Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Síða 17
Lesendur
DV. FIMMT UDAGUR 20. MARS1986.
„Öll þessi 10 lög sem við höfum
fengið að heyra eru auðvitað alveg
prýðileg, enda annar hver maður
raulandi Gleðibankann".
HRIFNING
Jóhann Sigurðsson hringdi:
Það var ekki við öðru að búast
en að lesendur létu duglega i sér
heyra vegna Eurovision-keppnínn-
ar. I langan tima hefúr ekki verið
jafnákjósanlegt umræðuefni á döf-
inni og greinilegt að landinn hefur
verið orðinn alllangeygur eftir ein-
liveiju til að æsa sig yfir. Öll þessi
10 lög sem við höfum fengið að
heyra eru auðvitað alveg prýðileg,
enda annar hver maður raulandi
Gleðibankann og hinn helmingur-
inn þau 9 sem ekki komast áfram.
Og svo mikið er haldið upp á lögin
að hnefar sáust á lofti þegar til-
kynnt var um úrslit, að aðeins eitt
lag skyldi vinna. En hrifningin er
samt að mestu innibyrgð - í votta
viðurvist hefur enginn heyrt annað
eins. Fólk heldur ekki aftur af sér,
þetta skal þjóðin fá að sjá: Að ég
læt ekki bjóða mér svona lög. Og
samhliða því að sumir vilja afsala
sér ríkisborgararéttinum til að
þurfa ekki að skammast sín þegar
Gleðibankinn fær ekki stig í Bergen
fara áhyggjumar yfir því að þurfa
að halda næstu keppni eins og eldur
í sinu um landið. Víst er að þegar
við í maí fögnum sigri verða lands-
menn að Fmna ný lýsingarorð yfir
það hve lagið er lélegt, einhver nógu
ljót til að bæla niður sigurvímuna.
Tvær bálvondar út í aðdáendaklúbb
Wham!
Wham!
-aðdáendaklúbbs
-skírteini
L. og Á„ tvær bálvondar úr Breið-
holtinu, skrifa:
Við skráðum okkur í Wham!-klúbb-
inn í sumar og höfum ekki fengið
neitt frá honum, ekki einu sinni skír-
teini, hvað þá annað. Við biðjum um
skýringu á þessu og hana vilja örugg-
lega margir fleiri.
o-
Nú getur þú keypt þennan Ijúffenga
mat frá Sláturfélaginu fyrir hagstæöara
verð en áður hefur þekkst.
Því að við hjá Sláturfélaginu höfum nú bætt öðrum 20% við 20% lækkunina í janúar.
Þú getur sýnt góða búmennsku með því að skunda út í næstu búð
áður en nokkur annar áttar sig á lækkuninni.
Mundu að gefa frystikistunni!
SLÁTURFÉLAG
4?
SUÐURLANDS
GOTT FÓLK / SIA