Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Side 20
20 DV. FIMMTUDAGUR 20. MARS1986. íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Iþrótti • Lárus Guðmundsson. Allt vitlaust í Uerdingen - þegar Bayer Uerding- en vann 7-3 sigur gegn Dynamo Dresden og liðið er komið í undan- úrslit Evrópukeppni bik- arhafa. Lárus skoraði eittmarkanna Það var aldeilis handagangur í öskjunni í gærkvöldi þegar Lárus Guðmundsson og félagar hjá Bayer Uerdingen unnu stórglæsilegan sig- ur, 7-3, gegn Dynamo Dresden frá Austur-Þýskalandi í síðari leik lið- anna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa. Dresden vann fyrri leik liðanna, 2-0, í Þýskalandi en í gær var leikið á heimavelli Uerdingen. Og í gær- kvöldi hafði liðið yfir, 1-3, í leikhléi. En í síðari hálfleik small allt saman hjá Uerdingen og hlupu leikmenn liðsins hreinlega yfir andstæðinga sína og skoruðu sex mörk í síðari hálfleik og unnu 7-3, einn undarleg- asta sigur í sögu Evrópukeppninnar frá upphafi. Uerdingen sigraði sam- anlagt 7-5 og er komið í undanúrslit í keppninni. Lárus Guðmundsson lék með Uerdingen og skoraði eitt markanna og breytti stöðu mála úr 4-3 í 5-3. Hann var engu að síður tekinn út af á 73. mínútu. Atli Eð- valdsson lék ekki með Uerdingen. -SK Urslitin - í Evrópumótunum Evrópukeppni meistaraliða í Helsinki: Kuusysi Lahti (Finn- landi)-Steaua Búkarest (Rúmeníu) 0-1. Steaua kemst áfram, samanlagt 1-0. í Gautaborg: Gautaborg (Svíþjóð)- Aberdeen (Skotlandi) 0-0. Gautaborg kemst áfram á útimörkum. Saman- lagt 2-2. I Brussel: Anderlecht (Belgíu) -Bayem Múnchen (V-Þýskalandi) 2-0. Anderlecht áfram, samanlagt 2-1. í Torino: Juventus (Italíu)-Barce- lona (Spáni) 1-1, Barcelona áfram, samanlagt2-l. Evrópukeppni bikarhafa Dynamo Kiev (Sovétríkjunum)- Rapid Vín (Austurríki) 5-1. Dynamo áfram, samanlagt 9-2. í Krefeld: Bayer Uerdingen (V-ÞýskaIandi>-Dynamo Dresden (A-Þýskalandi) 7-3. Uerdingen kemst áfram, samanlagt 7-5. Atletico Madrid (Spáni)-Red Star (Júgóslavíu) 11. Atletico áfram, samanlagtJ-l. Benfica (Portúgal)-Dukla Prag (Tékkóslóvakíu) 2-1. Dukla komst áfram á fleiri mörkum á útivelli, samanlagt2 2. Evrópukeppni félagsliða I Nantes: Nantes (Frakklandi) -Inter Milano (Ítalíu) 3-3. Inter áfram, samanlagt 6-3. Neuchatel Xanax (Sviss)-Real Madrid (Spáni) 2-0. Real áfram, samanlagt 3-2. í Waregem: Waregem (Belgíu) -Hadjuk Split (Jugóslavíu) 1-0. Samanlagt 1-1. Waregem sigraði í vítaspymukeppni eftir að leikurinn hafði verið framlengdur 5-4. „Vorumvel undirbúnir“ Sió bikarsigrar -sagði Þróttarinn snöggi, JónÁrnason „Við vorum vel undirbúnir, mjög vel undirbúnir," sagði Jón Ámason, „Jón bróðir“, hinn snöggi miðju- smassari Þróttar, eftir bikarsigurinn í gærkvöldi. Hið sigursæla karlalið Þróttar í blaki bætti enn einni skrautfjöður í hatt blakdeildar Þróttar í gærkvöldi. Liðið varð þá bikarmeistari í sjöunda sinn á síðustu tíu árum. Ekki var að sjá nein þreytumerki á Þróttarliðinu í úrslitaleiknum gegn íþróttafélagi stúdenta í Haga- skólanum í gærkvöldi eftir marga og erfiða leiki síðustu daga og langa og glæsilega sigurgöngu undanfarinna ára. Þróttarar hófu leikinn af eld- móði, gáfu reyndar aðeins eftir er leið á leikinn en stóðu síðan uppi með 3-1 sigur. Fyrsta hrina var jöfn framan af, staðan 8-7 fyrir ÍS í miðri hrinu. Þróttur tók þá frumkvæðið og náði 15-9 sigri. Þróttarar komust í 12-1 í annari hrinu. Uppgjafir Stúdenta og móttaka voru i molum og þeir náðu aðeins fimm stigum í annarri hrinu. Leikurinn snerist við í þeirri þriðju. Þá skoraði Þróttur aðeins þrjú stig og áhorfendur gátu farið að vonast eftir spennu. Hana fengu þeir í fjórðu hrinu. Stúdentar komust í 5-2. Þróttarar hleyptu þeim ekki langt og náðu yfir, 9-8. Þróttur komst í 13-8 en ÍS vann það forskot upp. Hart var barist en að lokum tryggði Þróttur sér 16-14 sigur. Jón Ámason, Leifur Harðarson og Lárentsínus Ágústsson voru sterk- astir Þróttara. ÍS-megin bar mest á Þorvarði Sigfússyni og Friðjóni Bjarnasyni. Þessi tvö bestu blaklið landsins mætast aftur annaðkvöld, föstudags- kvöld, í síðari úrslitaleik Islands- mótsins. Þróttur sigraði í fyrri leikn- um fyrir viku. Reglan í úrslitakeppn- inni er sú að það lið sem sigrar tvi- svar stendur uppi sem sigurvegari. Sigri Þróttarar á morgun eru þeir íslandsmeistarar sjötta árið í röð. Sigri Stúdentar þarf aukaleik. Og víst er að Stúdenta þyrstir í að hnekkja sigurgöngu erkifjendanna. -KMU „Það var mjög gott fyrir okkur að tapa þessum leikjum fyrir ÍS í lok deildarkeppninnar. Það þýddi að við tökum þessa leiki núna af meiri al- vöru. Orslitaleikurinn í íslandsmótinu á föstudag leggst vel í okkur. Það verður allt lagt í sölumar. Við viljum ekki þurfa að spila aukaúrslitaleik. Það verður meiri pressa á þeim,“ sagði JónÁmason. -KMU Hið sigursæla blaklið Þróttar. í fremri röð eru Jón Árnason, Lárentsinus Ágústsson, Samúel örn Erlingsson og Leifur Harðar- son. í efri röð eru Tryggvi Geirsson, formaður Þróttar, Jason fvarsson, Guðmundur E. Pálsson, Sveinn Hreinsson, Einar Hilmars- son og Gunnar Árnason liðsstjóri. „Þeir kaf- færðu okkur í upphafi“ -sagði Björgúlfur Johannsson, þjálfari ÍS „Ég held að upphaf leiksins hafi ráðið úrslitum. Þeir kaffærðu okkur í upphafi," sagði Björgólíúr Jó- hannsson, þjálfari karlaliðs ÍS, að loknum tapleiknum gegn Þrótti í gærkvöldi. „Við vomm væntanlega búnir að pæla of mikið í kerfinu hjá þeim. Það virtist koma þannig út að menn sofn- uðu á verðinum. Menn komu ekki í hávöm, ekki undir hávöm. Menn gerðu alls ekki þá hluti sem búið var að leggja fyrir í fyrstu tveim hrinum. Þriðja hrina var hins vegar góð hjá okkur en í fjórðu hrinu áttu bæði liðin jafnmikla möguleika á sigri. Þá var jafnt á öllum tölum upp í 14. Þá kom þessi dúndrandi uppgjöf frá Leifi. Ef við hefðum unnið fjórðu hrinu hefðum við farið langt með leikinn," sagði Björgólfur. -KMU Björgólfur, þjálfari ÍS: Mínir menn sofnuðu á verðinum. Tvöfalt hjá ÍS-stúlkum Stúlkurnar í ÍS bættu fyrir tap ÍS piltanna í Hagaskóla í gærkvöldi með því að sigra í bikarkeppni kvenna. ÍS er því bæði bikar- og Is- landsmeistari í blaki kvenna. ÍS- stúlkurnar unnu einnig tvöfalt í fyrra. ÍS lenti reyndar í kröppum dansi í gærkvöldi. Breiðabliksstúlkur reyndust ekki eins auðveld bráð í úrslitaleiknum og ýmsir höfðu ætlað. Blikastúlkur tóku fyrstu hrinu, 15- 13, reyndar naumlega, ÍS þá næstu, 15-11, eftir barning en í þriðju hrinu datt botninn úr leik UBK og liðið náði aðeins tveimur stigum í ör- stuttri hrinu. Vaknaði svo aftur í fjórðu hrinu og náði að knýja fram 17-15 sigur í æsispennandi 33 mín- útna langri hrinu. Staðan 2-2. I fimmtu hrinu reyndust Kópavogs- stúlkur alveg búnar og háskólaliðið sigraði, 15-3. „Við erum búnar að spila saman lengi og höfum náð vel saman. Það er mikil samheldni og samstaða í liðinu," sagði fyrirliði ÍS, Málfríður Pálsdóttir, er DV spurði hver lykill- inn væri að velgengni liðsins. -KMU Leifur Harðarson, fyrirliði Þróttar, hampar bikarn - engin þreytumerki á sigursælasta blakliði landsins er Stúdentum var skellt, 3-1, í gærkvöldi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.