Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1986, Page 23
DV. FIMMTUDAGUR 20. MARS1986. 23 Menning Menning Menning Menning Vísnagerð Jón B jarnason - Andvökurím Skjaldborg, 1985. A íyrstu árum Dagblaðsins, sem var nokkurs konar afkomandi gamla Vísis og rann síðar til upp- hafs síns, gerðist helmingur núver- andi DV, og kannski vel það, sá ég þar um svokallaðan vísnaþátt eða spjall um vísur og vísnagerð. I einum slíkum þætti vakti ég athygli á vísum Jóns Bjarnasonar, gamals bónda á Svalbarðsströnd, sem var þá sökum aldurs að láta af búskap og farinn að gefa sig að bókagerð, eins og lengi hefur tíðk- ast með gömlu íslensku fólki. Þegar það þykist til engra gagnlegra starfa nýtt, sest það við skriftir. Nýjasta bók Jóns kom út á Akur- eyri núna íyrir jólin, heitir And- vökurím. Ég ætla að fleyga þessar hugleiðingar mínar með tilvitnun- um í hana. Gekk ég íram á gamlan mann, sem guð var enn að refsa, því að ungan henti hann heldri mann að hvefsa. Slíkra ólán enginn sér. Eftir vegferð stranga smælingjunum ætlað er enn í keng að ganga. Ég var að tala um ritmennsku gamla fólksins. Með þessum hætti hefur margs konar fróðleikur og lífsreynslusögur varðveist. Svo hef- ur verið á öllum tímum hér á landi, þegar nokkum veginn hefur verið lífvænt hér. Þetta er alkunna og eitt af glöggum merkjum um mann- dóm okkar og íslenska alþýðu- menningu. Nú er það mjög í tísku að leikir menn, óprestlærðir virtir borgarar, stigi í stólinn í kirkjum landsins. Ómar Ragnarsson er, eins og allir vita, meðal vinsælustu manna land- sins. Einhvers staðar hefúr honum boðist að tala við kirkjugesti. Um það yrkir Jón. Margt er valt, en víst er eitt, þótt vegi flesta Ómar kanni, verður aldrei þjóðin þreytt á þessum skemmtilega manni. Fölnar íslands frelsisglóð, flest er látið vaða á súðum. Skuldum vafin skemmtiþjóð skimar eftir nýjum trúðum. Flest er breytt og fært úr stað. Fornir týnast hefðar brunnar.' Bráðum verður Ómar að æðsta presti þjóðkirkjunnar. Þá mun kirkju einni að æskan flykkjast helga daga. Hvemig Pétri þóknast það, ... það er kannski önnur saga. Jón frá Garðsvík lét ekki við það sitja er hann varð að flytjast af bújörð sinni til Akureyrar og setjast í helgan stein, eins og það er kallað, að skrifa fyrir geymslur og söfn framtíðarinnar. Énginn getur láð honum það þótt hann tæki boði Bókmenntir JÓNÚRVÖR útgáfufélags á Akureyri sem bauð honum nokkuð fyrir þá snúða sem hann telgdi í ellinni. Fyrsta bók Jóns kom út 1974, kvæði og stökur, hét Þingeyskt loft. Seinna komu út jöfnum höndum rímaðar bækur og minningar í óbundnu máli. Nú em þær orðnar níu. Líklega hefur undirritaður ekki lesið þær allar. Ég hef þó fengið flestar lánaðar á bókasafni. En vegna þess að ég hef aðeins þá síð- ustu við höndina get ég ekki sett hér fæðingarár höfundarins. Hann mun vera að aldri öðruhvoru megin við áttrætt. Hann segir: Eftir runninn eljusprett áégloksinsnæði. Nú fær ellin að mér rétt öll sín hljóðu gæði. Svo mikið hef ég lesið eftir Jón að ég treysti mér til að kveða upp þann dóm að ég tel Jón hagmælskasta bókahöfund sem nú gefur út, aðrir eru þó ef til vill meiri bragsnillingar. Jón yrkir einfalt og smekklega. Minningabækur hans eru og vel ritaðar og mörgu gagnlegu þar til haga haldið, sumu hefði auðvitað mátt sleppa. Síðasta bók Jóns er kannski ekki sú seinasta. Lokavísan hér er um lífsgleðina. Sigli ég í sólarátt silfurfleytu minni. Því skal bera höfuð hátt, haldagleði sinni. r JónúrVör. Jón Bjarnason. Þýðingar- samkeppni American-Scandinavian stofnunin í New York efnir árlega til þýðingars- amkeppni og eru 1000 dollarar veittir fyrir bestu þýðinguna á ensku, á ljóði, smásögu, skáldsögu eða leiktexta eftir norrænan höfund sem fæddur er eftir 1880. Þar að auki verður verðlaunaþýð- ingin birt í tímariti stofnunarinnar, Scandinavian Review, og verðlauna- þýðandinn fær bronsmedalíu til minningar. Áður hafa Anselm Hollo, Lucia Moburg og Susanna Nied hlotið þessi verðlaun fyrir þýðingar sínar á ljóð- um Pentti Sarikoski, Birger Sjöberg og Inger Christensen og Jack Brond- um, Kathleen Osgood Dana og Kjersti Board hafa fengið þau fyrir þýðingar á verkum Tove Ditlevsen, Vainö Linna og Theodor Kallifatides Þekktir fræðimenn og þýðendur eru í dómnefnd en eindagi er 1. júní 1986. Nánari upplýsingar fást með þvi að skrifa : Translation Prize, The Amer- ScancJinavian Review tn-.USÍ ’CJfeKft Iwmi SNM1 Scandinavian Review, tímarit Amer- ican-Scandinavian Foundation. ican-Scandinavian Foundation, 127 East 73rd Street, New York, N.Y. 10021. -ai STAÐA YFIRKENNARA Staða yfirkennara við Egilsstaðaskóla er laus til um- sóknar. Umsóknarfrestur er til 11. apríl nk. Frekari upplýsingar veitir skólastjóri, Ólafur Guð- mundsson, í síma 97-1146. Egilsstöðum, 13. mars 1986. Skólanefnd Egilsstaðaskólahverfis. ÚTBOÐ Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftir- farandi: RARIK-86003: Háspennuskápar 12 kV í dreifistöðvar. Opnunardagur: Fimmtudagur 17. apríl 1986, kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis- ins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með fimmtudegi 20. mars 1986 og kosta kr. 200,- hvert eintak. Reykjavik 17. mars 1986. ÞÝSKAL AND /MOSEL BERNKASTEL-KUES - 1 —^ höfuðprýði Moseldalsins, kjörin miðstöð fyrir þá sem vilja aka um fegurstu héruð Norður-Þýskalands, Mosel- og Rínardalina, eða kynnast menningarborginni Köln af eigin raun. Örstutt til Trier, einnar helstu borgar Þýskalands, í verslunarferð og upplagt að dvelja nokkrar nætur í Luxemburg í leiðinni. Gisting í íbúðum eða herbergjum á Mosel Hotelpark í óviðjafnanlegu um- hverfi við besta aðbúnað. Ferðaskrifstofan UTSYN Feröaskrifstofan UTSÝN Fríklúbbsverð frákr. 21.900 í 2 vikur. AUSTURSTRÆTI17-SIMI26611.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.