Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Side 9
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986.
9
lacocca
með 450
milljónir
krónaáári
Halldór Valdimarsson, Dallas:
Það gengur á ýmsu á launamark-
aðinum í Bandaríkjunum þessa
dagana. Víða hefur verið gripið til
þess að lækka laun fólks, vegna
erfiðleika í rekstri fyrirtækja og op-
inberra stofnana.
Flugfreyjur eins af stærstu flug-
félögum Bandaríkjanna verða nú
líklega að sætta sig við 20 prósent
launahækkun, til þess að halda
störfum sínum.
Starfsmenn Dallasborgar verða að
taka á sig eins prósent lækkun,
vegna átta milljón dollara halla á
rekstri borgarinnar, og svo mætti
áfram telja.
Fréttaþulur með góð laun
Launasamdráttur er þó ekki
merkjanlegur á toppinum. Nýverið
var skýrt fiá því að Lee Iacocca,
forstjóri Chrysler, hafi tekið sem
nemur um 450 milljónum íslenskra
króna í laun á síðasta ári, en hann
er launahæsti launþegi Bandaríkj-
anna í dag.
Næstur honum var Texasbúinn T.
Boone Pickens, með rétt liðlega 400
milljónir króna.
Þær æðstu eru þó ekki alltaf hæst
launaðir. Stjómarformaður CBS
sjónvarps8töðvarinnar varð að láta
sér nægja litlar 45 milljónir í laun,
meðan starfsmaður hans, Dan Rat>
her, sem er aðalfréttaþulur sjón-
varpsfyrirtækisins, fékk um 90
milljónir.
Hundrað far-
ast í hagléli
Haglél í Sichuan héraði í Mið-
Kína Varð á annað hundrað manns
að bana og eyðilagði 80.000 hús, er
haft eftir kínversku dagblaði í dag.
Blaðið sagði að ósköpin hefðu
byijað 12. maí og hefðu yfir 300.000
manns orðið fyrir barðinu á því.
Björgunarsveitir hafa verið sendar á
svæðið sem einnig varð illa úti í flóð-
um sem fylgdu í kjölfanð.
í borginni Rongchang nálægt
Chungking, sem varð einna verst úti
í óveðrinu, mældist 143,6 mm rigning
á þremur klukkustundum.
Tæplega sjö þúsund hektarar af
vel grónu landi með tilbúinni upp-
skem eyðilögðust.
Sum svæði misstu alveg samband
við vegna þess að símalínur slitnuðu
og vegir lokuðust. Einnig varð víða
rafinagnslaust. Ekki er vitað hvort
enn er sambandslaust við einhver
svæði.
Salomons-
eyjar
í rústum
Sjötiu manns fórust og á annað
hundrað þúsund manns misstu
heimili sín er hvirfilvindurinn Namu
geisaði á Salomonseyjum í þrjá daga
samfellt. Óveðrið olli miklum flóðum
og aurskriðum.
Fjölda manns er enn saknað úr
rústum þorpa á Guadalcanal slétt-
unni, sem er aðallandbúnaðarhérað
eyjanna. Embættismenn telja líklegt
að tala látinna muni hækka.
Það var aðallega gamalt fólk, kon-
ur og böm sem hurfú í aurhafið sem
flæddi yfir landið. Uppskeran hvarf
í einu vetfangi og þúsundir fúðu til
höfuðborgarinnar, Honiara.
Reynt var að koma matvælum og
hjálpargögnum til bágstaddra með
flugvélum og þvrlum.
Eyðileggingin er sú versta í sögu
Salomonseyja sem er eyjaklasi í suð-
urhluta Kyrrahafs. Nærri einn þriðji
hluti þjóðarinnar varð heimilislaus
í óveðrinu.
Það er tatið skapa vandræði fyrir ríkisstjóm Gro Harlem Brundtland að starfsmenn bæjar- og sveitarfélaga skyldu
ekki geta sætt sig við samningskjör er ríkisstarfsmenn i Noregi hafa gert sér að góðu. Brundtland sést hér fyrir miðju
ásamt öðrum kynsystrum sinum í ríkisstjóm Verkamannaflokksins, en alls gegna átta konur ráðherraembætti i ríkis-
stjórn Brundtlands.
Vilja sparka flótta-
mönnum út í hafsauga
NÓG ER PLÁSSIÐ
ssss
Þjónusta í
sérflokki
á stærsta
dekkjaverkstæði í heimi
Haukur Lárus Hauksson, Kaup-
mannahöfn:
Danskir nýnasistar héldu árlegan að-
alfund sinn fyrir skömmu og héldu um
leið upp á afmælisdag Hitlers.
Fór fundurinn fram með leynd og
var fúndarsalurinn vaktaður af hópi
ungra brúnstakka og lífvarða.
Þátttakendur voru um 50, bæði
menn og konur, en foringi hreyfingar-
innar í Danmörku talar um að fjölgað
hafi í hreyfingunni þar sé aðallega
ungt og ákveðið fólk á ferðinni.
Foringjans minnst
Formaður nasistanna, Poul Hein-
rich Riis Knudsen, lögfræðingur frá
Álaborg, minntist Adolfs Hitlers og
lagði ríka áherslu á tryggð fislaganna
við hugmyndir gamla foringjans. Kom
m.a. ffam að konur ættu að halda sig
heima, flóttamönnum ætti að sparka
út í hafsauga og að nasistar ættu að
ná yfirráðum í Danmörku.
Danir em lítt hrifhir af brambolti
þessa fólks og birta blöðin vanalega
ekki neinar fréttir af gerðum þess.
Danskir nýnasistar halda upp á afmæli Hitlers.
NORÐDEKK
heilsóluð
radialdekk
NORÐDEKK
NORÐDEKK
nákvæmlega eins og
dekk eiga að vera
íslensk framleiðsla í
hæsta gæðaflokki.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Veikföll í Noregi
Björg Eva Erlendsdóttir, Stavangri.
í annað sinn í vor hafa brotist út
verkfóll í Noregi. Að þessu sinni em
það yfir tuttugu þúsund starfsmenn
sýslu- og bæjarfélaga er lagt hafa nið-
ur vinnu.
Ríkisstarfsmenn sætta sig aftur á
mótí við sina samninga.
Það skapar vandræði fyrir ríkis-
stjóm Gro Harlem Bmndtland að
bæjarstarfsmenn skyldu ekki geta sætt
sig við samningskjör er ríkisstarfs-
menn gerðu sér að góðu.
Nú em þrjú þúsund kennarar famir
í verkfall og í mörgum skólum er
hætt við að vorpróf falli niður. En
fyrstu daga verkfallsins em það for-
eldrar smábama sem verða fyrir
barðinu á vinnustöðvuninni því barna-
og dagheimili em víða lokuð.
Skattstofur eru einnig lokaðar og
gjaldkerar hjá sumum sýslum og bæj-
um mættu ekki til vinnu í morgun.
Sporvagnar í Osló hafa flestir stöðv-
ast og engir stöðumælaverðir em
heldur í borginni.
I morgun skapaðist mikil ringulreið
í umferðinni þar.
En þetta er bara byijunin, á næstu
dögum hafa fleiri hópar boðað vinnu-
stöðvun. Trúlega verða hreinsunar-
deildir í Osló og kannski víðar um
land í verkfalli á næstu dögum, og þá
fyrst fer almenningur að fmna fyrir
verkfallinu þegar ekki er hægt að
losna við ruslið lengur.
Bilið milli samningsaðila er breitt
og lítil von talin á samningum á næs-
tunni.
VIDEO LUX
hvíldarstóllinn
Úrvals stóll
á frábæru verði
Vönduð
sófasett
Erum að fá nýja
sendingu á sama
lága verðinu
TM-HÚSGÖGN
SIÐUMULA 30 SIMI68-68-22
RATTAN-
húsgögn í sólstofuna
væntanleg um
mánaðamótin
OPIÐ ALLAR HELGAR
CUMMI
VINNU
STOfAN
SKIPHOLTI 35
s. 31055
RÉTTARHÁLSI 2
s. 84008/84009
UMBOÐSMENN UM
ALLT LAND