Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Page 27
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986.
39
Stjórnmáí Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmáí
;
Hverju spáir þú um úrslit
kosninganna hér í Grindavík?
Guðbjörg Thorstensen húsmóðir: Ég
hef ekkert pælt í þessu. Ég mundi
halda að Sjálfstæðisflokkurinn fengi
flest atkvæði.
Frá Grindavik.
DV-myndir PK
Grindvíkingum
fjölgar stöðugt
Fjórir listar bjóða fram í Grindavík,
þeir sömu og síðast. Sjálfstæðisflokkur
og Framsóknarflokkui- hafa þar mynd-
að meirihluta gegn einum fúlltrúa
Alþýðuflokks en Alþýðubandalag tap-
aði báðum fulltrúum sínum úr bæjar-
stjóm við síðustu kosningar.
Grindavík er ein stærsta verstöð
landsins með fjölmörgum fiskiskipum
og fiskvinnslustöðvum enda höfhin
góð og stutt á fengsæl mið. Af fisk-
vinnslufyrirtækjum má nefha Fiska-
nes, Hópsnes, Hraðfrystihús
Grindavíkur, Hraðfrystihús Þórkötlu-
staða og Þorbjöm.
Grindavík er í hópi þeirra sextán
sveitarfélaga á landinu sem telja yfír
tvö þúsund íbúa. íbúum Grindavíkur
hefur fjölgað samfellt í fjóra áratugi.
Þó fækkaði þar fólki á árinu 1984, í
fyrsta sinn síðan 1948. Árið 1985 varð
hins vegar 2,1 prósent íbúafjölgun
þar, sú mesta á Suðumesjum það árið.
-KMU
Jóhanna Alfreðsdóttir afgreiðslu-
stúlka: Ég hef ekki hugmynd um
það. Ég hef ekkert spáð í það.
Guðbjörg Ásgeirsdóttir afgreiðslu-
stúlka: Alþýðuflokkurinn vinnur
mest á og fær ábyggilega þrjá menn
inn. Sjálfstæðisflokkur tapar, fær
ábyggilega ekki nema einn inn.
Guðrún Gamalíelsdóttir verkakona:
Ætli það verði ekki ósköp svipað
áfram.
Gunnar Sigurgeirsson deildarstjóri:
Það verða tveir, tveir, tveir og einn.
Komminn fær einn og hinir allir tvo.
Þórður Waldorff trésmiður: Sjálf-
stæðisflokkur fær þrjá, Framsókn
fær tvo og Alþýðuflokkurinn, hef ég
trú á, fær tvo.
Alþýðuflokkur
Fegra
„Við alþýðuflokksmenn munum
beita okkur fyrir auknu lýðræði í
stjóm bæjarfélagsins og virku upplýs-
ingastreymi til bæjarfulltrúa," sagði
Magnús Ólafsson, efsti maður á lista
Alþýðuflokks.
„Énnfremur að gerð verði áætlun
um framtíðina og hún höfð að leiðar-
ljósi.
Atvinnumál era ofarlega í huga okk-
ar. Við leggjum áherslu á að leitað
verði allra leiða til að auka fjölbreytni
í atvinnulífi. Til dæmis leggur Al-
þýðuflokkurinn áherslu á eflingu
Iðnþróunarfélags Suðurnesja.
bæinn
Alþýðuflokkurinn mun beita sér fyr-
ir skipulögðu átaki í fegrun bæjarins.
Ennfremur að tómstundastarf fyrir
böm og unglinga verði aukið og
skipulagt í samvinnu við skólayfir-
völd, ungmennafélagið og kirkjuna.
Helstu nýframkvæmdir sem Al-
þýðuflokkurinn mun beita sér fyrir era
meðal annars varanleg gatnagerð,
leikskóli og nýbygging grannskóla svo
og endurbætur á vatnslögnum og
veralegur stuðningur við byggingu
heimilis fyrir aldraða," sagði Magnús
Ólafsson rafvirki.
-KMU
Magnús Ólafsson, efsti maður A-lista.
Alþýðubandalag:
Fullklára verkefnin
Hinrik Bergsson, annar maður G-lista.
„Það er mjög auðvelt fyrir okkur
alþýðubandalagsmenn í Grindavík að
lofa þar sem hér vantar ansi margt sem
önnur bæjarfélög hafa þrátt fyrir að
hér verði þjóðarauðurinn til,“ sagði
Hinrik Bergsson, annar maður á lista
Alþýðubandalags.
„Til dæmis höfum við ekki nema
hálfbyggt félagsheimili, hálfa sund-
laug, hálfan leikskóla, hálft íþrótta-
hús, hálfan skóla, og hálft gatnakerfi
þar sem nánast allar gangstéttir vant-
ar.
En það er ekki nóg að lofa. Við verð-
um að hafa fjármagnið og það fáum
við ekki annars staðar en frá ykkur,
góðir bæjarbúar.
Okkar aðaláhugamál era að þessi
verkefni, sem ég hef nefnt, verði full-
kláruð og þegar við ráðumst í að reisa
nýja slökkvistöð og heilsugæslustöð,
sem við vonum að verði á kjörtímabil-
inu, þá verði það gert af stórhug og
framsýni,“ sagði Hinrik Bergsson, vél-
stjóri ísstöðvarinnar.
-KMU
Framsóknarflokkur:
Langt á eftir
í umhveifismálum
„Númer eitt er að klára þau verk sem
hafin eru, svo sem grannskólann og
íþróttahúsið, íþróttasvæðið.þar í kring
en uppbygging grasvallar er hafin,“
sagði Bjami Andrésson, efsti maður á
lista Framsóknarflokksins.
„Á næsta kjörtímabili þarf að halda
áfram uppbyggingu gatna og gang-
stétta. í umhverfismálum þarf að gera
stórátak. Við erum allt of langt á eftir
öðrum í því.
Hér er einhæft atvinnulíf. Brydda
þarf upp á nýjungum og þá með bygg-
ingu iðngarða, til dæmis.
Höfnin er náttúrlega okkar stóra
mál. Þar þarf að halda áfram upp-
byggingu og koma smábátahöfii í
gagnið.
Éftir langa bið hafa Grindvíkingar
loksins fengið lækni með búsetu á
staðnum. Við þurfum að þrýsta á fjár-
veitingavaldið um fjármagn til bygg-
ingar heilsugæslustöðvar," sagði
Bjarni Andrésson byggingaverka-
maður.
-KMU
Bjami Andrésson, efsti maður B-lista.
Edvard Júliusson, efsti maður D-lista.
Sjáífstæðisflokkur:
Sjálfstæðismenn fái meirihluta
„Málefnum Grindvíkinga verður
best borgið-með meirihluta sjálfstæð-
ismanna í næstu bæjarstjóm," sagði
Edvard Júlíusson, efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokks.
„Bæjarstjórn þarf að hafa frum-
kvæði að því að laða til bæjarins hvers
kyns atvinnustarfsemi sem aukið get-
ur fjölbreytni atvinnulífsins. Standa
þarf dyggan vörð um sjávarútveg, þá
atvinnugrein sem bærinn hefur byggst
á.
Halda þarf áfram uppbyggingu hafn-
arinnar og ljúka framkvæmdum við
smábátahöfn.
Ljúka þarf varanlegri gatnagerð á
næsta kjörtímabili og gera stórátak í
gérð gangstétta og fegran bæjarins.
Áfram þarf að byggja upp grunn-
skólann þannig að hægt verði að
framfylgja grannskólalögum.
Vinna verður að varanlegri lausn á
félagsaðstöðu fyrir unglinga. Leggja
verður áherslu á uppbyggingu íþrótta-
mannvirkja. Næstu verkefhi verða
grasvöllur og ný sundlaug.
Byggja verður nýja heilsugæslustöð.
Stórauka verður stuðning við bygg-
ingu heimilis aldraðra í Grindavík.
Tryggja verður varanlega aðstöðu fyr-
ir slökkvilið eins fljótt og kostur er.
Dagheimili er þegar komið á fjárlög
þessa árs,“ sagði Edvard Júlíusson
skipstjóri. -KMU
A-listi Alþýðuflokks
1. Magnús Ólafsson
2. Jón Gröndal
3. Petrína Baldursdóttir
4. Ásgeir Magnússon
5. Jóhann Sverrir Jóhannsson
6. Kolbrún Tobíasdóttir
7. Örn Traustason
8. Kári Ölversson
9. Jón Thoerberg Jensson
10. Hörður Helgason
11. Hjalti Magnússon
12. Jón Hólmgeirsson
13. Svavar Árnason
14. Einar Kr. Einarsson
B-listi Framsóknarflokks
1. Bjarni Andrésson
2. Halldór Ingvason
3. Valdís Kristinsdóttir
4. Hrefna Björnsdóttir
5. Helgi Bogason
6. Dagbjartur Willardsson
7. Gunnlaugur Hreinsson
8. Salbjörg Jónsdóttir
9. Guðmundur Karl Tómasson
10. Helga Jóhannsdóttir
11. Anna María Sigurðardóttir
12. Agnar Guðmundsson
13. Gylfi Halldórsson
14. Gunnar Vilbergsson
D-listi Sjálfstæðisflokks
1. Edvard Júlíusson 1
2. Guðmundur Kristjánsson
3. Ágústa H. Gísladóttir
4. Stefán Þ. Tómasson
5. Jóhannes Karlsson
6. Kristinn Benediktsson
7. Ólafur Guðbjartsson
8. Guðmundur R. Ragnarsson
9. Guðbjörg Eyjólfsdóttir
10. Gísli Þorláksson
11. Sigrún Sigurðardóttir
12. Erling Einarsson
13. Dagbjartur Einarsson
14. Ólína G. Ragnarsdóttir
G-listi Alþýðubandalags
1. Kjartan Kristófersson
2. Hinrik Bergsson
3. Sigurður Enoksson
4. Ásdís Hildur Finnbogadóttir
5. Steinþór Þorvaldsson
6. Unnur Haraldsdóttir
7. Sigurjón Sigurðsson
8. Ólafur Andrésson
9. Jón Ásgeirsson
10. Hjálmar Haraldsson
11. Signý Sigurlaug Tryggvadóttir
12. Helgi Ó. Ólafsson
13. Valgerður Á. Kjartansdóttir
14. Gunnar Steinþórsson
Urslit '82
Alþýðuflokkur (A) 192 atkv. 1 fulltr.
Framsóknarflokkur (B) 302 atkv.
3 fulltr.
Sjálfstæðisflokkur (D) 364 atkv.
3 fulltr.
Alþýðubandalag (G) 92 atkv.
engan fulltr.
í bæjarstjórn Grindavikur voru kjöm-
ir:
Jón Hólmgeirsson (A), Kristinn
Gamalíelsson (B), Bjami Andrésson
(B), Gunnar Vilbergsson (B), Ólína
Andrésdóttir (D), Guðmundur Kristj-
ánsson (D), Edvard Júlíusson (D).