Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Qupperneq 32
44
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986.
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
er að leita sér að góðri íbúð í
París. Hún segist þurfa að skipta
um umhverfi og því fær lúxus-
íbúðin á Manhattan að fjúka.
Ástæðan er einkum sú að Liza
hefur ákveðið að snúa baki við
Ijúfa lífinu sem var heldur betur
hætt að vera með Ijúfu yfirbragði.
Vinirnir á Manhattan minna hana
á allt gamla ruglið og því vill Liza
stokka spilin upp á nýtt og setur
kúrsinn ákveðið á Parísarborg
sem dvalarstað í framtíðinni.
Silvia
Svíadrottning
er þekkt fyrir hlýlega framkomu á
opinberum vettvangi. Hún á það
til að faðma hressilega að sér þá
sem vekja með henni viðkvæmar
tilfinningar og eitt slíkt atvik átti
sér stað eftir frumsýningu í Stokk-
hólmi. Á fjölunum var Gertrude
Stein, Gertrude Stein með Marg-
arethu Krook i aðalhlutverki sem
átti þarna stjörnuleik að dómi
áhorfenda. Að sýningu lokinni
kom Margaretha til drottningar til
þess að heilsa upp á hana og
konunginn og fékk að launum
hressilegt klapp og kreisting frá
drottningunni. Ekki var annað að
sjá en báðar létu sér vel líka.
Charlene Tilton
hefur fest sér hlutverkið í nýrri
kvikmynd um ævi gömlu
Hollívúddstjörnunnar Lönu Turn-
er. Flöskuhálsinn var að Charlene
var heldur í þrýstnara lagi til þess
að geta gengið sem Lana og því
hefur hún varla sett matarbita inn
fyrir sínar varir vikum saman.
Hörmungarnar báru árangur, kíló-
in fuku út í veður og vind og
fundur með þeim Lönu og Char-
lene fór fram fyrir nokkrum
dögum. Lana sætti sig prýðilega
við nýfengnar líkamslínur Dallas-
buddunnar og eru nú hendur
látnar standa fram úr ermum við
kvrkmyndagerðina. Það er betra
að hafa hraðan á áður en sú lyst-
argóða fer að fitna aftur.
Liza Minnelli
Nítján ára og óþekktur en kominn í kynni við
leikstjórann Sal Mineo.
Svona litur eitt helsta kyntákn Bandaríkjanna út í dag. Skeggbrodd-
arnir eru af hárnákvæmlega réttu lengdinni miðað við ströngustu
tískukröfur.
Fortíð Don Johnson
Don Johnson er óumdeilanlega ein skærasta
stjarnan í Hollívúdd um þessar mundir. Hann
er kyntákn númer eitt, tvö og þrjú en hefur ekki
alltaf lifað slíka blómatíma.
Fyrsta kvikmyndahlutverkið fékk hann nítján
ára gamall hjá óþekktum kvikmyndaleikstjóra,
Sal Mineo að nafni. Viðfangsefnið var kynlíf
innan fangelsismúra þar sem einungis karlmenn
dvöldust um lengri og skemmri tíma. Þar kom
Don fram meira og minna nakinn, nokkuð sem
vill vefjast fyrir honum eftir að frægðarsólin fór
að skína.
Leikarinn hefur átt við ofneyslu vímuefha að
stríða en hefur tekið á því máli af krafti. Verst
þótti honum að komast yfir löngun í alkóhól en
aðrar nautnir voru auðveldari viðureignar. Don
er nýskilinn við eiginkonuna, Patti d’Arbanville,
en þau eiga einn son saman. Aðdáendur kappans
eru flestir kvenkyns og af frægum nöfnum eru
fyrstar Brooke Shields og dóttir Reagans forseta.
Sú síðarnefnda ofsækir Don með símhringingum
og bréfaskriftum og að lokum sá hann sig til-
neyddan að biðja Nancy um að tala um fyrir
dótturinni. Hann eyðir óskaplegum tíma í bréfa-
skriftir til aðdáenda sinna því að hann segist
ekki geta hugsað sér að valda þeim vonbrigðum.
Án þeirra væri hann ekki í þeim sporum sem
hann er dag og því sjálfsagður hlutur að sýna
þeim virðingu og þakklætisvott.
Fyrsta myndin hét Fortune and Men’s Eyes og
fjallaði um hómósexúalisma innan fangelsis-
múra.
Turtildúfur
tvser
Turtildúfurnar sem tista hérna undir
regnhlíf á afmæli Elísabetar Englands- í
drottningar eru Andrew Bretaprins og
unnustan, Sarah Ferguson. Það er
greinilegt að hún kann að standa sætt
og pent með regnhlífina á hárréttum
stað, hendurnar tolla ungmeyjarlega á
miðjum maga. Að baki er Edward bróðir
Andrews og vantar líklega einhvern sér
til halds og trausts við slíkar aðstæður.