Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1986, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1986, Síða 40
FRÉTTASKOTIÐ 62 25 25 Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Hafir þú ábendingu eða vitneskju umfrétt- hringdu þá í síma 62-25-25 Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 3.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Reykjavik er að færast í hátíðarbuning enda afmælisveisla á næsta leiti. Davið borgarstjóri hefur í nógu að snúast og hér veifar hann tveimur löxum þó í steinlíki séu. Þessi stytta skreytir einmitt eina af verslununum á horni Lækjargötu, en þar verður annar endi afmælistertunnar sem á eftir að teygja sig frá Lækjartorgi og allt niður að Tjörn, alls 200 metra. Yfirlæknir á Vogi varar alkóhólista við að bragða á tertunni því i henni eru 30 litrar af áfengi og ef hún væri seld i sneiðatali út úr bakaríi myndi hún kosta eina milljón og tvö hundruð þúsund krónur. -EIR DV-mynd KAE. __ Tjamarskóli: Endar náðu ekki saman „Endar náðu ekki saman hjá okk- ur á síðasta ári en þetta voru samt sem áður ekki stór skakkaföll fyrir okkur sem stöndum að skólanum," sagði Margrét Theódórsdóttir, önn- ur af tveimur skólastjórum skólans. Margrét sagði að skólagjöldin myndu verða um 4.200 á mánuði eða 37.800 á ári en það er um þriðjungs hækkun frá því í fyrra. Að auki fær Tjamarskóli greiddan styrk frá rík- inu sem nemur launum 3,2 kennara en það eru kennarastöður miðað við höfðatölu og einnig leggur Reykja- víkurborg til húsnæði, skólanum að kostnaðarlausu. „1 fyrra voru hér 75 nemendur og þeir verða einnig 75 í ár vegna hús- næðisskorts. Við urðum að vísa mörgum frá og reyndum þá að fara eftir búsetu, dreifðum nemendum um borgarhverfin og létum Reykvíkinga sitja í fyrrirrúmi,“ sagði Margrét. Hún sagði að svipuð samsetning virtist vera á nemendahópnum þar eins og í öðrum skólum. „Við höfúm hug á að stækka við okkur en það er sem stendur óleyst gáta hvemig að því verður staðið eða hvenær það gæti orðið. Aðalá- hersla okkar í sambandi við skólann er þó að hlúa að einstaklingnum. Það gerum við með því að hafa sam- felldan skóladag fyrri hluta dagsins en þann seinni er boðið upp á aðstoð við heimanám til klukkan 16,“ sagði Margrét. Hún sagði að nýjungar þær í kennslugreinum sem skólinn hefði boðið upp á hefðu mælst vel fyrir og yrði haldið áfram með þær. í Tjamarskóla er tölvufræði skyl- dufag í 9. bekk en val í liinum bekkjunum, svo er einnig um fram- sagnarkennslu og atvinnulífs- fræðslu. -JFJ Amarflug og írar semja um skuldina Samningar hafa tekist um greiðslu 26 milljón króna skuidar Amarflugs við frsku áhafnaleiguna Parc Ltd. Fyrir nokkrum vikum bað írska fyr- irtækið íslenskan lögfræðing um að krefjast þess við skiptaráðendur að Amarflug yrði tekið til gjaldþrota- skipta ef skuldin yrði ekki greidd. Aldrei kom til þess að krafan yrði lögð fram. Agnar Friðriksson, framkvæmda- stjóri Arnarflugs, sagði í samtali við DV í gær að beiðnin hefði eflaust ve- rið send lögfræðingi vegna misskiln- ings. Samningaviðræður hefðu verið í gangi milli fyrirtækjanna þegar þessi harka hljóp í leikinn, að því er virtist að ástæðulausu, og samkomulag tekist skömmu síðar sem allir gátu sætt sig við. Endanlega hefði verið gengið frá greiðslu skuldarinnar í ferð tveggja stjómarmanna Amarflugs til írlands í vikunni og væri því málið úr sögunni. -EA Flugsvertín yfir borginni W’ Franska flugsveitin Patroill de France áætlar lendingu á Reykjavik- irflugvelli klukkan 19 í kvöld. Fyrir endinguna munu herþotumar fljúga oétt saman lágt yfir borginni og teikna nislitar rákir á himininn ef aðstæður leyfa. -KMU Ávallt feti framar SÍMI 68-50-60. Asrö ÞR0STIIR SIÐUMULA10 LOKI Maður verður þá iátinn blása í afmælisblöðru löggunnar eftir kökuátið! Veðrið á moigun Hæg norðaustan- átt verður á landinu Á morgun, sunnudag, verður hæg norðaustanátt á landinu. Skýjað verður norðaustanlands og súldar- vottur við austurströndina. Á Suður- og Vesturlandi verður bjartviðri. Fremur svalt verður á annesjum norðaustan- og austanlands en hlýtt um sunnanvert landið. Hitastig verður á bilinu 8-17 stig. Veðrið á mánudag „Afmælis- bomin“ verða í sólskini Á afinælisdaginn lítur út fyrir hæga breytilega eða norðaustlæga átt á landinu. „Afinælisbömin" verða í sólskini nema líklega verður skýjað á Eskifirði. Við norðaustur- ströndina verður svalt en hlýtt á Suðvesturlandi. Hitastig verður á bilinu 8-17 stig. Kaupfelag Svalbardseyrar: Rannsókn lokið Ján G. Haukssan, DV, Akmeyii; „Rannsókn á bókhaldi Kaupfélags Svalbarðseyrar er lokið. Ég vil ekki tjá mig um niðurstöðumar. Við höfum sent það til skattstjórans í Norður- landi eystra," sagði Oddur Gunnars- son deildarstjóri í rannsóknardeild ríkisskattstjóra. „Málið er ekki á okkar vegum enn- þá,“ sagði Jónatan Sveinsson hjá ríkissaksóknara, „og verður ekki nema að skiptaráðandi sendi það til ókkar komi til gjaldþrots og þá að hann telji ástæðu til að láta rannsaká ákveðna þætti, með tilliti til saka- dómsmeðferðar". Loðnu landað á Eskifirði Eskifjörður er kominn í flokk loðnu- 'bæja á þessari vertíð. Loðnuskipið Guðrún Þorkelsdóttir SU var væntan- legt með 700 tonn til Eskifjarðar í nótt eftir meira en 40 klukkustunda siglingu frá miðunum við Jan Mayen. Raufarhöfn fær skammt fyrir há- degi. Þangað er Svanur RE væntan- legur með 700 tonn. I gær lönduðu Súlan EA 750 tonnum og Fífill GK 300 tonnum. Fjórar haihir em núna famar að taka á móti loðnu; Raufarhöfri, Krossanes, Siglufjörður og Eskifjörð- ur. Alls hafa fjórtán skip af um finuntíu hafið veiðamar. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.