Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Síða 18
18
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986.
Iþróttir
Sþrottsr
• Teofilo Stevenson fagnar sigri í
Reno. í hægra homi myndarinnar er
Alex Garcia sem hann sigraði í úrslita-
leiknum.
Þriðji HM-
titillinn hjá
Stevenson
Kúbanski hnefaleikarinn frægi, Te-
ofilo Stevenson, vann sinn þriðja
heimsmeistaratitil í þungavigt áhuga-
manna í Reno í Bandarikjunum um
helgina. Sigraði Bandaríkjamanninn
Alex Garcia á rothöggi í úrslitaleikn-
um. Það var i 2. lotu. Stevenson er
sigursælasti keppandi áhugamanna í
sögu hnefaleikanna. Hann hefur einn-
ig þrivegis orðið ólympíumeistari í
þungavigt og stefnir á Qórða gullið á
ólympiuleikunum í Seoul 1988. Þegar
Muhammad Ali var upp á sitt besta
hér á árum áður var mikið rætt um
keppni milli hans og Stevenson. Til
þess kom þó ekki - Stevenson, sem
sigrar í flestum leikjum sínum á rot-
höggi, hefúr alla tíð verið áhugamaður
og unnið sin gull fyrir Fidel Castro.
hsím
• Steve Hodge gefur eiginhandará-
ritun rétt fyrir brottförina til USA.
Verður Hodge
sendur heim?
- á við meiðsli að stríða
„Maður verður að vera miskunhar-
laus í svona stöðu - það þýðir ekki að
vera með neina góðmennsku. Hún var
ekki fyrir hendi þegar ég valdi 22ja
manna HM-hópinn. Spyijið bara Tre-
vor Francis og Tony Woodcock,“ sagði
enski landsliðseinvaldurinn Bobby
Robson fyn- i vikunni i Colorado
Springs í Bandaríkjunum.
Hann á við vandamál að stríða. Steve
Hodge, Aston Villa, slasaðist í lands-
leik við Suður-Kóreu á dögunum og
gat ekki farið með enska landsliðinu
til Los Angeles þegar leikið var við
Mexíkó. Varð eftir í Colorado Springs.
Ef Hodge verður ekki búinn að ná sér
af meiðslunum um helgina verður
hann sendur heim til Englands.
„Ég hef beðið Stewart Robson, Ars-
enal, að vera viðbúinn kalli að koma
til Mexíkó i stað Hodge ef hann nær
sér ekki. Ég get ekki tekið ncina
áhættu því fleiri leikmenn í HM-hóp
Englands eiga við lítils háttar meiðsli
að stríða,“ sagði Bobby Robson. Meðal
þeirra er fyrirliðinn, Bryan Robson,
sem einvaldurinn telur lykilmann í Uði
sínu. Á morgun, laugardag, leikur
England landsleik við Kanada í
Vancouver. Enska liðið kemur þangað
í dag frá Colorado. hsím
Jafntefli
Keppni í 3. deild hófst í gærkvöldi
með leik Ármanns og Reynis. Leikur-
inn fór fram á gervigrasinu við
Laugardalshöll og Iauk með jafntefli,
1-1. Reynismenn jöfhuðu úr víta-
spymu á síðustu mínútu leíksins.
-SMJ
nerbt par a aunnuuag
Undirbúningur fyrir Afríkuhlaupið
stendur nú sem hæst - búið að dreifa
tugþúsundum barmmerkja sem verða
afhent við allar kirkjur og safnaðar-
heimili í Reykjavík, Kópavogi,
Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellssveit
og einnig víðs vegar um landið. Sjálft
Afrikuhlaupið hefst kl. 15 á sunnudag
hér á Islandi eins og annars staðar í
heiminum. Reiknað er með gífurlegri
þátttöku hér á Iandi, hlauparar munu
skipta þúsundum. Einnig geta þeir
sem ekki hlaupa keypt barmmerki.
Hlaupið í Reykjavík hefst í Lækjar-
götu. Þrjár vegalengdir fyrir þátttak-
endur -10 km, sem er aðalvegalengdin
hér sem annars staðar, svo og sjö og
fjórir kílómetrar. Hlaupið verður frá
Lækjargötu út á Seltjamames og aft-
ur til baka. Það er í 10 km hlaupinu.
Samkvæmt nýjustu fréttum verða
Afríkuhlaup í 160 stórborgum í 49
löndum. í Kaupmannahöfn er reiknað
með milli 50 og 60 þúsund þátttakend-
um og til að jafna þá tölu þyrftu yfír
fjögur þúsund Reykvíkingar að
hlaupa. í Lundúnum er talið að hlaup-
arar muni nálgast eitt hundrað
þúsund. Verða hins vegar helmingi
færri í París og Amsterdam. DV hvet-
ur sem flesta íslendinga til að taka
þátt í hlaupinu eða kaupa barmmerki
og leggja með því fram sinn skerf til
hjálparstarfs í Afríku.
■ **
Tapleikur hja
HM-liði Dana
- fyrir HM-liði Paraguay
„Ég er nokkuð ánægður með leikinn
en leikmenn mínir verða að læra að
þegja. Að vísu var dómarinn furðuleg-
ur en það er engin afsökun," sagði
danski landsliðsþjálfarinn, Sepp Pion-
tek, eftir æfingaleik HM-liða Dan-
merkur og Paraguay i Bogota í
Colombíu fyrr í vikunni. Paraguay
sigraði, 2-1. Danir eru þó síður en svo
óhressir með tapið. Leikmenn höfðu
aðeins dvalið tvo sólarhringa í 2700
metra hæð í Colombíu en leikmenn
Paraguay í tíu. Þeir dönsku höfðu því
varla jafnað sig á loftslagsbreyting-
Að sögn dönsku blaðanna var Guill-
ermo Velazguez Hustado, FIFA-
dómari frá Colombíu, ótrúlega slakur.
Einkum )>ó þegar Michael Laudrup var
gróflega felldur innan vítateigs
snemma leiks en ekkert dæmt. Mikki
elti dómarann eina 30 metra, greip í
hann og reifst. Fékk aðvörun. Þá gat
Sören Lerby ekki á sér setið þegar
brotið var á Jesper Olsen en dæmd
aukaspyma á Dani. Fékk líka að sjá
gula spjaldið. Þá ræddi Frank Amesen
við dómarann á spænsku sem hann
talar reiprennandi eftir keppnisferil á
Spáni. Dómarinn sýndi honum rauða
spjaldið. Rak Arnesen af velli. Þetta
skeði á 50. mín. og eftir það voru Dan-
ir einum færri.
Roberto Cabanas hafði náð forustu fyrir
Paraguay á 43. mín. og hann skoraði aftur á
57. mín. Eina mark Dana skoraði Henrik
Andersen á 72. mín. Hann var áberandi lang-
bestur dönsku leikmannanna. Hins vegar
þóttu þeir Lerby og Jan Mölby slakir á miðj-
unni.
Danska liðið var þannig skipað: Ole Quist,
John Sivebæk, Morten Olsen, Ivan Nielsen,
Henrik Andersen, Frank Amesen, Mölby
(Per Frimann 75. mín.), Lerby (Jens Jörn
Bertelsen 61. mín), Jesper Olsen (Allan Sim-
onsen 61. mín.), Klaus Berggreen (Flemming
Christensen 61. mín.) og Laudrup (John
Eriksen 61. mín). hsím
Komdu aö dansa - tvist, nei konga. Þessi skemmtilega mynd var tekin í
leik Akraness og Fram i 1. deild uppi á Skaga á laugardag. Það er eins
og Guðbjörn Tryggvason, Akranesi, með hendur hátt á lofti, sé að bjóða
Jóni Sveinssyni, Fram, upp í dans. Friðrik Friðriksson, markvörður Fram,
horfir steinhissa á tilburði þeirra. í kvöld verða þrír leikir i 1. deild. Akra-
nes-Víðir leika á Akranesi, KR-FH í Frostaskjóli og Keflavik-Valur i Kefiavik.
Leikirnir hefjast allir kl.20. DV-mynd Gunnar Bender.
• írski landsliöshópurinn kom hingað til lands í gaerkvöldi. Hér sjást landsliðsmennirnir glaðbeittir í móttökunni á Hótel Loftleiðum. Þjálfari þeirra, Jackie
Charlton, gnæfir upp úr í miðju hópsins. Því miður hafa ýmsar stjömur helst úr hópnum, nú síðast Liam Brady, sem meiddist í leik á miðvikudagskvöldið.
DV-mynd Sveinn.