Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Síða 28
40
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986.
Utvarp_____________Sjónvarp
Edda Bjorgvinsdottir leikkona:
Hótelþættirnir alveg
ótrúlega leiðinlegir
Ég hlustaði dálítið á beinu línuna
í útvarpinu í gær og hafði gaman
af og fylltist stolti eftir að hafa hlust-
að á Kvennalistakonumar þær
Ingibjörgu Sólrúnu og Maríu sitja
íyrir svörum enda stóðu þær sig
langbest.
Síðan hlustaði ég á Gestaganginn
hennar Ragnheiðar Davíðsdóttur
með öðru eyranu, þeir þættir finnst
mér mjög skemmtilegir og margir
þeirra eru mér minnisstæðir, t.d.
þátturinn þar sem hún spjallaði við
Steinunni Sigurðardóttur. Hann var
stórgóður.
Svo er það gimsteinninn á rás 2,
hann Svavar Gests, hann beinlínis
ber af öllum dagskrárgerðarmönn-
um á rásinni eins og gull af eiri,
þættimir hans era vandaðir og
skipulagðir, ekkert fum og fát í þeim
eins og er svo oft hjá þessum nýliðum
sem halda að þeir séu með meðfædda
snilligáfu í stjóm útvarpsþátta og
K
hafa ekki einu sinni íyrir því að
undirbúa sig. Ég nefni engin nöfn...
en því miður er alltof mikið um þetta
á rás 2, sumir þættimir em alveg til
skammar.
Rás 1 finnst mér hreint ekki svo
slæm, finnst oft margt áhugavert í
dagskránni þar sem ég hlusta á.
Útvarpsfréttir reyni ég alltaf að
heyra, sérstaklega upp á síðkastið
eftir að Hafskipsmálið kom upp að
nýju.
Og þá er það sjónvarpið, ég veit
nú ekki hvort ég á mér neina sér-
staka uppáhaldsþætti, nema þá
kannski einn. Það liggja undarlegar
orsakir að baki því að ég horfi alltaf
á þá þætti, ég held að einhvers kon-
ar sjálfspíningarhvöt reki mig í það
gláp. Þættir þessi heita Hótel og em
alveg ótrúlega lélegir og leiðinlegir.
Maður beinlínis trúir því varla að
framleiðendumir séu ekki að grín-
ast. Og alltaf skal ég ergja mig jafh
mikið yfir þeim.
-BTH
75 ára er í dag, 23. maí, Arinbjörn
S. Eiríksson Kúld frá Ökrum á Mýr-
um, Hjallavegi 25 hér í bæ. Hann
hefur rekið efnalaug en var áður sjó-
maður. Kona hans var Aðalbjörg
Guðnadóttir. Hún lést árið 1979.
Varð þeim 3 barna auðið. Hann ætl-
ar að taka á móti gestum á heimili
sínu í kvöld.
70 ára er í dag, 23. maí, Kjartan Ragn-
ars fyrrverandi sendiráðunautur,
Bólstaðarhlíð 15 hér í bæ. Hann er
fjarverandi.
Andlát
Böðvar Bjarnason byggingarmeist-
ari, Sandholti 34, Ólafsvík, verður
jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju
laugardaginn 24. maí kl. 14.
Ólafur Helgason bifreiðarstjóri,
Heiðnabergi 8, lést 21. maí.
Árni Jóhannes Bæringsson, Bjarkar-
götu 6, Patreksfirði, lést á heimili
sínu miðvikudaginn 21. maí.
Lárus Arnason málarameistari lést
16. maí sl. Hann fæddist á Akranesi
22. október 1910, sonur hjónanna
Margrétar Finnsdóttur og Árna
Ámasonar. Lárus lærði ungur mál-
araiðn og varð það síðan hans
ævistarf. Láms var tvígiftur. Fyrri
kona hans var Helena Halldórsdótt-
ir. Þeima fósturdóttir er Emilía
Petrea Ámadóttir. Lárus og Helena
slitu samvistum. Síðari kona Lárusar
er Þómnn Bjarnadóttir. Þau eignuð-
ust einn son. Útför Lárusar verður
gerð frá Akraneskirkju í dag kl. 14.
15.
Ymislegt
Sundmót Ármanns
verður haldið í Sundlauginni í Laug-
ardal, Reykjavík, sunnudaginn 22.
júní 1986 og hefst kl. 15.00.
Keppnisgreinar verða:
1. grein 200 m baksund kvenna
2. grein 200 m baksund kurla
3. grein 100 m bringusund kvenna
4. grein 100 m flugsund karla
5. grein 100 m skriðsund kvenna
6. grein 100 m skriðsund karla (bik-
arsund)
7. grein 200 m fjórsund kvenna
8. grein 200 m fjórsund karla
9. grein 100 m fiugsund kvenna
10. grein 100 m bringusund karla
11. grein 4X100 m skriðsund kvenna
12. grein 4X100 m fjórsund karla
Stigabikar SSÍ er fyrir besta afrek
mótsins.
Þátttökutilkynningum ber að skila
á þar til gerðum kortum til Brynjólfs
Björnssonar, Eyjabakka 11, Reykja-
vík, eða í Laugardalslaugina fyrir
kl. 13.00 laugardaginn 10. júní nk.
Skráningargjald er kr. 100,- fyrir
hverja skráningu einstaklings og kr.
200,- fyrir boðsundssveit.
Skráningargjöld skulu fylgja þátt-
tökutilkynningum ásamt nafnalista
yfir keppendur.
Sumarferðir Neskirkju til
Skotlands og um Sprengisand
norður í land
Ákveðið hefur verið að utanlands-
ferðin í ár verði til Skotlands 31.
maí. Flogið verður til Glasgow og
ekið þaðan til Edinborgar þar sem
dvalið verður í nokkra daga. Þá ligg-
ur leiðin til Aberdeen en þaðan er
ætlunin að fara í skoðunarferðir upp
í skosku Hálöndin sem eru marg-
rómuð fyrir einstæða náttúrufegurð.
Síðustu dagana er dvalið í Glasgow.
Ferðin kostar 34.200 kr. Þeir sem
áhuga hafa á að skella sér með verða
að skrá sig í síðasta lagi mánudaginn
26. á milli kl. 5 og 6 i síma 11144.
Ferðaáætlunin í innanlandsferðina
um miðjan júlímánuð er í stórum
dráttum þessi: 1. dagur: Ekið sem
leið liggur austur fyrir fjall að Sig-
öldu og Þórisvatni. Hádegisverður
snæddur í Nýjadal. Af Sprengisandi
er komið í Bárðardal. Gisting á
Edduhótelinu á Stóru-Tjömum. 2.
dagur: Haldið gegnum Vaglaskóg
yfir Vaðlaheiði til Akureyrar, þar
sem merkir staðir verða skoðaðir.
Áfram er svo haldið yfir Öxnadals-
heiði til Skagafjarðar. Gisting og
kvöldverður á Hótel Mælifelli á
Sauðárkróki. 3 og 4. dagur: Farið
fyrir Skaga til Skagastrandar og
Blönduóss. Gisting á Edduhótelinu á
Húnavöllum f tvær nætur. Á meðan
dvalist er í Húnavatnssýslu verður
víða komið við: ekið um Svínadal,
Vatnsdal, um Vesturhóp út Vatnsnes
til Hvammstanga, farið út á Hegg-
staðanes og að Reykjum í Hrútafirði.
5. dagur: Ekið um Blöndudal suður
Kjöl. Hádegisverður á Hveravöllum.
Komið að Gullfossi og Geysi og
Lyngdalsheiðin farin til Þingvalla í
leiðinni til baka til Reykjavíkur.
Ferðin kostar 12.800 kr. og er allt
innifalið: akstur, gisting á hótelum,
matur og kaffi. Skráning hjá kirkju-
verði í síma 16783 á milli kl. 5 og 6
alla virka daga.
Frank M. Halldórsson
sóknarprestur.
Þroskaþjálfar brautskráðir
Föstudaginn 16. maí sl. vom 26
þroskaþjálfar brautskráðir frá
Þroskaþjálfaskóla Islands. Athöfnin
fór fram í húsakynnum skólans að
Skipholti 31. Fjölmenni var við at-
höfnina og heiðraði forseti Islands,
Vigdís Finnbogadóttir, hátíðina með
nærveru sinni. Ávarp fluttu heil-
brigðisráðherra, Ragnhildur Helga-
dóttir, og formaður skólastjórnar,
Ingimar Sigurðsson. Bel Canto kór-
inn söng undir stjórn Gffðfinnu Dóru
Ólafsdóttur.
Námstími við skólann er 3 ár og
skiptist ár hvert í bóklega og verk-
lega önn. 1 vetur stunduðu 64
nemendur nám við skólann. 3 fasta-
kennarar eru við skólann. Stunda-
kennarar og gestafyrirlesarar voru
alls 32. Útskriftarnemendur fara ár
hvert í námsferð til útlanda. I vor
verður farið til Boston í Bandaríkj-
unum. Tilgangur námsferðar er að
kynnast málefnum þroskaheftra eftir
því sem við verður komið hverju
sinni. Nemendur fjármagna sjálfir
ferð sína með ýmiss konar samvinnu.
Skólastjóri Þroskaþjálfaskóla Is-
lands er Bryndís Víglundsdóttir.
Námskeiö um þök
og þakvandamál
Dagana 26. til 29. maí fer fram nám-
skeið um þök og þakvandamál hjá
Rannsóknastofnun byggingariðnað-
arins að Keldnaholti.
Námskeiðið er liður í Qölbreyttu
framboði námskeiða fyrir bygginga-
menn sem Fræðslumiðstöð iðnaðar-
ins stendur að í samvinnu við ýmsa
aðila, einkum Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins.
í stórum dráttum er dagskrá nám-
skeiðsins þessi: Fyrsta daginn er
fjallað um mismunandi þakgerðir og
fræðilega rétta byggingu og frágang
þaka.
Annan daginn er fjallað um loft-
ræstingu þaka, áhrif þakhalla á
efnisval ásamt viðhaldi og væntan-
legri endingu klæðningarefna. Þ>ann
dag verður einnig kynning á helstu
efnum til þakklæðninga.
Þriðja daginn verður farið yfir
kostnað við mismunandi þakgerðir,
aðferð til endurmálunar málmþaka,
skoðuð glerþök og loks fjallað um
nauðsynlegan styrk og fjölda fest-
inga í þakklæðningu.
Fjórða og síðasta daginn verða
skoðaðar útfærslur ýmissa þaka, þær
ræddar og gagnrýndar. Þá verður
einnig farin skoðunarferð.
Á námskeiðinu eru um 10 fyrirles-
arar en auk þess er áhersla lögð á
innbyrðis skoðanaskipti þátttak-
enda.
Skólagarðar Reykjavíkur
hefja starfsemi sína um næstu mán-
aðamót. Skólagarðar eru reknir á
fimm stöðum í Reykjavík, í Skerja-
firði, við Ásenda, í Laugardal,
Stekkjarbakka í Breiðholti og Ár-
túnsholti í Árbæ. Innritun hefst
fimmtudaginn 29. maí kl. 8 og er
gjaldið kr. 250. Öllum börnum á aldr-
inum 9-12 ára er heimil þátttaka. í
Skólagörðum Reykjavíkur fá börn
leiðsögn við ræktun á grænmeti og
plöntum, auk þess að fara í leiki og
stuttar gönguferðir í nágrenni við
garðana til náttúruskoðunar og
fræðslu um borgina.
Ralláhugamenn fá eitthvað við sitt
hæfi í kvöld og á morgun en þá fer
fram svonefnt Bílanaust-rall. Keppnin
hefst klukkan 19.00 í kvöld við Bíla-
naust í Síðumúla 7-9 og verða rall-
kappamir á férðinni til klukkan 23.35.
Þeir byrja síðan af fullum krafti aftur
á laugardagsmorguninn klukkan átta
í Síðumúlanum. Þá verða bílamir
ræstir miðað við árangur íyrri keppn-
isdagsins.
Alls er 21 bíll skráður til keppni og
meðal þeirra allir helstu rallkappar
landsins. I kvöld verður ekið um Kap-
helluhraun, Ísólísskálaveg og Sta-
pann. Á morgun liggur leiðin fyrst
austur á Lyngdalsheiði, en þar verða
nokkrar sérleiðir eknar fram og til
baka, en síðan færist keppnin aftur
Tapað-Fundið
Silfurarmband tapaðist
Tapast hefur silfurarmband, merkt
Geirfinnur, sennilega frá Hátúni lOa
og að biðstöðinni við Grensás.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma
17048 eftir kl. 15 á daginn. Fundar-
laun.
Fjölskylduhátíð
Kvennalistans
Kvennalistinn mun gangast fyrir
íjölskylduhátíð í Sóknarsalnum, Skip-
holti 50a, sunnudaginn 25. maí kl.
14.00.
Á boðstólum verða skemmtiatriði
fyrir alla fjölskylduna, leikþættir,
söngur, upplestur og dans. Fyrir smá-
fólkið verður ýmislegt til gamans gert
og verður leik-, tón- og myndasmiðja
í gangi á staðnum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
fúlltrúi og Sigrún Ágústsdóttir
kennari munu flytja ávörp.
Á staðnum verða seldar veitingar
og blóm.
-BTH
Týndi bakpoka
I gærmorgun varð stúlka fyrir því
óhappi að týna bakpoka sínum. Hún
missti pokann, sem er ljósblár, á leið
sinni frá Breiðholti niður í Þverholt.
I pokanum er fatnaður og ýmsir mun-
ir. Sá sem fann pokann er beðinn að
hafa samband við ritstjóm DV, Þver-
holti 11, sími 27022.
suður á ísólfsskálaveg og Hvassa-
hraun. Mjög gott er fyrir áhorfendur
að fylgjast með keppninni á þessum
stöðum og hefur Bifreiðaíþróttaklúb-
bur Reykjavíkur útbúið sérstaka
leiðalýsingu fyrir áhorfendur í keppn-
inni og liggur hún frammi á bensín-
stöðvum og eins hjá keppnisstjóminni,
sem verður til húsa í Bílanausti í Síð-
umúla 7-9 á meðan kepninni stendur.
Aðstandendur keppninnar hvetja
væntanlega áhorfendur til að sýna
aðgát og vera snemma á ferðinni
þannig að bílar áhorfenda trufli ekki
framkvæmd keppninnar. Kepninni
lýkur klukkan 18.00 annað kvöld við
Bílanaust en verðlaunaafhending fer
síðan fram á rallballi í veitingahúsinu
Hrafninum klukkan 21.30.
BÍLEIGENDUR
B0DDÍHLUTIR!
Framleiðum trefjaplastbrettí á eftirtaldar bifreiðar:
Volvo, Subaru, Mazda pickup, Daihatsu Charmant, Lada,
Polonez, AMC Eagle, Concord, Datsun 140, 180B.
Brettakantar: Lada Sport, Landcruiser yngri, Blazer.
BÍLPLAST .
Vagnhöfða 19, simi 688233. I Tökumaðokkurtrefjaplastvmnu.
Póstsendum. I Veljið íslenskt.
Opið á laugardögum til kl. 14.
GRUNDARFJÖRÐUR
Vantar blaðbera. Upplýsingar hjá umboðs-
manni, Elínu Jónsdóttur, Grundargötu 41,
sími 93-8625.
Akureyri
BÍLSTJÓRA VANTAR
til að keyra út DV á Akureyri. Upplýsingar hjá umboðs-
manni á Akureyri, sími 25013, milli kl. 13 og 19.
Bflanaust-rall
í kvöld og á morgun