Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Blaðsíða 19
• FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1986. 31 íþróttir „Allsekki hönd - „Skil ekkert í faránlegum fullyrðingum Morgunblaðsins/4 segir Amór Guðjohnsen „Það er alveg heilagur sannleikur að boltinn fór aldrei í höndina á mér. Og ég verð að segja eins og er að mér finnst fullyrðingin í Morgunblaðinu þess efiiis að ég hafi snert boltann með hendinni stórfurðuleg og myndin á baksíðu blaðsins sannar akkúrat ekki neittsagði Amór Guðjohnsen knatt- spymumaður í samtali við DV í gærkvöldi. Mjög miklar umræður hafa verið í gangi um mark Amórs gegn Sovétmönnum og ekki allir verið á einu máli um lögmæti þess. Gefum Amóri aftur orðið: „Ég var mikið spurður um það eftir leikinn hvort boltinn heíði farið í höndina á mér. Ég grínaðist með þetta og datt í hug tilfæringar Maradona í Mexíkó og sagði sem svo að ef um hönd hefði verið að ræða þá hefði hönd guðs ve- rið að verki. Ég verð að segja að mér finnst það furðulegt hvemig Morgun- blaðið getur leyft sér að fiillyrða að boltinn hafi farið í höndina á mér. Ég hélt að varla væri hægt að finna nei- kvæðan blett á leik okkar gegn Sovétmönnum en það er alltaf reynt að finna eitthvað til. Það var ekkert að þessu marki og boltinn fór aldrei nálægt hendinni á mér,“ sagði Amór og var greinilega mjög sár yfir því að reynt væri hér á landi að halda þvi fram að mark hans hafi verið ólög- legt. Þess má geta að í samtali við DV i gær sagðist Amór ekki hafa lagt fyr- ir sig knöttinn með hendinni heldur bijóstkassanum. Ef knötturinn hefði farið í einhverja hönd hefði það verið hönd einhvers annars (guðs). Hreinar línur í sjónvarpinu? Bjami Felixson, íþróttafréttamaður sjónvarpsins, er búinn að skoða þetta umdeilda mark mjög oft og að hans sögn kemur það greinilega fram að boltinn kom aldrei nálægt hendi Ar- nórs. Það ætti því að vera ljóst að markið umdeilda var löglegt. -SK . Hann Annað Alohamótið hjáGR Annað Alohamótið í golfi, sem styrkja GR-sveitina en sem kunn- haldið er til styrktar sveit GR, sem ugt er náði sveitin þeim Érábæra keppir í Evrópumóti klúbbliða á árangri að haína í fjórða sæti í Spáni í nóvember, fer fram á Graf- fyrra. arholtsvelli á morgun og hefst Á sunnudagsmorgun klukkan klukkanníu.Leikinnverðurhögg- tíu fer fram haustleikur unglinga leikur með forgjöf og em allir og verður leikinn fjórmenningur. kylfingar hvattir til að mæta' og -SK Stórtap nyrðra Tékkar unnu stóran sigur á ís- lenska landsliðinu, skipuðu leik- mönnum undir 21 árs, er þjóðimar léku á Akureyri i gærkvöldi. Tékk- ar skomðu eitt mark i fyrri hálfleik en þijú i þeim síðari og sigmðu því með fjórum mörkum gegn engu. Besta marktækifæri íslenska liðsins fékk Siguróli Kristjánsson en skot hans í fyrri hálfleik hafn- aði í þverslánni. -SK. • Mark eða ekki mark? Þessi skemmtilega mynd sýnir þegar Atli Eðvaldsson (nr. 6) skoraði mark gegn Toni Schumacher, landsliðsmarkverði V-Þjóðverja, um sl. helgi. Fridhelm Funkel (nr. 10) lyftir upp höndum og fagnar. „Slæmt fyrir Stuttgart að missa Allgöwer" „Ágreiningur Karls Allgöwer og formanns Stuttgart hefur verið upp- blásinn í blöðum í Vestur-Þýskalandi. Það er stirt á milli þeirra en ég held að Allgöwer sé ekki á förum frá okk- ur, fjarri því,“ sagði Ásgeir Sigurvins- son þegar við spurðum hann um þau ummæli formanns Stuttgart að hann vildi fegirrn losna við Allgöwer. „Það yrði slæmt fyrir Stuttgart að missa Allgöwer. Hann er snjall mið- vallarspilari sem skorar mikið af mörkum. Allgöwer hefur verið marka- hæsti leikmaður Stuttgart undanfarin ár,“ sagði Atli Eðvaldsson. „Já, lið okkar yrði ekki það sama ef Allgöwer færi,“ sagði Ásgeir. -sos • Karl Allgöwer sést hér skora úr vitaspymu gegn Dusseldorf um sl. helgi. Hann skoraði tvö mörk í leiknum. Ásgeir Sigurvinsson sést t.v. á myndinni. „Erfitt að stöðva Bayem“ - sem er eins og Uverpool á Englandi „Það er ljóst að það verður erfitt að itöðva Bayem Miinchen. Félagið er eins )g Liverpool á Englandi. Hefur mikið af injöllum leikmönnum í herbúðum sínum. Jetur leyft sér það að láta stórgóða leik- nenn verma varamannabekkinn," sagði \tli Eðvaldsson. „Bæjarar em með mjög öflugan mann- ikap og það er meistarastimpill á félaginu. 5g sé ekkert félag sem getur veitt Bayem iarða keppni. Ég held að Bremen verði ekki inni í dæminu eins og undanfarin ár. Bremen hefur hafnað í öðm sæti þijú undanfarin keppnistímabil," sagði Ásgeir Sigurvinsson. „Bremen-liðið er byggt upp á gömlum leikmönnum sem hafa greinilega ekki þolað það að missa af meistaratitlinum í síðasta leik sl. keppnistímabils á lakari markatölu heldur en Bayem,“ sagði Atli. - Hvað með Stuttgart og Uerdingen? „Við hjá Stuttgart stefnum að því að tryggja okkur UEFA-sæti. Meistaratitill yrði aukabónus. Að sjálfeögðu reynum við allt sem við getum til að blanda okkur í meistarabaráttuna," sagði Ásgeir. „Það er sama upp á teningnum hjá okk- ur. Við hugsum fyrst og fremst um UEFA-sæti,“ sagði Atli. - Nú hafa Stuttgart og Uerdingen skor- að mikið af mörkum að undanfömu. „Já, og við vonum að þar verði engin breyting á,“ sögðu þeir félagar. SOS Atli og Láras til Mexíkó Atli Eðvaldsson, Lárus Guð- mundsson og félagar þeirra hjá Bayer Uerdingen fara í æfingaferð til Mexíkó í desember. „Það er er ráðgert að leikmenn Uerdingen komi saman á annan í jólum og haldi þá í tveggja til þriggja vikna æfingaferð til Mexíkó. Það er auð- vitað gaman að koma til Mexíkó en aftur á móti er það leiðinlegt að þurfa að yfirgefa íjölskyldu sína um jól og áramót,“ sagði Atli Eð- valdsson um keppnisferðina til •Carr er hér á ferðinni. Carrhleypur 100 m á 10,4 sekúndum „Strákurinn hljóp á venjulegri grasflöt og notaði ekki einu sinni hlaupaskó eða startblokk. Eigi að síður hljóp hann 100 metrana á ótrúlegum tíma eða 10,4 sekúnd- um.“ sagði Brian Clough, fram- kvæmdastjóri Nottingham Forest. Pilturinn, sem hann er að tala um. er blökkumaðurinn Franz Carr. Hann er einn af hinum ungu leik- mönnum Nottingham sem svo - mjög hafa komið á óvart það sem af er keppnistímabilinu. Hinn mikli hraði Carr hefur átt stóran þátt í því hve sóknarleikur Nott- ingham hefur verið beittur það sem aferkeppnistímabilinu. Að margra dómi er Carr eitt mesta eftii sem komið hefur fram í Englandi í langan tíma. „Ég er þess fullviss að Carr gæti keppt í frjásíþróttaliði Englend- inga á næstu ólvmpíuleikum ef hann fengi réttar æfingar." sagði Clough. -SMJ Schackner fær tíu millj. í árslaun Austurríkismaðurinn Walter Schaekner, sem varð að víkja fyrir Hollendingnum Wim Kieft hjá Torínó á ítalíu, hefur gengið til liðs við Avellino. Með þvi félagi leikur Brasiliumaðurinn Dirceu. Avellino kev'pti hann fyrir um 75 milljónir ísl. króna. Schackner, sem er 29 ára, fær vel vfir tíu millj- <r ónir í árslatm hjá félaginu. -sos Teitur á fulla ferð Guxmlaugur A. Jónsson, DV, Sviþjód: Teitur Þórðarson er nú byrjaður að æfa af fullum krafti með Öster eftir þrálát meiðsli sem hann hefur átt við að stríða. „Þetta keppnis- tímabil hefur farið í ekki neitt hjá mér. Ég hef aldrei verið svo óhepp- inn áður að heilt keppnistímabil >. hafi farið í súginn," sagði Teitur. „í hamaganginum við að komast í æfingu eftir meiðslin á hendi tognaði ég illa á læri,“ sagði Teit- ur. öster hefur ekki géngið vel í „Allsvenskan" og er nú í tíunda sæti þegar tvær umferðir eru eftir í Svíþjóð. öster kemst þvi ekki í úrslitakeppnina um Svíþjóðar- meistaratitilinn. -SOS Framarar tyrfa Miklar framkvæmdir hafa staðið v yfir á félagssvæði Fram við Safa- mýri undanfarið og á morgun klukkan níu fyrir hádegi ætla Framarar að reka endahnútinn á að tyrfa félagssvæðið. Af því tálefni eru allir Framarar hvattir til að mæta og taka til hendinni. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.