Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1986.
Utlönd________________________________x>
Barist um refsiaðgerðir
við Bandaríkjaforseta
Reagan hótar að beita nettunaivaldi til að koma í veg fýrir refsiaðgerðir þingsins gegn Suður-Afriku
Umræða um efnahagslegar refsiaðgerðir gegn minnihlutasfjórn hvífra í Suður-Afríku setur nú mjög svip á skoðanaskipti almennings og stjórnvalda
í Bandarikjunum. Reagan Bandarikjaforseti hótar aö beita neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að samþykkt Bandaríkjaþings um ítarlegar refsiað-
gerðir gegn stjórnvöldum Suður-Afriku nái fram að ganga.
Ólafiir Amaraan, DV, New Yorlc
Talsmaður Hvíta hússins sagði í
vikunni að Reagan forseti hygðist
beita neitunarvaldi gegn samþykkt
Bandaríkjaþings um harðar efna-
hagsrefsiaðgerðir gegn Suður-Afríku
og að embættismenn stjómarinnar
væm nú að reyna að afla stuðnings
við ákvörðun forsetans í þinginu.
Forseti í vanda
Richard G. Lugar öldungadeildar-
þingmaður, sem er formaður utan-
ríkisnefodar þingsins, sagði hins
vegar að stjómin ætti langt í land
með að afla stuðnings við þessa
ákvörðun forseta og að það væri
nokkuð ömggt að ákvörðuninni yrði
hmndið í þinginu.
„Atkvæðin em fynr hendi til þess
að fella ákvörðun forsetans og koma
lögunum í gegn,“ sagði Lugar sem
er repúblíkani frá Indíana.
Forsetinn hefur frest fram til dags-
ins í dag til að skrifa undir eða beita
neitunarvaldi við þessa samþykkt
sem felur í sér harðar refsiaðgerðir
gegn Suður-Afríku. Bæði fulltrúa-
deildin og öldungadeildin sam-
þykktu þessar aðgerðir með miklum
meirihluta.
Þegar Larry Speakes, talsmaður
Hvita hússins, var spurður um það
nú í vjkunni hvort forsetinn ætlaði
að hafna samþykkt þingsins svaraði
hann: „Já, hann ætlar að gera það.“
Embættismenn hafa nú undan-
fama daga unnið að því að setja
saman tillögur er miða allar að frek-
arí aðgerðum gegn Suður-Afríku, að
þvi er einn þingmaður repúblíkana
sagði.
Blakkur Bandaríkjamaður til
Pretoríu
Þeir vonast til að geta sannfært
þingmenn um að styðja forsetann i
þessu máli. f tillögunuití felst meðal
annars að skipaður verði svartur
sendiherra í Pretoríu og veitt verði
aðstoð til ríkja sem eiga landamæri
að Suður-Afríku. Einnig verða tekn-
ar upp sumar af þeim refsiaðgerðum
sem Bandaríkjaþing hefur þegar
samþykkt.
Lugar hefur varað forsetann á
mjög opinskáan hátt að ef hann beiti
neitunarvaldi muni það valda leið-
togahlutverki Bandaríkjanna í
Afríku miklu tjóni. „Þetta er mjög
alvarlegt mál og skiptir máli hvorum
megin maður stendur. Við þurfum
nauðsynlega á því að halda að
standa með réttum aðila sögulega
séð í þessu máli.“
Talsmaður Hvíta hússins viður-
kenndi að stjómin ætti fyrir höndum
erfiða baráttu og ætti undir högg að
sækja. I öldungadeildinni, þar sem
repúblíkanar eru í meirihluta, voru
aðeins 14 þingmenn á móti hörðum
aðgerðum gegn Suður-Afríku. Það
er 20 atkvæðum færra en forsetinn
þarf til að fa sína ákvörðun sam-
þykkta ef allir 100 öldungadeildar-
þingmenn greiða atkvæði.
Neitunarvaldi aldrei hrundið
Neitunarvald er hægt að nema úr
gildi með tveimur þriðju atkvæða í
hvorri deild þingsins. Reagan hefur
beitt neitunarvaldi átta sinnum frá
því að þetta þing sem nú situr kom
saman og aldrei hefur neitunarvaldi
hans verið hrundið.
Þær aðgerðir, er forsetinn hyggst
nú beita neitunarvaldi gegn, miða
að banni við frekari fjárfestingum
bandarískra fyrirtækja í Suður-Afr-
íku, suður-afríska ríkisflugfélaginu
verði meinaður lendingarréttur í
Bandaríkjunum og bannaður verði
innflutningur á suður-afi-ískum iðn-
aðarvörum, svo sem kolum, stáli,
e&iavörum og úraníum.
í áætlunum Hvíta hússins um
refsiaðgerðir fyrirfinnst aðeins hluti
þessara tillagna.
Lany Speakes, talsmaður Hvíta
hússins, viðurkenndi að Hvíta húsið
væri einnig að undirbúa að minnsta
kosti fimm hundruð milljón dollara
aðstoð til nokkurra ríkja Afríku er
landamæri eiga að Suður-Afríku, en
efnahagslegar refeiaðgerðir gegn
Suður-Afríku hefðu að auki veruleg
neikvæð áhrif á efhahag þessara
ríkja.
Er Lugar var Bpurður að því hvort
tillögur um slíka aðstoð yrðu sam-
þykktar á þinginu á sama tíma og
barist væri um hvem dollar í efna-
hagsaðstoð frá Bandaríkjunum
kvaðst hann ekki bjartsýnn á sh'kt.
Fyrir utan það að tilnefha svartan
sendiherra Bandaríkjanna í Pretoríu
myndu tillögur Hvíta hússins einnig
gera ráð fyrir sérstakri ferð Shultz
utanríkisráðherra til suðurhluta
Afríku til viðræðna við stjómvöld
nokkurra Afríkuríkja.
Alvarlegar afleiðingar neitun-
arvalds
Lugar, aðalhöfundur þeirra refei-
aðgerða er Bandaríkjaþing hefur
þegar samþykkt, hefur hvað eftir
annað fullyrt að hann telji að forset-
inn eigi að samþykkja refeiaðgerð-
imar skilyrðislaust.
Lugar hefur að auki bent á alvar-
legar afleiðingar þess að forsetinn
beiti neitunarvaldi.
Þingmaðurinn telur að neitun for-
setans, jafhvel þó hún stæði í
sambandi við einhverjar refeiað-
gerðir, myndi gera Bandaríkin að
stuðningsafli kynþáttaaðskilnaðar-
stefriunnar í Suður-Afríku og gæti
haft alvarlegar afleiðingar fyrir álit
Bandaríkjastjómar í augum um-
heimsins.
Lugar fullyrðir að Bandaríkin og
önnur vestræn ríki eigi nú örlitla
möguleika á að þvinga suður-afrísk
stjómvöld til að semja við blakkan
meirihluta landsins og koma á nýju
stjómskipulagi í landinu. Ef forset-
inn notfeeri sér ekki þetta tækifæri
telur Lugar að ástandið í Suður-
Afríku versni til muna með sívax-
andi ofbeldisaðgerðum á báða bóga.
Ekki hrifinn af neinum refsi-
aðgeröum?
Nancy Kassenbaum, öldunga-
deildarþingmaður frá Kansas, sem
meðal annars er formaður þing-
nefridar um málefhi Afríkuríkja,
hefur lýst yfir stuðningi sínum við
sjónarmið Lugars. Kassenbaum lýsti
yfir vonbrigðum sínum með það að
Hvíta húsið hefði ekki tekið mark á
aðvörunum þingmanna. „Ég vildi
óska þess að einhver þama í Hvíta
húsinu skyldi þá þýðingu er þetta
mál hefur á þessari stundu," sagði
Kassenbaum.
Lugar bætti því við að þetta
strandaði allt á Reagan forseta. „Ég
held að forsetinn hafi aldrei verið
neitt hrifinn af refeiaðgerðum, eng-
um refeiaðgerðum."
Umsjón: Hannes Heimisson