Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1986. 15 „Fólk lítur Kópavogshæli homauga meðan eina umræðan um staðinn er neikvæð..." Við, starfsmenn á vinnustofum Kópavogshælis, sem höfum flest unnið hér á hælinu við hinar ýmsu deildir árum og jafnvel áratugum saman, erum orðin langþreytt á nei- kvæðum skrifum um þessa stofhun. í mörg ár hefur öðru hvoru skotið upp kollinum einhver sem hefur ta- hð það sína heilögu köllun að láta alþjóð vita hversu mikil mann- vonska tíðkist á „hælinu“. Við, sem þama störfum, viljum halda því fram að við séum ekki vont fólk sem reyn- um að lítilsvirða vistfólkið. Þvert á móti göngum við með reist höfuð og finnst við gera okkar besta í þessu skemmtilega starfi. Við höfum oft talað um að svara þessum neikvæðu skrifum í eitt skipti fyrir öll. Starfiö á hælirtu Á Kópavogshæli dvelja um 160 manns. Þar eru 11 almennar deildir með 12-14 vistmönnum, 4 íbúðir, sem undirbúningsdeildir fyrir sambýlis- vist, með 5-7 einstakl. og eitt einbýlishús í nágrenni hælisins er notað sem sambýli. Á lóðinni er stórt nýtt hús sem er notað sem vinnustofúr. Þar vinnum við frá kl. 8.30-16.30 virka daga. Um 90 vistmenn koma hingað á vinnu- stofúmar daglega og vinna hin ýmsu störf sem hér bjóðast. Þetta eru mörg og misjöfii verkefrii, til dæmis pökkum við sorppokum fyrir Plast- prent, blöðum sem Fijálst framtak gefur út og límum áskriftarmiða á hvert blað. Þetta hvort tveggja er mikil og góð vinna og mjög margir geta unnið þetta sér til ánægju og tekjuauka. Ef þú, lesandi góður, ferð í byggingarvöruverslun þá er víst að þar er eitt og annað sem okkar vinnufúsu hendur hafa handleikið, t.d. múrtappar (við röðum töppunum í brettin og full brettin eru sett í kassa) og skrúfur (við teljum skrúfúr í poka). Við búum til öskjur og lím- um vöruheiti á þær, við röðum saman björgum og hringum fyrir hurðalamir. Nú, þegar þú ferð á hótel og veitingahús eða einstakar matvöruverslanir og færð gefins eld- spýtustokka þá sérð þú auglýsingu viðkomandi fyrirtækis á stokkunum, þetta höfum við gert á Kópavogs- hæh. Við pökkum og heftum saman alla happdrættismiða fyrir SÁÁ og einnig blöð þeirra og gíróseðla til félagsmanna. Við pökkum blöðum fyrir Vegagerð ríkisins, happdrætti samtaka áhugafólks um byggingu tónlistarhúss, upplýsingaritum fyrir farþega Flugleiða, púsluspilum og flugspilum fyrir sama fyrirtæki og saumum servíettur og dúka fyrir hótelið. Við pökkum grisjum og bó- mullarhnoðrum fyrir dauðhreinsun- ardeild LSP. Hluta úr degi sínum ver fólkið í hina ýmsu handavinnu, vefriað, hnýtingar, sauma, prjóna, rússneskt hekl, gimb, mottuvefnað o.fl., o.fl. Afrakstur þessa er síðan sýndir á vinnustofunum einu sinni á ári, nánar tiltekið 13. des., sem er afinælisdagur hæhsins og hússins okkar. Þá standa vinnustofumar opnar öllum almenningi sem hefur áhuga á að fræðast um okkar starf, kaupa nytsama hluti og styrkja okk- ur fjárhagslega um leið. í ár ber þennan dag upp á laugardag svo ekki verður vinna vistmanna í gangi þann dag en ég veit að þeir verða þama flestir af lífi og sál þvi vinnu- staðurinn er þeim flestum aðallífið. Við starfefólkið höfum fengið góð- fúslegt leyfi framkvæmdastjórans til að vinna þennan dag og munum við með mikilli ánægju taka á móti ykk- ur og fræða ykkur um okkar starf- semi, því sjálfeagt gleymi ég að telja upp allt, auk þess er sjón sögu rík- ari. Enn er eftir að segja fiá einum mikilvægum þætti í starfeemi vinnu- stofanna. Það er deild sem við nefnun hæfingu. Þar fer fram þjálfun vistmanna svo þeir verði færir um að vinna á vinnusal. Við höfum til þessarar þjálfunar ýmis hjálpargögn sem við höfúm ýmist keypt, leigt, fengið gefins eða útbúið sjálf. Það er fróðlegt fyrir fólk sem aldrei hefur séð þessa vinnu að kynna sér hvílíkt feikilegt starf og hugmyndaflug þarf til að ná sem bestum áranngri með hvem og einn. Allt þetta er gert og allt þetta fólk endist í þessu starfi KjaUarinn Hulda Harðardóttir deildarþroskaþjálfi vegna ánægjunnar. Það er áreiðan- lega skemmtilegasta starf sem hægt er að hugsa sér. Það em skemmtileg- ar uppákomur daglega, vistfólkið hefur húmorinn í lagi og vinnugleði þess smitar út frá sér til okkar. í hæfingunni er unnið að þjálfun gróf- og fínhreyfinga, samspili augna og handa, að hlusta, að skoða, að tala, ýmist mælt mál, táknmál með tali, bliss-tákn eða önnur málkerfi. Við förum í bílferðir, á veitmgahús og kaupum okkur léttar veitingar og í sjoppur (við þurfum líka að læra að eyða vasapeningum eins og aðrir). Við förum á listasöfn, sýningar, í skemmtigarða og oftast er okkur vel tekið. Við ræktum kartöflur og grænmeti sem við seljum á markaði hér. Á sumrin tökum við einn frídag frá vinnunni og grillum úti og förum í leiki. í sumarfríum sínum fer vist- fólk í útilegur, í sumarhús, sumarbú- staði, bátsferðir og hinar ýmsu ferðir. SÁÁ bauð öllum starfemönn- um (vistmönnum) í ferð til Þingvalla og í Tívolí í sumar. Frjálst framtak sendi okkur marga kassa af konfekti og páskaliljur um páskana. SÁÁ gaf tertur á jólaballið okkar og svona mætti lengi telja upp allt það sem gert er. Margt ófullkomið Við vitum öll að margt er ófull- komið á þessari stærstu stofnun landsins fyrir þroskaheft fólk. Við vitum líka að þetta eilífa væl um þá miklu skömm, sem viðgengst í hinum og þessum efnum á hælinu, er engum til góðs, allra síst vistfólkinu. Það fylgist vel með og finnst ekkert gam- an að heyra í öllum fjölmiðlum hve allt sé slæmt á þess heimili, frekar en þér eða mér þætti slíkt ánægju- legt ef okkar heimili ætti í hlut. Fólk lítur Kópavogshæli hornauga meðan eina umræðan um staðinn er neikvæð, þar af leiðandi er heimil- isfólkið litið homauga og allt þar dæmt vanhæft og spuming hvort þá sé ekki hikað við að veita fé í slíka ósvinnu. Að lokum. Á Kópavogs- hæli býr gott fólk, örfáir em í slíku geðrænu ástandi að þeim er ekki treystandi einum utan dyra né inn- an. Engum gestum, hvort sem um er að ræða „háttvirta" eða aðra, er gerður sá grikkur að vera einir í návist slíks fólks. Á Kópavogshæli starfar gott fólk og enginn maður endist þar í vinnu nema honum líki vel og fari að þykja vænt um vistmennina (það er reynd- ar atriði sem fólk ræður ekki við og flestir falla afar fljótt fyrir persónu- töfrum vistmanna). Við vonum innilega að þú, lesandi góður, sért fróðari eftir lesturinn og munir eftir því jákvæða næst þegar einhver þarf að hneykslast á því sem hann hefúr ekkert vit á í sambandi við hælið okkar. Vertu velkominn á sölusýninguna okkar 13. des. nk. Hún verður auglýst er nær dregur. Hulda Harðardóttir deildarþroskaþj álfi. „Við sem þama störfum viljum halda því fram að við séum ekki vont fólk sem reyn- um að lítilsvirða vistfólkið. Þvert á móti...“ Með opinn hug í lokað prófkjör í prófkjöri Sjálfetæðisflokksins vegna alþingisWninga í Reykjavík hafa aðeins flokksbundnir menn at- kvæðisrétt. Þess vegna er það kallað lokað prófkjör. Aðrir þurfa að ganga í Sjálfetæðisflokkinn til að greiða atkvæði. Ég er í framboði í þessu prófkjöri. Ég sækist eftir atkvæðum sjálfetæð- ismanna til að vinna mínum hugðar- efnum fylgi á Alþingi íslendinga. Til þess að flokksfélagar mínir geti veg- ið betur galla mína og kosti mun ég freista þess að koma skoðunum mfn- um á framfæri eftir föngum næstu vikumar. Að vísu hef ég viðrað þær flestar í um eitt hundrað blaðagreinum síð- ustu tíu árin. Því vinnst mér aðeins tími til að stikla á stóm fram að prófkjörsdegi þann 18. október næst- komandi. \ Að hafa skoðun í stjómmálum vega skoðanir þungt. Þær em hálf baráttan. Hinn helmingurinn er maðurinn á bak við þær. Skoðanir skipta stjómmála- mönnum líka í tvo hópa: Þá sem hafa sínar eigin skoðanir og þá sem em jafnan sammála síðasta ræðu- manni. Stjómmálamenn með sínar eigin skoðanir em oft kallaðir umdeildir stjómmálamenn. Stjómmálamenn með engar sérstakar skoðanir em hins vegar oft kallaðir farsælir stjómmálamenn. Umd 'ildfr stjóm- málamenn fá oft fa n ,;væði í prófkjörum heldur en farsælir stjómmálamenn. Með því að bjóða mig fram í próf- KjaUarinn Asgeir Hannes Eiríksson verslunarmaöur kjöri sjálfetæðismanna stefrii ég að því að verða stjómmálamaður. Og hér vil ég staldra við áður en lengra er haldið. I upphafi baráttu minnar tek ég fram bæði hátt og snjallt: Þurfi ég að velja á milli þess að hafa mínar eigin skoðanir og að hafa engar sérstakar skoðanir þá kýs ég frekar að verða umdeildur maður með fa atkvæði heldur en farsæll með mörg. Hér verður ekki slegið af skoðun- um fyrir atkvæði. Meö opinn hug Á milli frambjóðenda og kjósenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins dugir ekkert minna en einlægni. Því legg ég upp í þennan prófkjörsslag með opinn hug í von um að gera gagn þó síðar verði. Vera sjálfum mér „Lykillinn aö sölum Alþingis er i höndum kjósenda í pröfkjöri Sjálfstæðisflokks- ins.“ samkvæmur. Menn verða að hafa stuttan stans • 'Vngi og nýta vel kraftana á u ■*. i 'fr era ennoá ferskir. Forði. • ð b»/a þingsetu að ævistarfi. „Skoðanir skipta stjómmálamönnum líka í tvo hópa: Þá sem hafa sínar eigin skoðan- ir og þá sem eru jafhan sammála síðasta ræðumanni.“ Lykillinn að sölum Alþingis er í höndum kjósenda í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins. Þeim er því bæði vandi á höndum og ábyrgð á herð- um. En ég spyr í einlægni og óska eftir svari í hreinskilni: Er ekki breytinga þörf? Oft þarf að dirfast að þora og þora að dirfast. Nú er rétti tíminn fyrir sjálfetæðisfólk að ljúka upp Alþing- ishúsinu fyrir nýju fólki sem kveður dyra. Á morgun er það um seinan. Ásgeir Hannes Eiríksson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.