Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Síða 19
DV. FIMMTUDAGUR 20. MARS1986.
19-
Menning
Menning
Menning
Frá samsýningu Gangskörunga.
GERÐ GANGSKÖR
Eins dauði er annars brauð. Það
sannast á Gallerí Gangskör sem
fyrir skömmu reis úr rústum Gallerí
Langbrókar að Amtmannsstíg 1.
En meðan Langbrók lagði mest
upp úr nettu handverki, að minnsta
kosti í upphafi, hafa Gangskörung-
ar tekið stefnuna á púra myndlist.
Sjálft galleríið hefur ekki tekið
neinum breytingum, nema hvað
hinir nýju leigjendur hafa misst
geymsluherbergi. Smæð og lögun
húsnæðisins hlýtur óneitanlega að
setja hinum 10 manna hópi ein-
hverjar skorður, einkum þeim sem
þurfa talsvert pláss undir verk sín.
Vonandi fara þeir ekki að sníða
verkin eftir sýningarrýminu og
ffamleiða eintómar smámyndir.
Þeirri frómu ósk fylgja svo árnaða-
róskir.
Það eru hvorki nýgræðingar né
aukvisar sem standa að hinu nýja
galleríi heldur tiltölulega sjóaðir
myndlistarmenn: myndsmiðir eins
og Kristjana Samper og Þórdís A.
Myndlist
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
Sigurðardóttir, grafíklistamenn
eins og Sigrid Valtingojer og Jenný
Guðmundsdóttir, listmálarar eins
og Sigurður Orlygsson og Stein-
grímur Þorvaldsson, og svo alt-
múlígmenn eins og Arni Páll og
Egill Eðvarðsson. Auk þess er þarna
Asrún Kristjánsdóttir, textíllista-
maður og málari og Lísbet Sveins-
dóttir, glerlistarmaður.
Hópefli
Það er við hæfi að hefja svona
hópefli með samsýningu, og hafa
Gangskörungar sett upp nokkur
sýnishorn verka sinna í það pláss
sem fyrir hendi er.
Eins og gefur að skilja verður
ansi lítið pláss á hvern sýnanda.
Engu að siður fer enginn þeirra
verulega illa út úr upphengingunni.
Enginn þeirra kemur heldur veru-
lega á óvart, enda varla hægt að
ætlast til þess af reyndum og flas-
lausum listamönnum.
Sérkennileg konkretverk Árna
Páls fara vel þar sem þau hanga eða
drúpa, sama má segja um harð-
skeyttar afstraksjónir Steingríms
Þorvaldssonar.
Gamlir kunningjar
Myndir Egils Eðvarðssonar eru
sömuleiðis gamlir kunningjar sem
ekki hafa haft sig allt of mikið í
ffamrni á síðastliðnum árum, og
árin hafa farið vel með þær.
Sigurður Örlygsson nýtir vel það
pláss sem hann fær og eru myndir
hans orðnar ríkulegri, bæði að áferð
og skírskotunum.
En svona upptalningar eru leiðin-
legar aflestrar og rétt að hinkra eftir
einkasýningum aðstandenda. Sem
sagt, Langbrók er dauð, lengi lifi
Gangskör.
-ai
LENGIGETUR
GOTTBATNAÐ
Anna Málfríöur Sigurðardóttir og Martin
Berkofsky leika verk Franz Schuberts fyrir
fjórhent pianó i Norræna húsinu 15. mars.
Efnisskrá: Marches militaires op. 51, nr.
1 og 2; Polanaises op. 61, nr. 1 og 2;
Rondo brilliant op. 84, nr. 2; Marche
héroique op. 66; Fantasie op. 103:
í fjórða sinn settust þau við píanóið,
hjónin Anna Málfríður Sigurðardótt-
ir og Martin Berkofsky, að flytja öll
verk Schuberts sem hann samdi fyrir
fjórhent píanó. í minningu Olofs
Palme, sem jarðsettur var rétt í þann
mund sem tónleikarnir hófust, léku
þau Sorgarmarsinn í c-moll sem Schu-
bert samdi til minningar um Alexand-
er fyrsta Rússakeisara. Síðan hófst
hin eiginlega dagskrá með militerm-
arsinum opus 51, nr. 2. Þann númer
1 geymdu þau þar til eftir hlé en hann
er eitt kunnasta verk Schuberts og
líkast til sú eina af ferhendunum sem
allir þekkja. Flestir kannast víst samt
við hann i allt öðru formi en sem
píanóverk, og þá' allra síst fjórhent.
Þannig er um nánast öll þau af fer-
henduverkunum sem kunn eru. Yfir-
leitt heyrast þau í öðrum útgáfum en
sinum upprunalegu.
Meö tilliti til
eiginleika
Polanesurnar opus 61, númer 1 og
2, voru leiknar sín á hvorum helmingi
efnisskrár. Þær eru hvor annarri lík-
ar, unaðsleg verk báðar tvær. En hér
voru þær sín með hvorum svipnum,
því að i hléi skipta þau á sætum.
Annan helming efnisskrárinnar leik-
ur Martin háraddir en Anna Málfríð-
ur bassann og síðan öfugt. Eins og
Tónlist
EYJÓLFUR MELSTED
gefur að skilja gefur tilhögun þessi
verkunum mismunandi blæ því þau
eru ólíkir píanistar og halda sínu
sjálfstæði þótt þau vandi til samleiks-
ins. í fyrsta sinn fannst mér á þessum
tónleikum að verkin veldust með til-
liti til eiginleika hvors píanistans um
sig. Hvass ásláttur Martins naut sín
til að mynda vel i Rondeau brilliant
og Marche Héroique. Á sama hátt
átti mun mýkri sláttur Önnu Málfríð-
ar betur við Fantasíuna sem Schu-
bert tileinkaði Karólínu Esterházy.
Að vísu kann hljóðfæri hússins að
skerpa muninn en sleppum því að
fara út i raunarollur hér og nú.
Ræktun samleiksins
Það hefur verið sérstaklega á-
nægjulegt að fylgjast með því hvernig
Anna Málfríður og Martin hafa unnið
þessi ferhenduverk Schuberts. Þau
hafa ræktað samleikinn á sérstæðan
hátt, fylgjast að i einu og öllu og
leikurinn hefur orðið blæbrigðaríkari
með hverjum tónleikum. Þó hefur
livorugt þeirra glatað sínum sérkenn-
um í samvinnunni. Hvort sem það var
tilviljun eða ekki þá völdust verkin
enn betur með tilliti til karakters
flytjendanna nú en áður - sem minnir
á þá gömlu, góðu staðreynd að lengi
getur gott batnað.
EM
n n ■ ^ |* n Auðbrekku 32,
DANSKA Lön3ubrekk“
megin.
SMURBRAUÐIÐ
Hjá okkurfáið þið ekta
danskt smurbrauð,
einnig kaffisnittur og
kokkteilsnittur.
Uppl. og pantanír i sima
45633.
Opið frá kl. 10-20 alla daga.
ATH. Sendum heim ef óskað er.
æ
BÍLASALAN BUK
Skaifunni 8 Simi 68S4-77.
Vorum að fá tvo AKTIV 2ja belta vélsleða. Henta vel
fyrir bændur og skiðalönd. Góðir greiðsluskilmálar
ef samið er strax. Verð kr. 240.000,-
æ
BÍLASALAN BUK
Skeifunni 8 Sími 68-64-77.
SKÍÐA-
FESTINGAR
Á ALLA BÍLA
Bílanaust hefur á boðstólum nýja
tegund af alls konar farangurs
grindum, skíðabogum, burðar-
bogum.
Nú fá allir skíðaboga á nýja L inn
því að sérfestingar á hina ýmsu bíla
eru nú til á lager í úrvali.
Fyrir stærri bila.
Fyrir hærri biltoppa.
ATH. Opið laugardaga 10-14.