Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1986. 5 Stjómmál Ummæli fólks í könnuninni: „Veit ekki hvað við tekur“ Kona á Reykjavikursvæðinu kvaðst fylgjandi ríkisstjóminni, því að hún vissi ekki, hvað ella tæki við. Karl á Reykjavíkusvæðinu sagðist andvígur stjóminni, því að hún væri frjáls- hyggjustjóm, sem drægi taum hægri aflanna. Kona á Reykjavíkursvæðinu kvaðst halda, að ríkisstjómin væri ekkert góð. Kona á Reykjavíkursvæð- inu kvaðst halda, að við gætum ekki fengið betri stjóm. Karl á Reykjavík- ursvæðinu taldi sama, hver ríkis- stjómin væri. Þetta væri allt sama tuggan. Karl á Reykjavíkursvæðinu kvað stjómina hafa staðið sig vel. Annar taldi of mikð launamisrétti undir þessari ríkisstjóm. Karl sagði, að þetta væri besti kosturinn, þótt ekki væri allt gott. Karl sagði, að stjómin léti aðra segja sér fyrir verk- um. Verkalýðsfélögin stómuðu henni. Karl á Reykjavíkursvæðinu sagðist ekki treysta öðrum betur. Kona á Austurlandi sagðist ekki hress með stjómina. Karl á Austurlandi kvaðst ekki hafa fylgt neinni stjóm. Karl úti á landi sagðist fylgjandi ríkisstjóm- inni, þótt ýmislegt mætti betur fara. Annar sagði, að erfitt væri að gera öllum til hæfis en ríkisstjómin gerði það, sem hún gæti. Karl úti á landi kvað ríkisstjómina hafa gert margt gott. Kona úti á landi sagðist engar skoðanir hafa á stjómmálum. Karl á Reykjavíkursvæðinu sagðist ekki styðja ríkisstjómina. Launin væm þannig, að konan væri flúin til Sví- þjóðar og hann væri að missa íbúðina sína. Karl í sveit kvaðst ekki vera á móti stjóminni. Hann teldi sig fylgj- andi henni, þótt ekki væri allt gott. Kona í sveit sagði, að allt væri í vit- leysu. Skipta þyrfti um stjóm. -HH Súluritið sýnir hlutföll milli stuðningsmanna og andstæðinga ríkisstjórnarinnar i öllum skoðanakönnunum DV á kjörtímabilinu. MW-211 L LV/ MW/SW/FM stereó/ FM mono, 10 w, tón- jafnari, hraðupptaka, innbyggðir míkrófónar fyrir upptöku, lausir hátalarar o.m.fl. Topptóngæöi á frábæru verðí Kr. 7815. M 9711 LW/MW/SW/FM stereó, FM mono, tón- jafnari, lausir hátalarar, o.m.fl. Kr. 5.665. M 9704 LW/MW/SM/ FM stereó,/ FM mono, innbyggðir míkrófónar fyrir upp- töku, tæki með öllum helstu eiginleikum topptækis. fSANYO Bestu tækin á besta verðinu. Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200 Varmi Bílasprautun K&4 alla vikuna Draumarúm og svefnsófar + norsku sængurnar og koddarnir Bjóðum 10% útborgun í öllum húsgögnum, sjónvörpum, vídeótækj- um og einnig í heimilistækjum. Vörumarkaðurinnhf. Eiöistorgi 11 -sími 622200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.