Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Síða 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
íyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70^74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldfi
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir erii
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,6% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 13,75% nafnvöxtum og
14,2% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mán-
uö. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygg-
ing auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðryggð-
ur og bundinn til 15 mánáða. Vextir em 7,25%
og breytast ekkí á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar em bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 12,4%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tek-
ið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 12,9% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjómm sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu 'inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun cr þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar 5 sparisjóða eru
með innstæðu bundna óverðtryggða í 18 mán-
uði en á 14,5% nafnvöxtum og 15,2% árs-
ávöxtun. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnar-
firði, Kópavogi, Borgamesi og Sparisjóður
Reykjavíkur bjóða þessa reikninga.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir em 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
veróbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afTöllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkís-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2 4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2 4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
.sjóðurákveðursjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15 42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10‘X) nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í apríl 1986 er 1425 stig
en var í mars 1428 stig og í febrúar 1396 og
janúar 1364 stig. Miðað er við grunninn 100
í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BAWKA 0G SPARISJÓÐA (%)
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM
sjA sErusta 11
INNLÁN ÖVERÐTRYGGÐ
11.-20. 1986
I íl ll ú
SPARISJÚÐSBÆKUR Úbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 10.0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mán.uppsögn 12.5 12.9 12.5 9.5 11.0 10.0 10.0 12.0 10.0
12 mán.uppsögn 14.0 14.9 14.0 11.0 12.6 12.0
SPARNAÐUR - LÁNSRÉTTUR Sparað 3-5 mán. 13.0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10,0 9.0
Sp. 6mán. ogm. 13,0 13,0 9.0 11.0 10.0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Ávisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
INNIÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6mán. uppsögn 3.5 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6,25 6.5 6.25
Sterlingspund 11.5 11.5 9.5 9.0 9.5 10.5 10.5 11.5 9.5
Vestur-þýsk mörk 4.5 4.0 3,5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5
Oanskar krónur 8.0 9.5 7.0 7.0 7.0 7.5 7.0 7.0 7.0
ÚTLAN överðtryggð ALMENNIRVlXLAR (forvextir) 15,25 15.25 15.25 15,25 15,25 15,25 15,25 15.25 15.25
VIÐSKIPTAViXLAR 3) (forvextir) kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge kge
ALMENN SKULDABREF 2} 15.5 15.5 15,5 15.5 15.5 15.5 15,5 15.5 15.5
VIDSKIPTASKULDABRÉF 3) kge 20,0 kge 20,0 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7,0 9.0 9.0 9.0 9.0
ÚTLÁN VERDTRYGGÐ SKULDABRÉF Að21/2ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri cn2 1/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5,0 5.0 5.0
ÚTIÁN HLFRAMLEIÐSUJ
SJA neðanmAls 1)
1) Lári til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 9,25%, í Bandaríkjadollurum 9, 0%, í sterlingspundum 13,25%, í
vestur-þýskum mörkum 5,75%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilal-
ána er 2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum
og viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge,
hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðun-
um.
Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Ertendir lánardrottnar Amarflugs: '
Vilja allir semja
Undanfama daga hafa staðið yfir
samningaviðræður milli nýju hlut-
hafanna í Amarflugi og erlendra
lánardrottna flugfélagsins. Em það
sjö erlendir aðilar, sem em þeir
stærstu, en alls em lausaskuldir fé-
lagsins erlendis samsvarandi 120
milljónum króna. Samkvæmt upp-
lýsingum DV hafa sanmingaumleit-
anir borið þann árangur að allir sem
talað hefur verið við munnlega eða
skriflega um skuldbreytingar bjóða
einhverja samninga. Air Lingus og
hollenska flugfélagið KLM hafa
boðið skuldbreytingu að mestu leyti
til fimm ára, vaxtalaust. Hingað til
lands hafa að undanfömu komið
aðilar frá KLM, Air Lingus og Euro
Control til samningaviðræðna.
Aðrir af þessum sjö stærstu em:
CAA, sem er breski hlutinn af Euro
Control, Park Aviation, þjónustufyr-
irtæki á írlandi sem jafiiframt er
þriðji stærsti erlendi lánardrottinn-
inn, Sedgewick tryggingafyrirtækið
og Spacair sem er varahlutafyrir-
tæki.
I frétt í Morgunblaðinu í gær segir
að staða Amarflugs sé í raun mun
verri en hingað til heíur verið hald-
ið. Aðspurður um þetta sagði Agnar
Friðriksson framkvæmdastjóri fé-
Boeing 737 þota Arnarflugs.
lagsins að margt af því sem kæmi
fram í Morgunblaðsfréttinni væri
staðlausir stafir. Svo sem það að fjár-
málaráðuneytið hefði hótað því að
semja þyrfti upp á nýtt við Amar-
flugsmenn vegna ríkisábyrgðarinn-
ar. Agnar sagði einnig að eftiahags-
reikningur fyrirtækisins sýndi 500
milljóna króna skuldir, sem væri
ekkert nýtt, og að um 180 milljóna
króna neikvæða eiginfiárstöðu, sem
talað er um í Morgunblaðsfréttinni,
hefðu menn vitað í allan vetur.
Eins og áður segir fara nú fram
viðræður hér á landi við erlenda
lánardrottna og mun framvinda
þeirra viðræðna ráða því hvort nýju
hluthafarnir telja forsendur fyrir
áframhaldandi rekstri. -EH
Kaupmennirnir í Kringlunni hittast reglulega til að bera saman bækur sínar. I tyrradag var haldinn einn slíkur fundur
i Kringlunni.
Nýja Hagkaupshúsið þýtur upp:
40 kaupmenn komnir
í Kringluna
Um 40 aðilar hafa nú keypt sig inn
í Kringluna, nýja Hagkaupshúsið sem
rís með miklum hraða í nýja mið-
bænum. Húsið er tæplega fokhelt og
á að taka það í notkun 13. ágúst á
næsta ári. Stórar verslunarsamstæður
eins og Kringlan hafa risið hvarvetna
erlendis á undanfömum árum. Þróun-
in hefður orðið sú að fólk kýs heldur
að versla undir einu þaki.
Meðal þeirra aðila sem munu reka
verslanir og aðra starfsemi í húsinu
em: Nesco, Magnús Baldvinsson
skartgripasali, Tískuverslunin Liljan,
Benetton, Pfaff, Heimilistæki h£, Sæv-
ar Karl Ólason, Hljómplötuverslunin
Skífan, Fókus og Týli, Hans Petersen,
ÁTVR, Sigurður Eggertsson bygg-
ingameistari, Blómaval, Snyrtivöm-
verslunin Fegmn, Vogue, Kosta Boda,
Rammagerðin, Penninn, Verslunin
Sautján, Búnaðarbankinn, Tómas
Tómasson og Hard Rock Cafe, Myllan
og Brauð hf., sem munu reka kaffihús
sem verður um 500 fermetrar að stærð
og opið út í götuna, Þorvaldur Guð-
mundsson í Síld og fisk sem ætlar að
opna gallerí, Kamabær, Oddur Pét-
ursson í Tískuversluninni Kjallaran-
um, Sigrún Gunnarsdóttir, sem reka
mun tískuverslun, Skóbúð Steinars
Waage, Herragarðurinn og Silfur-
búðin. Til viðbótar þessu hafa nokkrir
fiárfestingaraðilar keypt húsnæði í
Kringlunni en fyrirfram er búið að
ákveða hvaða starfsemi mun fara þar
fram. Hagkaup mun sjálft reka stóra
matvömverslun í Kringlunni ásamt
deildaverslun. Sérstök hæð verður fyr-
ir ýmiss konar þjónustu, svo sem
tannlæknastofur, fasteignasölur, ljós-
myndastofur og fleira í þeim dúr.
Ragnar Atli Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri byggingarinnar, sagði í
samtali við DV að enn væm óseld 15
pláss í Kringlunni. Þar væri aðallega
um að ræða aðstöðu fyrir tískuversl-
anir, en fyrirfram er skilgreint hvers
konar rekstur verður í hverju plássi,
eins og áður segir. Fermetrinn í húsinu
er nú á tæpar 50 þúsund krónur en
verðið fylgir byggingarvísitölunni.
„Við höfum reynt að vera með
ákveðna samsetningu í húsinu sem
endurspeglar hvemig fólk eyðir pen-
ingunum sinum,“ sagði Ragnar Atli.
-EH