisráðherra hefur nú boðað tillögu um við- búnað gegn hryðjuverkamönnum öfgamanna, sem snýr að svokölluðu innra öryggi. Er þá átt við vörn og viðnám gagnvart ofbeldi, njósnastarfsemi og árásum, sem miða að því að grafa undan öryggi og sjálfstæði landsins innan frá. Ofbeldisseggir eiga ekki að geta hindrunar- laust ráðist á stofnanir og forystumenn þjóðarinnar. Tillaga utanríkisráðherra er góðra gjalda verð, enda höfum við sjálfsagt verið alltof grandalaus gagnvart hryðjuverkum, ólögmætri upplýsingastarfsemi og þeim hættum, sem steðjað geta að forseta, ríkisstjórn eða öðrum þeim sem gegna forystustörfum í þjóðfélaginu. Einhver lágmarkslöggæsla er vissulega nauðsynleg, og sjálfsagt er, að lögreglan þjálfi innan sinna vébanda öryggissveitir, sem séu í viðbragðsstöðu þegar á þarf að halda. A hinn bóginn er ástæða til að vara við því, að íslend- ingar telji sig á sama báti og aðrar þjóðir í þessum efnum. Við eigum ekki að hlaupa upp til handa og fóta, þótt fréttir berist af hryðjuverkum erlendis. Hin vopn- aða öryggisgæsla á Keflavíkurflugvelli er ástæðulaus taugatitringur, sem fer illa í íslendinga. Þeir eru ekki vanir vopnaburði og sjá raunar litla vernd í einum eða tveim byssubúnum lögreglumönnum innan um almenn- ing og ferðalanga. Það er sýndarmennska, sem vekur aðhlátur frekar en öryggiskennd. Það sama má segja, ef ráðherrar komast ekki milli húsa öðruvísi en í vopnaðri vernd og forseti Islands verður brynvarinn bak við skothelda glugga. Kosturinn við íslenskt þjóðfélag er öryggið og svig- rúmið, sem háir sem lágir njóta í vopnlausu, friðsælu umhverfi. Það öryggi verður best varðveitt í traustinu, sem við berum hvert til annars. Ekki með vopnuðum öryggisvörðum í bak og fyrir, ekki með einkennis- klæddum varðliðum í hverju fótmáli. Það er notaleg tilfinning að sjá forseta íslands geta óáreittan ekið um stræti innan um þegna sína og það er óviðjafnanlegt að forsætisráðherra, valdamesti maður þjóðarinnar, geti spásserað innan um almenning og blandað geði við kjósendur, án þess að nokkrum detti í hug, að ráð- herrann sé í hættu. Þetta gefur lífinu á íslandi gildi, enda værum við hvort sem er lítið öruggari eða óhult- ari, þótt vopnum búnir öryggisverðir gættu þessara forsvarsmanna þjóðarinnar. Ef hryðjuverkamenn eða ofbeldisseggir sjá á annað borð ástæðu til að gera atlögu að opinberum stofnunum eða mikilvægum einstakling- um, erum við hvort sem er ekki í stakk búin til að verjast slíkum árásum. Vopnuð öryggisgæsla kallar á vopnaða árás, og við skulum ekki fara að bjóða of- beldinu heim með barnalegum tilraunum til að apa eftir útlendingum einhverja taugaveiklun í öryggisgæslu, sem aldrei verður annað en sýndarmennska hvort sem er. „Mjólkurfræðingar hafa tekið sig út úr samtökum á launamarkaði „svo lengi sem elstu menn muna“, svo notuð sé vel þekkt samlíking.“ Viðsjár á vinnumarkaði Þótt tekist hafi að gera einhverja merkustu kiarasamninga sem saga síðari áratuga kann frá að greina er vissulega ekkí allt með friði og spekt á vinnumarkaði. Það sem fólk veitir hvað mesta athygli þessa dagana er uppsagnir rafeinda- virkja hjá ríkisfiölmilum og Pósti og síma. Líklegt er að fólk verði fyrir ýmsum verulegum óþægind- um vegna þessara uppsagna og hafi kannski þegar orðið það þegar þessi grein kemur fyrir almenn- ingssjónir. Einkum og sér í lagi verður það slæmt bæði fyrir al- menning og atvinnufyrirtæki ef löng bið verður á því að Póstur og sími geti sinnt sínum þýðingarm- iklu störfum á viðunandi hátt. Fúlirá móti Ekki verður betur séð en stirfni samninganefndar ríkisins hafi fyrst og fremst sett málin i þá sjálfheldu sem þau eru nú komin í. Strax í haust mátti hverjum heilvita manni vera ljóst að hverju stefndi. Tæknimennirnir ætluðu að sam- einast í iðnfélagi og sagan kennir okkur að það er harla þýðingarlítið að ætla að hamla gegn slíkri þróun. Auðvitað er það ekki af stéttvísi einni saman sem rafeindavirkjar vilja vera í félagi með starfsbræðr- um sínum á almenna vinnumark- aðnum heldur er þar um að ræða baráttu fyrir hærri launum. Enn ein afleiðingin af þeirri launa- stefnu sem ríkisvaldið hefur haldið uppi á undanförnum árum í krafti miðstýringarvaldsins. Og einmitt þess vegna var fulltrúum ríkis- valdsins, sem virðast trúa því að þeirra hlutverk sé fyrst og fremst að vera fúlir á móti, það einkar óljúft að mæta kröfum tæknimann- anna. Þeir vilja ekki missa spón úr aski sínum með því að missa launaflokkaröðunina úr höndum sér og því lögðu þeir út í stríð sem þeir eru dæmdir til að tapa hvernig sem einstakar orrustur fara. Að lokum getur nefnilega enginn neytt annan til þess að vinna nema þar sem hann vill og því hljóta samn- ingamenn ríkisins að tapa stríðinu enda þótt þeir kunni að vinna ein- hverjar orrustur á kostnað almenn- ings í landinu. Annars er eins og samninga- mönnum ríkisvaldsins hafi í gegn- um tíðina verið nær fyrirmunað að umgangast fólk. Það er eins og þeir trúi því enn þann dag í dag að eftir því sem þeir komi fram af meira drembilæti og hroka í garð viðsemjenda sinna sé meiri von um árangur. Af þessari trú virðast þeir ekki vilja ganga á sama tíma og vinnu- veitendur og launþegar á almenna markaðnum hafa tekið upp þær vinnureglur að talast við eins og menn og leita að sameiginlegri niðurstöðu. Það er svo jafnljóst að vígstaða tæknimanna er siðferðilega heldur veik um þessar mundir. Eftir að Kjallari á fimmtudegi MAGNÚS BJARNFREÐSSON tekist hefur að gera hóflega kjara- samninga um allt land er lítil samúð með þeim sem vilja maka krókinn betur en almennt gerist og er þá ekki spurt að málatil- búnaði. Tæknimenn hafa látið samningamenn ríkisvaldsins teyma sig inn í tímaskeið þar sem mjög er erfitt að koma til móts við þá. Þess vegna er hæpið að samn- ingar séu á næsta leiti enda nóg fyrir snjalla tæknimenn að gera á almennum markaði. Klassísk vandræöabörn Annar starfshópur sem ekki vill hlíta almennum leikreglum á vinnumarkaði er mjólkurfræðing- ar. Raunar eru menn hættir að kippa sér upp við það þótt þeir knýi fram aðra niðurstöðu en aðrir komast að í samningum. Mjólkur- fræðingar hafa tekið sig út úr samtökum á launamarkaði „svo lengi sem elstu menn muna“, svo notuð sé vel þekkt samlíking. í augum flestra launþega eru þcir klassísk „vandræðabörn“ vinnu- markaðarins sem komast æ ofan í æ upp með það að setja hnífmn á barka þjóðfélagsins og knýja fram sérsamninga sér til handa. Það verður fróðlegt að sjá hvað gert verður í máli mjólkurfræðinga nú. Víst er um að fárra samúð eiga þeir en grannt verður eftir því tekið hvort látið verði undan kröfum þeirra um hækkanir umfram það sem almennir launþegar fá. Fari svo að þeir fái verulega umbun umfram aðra er hætt við að órói skapist á almennum vinnumarkaði fljótlega. Það er hins vegar hægara sagt en gert að knýja mjólkurfræðinga til hlýðni. Samkvæmt lögum verða þeir að hafa hönd í bagga með mjólkurframleiðslunni og leggist hún niður verða bæði neytendur og framleiðendur hinir verstu enda þótt þeir séu líka á móti því að gengið sé að kröfum mjólkurfræð- inganna. Ekki verður í fljótu bragði séð að deilan verði leyst með öðru en lagasetningu, nema þá menn vilji leggja árar í bát og gefast upp að venju. Sé svo ættu menn að gera það strax i stað þess að magna deiluna og gera hans torleystari. Sjálfdæmin Fleiri dæmi mætti nefna um óleystar deilur á vinnumarkaði en því má ekki gleyma að um sumar hækkanir verður ekki samið. Þær verða teknar á þurru. Enginn þarf að láta sér detta það í hug að ýmsir þeir sem viskipti stunda reyni ekki að hagnast um- fram starfsfólk sitt á hinum nýju viáhorfum. Dettur til að mynda einhverjum í hug að lækkandi vaxtakostnaður komi almennt fram í lækkuðu vöruverði? Halda menn að kaupmennirnir sem keyptu stolnu mjólkina á dögunum reyni ekki að skjóta inn pínulítilli álagningarhækkun ef tollar lækka? Því miður mun ýmsum skuggaböldrum af þessu tagi takast að hagnast óeðlilega á meðan aðrir reyna að halda þjóðarsátt í heiðri. Margt bendir nú til þess að fjöl- menn alþýðusamtök, svo sem laun- þegahreyfingar og neytendasam- tök, hyggist taka þessi mál föstum tökum. Vonandi gera þau það og vonandi reynast hinir almennu viðskiptavinir sá vöndur sem ó- prúttnir kaupsýslumenn þurfa að óttast. Full ástæða er til þess að hvetja hina almennu borgara til þess að veita það aðhald sem nauðsynlegt er til þess að hinir nýju kjarasamn- ingar séu haldnir í raun. Þeir eiga miskunnarlaust að láta þá aðila vita sem fylgjast með verðlagi og þeir hinir sömu eiga hiklaust að veita þá ráðningu sem sökludólg- arnir skilja best: Að birta nöfn þeirra opinberlega. Magnús Bjarnfreðsson ^ „Halda menn að kaupmennirnir sem ^ keyptu stolnu mjólkina á dögunum reyni ekki að skjóta inn pínulítilli álagn- ingarhækkun ef tollar lækka? Því miður mun ýmsum skuggaböldrum af þessu tagi takast að hagnast óeðlilega á meðan aðrir reyna að halda þjóðarsátt í heiðri.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.