Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1986, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1986, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986. Er bara Reykvíkingur og ekkert annað - rætt við Gunnar Bjarnason, fyrrum skólastjóra Vélskólans Hann er fæddur í hjarta borgarinn- ar, kominn í tuttugasta og níunda ættlið frá Ingólfi Arnarsyni og bjó sín bernsku- og uppvaxtarár á þeim stað í bænum þar sem talið er að bær Ingólfs hafi staðið. Sé hægt að tala um að menn séu miklir Reykvíkingar þá er Gunnar Bjarnason, verkfræð- ingur og fyrrum skólastjóri Vélskól- ans, sennilega eins mikill Reykvík- ingur og nokkur getur orðið. Hann er nærri jafngamall öldinni en ákaflega em, var nýkominn heim frá því að þvælasteinsamall um Norðurlönd þegar helgarblaðið hitti hann að máli. Hress og skemmtilegur karl, Gunnar Bjarnason, og tók því ljúfmannlega að ræða við okkur og deila með okkur minningabrotum frá lífinu í Reykjavík hér í den tid. Afkomandi Ingólfs Fyrst var Gunnar spurður um ætt og uppruna, eins og vera ber. „Ég er fæddur þann 12. febrúar 1901, uppi á lofti í Aðalstræti 2 sem nú heitir Geysishúsið. Niðri verslaði Fischer, sem var danskur kaup- maður, en pabbi minn, Nicolai Bjarnason, var faktor hjá honum. Pabbi var fæddur í Vestmannaeyjum en kom þaðan 1882 og fékk þá vinnu hjá þessum Fischer. Fyrst var hann faktor hjá Fischer í Keflavík en alda- mótaárið flutti hann til Reykjavíkur og gerðist faktor í Aðalstræti 2. Móðir mín hét Anna Emelía, fædd Thorsteinsson. Hún var dóttir Þor- steins Thorsteinssonar á ísafírði. Þetta var mjög þekkt fjölskylda, Thorsteinssonfólkið. Th. Thorsteins- son var einn þeirra, þekktur maður hérna í bænum í gamla daga, kaup- maður mikill og bjó í Liverpool, sem þá hét, niðri á Vesturgötu. Það var einmitt einn Thorsteins- sonanna, bróðursonur móður minnar, sem lét rekja ættir okkar og fann út að við værum tuttugasti og níundi ættliður frá Ingólfi Arnar- syni. Ég á þá ættfræði alla.“ Amma danska „Móðurafi minn hafði haldið utan, til Danmerkur, í verslunamám en að loknu námi giftist hann danskri konu. Þegar ég fæddist þá var amma gamla danska hjá foreldrum mínum. Hún talaði bara dönsku og ég lærði dönsku af henni um leið og ég lærði íslensku. Hún var indæl manneskja og mér þótti ákaflega vænt um hana. Við vomm fjögur, systkinin, ég yngstur og sá eini sem er fæddur í Reykjavík. Þorsteinn hét elsti bróðir minn. Hann var bókari og kenndi bókfærslu við Verslunarskólann í mörg, mörg ár, var, held ég, aldrei kallaður annað en bókarinn þar. Næst var Stella, hún hét nú reyndar Jóhanna en var aldrei kölluð annað en Stella. Hún giftist Steindóri Gunnarssyni sem var prentsmiðju- stjóri í Félagsprentsmiðjunni og stofnaði Steindórsprent. Hjálmar Bjamason, bróðir minn, var einu ári eldri en ég, fæddur árið nítján hundr- uð. Hann var bankamaður, lengst af í Útvegsbankanum." Fetað í fótspor Ingólfs í Aðalstræti 2 bjó fjölskylda Gunn- ars tvö fyrstu æviár hans. Þegar Fischer dó 1902 fluttu þau til bráða- birgða þangað sem nú er Hverfisgata 4. Þetta var næsta hús fyrir austan Smiðjustíginn en það var ekki búið að byggja neitt við Hverfisgötu á þessum tíma. Þarna dvaldi fjölskyld- an í góðu yfirlæti í eitt ár en þá flutti hún í Uppsali. Uppsalir var kallað stórt og mikið hús við Túngöt- una, beint á móti Hjálpræðishemum, og var rifið fyrir nokkrum ámm. Þá var það að Bjarni keypti Suðurgötu 5 haustið 1905. Einmitt á þessum stað, á horninu á Suðurgötu og Von- arstræti, er mál manna að Ingólfur hafi reist sitt bú. Er vel við hæfi að það skuli hafa verið afkomendur hans sem þar uxu úr grasi tæpum ellefu hundruð árum síðar. Suðurgata 5 stendur ekki lengur en þar sem áður var garður fjölskyld- unnar stendur ennþá ákaflega fall- egur hlynur sem faðir Gunnars gróðursetti snemma á öldinni. Klunkutíð „Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla. Og ég er tiú svo þægilega innréttaður að ég man eig- inlega ekki nema það sem mér hefur þótt skemmtilegt og haft gaman af,“ sagði Gunnar þegar hann hóf að rifja upp þá gömlu, góðu daga. „Til dæm- is þá finnst mér að það hafi alltaf verið sólskin og blíða í Reykjavík fyrir fyrra stríð. Einstaka sinnum man ég eftir að það hafi verið rigning, en það er þá vegna þess að ég var búinn að fá ný stígvél eða regnkápu - aldrei að það væri óþægilegt. Ég man að þetta tímabil í kringum aldamótin var stundum kallað klunkutíð sem er náttúrlega komið úr dönsku eins og fleiri algeng orð á þessum tíma. Með orðinu klunkutíð var vísað til þess að þá var allt í blúndum og flaueli, svona eins og maður sér oft á gömlum myndum frá því á 19. öldinni.“ - Hvernig var umhorfs í miðbænum þegar þú varst að alast upp? „Það var ekki nein, svo heitið gæti, byggð nema í Kvosinni. Það var ekki búið að byggja í Þingholtunum þegar ég var að alast upp. Skólavarðan stóð þarna eins og klettur í hafinu, ein og sér. Það var bara miðbærinn. Engin var höfnin og fjaran náði al- veg upp að Vesturgötunni og Hafnarstrætinu. Uppskipunarskipin voru sett á Qöru þar og þar var oft þurrkaður fiskur. Það var þurrkaður fiskur eig- inlega um allan miðbæinn. í raun og veru var saltfiskframleiðslan eins konar heimilisiðnaður hjá okkur Is- lendingum. Karlamir, sjómennimir, fiskuðu, gerðu að og söltuðu. Síðan voru það konan og krakkamir sem þurrkuðu þetta, lögðu það svo inn hjá Geir Zoega, eða einhverjum öðr- um sem var með verslun, og tóku út í vörum.“ Olfulampar og ánægtfólk „Ég held að yfirleitt hafi fólk verið ósköp ánægt héma í miðbænum. í dag má náttúrlega segja að það hafi verið fátækt en hvað er fátækt ræðst auðvitað af kröfum hvers tíma fyrir sig. Fólk bjó yfirleitt í smákofum en það gerði litlar kröfur, þekkti ekkert annað og þá sættir maður sig sig við hlutina og tilfellið var að yfirleitt var fólk ánægt. Ljósfærin voru náttúrlega bara ol- íulampar, þeir voru við lýði alveg fram undir 1917-1918. Það voru af- skaplega skemmtileg og hugguleg ljós, olíulampamir. Ég er nú einn af þeim sem em fædd- ir með silfurskeið í munninum, myndi einhvef segja. Ég var alla tíð það sem kalla má sólarmegin í tilver- unni. Föðurafi minn og hans faðir voru verslunarstjórar hjá Bryde í V'estmannaeyjum og faðir minn fékk að ganga menntaveginn, hann fór til Danmerkur á verslunarskóla, og við bjuggum við betri aðstæður en marg- ur. Við bjuggum þama á Suðurgöt- unni lengst af og við höfðum ansi rúmt um okkur. Auðvitað þurfti að spara alla hluti, það var ekki bmðl- inu fyrir að fara á þessum tíma. En auðvitað voru lifnaðarhættimir öðruvísi hjá þeim sem töldust svona aðeins yfir. Við höfðum til að mynda alltaf tvær vinnukonur. Maður varð þessa þó ekki svo mjög var í sam- skiptum við annað fólk. Einn besti vinur minn, Karl Guð- jónsson, var til dæmis af frekar fátæku fólki, sonur ekkju. Þau bjuggu í Bmnnhúsum, sem voru fyr- ir ofan brunastöðina í Suðurgötunni, og það bjuggu nokkuð margir þar. Við vorum alltaf saman, ég og Kalli í Brunnhúsum, húsgangar hvor heima hjá öðrum, og minnist ég þess ekki að það hafi nokkum tíð og tíma þótt nokkuð athugavert við það.“ Lomberspilarar „Pabbi minn var í eins konar klúbb eða klíku, með nokkrum góðum mönnum. Það var til dæmis Geir gamli Zoega í Sjóbúð, Guðmundur Olsen, sem var kaupmaður og þekkt- ur maður í bænum, þá Magnús Einarsson dýralæknir, einnig Sig- hvatur Bjömsson, kunnur seinna sem bankastjóri í Útvegsbankanum, og loks Th. Thorsteinsson, frændi mömmu. Þessir spiluðu Lomber sam- an og héldu oft veislur, eða það sem kallað var gilliboð, hver fyrir annan. Þá borðuðu þeir fínan mat og drukku koníakstöddý og spiluðu Lomber. Ég man svo vel eftir þessum gilli- boðum. Geir gamli var nú orðinn ansi gamall þegar ég man fyrst eftir honum, kominn yfir áttrætt, og ég man eftir því að stundum þegar hann var að tala við einhvern í þessum boðum þá átti hann það til að sofna í miðju samtali. Svo vaknaði hann kannski upp tíu mínútum seinna og sagði: Já, hvað varst þú aftur að segja? Hann var ansi skemmtilegur og eftirminnilegur kall, hann Geir. Þetta var heilmikill viðburður allt- af, þessi boð. Náttúrlega fengum við krakkarnir ekki að vera með og ekki kvenfólkið heldur. Boðin voru bara fyrir karlana, það var mikið karla- veldi ríkjandi í þá daga.“ Lýðurinn skrásettur „Já, þetta eru breyttir tímar. Þegar ég var krakki var slökkviliðsmálum þannig háttað að allir karlmenn bæjarins voru skráðir í brunaliðið. Það fór fram allsherjar skráning öðru hvoru, líkt og í Betlehem forð- um daga. Svo var gengið með lúður um bæinn þegar bruni var og safnað liði. Það fannst mér alltaf voða óhuggulegt hljóð. Mér er mjög minnisstætt eitt skipti þegar verið var að skrá. Það hefur verið svona í kringum 1910. Þá hafði múgur og margmenni safnast saman við dómkirkjuna og það stóð til að halda æfingu. Voru einhverjir nafngreindir menn úr hópnum kallaðir til að stjórna sprautunum sem voru geymdar í skúr við Gúttó. Þessu fylgdu svo hand- knúnar dælur. Þegar búið var að skrásetja lýðinn var haldið niður að Tjörn þar sem „Ég er nú svo þægilega innréttaður að ég man eiginlega ekkert annað en það sem mér hefur þótt skemmti- legt og haft gaman af.“ æfingin átti að fara fram. Flestar' sprauturnar virkuðu ágætlega en ég man eftir því að sprauta númer fjög- ur, sem pabbi var umsjónarmaður með, bara funkeraði ekki. Það kom ekki dropi úr henni. Og það sámaði mér voða mikið.“ Bruninn1915 - Manst þú eftir brunanum 1915? „Já, já, mikil skelfing, ég man vel eftir því. Herbergið mitt sneri frá miðbænum og mamma kom um nótt- ina og vakti mig og sagði að það væri stórbruni í bænum. Eg var fljót- ur á fætur þá, maður. Það var allt rautt á litinn inni í herberginu af bjarmanum af logunum. Ég kom nið- ur í bæ rétt áður en Hótel Reykjavík hrundi. Þetta var ansans ári drama- tískt allt saman. Ég held að það hafi allir fótafærir Reykvíkingar verið þarna. Ég lenti í að bjarga vömm úr versl- un þarna og var í því alla nóttina. Ég var fjórtán ára þá. Maður var allur útataður eftir að bera sekkja- vöru og allan skrattann, svo bættist sótið af reyknum við þannig að mað- ur var orðinn allófrýnilegur þegar leið á nóttina. Guðjón úrsmiður, Ingólfshvoll brann að nokkru leyti, en Guðjón úrsmiður dó þama, kafnaði í reyk. Þá var kominn dagur. Það hafði komið hingað til lands slökkvidæla en ekki verið hægt að kaupa hana vegna peningaleysis og hún lá á ein- hverri afgreiðslu. Einhvern veginn æxlaðist það svo þannig að þessi dæla var tekin þarna til handargagns og reynd. Og þá komst almennilegur kraftur á þetta og það tókst að slökkva í Ingólfshvoli með þessari dælu og það varð til þess að þessi dæla var keypt. Ingólfshvoll stóð á horni Pósthússtrætis og Hafnar- strætis þar sem bankinn er núna. „Þaö var ekki nein byggð, svo heitið gæti, nema i Kvosinni, þegar ég var að alast upp.“ Maðurinn, sem átti húsið, var kall- aður Guðjón úrsmiður, hann - var faðir Gunnars Guðjónssonar skipa- miðlara. Guðjón úrsmiður dó í þessum bmna, kafnaði í reyk. Ég fór heim um tíuleytið og drakk morgunkaffi. Svo fór ég aftur niður eftir að skoða og þá var þetta allt í rúst. Það var alveg synd að Hótel Reykjavík skyldi fara, svona ljóm- andi fallegt og puntulegt hús.“ Tuttugu og fimm aura salibunan Þau eru mörg minningabrotin sem leita á hugann þegar honum er leyft að reika. Gunnar man eftir því þegar fyrstu blöðin voru að koma út og hann man líka eftir því þegar fyrsti bíllinn birtist á götum borgarinnar. „Vísir var fyrsta blaðið sem kom út. Það var Einar Gunnarsson sem gaf hann út. Ég seldi Vísi nokkrum sinnum, var nú ekkert sérstaklega

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.