Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1986. 13 pv___________________________________________________________________Neytendur Súrir, saltaðir eða sætir: Tómatar til vetrarins f vikunni fór verðið á tómötum niður úr öllu valdi, heildsöluverðið alla leið í 50 kr. kg. Tómatar eru ekki sérlega vel fallnir til frystingar, en ef þið hafið tækifæri að kaupa ódýra tómata skulið þið gera það fyrir alla muni. Frystir tómatar henta vel í alls kyns pottrétti þótt ekki séu þeir hæfir í salat þegar þeir þiðna. Hægt er að geyma tómatana í súr- sætum legi til síðari nota. Saltir tómatar 1 kg litlir tómatar 60 g gróft salt 2-3 stk. dillkvistir Skolið tómatana og stingið í þá með gaffli. Látið þá í glerkrukku með dillkvistunum. Leysið saltið upp í vatninu, látið löginn kólna alveg áður en honum er hellt yfir tómat- ana. Látið pressu á þannig að fljóti örugglega yfir tómatana. Geymið á köldum stað í 2-3 mánuði. Þessir söltuðu tómatar þykja mjög góðir með kjötréttum. Margir kunna betur við þá heldur en súrsæta tóm- ata. Tómatkraftur Ef þið eigið kost á ódýrum tómöt- um getur e.t.v. borgað sig að búa til eigin tómatkraft. Hann er í öllu falli ekki síðri en sá keypti. 2 kg vel þroskaðir tómatar 1-2 stk. laukar Það getur verið skemmtilegt að geyma óvanalegar flöskur og krukkur til þess að nota undir sultur og saftir. 2 msk. salt 3 tsk. sykur Skolið tómatana og skerið þá i litla bita og látið í pott. Flysjið laukinn og hakkið og setjið út í pottinn. Látið sjóða við vægan hita undir loki í ca hálftima. Hrærið í af og til og gætið þess að ekki brenni við. Látið síðan allt í gegnum sigti og aftur í pottinn og látið suðuna koma upp. Látið sjóða þangað til þetta er orðið hæfilega þykkt, hrærið í af og til. Látið rotvamarefni út í. Tómat- krafturinn er síðan látinn á glös eða hálsvíðar flöskur. Tómatahlaup Vegna fjölda áskorana birtum við á ný uppskrift úr tilraunaeldhúsi DV að tómatahlaupi sem þykir sér- lega gómsætt. 500 g tómatar 4 dl sykur 2 msk. sítrónusafi 1 pk. Royal hindberjahlaup Dýfið tómötunum ofan í sjóðandi vatn og flysjið af þeim ystu húðina. skerið þá síðan niður, gott að gera það í kvöm ef hún er til. Látið svo tómata, sykur og sítrónusafa í pott og sjóðið við vægan hita í 20 mín. Þá er potturinn tekinn af plötunni og hlaupduftinu hrært samnan við. Hlaupið er sett á hrein glös og bund- ið yfir. Þetta er gott eins og hvert aimað hlaup með ristuðu brauði eða kexi. -A.BJ. FATALAGERIIMN FLYTUR í SMIÐJUVEGI (SAMA HÚS). 0PNUM LAUGARDAG KL. 10.00. (STÆRRI OG GLÆSILEGRI VERSLUN MEÐ SAMA LAGA VERÐINU) Þykk skyrta, 20% ull, nr. 39-44, kr. 690,- Vatteraöar úlpur, S-M-L-XL, kr. 1.490,- Peysa, akrýl, S-M-L, kr. 1.390,- Gallabuxur, þykkar, nr. 30-46, kr. 1.290,- Stúlknapeysur, kr. 590,- Gallabuxur, kr. 990,- Jogginggallar, kr. 890,- Drengjapeysur, kr. 690,- Drengjaskyrtur, kr. 690,- Herrabolir, nr. S-M-L, kr. 1.290,- Dömubolur, kr. 990,- Gallabuxur, þröngar, nr. 28-36, kr. 1.390,- Dömuflauelsbuxur, kr. 1.490,- Barnaúlpa, nr. 1-5, 1.090,- Barnabuxur, nr 1-5, kr. kr. Herrajakkaföt, nr. 38-42, kr. 5.980,- Dömudress, bómull, margir litir, kr. 2.150,- Röndóttar buxur, kr. 690,- Blússa með nælu, kr. 890,- Barnasamfestingar, nr. 1-5, kr. 1.290,- Barnastígvél, nr. 23-40, kr. 390,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.