Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Síða 16
16
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986.
Spurninqin
Hefur þú hitt einhvern fram-
bjóðanda í eigin persónu?
Ólafur Víðir Björnsson skrifstofu-
maður:
Nei, ekki í eigin persónu. Eg get
ekki sagt að mér þyki það miður.
Ég hef þegar gert upp hug minn.
Jón Ársælsson bóndi:
Nei, ekki neinn. Sem betur fer liggur
mér við að segja.
Ásmundur Helgason nemi: r-=—
Ekki nýlega. Eg þekki hins vegar
Bryndisi Schram og Árni Sigfússon_. _
kenndi mér einu sinni.
Valgerður Hallgrímsdóttir húsmóð-
ir:
Nei, ég hef ekki mikinn áhuga á þess-
um kosningum.
Sigriður Einarsdóttir húsmóðir:
Nei, því miður. Það vildi ég gjama.
Hans Þorsteinsson borgarstarfsmað-
ur:
Nei, reyndar ekki. Ég hefði þó mik-
inn áhuga á því.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lukkulegur með Svavar
Ólafur Gunnarsson skrifar:
Mig langar að lýsa ánægju minni
með þátt Svavars Gests á rás 2,
Laugardagur til lukku. Þátturinn
einkennist af léttri og fjörlegri tón-
list, smellnum kynningum og bráð-
Svavar svarar í sömu mynt, segir Olafur Gunnarsson.
skemmtilegum viðtölum.
Svavar hefur að mínu mati verið
ranglega sakaður um dónaskap við
hlustendur. Víst heíur hann verið
grófyrtur gagnvart nokkrum þeirra.
En það er bara ósköp eðlilegt því
þeir vom með ókurteisi við hann að
fyrra bragði. Dæmi: Kona ein
hringdi í þáttinn vegna getraunar
þar sem hlustendur áttu að segja til
um hvað væri sameiginlegt með
þremur lögum. Svar konunnar var:
„Þau eru öll leiðinleg.“ Maður
nokkur hringdi til að svara sams
konar getraun og sagði: „Þú ert
ömurlegur, Svavar." Svavar svaraði
þessu fólki réttilega í sömu mynt.
Nú er ég ekki að segja að Svavar
sé yíir alla gagnrýni hafinn. Sjálf-
sagt má finna eitthvað í þáttum hans
sem betur mætti fara. Hafi einhver
komið auga á það þá eiga þeir hinir
sömu að setja fram gagnrýni sína á
smekklegan og kurteislegan hátt.
Ég vil svo að lokum láta í ljósi þá
ósk mína að við megum sem lengst
njóta útvarpsmannsins Svavars
Gests.
Jakki hvarf í Húsafelli
Magnea Jónsdóttir hringdi:
Svartur leðurjakki tapaðist fyrir framan miðstöðina í Húsafelli á hvítasunnudag. Þetta var eftir hádegið. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 92-6686. Allar upplýsingar eru vel þegnar.
Afmælisbragur
Reykjavíkurborgar
Gunnar Sverrisson, Þórsgötu 27, skrif-
ar:
1 ár, eða 18. ágúst nk„ verður haldið
upp á tvö hundruð ára afmæli Reykja-
víkurborgar. Um stórafmæli er að
ræða og mikill undirbúningur í gangi
á mörgum sviðum til að allt megi tak-
ast sem best og verða sem eftirminni-
legast þegar frá líður. Ekki er örgrannt
um að hér muni skáld og aðrir lista-
menn koma eitthvað við sögu og
leggja sitt af mörkum til gleði og
ánægju.
Ef Tómas borgarskáld hefði lifað
hefði þetta stórafinæli ugglaust vakið
upp í honum andagift í fallegu ljóði.
Það væri gaman ef annar slíkur lista-
maður fyndist í röðum skálda eða
rithöfunda sem vel væri að því kominn
að kallast borgarskáld. Það væri gam-
an ef sá maður myndi yrkja góðan
afmælisbrag sem setti svip sinn á há-
tíðahöldin. Svo ég tali nú ekki um ef
eitthvert tónskáldið gerði fallegt lag
við ljóðið. Það myndi örugglega vekja
upp svipaða stemmningu og Litla flug-
an hans Sigfúsar Halldórssonar gerði
fyrir nokkrum áratugum.
Hrein torg, fögur borg var sagt hér
fyrir nokkrum árum. Þó víða sé pottur
brotinn í þeim efhum í dag væri gam-
an að taka til hendinni nú á afmælis-
árinu. Enn athyglisverðara fyndist
mér ef böm Bakkusar gætu strengt
þess heit að vera ekki undir áhrifum
þennan dag. Á vissan hátt myndi þetta
kannski vera besta afmælisgjöfin og
um leið sigur fyrir þá sem í hlut eiga.
Þetta myndi örugglega líka stuðla að
bata.
Súper
betra
bensín
Jóhamies Kolbeinsson hringdi:
Ég tók þetta nýja súperbensín á bíl-
inn í síðustu viku. Ég get-ekki fundið
annað en að það verki mun betur en
hitt. í fljótu bragði sýnist mér bíllinn
eyða lítra minna á hundraðið, auk
þess sem krafturinn er meiri.
Ég get því ekki tekið undir þá gagn-
rýni, sem heyrst hefiir, að súperbensín-
ið sé engu betra en venjulegt bensín.
Það er ekki mín reynsla.
HRINOIÐ ISIIVEA
27022
IVHLLIKL. 13 OO 15
Spömm nafnnúmera
milljónimar
1111.2226-1 skrifar:
Undanfarið hefur mikið verið rætt
um tillögur hagstofustjóra um að
gjörbreyta nafnnúmerakerfinu,
leggja það niður og taka upp nýtt
kerfi, fæðingamúmerakerfi, sem
myndi kosta milljónir og setja per-
sónunúmerakerfið úr öllum tengsl-
um við stafrófið. Auk þess verða allir
landsmenn að læra nýtt kerfi og líka
gefa upp einkamál eins og fæðingar-
dag og ár, hveijum sem hafa vill.
Á þessum vanda er til mjög einföld
og ódýr lausn. Til þess að sjá hana
þarf ekki nema takmarkaða reikn-
ingskunnáttu og örlitla innsýn í
uppbyggingu nafhnúmera. Núver-
andi nafnnúmerakerfi byggist á 7
stafa númeri þar sem 8. stafhrinn er
kennitala. Ef mitt númer væri til
dæmis 1111.222 væri kennitalan
fundin með því að margfalda öftustu
töluna með 2, næstöftustu rneð 3, þá
næstu með 4 og þannig áfram upp í
7 en síðan fremstu töluna með 2. Þá
eru samtölumar úr margfölduninni
lagðar saman og deilt í þá tölu með
11. Útkoman yrði heila talan 3 en
eftirstöðvar 5 sem gæfu brot ef í
væri deilt með 11. Þessir 5 eru nú
dregnir frá 11 og útkoman verður
6.
Það er kennitalan og nafhnúmerið
mitt því 1111.2226.
Lausnin á vandanum er einfald-
lega sú að taka öll nafnnúmer sem
8 stafa tölur og reikna nýja kenni-
tölu fyrir þau þannig að þau yrðu í
raun 9 stafa númer. Mitt nafhnúmer
yrði því 1111.2226-1. Þannig myndi
þjóðin eignast allt að 12 ný nafh-
númer fyrir hvert eitt sem mögulega
gæti verið í notkun nú. Sniðugt,
ekki satt? Ég held að við, þjóð hag-
stofustjórans, eigum því miður ekki
til allar þessar milljónir til að henda
út um gluggann.
Ekki eru allir á einu máli um ágæti
þess gamla.
Meira
um þann
gamla
Eggert Aðalsteinsson hringdi:
Eg vil svara B.G. sem sagði ó les-
endasíðunni á þriðjudaginn að
myndaflokkurinn Sá gamli væri léleg-
ur. Þessu er ég algerlega ósammála.
Sá gamli er mjög góður þáttur og
virkilega spennandi. Flestir, sem ég
þekki, eru sama sinnis. Mér finnst því
óréttlátt þegar verið er að skamma
sjónvarpið, loksins þegar sýndur er
almennilegur þáttur.