Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1986, Blaðsíða 28
40 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1986. Andlát Júlíus Jónsson lést 17. september sl. Hann fæddist 18. ágúst árið 1900 í Reykjarfirði í Amarfirði. Foreldrar hans voru hjónin Jóna Ásgeirsdóttir og Jónas Ásmundsson. Júlíus fluttist til Bíldudals og var verkstjóri í hrað- frystihúsinu um árabil og síðan starfsmaður frystihússins og Rækju- vers hf. Hann giftist Guðmundu S. Magnúsdóttur en hún lést 1956. Þeim hjónum varð ekki barna auðið en ólu upp systurson Júlíusar. Utför hans verður gerð frá Áskirkju í dag kl. 13.30. Guðmundur Illugason, fyrrver- andi lögregluþjónn og hreppstjóri á Seltjarnarnesi, er látinn. Kristbjörg Bjarnadóttir lést á Hrafnistu 25. september. Guðbjörg Fjóla Jónsdóttir Jörg- ensen andaðist í sjúkrahúsi í Bergen 23. september 1986. Karlotta Þórunn Þorsteinsdóttir, Efstasundi 9, lést í Öldrunardeild Landspítalans, Hátúni 10 b, 22. sept- ember. Ingunn Kr. Einarsdóttir frá Borg- arnesi verður jarðsungin frá Borgar- neskirkju laugardaginn 27. september kl. 13. Tilkyrmingar Fermingarfræðsla og barnastarf Að venju hefjast spurningar ferming- arbarna í Reykjavíkurprófastsdæmi í byrjun október. Rétt á fermingu eiga nú þau börn sem fædd eru árið 1973. Með orðum þessum fylgir listi frá söfnuðum og prestum prófasts- dæmisins þar sem greint er frá því hvenær börnin eiga að koma til við- tals hið fyrsta skiptið og fá almennar upplýsingar um kverið sem notað er og tilhögun spurninganna. Er brýnt að börnin mæti í þessa viðtalstíma en séu einhverjir i vafa um sóknar- mörk og hvert leita eigi er hægt að fá þær upplýsingar á skrifstofu dóm- prófasts, sími 37810, eða á hagstof- unni. Fyrsta sunnudag í október hefjast líka bamasamkomur og sunnudaga- skólar. Verður það nánar auglýst með messutilkynningum safnaðanna fyrir aðra helgi en á sunnudaginn kemur mun verða fjallað nánar um bama- og æskulýðsstarfið á komandi vetri og þá munu fulltrúar frá KFUM og KFUK koma í messur og skýra frá væntanlegu starfi félaganna og þá verður um leið sagt frá því sem er á döfinni í viðkomandi söfnuði. Þá vil ég einnig vekja athygli á því að þeir söfnuðir, sem færa messutím- ann til kl. 11 árdegis á sumrin, breyta nú aftur til með fyrsta sunnudegi í október og færa messutímann aftur til kl. 14. Ólafur Skúlason dómprófastur. Fermingarböm ársins 1987 Árbæjarprestakll Væntanleg fermingarböm mín í Ár- bæjarprestakalli á árinu 1987 em beðin að koma til skráningar og viðtals í safn- aðarheimili Árbæjarsóknar þriðjudag- inn 30. sept. nk. Stúlkur komi kl. 18 (kl. 6 síðdegis) og drengir kl. 18.30 (kl. 6.30 síðdegis) og hafi börnin með sér ritföng. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Áskirkja Væntanleg fermingarböm mæti í safnað- arheimili Áskirkju kl. 17.00 þriðjudaginn 30. sept. nk. Sr. Árni Bergur Sigurbjöms- son. Breiðholtssókn Væntanleg fermingarbörn næsta árs mæti í Breiðholtsskóla fóstudaginn 3. okt. nk.. kl. 18. Sóknarnefndin. Bústaðakirkja Væntanleg fermingarböm ársins 1987 em beðin að koma í kirkjuna föstud. 3. okt. kl. 18.00 og hafa með sér ritföng. Sr. Ólafur Skúlason. Digranesprestakall Þau böm í Digranesprestakalli sem fermast eiga næsta vor em beðin að koma til innritunar í safnaðarheimilið við Bjamhólastíg miðvikudag 1. okt. kl. 3-4 og fimmtudaginn 2. okt. kl. 3. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan Væntanleg fermingarböm sr. Þóris Step- hensen em beðin að mæta til skráningar í Dómkirkjunni fimmtudaginn 2. okt. kl. 5 e.h. Börnin em beðin að hafa með sér ritföng. Væntanleg fermingarbörn sr. Hjalta Guðmundssonar em beðin að mæta til skráningar í Dómkirkjunni föstudaginn 3. okt. kl. 5 e.h. Bömin eru beðin að hafa með sér ritfóng. Fella- og Hólakirkja Þau fermingarböm sem ekki hafa þegar verið skráð í skólunum komi til skrán- ingar í kirkjuna fimmtudaginn 2. okt. milli kl. 5 og 7 síðdegis. Sr. Hreinn Hjart- arson. Grensáskirkja Væntanleg fermingarbörn næsta árs komi til skráningar í safnaðarheimilinu við Háaleitisbraut miðvikudaginn 1. okt. milli kl. 5 og 6 síðdegis. Sr. Halldór S. Gröndal. Hallgrímskirkja Væntanleg fermingarbörn komi í kirkj- una þriðjudag 30. sept. kl. 17. Sóknar- prestar. Háteigskirkja Væntanleg fermingarböm komi mið- vikudag 1. okt. kl. 18 í kirkjuna. Börnin hafi með sér ritföng. Sóknarprestur. Kársnesprestakall Væntanleg fermingarböm mæti til skráningar í Kópavogskirkju milli kl. 6 og 7 síðdegis miðvikudaginn 1. okt. nk. Sr. Árni Pálsson. Langholtskirkja Fermingarbörn Langholtskirkju vor og haust 1987 mæti til skráningar í safnað- arheimilinu þriðjudaginn 30. september kl. 18. Sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Laugarneskirkja Væntanleg fermingarböm komi til inn- ritunar í safnaðarheimili Laugames- kirkju þriðjudaginn 30. sept. kl. 17. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Neskirkja Væntanleg vorfermingarböm mæti til skráningar í kirkjunni nk. miðvikudag, 1. okt., kl. 15-17. Sóknarprestarnir. Seljasókn Væntanleg fermingarböm ársins 1987 komi til skráningar í Ölduselsskóla mánudaginn 29. sept. kl. 17-18 og í Selja- skóla þriðjudaginn 30. sept. kl. 17.30-18. 30. Sr. Valgeir Ástráðsson. Seltjarnameskirkja Væntanleg fermingarbörn komi til skráningar á skrifstofu sóknarprests í Seltjamameskirkju milli kl. 15 og 17 þriðjudaginn 30. sept. nk. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Frikirkjan í Reykjavík Væntanleg fermingarböm ársins 1987 eru beðin að koma í kirkjuna laugardag- inn 4. okt. nk. kl. 14. Sr. Gunnar Bjöms- son. Nauðungaruppboð á fasteigninni Ljárskógum 29, þingl. eigandi Dan Valgarð S. Wiium og Helga K. Wiium, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 29. sept. '86 kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð á fasteigninni Laekjarseli 3, þingl. eigandi Guðbjartur Rafn Einarsson, fer fram á eigninni sjálfrí mánud. 29. sept '86 kl. 16.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald- heimtan í Reykjavík. ______________________Borgarfógetaembaettið i Reykjavík. Útvarp - Sjónvarp Klemenz Jónsson Eeikari: Vetrardagskráin lofar góðu í gærkvöldi gat ég ekkert hlustað á útvarpið því ég var að horfa á generalprufu á leikritinu Uppreisn á Isafirði. Þar af leiðandi missti ég af leikritinu Kappinn að vestan en ég ætla að hlusta á það í staðinn næsta þriðjudagskvöld þegar það verður endurílutt. Þetta leikrit er í miklu uppáhaldi hjá mér. Eg hlusta talsvert mikið á rás 1. Sérstaklega um helgar. Mér finnst mörg atriði þar bæði fræðandi og skemmtileg. En mér finnst rás 1 ekki fullnýtt að deginum, miðað við hve það er góður hlustunartími. Eftir klukkan 8 á kvöldin hlusta ég lítið á útvarpið, nema það sé eitthvað sérstakt. Þvi þá horfi ég frekar á sjónvarpið. Ég hlusta lítið á rás 2 og get því lítið sagt um hana. Bylgjuna hef ég aðeins hlustað á og finnst hún lífleg og lofa góðu. En það getur verið að fólk hlusti meira á hana en rás 2 vegna nýjabrumsins og þess að það er annar stíll á henni. í sjónvarpsdagskránni verður maður að velja og haftia. Oftá tíðum eru skemmtilegir þættir en stundum er óttalegt drasl innanum. Ég horfi náttúrlega alltaf á fréttimar og finnst allt í lagi að flytja þær fram um hálftíma. Vetrardagskráin, sem kynnt var um daginn, finnst mér lofa góðu. Þættimir Sjúkrahúsið í Svartaskógi em ágætir. Það er gott að fá efni annars staðar en frá en- skumælandi löndum. DúnduríTónabæ 1 kvöld, föstudag, verður haldinn stórdans- leikur í Tónabæ, húsi Æskulýðsráðs. Þar kemur fram hljómsveitin Dúndur en sveit- in er ein vinsælasta danshljómsveit landsins um þessar mundir. Hljómsveitina skipa: Gunnlaugur Briem, trommur, Jó- hann Ásmundsson, bassi, Sigurgeir Sigmundsson, gítar, Hjörtur Howser, hljómborð, Bjartmar Guðlaugsson, söng- ur, Pétur W. Kristjánsson, söngur og Eiríkur Hauksson söngur. Dansleikurinn hefst kl. 20 og stendur til 00.30. Miðaverði er mjög stillt í hóf, aðeins kr. 300. Sem sagt ef þú ert fæddur fyrir það herrans ár 1973 þá er margt vitlausara en að skella sér í Tónabæ á föstudagskvöldið. 90 ára er í dag, 26. september, Guð- rún Eiríksdóttir, Flateyri. Hún er ekkja Hinriks Guðmundssonar. Guð- rún hefur alið allan sinn aldur á Flateyri. Hún tekur á móti gestum á heimili dóttur sinnar og tengdasonar þar í bænum í dag. Torfhleðslusýningin Fold ’86 stendur yfír þessa dagana sunnan við Norræna húsið. Ósvaka verður laugardag- inn 27. sept. í Vatnsmýrinni. Kl. 15 verður ljóðalestur og kvæði, kl. 16 verður dansinn „Kattfimi“ sýndur. Kl. 2Ó verður AUA uppákoma. Kl. 20 Rúnagaldur og kl. 21 kvöldvaka; langeldur, sögur, vísur og ljóð. Sunnudaginn 28. sept. kl. 15 talar Tryggvi Hansen um íþróttir og listir. Kl. 15.30 sýna félagar 1 Ármanni íslenska glímu, kl. 16 bardagalist, kl. 16.30 bogfimi, kl. 17 torf- hleðsluíþrótt. Kl! 17.30 sýna félagar úr Fallhlífaklúbbi Reykjavíkur stökk og kl. 20 fremja íslenskar seiðkonur og seiðmenn hvítan galdur. Tapað-Fundiö Minkahattur tapaðist Minkahattur með börðum, sérsaumaður, tapaðist úr húsi við Ingólfsstræti þriðju- daginn 16. september sl. milli kl. 9 og 10 um morguninn. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 14657 eða 78007 eftir kl. 19 ,, ... ... , , eða þá hafi samband við lögregluna. Fund- Gulfbruðkaup eiga í dag, 26. sept- arlaun. ember, hjónin María Júlíusdóttir 80 ára er í dag, 26. september, Val- garður Sigurðsson trillukarl frá Hjalteyri, Hátúni 1, Keflavík. Hann er að heiman. og Guðmundur Jónatansson mál- arameistari, Ránargötu 20, Akureyri. Tónleikar hjá Musica Nova Sunnudaginn 28. september verða í Norr- æna húsinu tónleikar á vegum Musica Nova. Þar mun tvíeykið Inside-Out frá Danmörku flytja nýja norræna tónlist. Inside-Out skipa þeir Karl Antz baríton- söngvari og John Ehde sellóleikari, en þeir eru um þessar mundir á tónleikaferð um Norðurlöndin. Þeir félagar hafa starf- að saman um nokkurt skeið og mörg tónskáld hafa samið sérstaklega fyrir þá. Það á við um öll verkin á efnisskrá tónlei- kanna í Norræna húsinu. Frumflutt verður m.a. nýtt íslenskt verk eftir Áma Harðarson, en það er samið að beiðni Corona-dansflokksins í Kaupmannahöfn í samvinnu við Inside-Out. Erlendu tón- skáldin, sem eiga verk á þessum tónleikum eru Per Nörgárd, Birgette Alsted, Ruth Bakke og Hans Söderberg og er verk hins síðastnefnda jafnframt frumflutningur. Vakin er athygli á tímasetningu tónlei- kanna en þeir eru á sunnudag eins og áður sagði og hefjast kl. 14. Guösþjónustur Keflavíkurkirkja. Guðsþjónusta kl. 14. Vetrarstarf KFUM og K í Kefla- vík hefst. Valfríður Finnbogad., formaður KFUK í Reykjavík talar. óskar Birgisson flytur ávarp. Sókn- arprestur. Afmæli 80 ára er í dag, 26. september, Sigur- veig Steingrímsdóttir, Álfaskeiði 43, Hafnarfirði. Eiginmaður hennar var Jóhannes Gunnarsson kaup- maður er lést árið 1951. Hún er borin og barnfæddur Hafnfirðingur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.